Morgunblaðið - 01.07.1954, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 01.07.1954, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 1. júlí 1954 MORGTJNRIAÐIÐ !í Etftir Hermoð Guðmundsson ÁRNESI, S.-Þing.: — Hinn' 7.-8. þ.m. var haldið hátíðlegt 25 ára afmaeli Húsmæöraskólanm að Laugum í Reykjadal. A annan í hvítasunnu hófust hátíðahöldin kl. 18 með ræðu formanns skóla- ráðs Húsmæðraskólans, Karls Kristjánssonar, alþm. I ræðu sinni gerði Karl Kristjánsson grein fyrir sögu skólans frá upp- hafi. Gat ræðumaður þess, að Anna Kristjánsdóttir á Koiborg- ará í Bárðaraal hefði fyrst vakið máls á stofnun húsmæðraskóla fyrir Þingeyjarsýslu árið 1900. Síðan hefðu þingeyzkar konur ári siðar sent Alþingi áskorun um stofnun húsmæðraskóla, en ár- angurslaust í það sinn. — Málið var þó ekki látið niður falla af hálfu þingeyzkra kvenna, sem héldu skólahugmyndinni sívak- andi af miklum dugnaði. Voru þar fremstar í flokki Hólmfríður Pétursdóttir frá Gautlöndum, Kristbjörg Marteinsdóttir í Ysta- felli og Ilelga Kristjánsdóttir. Um 1915 lagði Jónas Jónsson málinu stuðning um leið og hann barðist fyrir stofnun Héraðsskól- ans á Laugum. Varð nú stofnun húsmæðraskólans að sameigin- legu baráttumáli kvenfélaganna í sýslunni og veitti Alþingi 1928 13 þúsund krónur framlag til byggingar húsmæðraskóla á Laug um, en það var helmingur áætl- aðs kostnaðar, sem varð þó 51. þús. krónur. Tók skólinn form- Jega til starfa í nóv.-mánuði 1929 og rúmaði þá 12—14 námsmeyj- ar. Þannig lauk þriggja áratuga baráttustarfi þingeyzkra kvenria í húsmæðraskólamálinu. Að ræðu Karls Kristjánssonar Jokinni sýndu námsmeyjar hús- mæðraskólans þjóðdansa og leik- þátt úr Skugga-Sveini, og enn- fremur var söngur undir stjórn Páls H. Jónssonar söngkennara. Að lokum var svo stiginn dans fram eftir nóttu. NEMENDAMÓTIÐ Síðari daginn, h5nn 8., var dagurinn að mestu helgaður fyrr verandi námsmeyjum húsmæðra- skólans. Nemendamótið hófst kl. 2 e.h. með guðsþjónustu. Sóknar- presturinn séra Sigurður Guð- mundsson messaði. Að lokinni guðsþjónustunni bauð húsmæðraskólinn öllum gestum til miðdegisverðar í Hér- aðsskólanum, sem framreiddur var af miklum myndarskap og húsmæðraskólanemum. Kl. 19 hófst samkoma í íþrótta- húsi héraðsskólans. Forstöðukona húsmæðraskólans, frá Halldóra Sigurjónsdóttir, bauð nemendur og gesti velkomna fyrir hönd skólans. Karl Kristjánsson alþm. flutti ræðu, séra Friðrik A. Frið- riksson talaði fyrir minni kvenna. Sigurður Kristjánsson þakkaði húsmæðraskólanum gott nábýli og ánægjulega samvinnu. Hall- dóra Eggertsdóttir námsstjóri flutti húsmæðraskólanum þakkir fræðslumálastjórnar, Þórdís Ás- geirsdóttir 1 þakkaði núverandi námsmeyjum skólans fyrir sér- staklega óeigingjarnt starf við undirbúning hátíðahaldanna. Hólmfríður Pétursdóttir þakkaði f. h. kvenfélaga sýslunnar öllum velgerðarmönnum og stuðnings- mönnum skólans frá upphafi og Júlíus Havsteen, sýslumaður, fiutti húsmæðraskólanum þakkir sýslunefndarinnar fyrir ágætt starf. Kvæði fluttu: Bragi Sigur- jónsson, Jón Haraldsson, Arnþór Árnason, Margrét Lútersdóttir og Páll H. Jónsson las kvæði eftir Þórodd Guðmundsson. Milli ræðuhalda og kvæðaupp- lesturs var almennur söngur und- ir stjórn Páls H. Jónssonar. Að lokum söng skólakórinn og sýndi þjóðdansa, en samltornunni lauk kl. 23. SKÓLANUM BÁRUST GJAFIR Margar gjafir bárust skólanum vio þetta tækifæri. Systkifcin frá Mýri í Bárðardal gáfu skólanum 5 þús. kr. til minningar um for- eldra sína Jón Karlsson og Aðal- björgu Jónscíóttur, Kvenfélag Bárðdæla gaf 15 hundruð krónur, núverandi námsmeyjar vandaða stundaklukku, fyrrverandi nem- endur búsettir á Húsavík