Morgunblaðið - 01.07.1954, Blaðsíða 16
Veðurúfili í dag:
Þykknar upp með SV átt. Stinn-
ingskaldi og rigning siðdegis.
Pcwer Bri
Sjá grein á bls. 9.
146. tbl. — Fimmtudagur 1. júlí 1954.
Hin vlsindalega athngnn
.sólmvrkvans í gær tókst vel
r
Breytist hnattstaða Islands?
MENNIRNIR, sem voru við rannsóknir á 12. sólmyrkvanum á
íslandi, í gærdag, austur hjá Guðnastöðum í A-Landeyjum,
•voru hinir ánægðustu að loknu starfi. — Þorbjörn Sigurgeirsson,
forstjóri Rannsóknarráðs, sagði í símtali við Mbl. í gær að betra
veður hefði ekki verið ákosið.
Þorbjörn kvað öll tæki hafa
verið í hinu bezta lagi og værí
!hann vongóður um að árangur-
Snn af rannsóknunum hér hefði
orðið góður.
Þegar unnið hefur verið úr
gögnum öllum í sambandi við
sólmyrkvarannsóknirnar hér
og í öðrum löndum, mun verða
mögulegt að endurskoða hnatt
stöðu íslands, lengdargráðu.
Hún verður bezt ákvörðuð í
sambandi við mæiingar á sól-
myrkva. Eins og er, þá er
hnattstaða landsins ekki ör-
ugg.
Mælingarnar, sem gerðar voru
á sólmyrkvanum voru í því fólgn-
ar að finna nákvæmlega tímann
er almyrkvinn á sólu varð.
Auk Þorbjörns störfuðu að
rannsóknunum einn Bandaríkja-
maður og tveir menn aðrir, en
auk þess var þar sérstakur ljós-
myndari frá Kodakverksmiðjun-
Msundir Reykvikinp
horfðu ú sólmyrkvunn
Húsin fæmdusl víða um hádegið í gær
UR ÞVÍ klukkan var 11 í gærmorgun fór að draga úr birtu hér
í Reykjavík og dimmdi síðan æ meir eftir því sem tunglið
skyggði á stærri flöt sólskífunnar, þar til laust eftir kl. 12 á hádegi
að hálfrokkið var orðið, þannig að kveikja varð vinnuljós, þar
itöm svo stóð á. Úr því fór að birta aftur. Sást héðan aðeins 1/72
Lluti sólar, er deildarmyrkvinn var mestur.
• ) HÓPAR Á GÖTUM ÚTI ]
Þegar líða tók að hádegi mátti
hvarvetna sjá hópa manna á göt-
um úti og á bersvæði með sótuð (
gler, eða gleraugu, dökkar gler-,
plötur, sem hægt var að fá keypt-
ac, eða jafnvel logsuðugleraugu,
J>eir sem bezt voru búnir. Beind-
jst athyglin að sólinni, sem
áðúr hafði skinið í öllum sínum
mætti á heiðríkum himni.
• ) HÚSIN TÆMDUST
í Austurstræti var mannmergð
mikil um hádegið, þar sem skrif-
stofur allar og jafnvel verzlanir
tæmdust, og fólkið virti fyrir sér
þetta einkennilega náttúrufyrir-
'oæri. Víða um bæinn voru menn
í hópum, þar sem eigendur hlífð-
arglerja réðu ríkjum og af örlæti
sínu lofuðu náunganum einnig að
„kíkja“. Sama er að segja um
heimilin. Allir meðlimir fjöl-
skyldunnar þyrptust út á lóðina
eða götuna — og enginn sagði
orð þótt drægist svolítið með
xnatartilbúninginn, því auðvitað
héldu svo hversdagslegir hlutir
húsmóðurinni ekki innan dyra.
RÚÐA BROTIN
Á einum stað hafði starfsfólk-
ið verið seint fyrir með að út-
vega sér hlífðargler, en lausnin
var nærri, rúða var brotin og
sótuð við kertaloga. Þá var og
þröng á þingi í glerverzlun einm,
er fjöldi fólks leitaði þangað eft-
ir renningum af rúðugleri, en af
nærgætni sinni við viðskiptavin-
ina hafði verzlunin logandi á all-
mörgum kertum til sótunar.
• ) ÆVINTÝRALEGUR
BLÆR
Ævintýralegum blæ sló yfir
bæinn og umhverfið, en þegar
sólin skein aftur í heiði rann allt
að nýju í eðlilegan farveg — þó
ekki væri laust við að menn
renndu enn augum til sólarinnar,
og umræðuefni kunningjanna á
götunni væri bundið þessu kyn-
lega „kvöldi“ um hádegisbilið.