kerta- stjaka og ýmsar bekkjarsystur Ilalldóra Sigurjónsdóttir forstöðukona heldur raeðu. peningagjafir, samtals um 2 þús. krónur. FJÖLMENN HÁTIBAHÖLD Mikið fjölmenni tók þátt í há- tíðahöldunum báða dagana. Kom þar fram, hve miklum vinsæld- um húsmæðraskólinn á Laugum á að fagna meðal Þingeyinga og annarra. Þarna voru samankomn- ir á þriðja hundrað fyrrverandi nemendur skólans og margir langt að komnir. Margs var því að minnast frá fyrri tíð, en flest- um eru ljúfár endurminningar námsáranna og geyma þær eins og fegurstu perlur lífs sins. Mikl- ar breytingar höfðu iíka orðið á skólanúm og umhverfi hans á liðnum árum. Upp var risinn stór og nýtízkulegur skóli við hliðina á litla garnla vinalega skólanum með burstunum tveim, skólalóð- in girt og fegurð og birkiskógur limríkur, nýplantaður, að þekja hlíðina ofan við skólann. Ilúsmæðraskólinn að Laugum. HANDAVINNUSÝNINGIN Frá þvi fyrst að Húsmæðra- skólinn á Laugum tók til starfa fyrir aladrfjórðungi síðan, hefur í lok hvers skólaárs verið haldin sýning á handavinnu námsmeyja. Ilefur verið gestkvæmt í skólan- um á sýningunum því að margt hefur verið að skoða af fögrum munum. Að þessu sinni stóð handavinnusýningin yfir báða hátíðistdagana. Gaf þar að líta markskonar vefnað og útsaum- aða muni ásamt mörgu fleiru alls á 12. hundrað muni. Er ótrúlegt hvað tæpar 30 námsmeyjar geta komið í verk á þessu sviði á að- eins einum vetri þar sem öðrum verklegum — og bóklegum grein- um skóians er ætlað mikið rúm. Verður því ekki sagt, að hús- mæðraskólinn kenni nemendum sínum að slá slöku við námsefnið. Er gleðilegt til þess að vita hvað mörg þingeyzk heimili hafa þeg- ar tileinkað sér hina litauðugu, smekklegu og þjóðlegu húsmæðra skólamenningu frá Laugum, en skóiinn hefur nú brautskráð alls 500 námsmeyjar frá því hann tók fyrst til starfa. GÓÐ HÚSAKYNNI Eins og áður er sagt kostaði gamli húsmæðraskólinn 51 þús. krónur og rúmaði 12—14 nem- endur. Þessi bygging var reist í burstastílnum gamla og fór eink- ar vel við hið fagra umhverfi. Árið 1944 beitti sér þáverandi for stöðukona, sem hafði mótað og stýrt starfi skólans frá upphafi af óvenjulegum skörungsskap, frk. Kristjana Pétursdóttir frá Gautlöndum, fyrir stækkun skól- ans. Fyrir ötula baróttu hennar, skólanefndar, kvenfélaga sýsl- unnar og með stuðningi sýslu- nefndarinnar komst skólastækk- unarhugmyndin í framkvæmd, en því miður andaðist Kristjana áður en sá draumur hennar gat orðið að veruleika. Árið 1948 var nýja skólahúsið tekið í notkur, og rúmaði húsmæðraskólinn nú sam tals 36 rrámsmeyjar Þessi nýja bygging var hin vandaðasta og veglegasta á alla grein Hún var þó í öðrum stil en eldri skóla- byggingin og báru margir kvíð- boga fyrir því, að svona ólíkar byggingar færu illa hlið við hlið. Þetta fór þó á annan veg og eru allir prýðilega ánægðir með það hve vel hefur til tekist með (Ljósmyndirnar tók Sig. P. Björnsson, Húsavík). útlit skólans og alla skipulagn- ingu hið innra. Heildar stofnkostnaður við- byggingarinnar varð 972 þús. kr. og greiddi ríkið eða á að gxeiða %, en héraðið 14 kostnaðarins. Hefur kostnaður héraðsins verið greiddur af sýslusjóði og kvenfél. sýslunnar, sem hafa af mikilli ósérplægni safnað miklu fé til skólabyggingarinnar. Auk þess gáfu nokkrir vinir og velunnarar Frá handavinnusýningu nemenda. Öllum sýningargestum var gefið kaffi að gömlum sið. skólans rausnarlegar peninga- gjafir í byggingarsjóð svo sem Gautlandasystkini og Litlulauga- systkini, sem lögðu fram sínar 10 þúsund krónur hver. ÓDÝR SKÓLI í ræðu þeirri, sem Halldóra Eggertsdóttir námsstjóri flutti gat námsstj. þess, hvað hús- mæðrafræðslan væri nauðsynleg hverri menningarþjóð. Hér á landi færu f jórða hver húsmóður- efni á húsmæðraskóla, en ef vel væri þyrfti hver einasta að eiga þess kost. Að vísu væri húsmæðra fræðslan mun minni, t. d. á Norð urlöndum þar sem aðeins 8% húsmæðra væru kvennaskóla- gengnar. Hér væri það athyglis- vert hvað kvennaskólarnir væru ódýrir, þar sem námsmeyjarnar gætu fyllilega unnið sér fyrir öll- um náms og dvalarkostnaði, ef handavinnan væri reiknuð til verðs. Námstími Húsmæðraskól- ans á Laugum er 9 mánuðir og hefur ailur dvalarkostnaður orð- ið síðustu ár um 5 þúsund krónur en þar er innifaiið fæði, hrein- lætisvörur og efni í aila skyldu- vinnu. SKÓLAKENNARAR Þegar Húsmæðraskólinn á Laugum tók til starfa 1929 var frk. Kristjana Pétursdóttir frá Gautlöndum ráðin skólastjóri og gegndi hún því starfi í samfleytt 17 ár eða þangað til hún lézt 1946. Almennt er svo talið, að betri skólastýru hefði ekkið verið unnt að fá, en þar sem Kristjana var fóru saman óvenjumiklir mann- kostir, móðurleg umhyggja fyrir nemendum og skóia, samfara skörungsskap og stjórnvisku. Gat skólinn sér strax góðan orðstír undir stjórn jafn ágætrar konu. Árið 1930 var fr. Halldóra Sig- urjónsdóttir ráðin kennari vicí húsmæðraskólann, en eftir frá falla Kristjönu Pétursdóttur var hún ráðin forstöðukona og hefur gegnt því starfi síðan. Ekki var með öllu vandalaust að setjast i rúm Kristjönu eins og gefur aíT skilja. Þetta veglega ábyrgðar- starf hefur þó Halldóra Sigru- jónsdóttir leyst af hendi af hinni mestu prýði og myndarskap ogr verður ekki annað séð en þessi menntastofnun þingeyskra hús- mæðra megi hrósa happi yfir vali núverandi skólastjóra. Með stækkun húsmæðraskól- ans 1948 óx starf forstöðukon- unnar að miklum mun, auk þess sem umfangsmiklar bygginga- framkvæmdir og umsýsla í sam bandi við þær lögðu stóraukiíf erfiði á skólastýruna til viðbótar öðrum skyldustörfum. Einnig' þetta heíur Halldóra leyst af hendi með framúrskarandi ráð- deild og dugnaði. Aðrir kennarar skólans eru: Kristín Jakcbsdóttir, sem kennii vefnað, Fanney Sigtryggsdóttir, sem kennir útsaum og sauma, en. þvotta og ræstingu kennir Jónína Björnsdóttir. I skólaráði húsmæðraskólans- eiga sæti þessir menn: Karl Kristj ánsson alþm., form., séra FriðriV A. Friðriksson prófastur, séra Sigurður Guðmundsson, Þórdú* Ásgeirsdóttir og Hólmfríðui* Pétursdóttir, sem hefur átt sæti í skóiaráði frá því skólinn tóV fyrst til starfa. Á þessum tímamótum í sögu Húsmæðraskólans á Laugum, er það ósk Þingeyinga, að gæfa, velgengni og blessun megi ætííf halda áfram að skipa virðulegt öndvegi þessarar glæsilegu menntastcfnunar þingeyskra. kvenna, svo að þar megi jafnau verða gróðursett þjóðleg og lim- rík heimilismenning til blessunai landi og þjóð IjÓ! pmssina í hausf 1 L J ÓSMYNDAFÉL AG Revkjæ- víkur, sem er félag áhugamanna. um Ijósmyndun, hefir ákveðið aS~ halda sýningu á hausti komanda. Hefur nú verið endanlega ákveð- ið um tiihögun sýningarinnar og* boðsbréf með reglum um þátt- töku í sýningunni verið prent.uð. Vitað er að áhugi landsmanna hefur farið ört vaxandi á síðari árum og enginn vafi á því að sve~ margar góðar myndir berast, að sýningin geti orðið hin bezta. Fé- lagið heíur lika fullan hug á því að gera hana vel úr garði. Auð- vitað er öllum sem vilja heimilt að senda myndir og mun fimm manna dómnefnd velja mynd- irnar. Þeir sem vilja geta fen^ið reglurnar um þátttöku í sýning- unni hjá Hans Petersen, Banka- siræti 3, Reykjavík eða skrifað til Ljósmyndafélags Reykjavíkur, e/o Atli Ólafsson, Box 1117, Reykja’úk. — Síðasti dagur til að- skila myndum er 15. ágúst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.