Forstoðiikona \ ið
Heilsuverndar-
stöðina
Á FUNDI bæjarráðs er haldinn
var á þriðjudaginn, var ráðin
forstöðukona Heilsuverndarstöðv
arinnar nýju. — Ráðin var Sigrún
Magnúsdóttir hjúkrunarkona,
sem starfaði hjá Líkn.
Hifikagreni unnfð réff h|á
Sauðárkróki
Sauðárkróki, 30. júní.
SÍÐASTLIÐIÐ mánudagskvöld voru þeir Stefán Þröstur Sigurðs-
son og Björn Jónsson frá Sauðárkróki að silungsveiðum í
Tjarnartjörn við Sauðárkrók. Urðu þeir þá varir við mink vestan-
verðu tjarnarinnar.
GRENIÐ UNNIÐ
Á þriðjudagskvöldið fóru þeir
félagar við þriðja mann á sömu
.ilóðir og fundu bækistöðvar dýrs-
ins og voru þar 7 stórir yrðlingar
«em allir voru unnir. I fyrra-
«umar var fullorðinn minkur
drepinn á þessum sama stað.
Ekki hefur hlotizt neitt veru-
legt tjón af völdum minks á þess-
um slóðum að undanförnu, en
búast má við að hin trega sil-
ungsveiði í vestri Héraðsvatnaósi
nú í vor geti að nokkru orsakazt
af nærveru þessa skæða veiði-
dýrs. — Jón.
Horft á sólmyrkvann
Fólkið í Vík í Mýrdal fylgdist af áhuga með þróun myrkvans, eins
og fóik aiis staðar annars staðar, þar sem hann sást. Hér horfa
þrír til sólar, er hún smá sortnaði og hvarf loks fyrir augum þeirra.
Horft er í gegn um litað gler eins og boðið hafði verið.
(Ljósro. Mbl.: Ól. K. M.)
Forseti opnaði Heimiiisiðn.sýo.
Sambands norðienzkra kvenna
HEIMILISIÐNAÐARSYNING
var opnuð í Húsmæðraskóla
forseta íslands, forsetafrúnni og
■
FORSETINN OPNAÐI
SÝNINGUNA
Frú Halldóra Bjarnadóttir
klædd skautbúningi, bauð for-
setahjónin velkomin með stuttri
ræðu, en þvinæst flutti forseti
íslands ræðu og þakkaði frk.
Halldóru og norðlenzku konun-
um hið óeigingjarna starf þeirra,
að fegra og varðveita hinn forna
stíl og iðnað og samhengið í þjóð-
legri menningu. Að því loknu
lýsti forsetinn því yfir að sýn-
ingin væri opnuð kl. 16.
HEIMSÓTTU HÚSMÆÐRA-
SKÓLANN AÐ LAUGALANDI
í gær voru forsetahjónin í
húsmæðraskólanum að Lauga-
landi í Eyjafirði. Var þar sam-
ankomið um 100 manns. Meðal
þeirra fulltrúar úr öllum innri
hreppum Eyjafjarðarsýslu. Veit-
ingar fóru fram í skólanum. —
Friðjón Skarphéðinsson sýslu-
maður ávarpaði forsetahjónin og
síðan flutti forsetinn ávarp. Þa
tóku til máls Bernharð Stefáns-
son alþm. og séra Benjamín
Kristjánsson. Að lokum gengu
forsetahjónin um skólann og
skoðuðu hann. H. Vald.
AKUREYRI, 29. júní.
Sainbands norðlenzkra kvenna
Akureyrar í gær, að viðstöddum
allmörgum gestum.
Kona finos! ðrend
a
UM eittleytið í fyrrinótt fannst
öldruð kona örend á þrepum húss
þess, sem hún bjó í.
Það var lögreglubifreið, sem
var á eftirhtsferð, sem fann kon-
r.na á þrepum hússins Suðurpól
4. Hún hét ííeiga Guðrún Guð-
jónsdóttir og var 76 ára að aldri.
— I ljós kom, að banamein henn-
ar var hjartahilun. — Hafði hún
ger'gið út úr húsinu, en fengið
hjartaslag a þrepunum, eins og
fyrr greinir.
Taflfélagið fær
húsaleigustyrk
frá bæjarsjóði
BÆJARRÁÐ hefur ákveðið að
hlaupa undir bagga með Taflfé-
lagi Reykjavíkur varðandi heppi-
legt húsnæði til félagsstarfsins.
Hefur húsnæðisleysið mjög tor-
veldað allt félagsstarfið, en aftur
á móti mikill og almenr.ur skák-
áhugi hér í Reykjavík.
Á fundi bæjarráðs var sam-
þykkt á þriðjudaginn, að veita
Taflfélaginu styrk til húsaleigu
greiðslú í eitt ár. Félagið hefur
samið við Slysavarnafélagið um
afnot af fundarsal félagsins í
Grófinni 1.
„Sóímyrkvaslys44
ÞAÐ bar við í gærmorgun, er
nokkrir menn voru að lita gler
austur í Dyrhólaey til þess að
bregða fyrir augun, er til sói-
myrkvans kæmi, að logandi ben-
zín skvettist á einn þeirra og
brenndist hann nokkuð. Var það
Þorvarður Örnólfsson kennari úr
Reykjavík.
Kastaði Þorvarður þegar í stað
af sér skyrtu sinni, sem stóð í
björtu báli, og gat með því forð-
að stórslysi .Samt mun hami eitt-
hvað hafa brennzt á brjósti og
handleggjum. Héraðslæknirinn I
Vík gerði að sárum hans.
©
í gærmorgun fannst maður
liggjandi í urðinni við Dyrhó'aey.
! Mun hann um nóttina hafa ætlað
að ganga í svonefndan Loftsala-
i helli og þá dottið niður. Ekki er
ljóst hvort hann hefur hrapað
I eða fengið illkynjaðan krampa,
en hann mun eiga nokkurn vandai
til þess. Læknirinn í Vík í Mýi'dal
var sóttur og veitti hann mann-
inum nauðsynlega læknishjáip.
Borgarsijóri óskar
fillagna umferóarnefndar
vegna hinna fíðu
umferðarslysa
GUNNAR THORODDSEN, borg-
arstjóri, skrifaði umferðanefncl
bæjarins í gærdag, vegna slysS
þess er varð á móts við Herskála
búðir við Suðurlandsbraut í
fyrradag, hið þriðja á skömmuna
tíma. t
Borgarstjóri fer þess í bréfinö
á leit við umferðarnefndina að
hún geri tiilögur um hvaða ráð-
stafanir sé rétt að gera til þesa
að koma í veg I fyrir slík slvs
framvegis. i
Á það var minnzt hér í MbL
í gær, að nauðsyn bæri til að
gerðar yrðu ráðstafanir til þess
að tryggja umferðaröryggið á!
Suðurlandsbrautinni og ber að
þakka borgarstjóra fyrir for-
göngu hans í málinu. Verður
væntanlega ekki langt að bíða
tillagna umferðarmálanefndar,
því aldrei er umferðin meiri og
hættulegri á þessum slóðum eia
einmitt um sumarmánuðina. j
Bæjarráð
samþykkir víiit-
veitin
BÆJARRÁÐ fjallaði á þriðju-
dagsfundi sínum um umsókrí
Hótel Borgar um vínveitinga-:
leyfi. Bæjarráð taldi sig ekkeri
hafa við umsókn Borger að at-
huga.
Ekki vitað hvað olli skamnihlaupum
háspeniuilínunnar frá Irafossi
IGÆR átti Mbl. tál við Rafmagnsveitu Reykjavíkur, vegn'S
skammhlaupa þsirra, sem orðið hafa á háspennulínuwni frss
Sogsfossum. — Upplýstist að ekki hafi tekizt að komast fyrir um
orsök bilunarinnar. • j
komið í ljós bilun í Áburðarverk-
smiðjunni, sem valdið gæti þess-
um truflunum á rafkerfinu, og
ósennilegt að bilunina væri að
finna þar. Er nú verið að rann-
saka öryggistækin, sem eru 1
sambandi við ljósavélarnar og
rjúfa sambandið á rafvélum
orkuversins, er skammhlaup
verður. Ingólfur kvað gerðar hafa
verið ráðstafanir til þess að slík-
ar truflanir yrðu ekki á háspennu
líaumú. _j
í fréttum blaðsins í gær var
skýrt frá því að álitið væri að
skammhlaupin ættu rót sína að
rekja til Áburðarverksmiðjunnar
í Gufunesi. — Hún fær um %
þeirrar orku sem frá orkuverun-
um streymir á þeim tíma sólar-
hringsins, sem skammhlaup varð
á háspennulinunni.
Ingólfur Ágústsson verkfræð-
ingur skýrði Mbl. svo frá, að ekki
væri vitað hver ástæðan væri til
skammhlaupanna. — Ekki hefði