Morgunblaðið - 01.07.1954, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 1. júlí 1954
MORGUNBLAÐIÐ
11
Smíðaskólinn í Hólmi
ÞEGAR komið er austur yfir
Eldhraunið í Vestur-Skaftafells-
sýslu tekur Landbrotið við. Það
er lítil sveit í bugnum vestan
Skaftár, fræg fyrir sína óteljandi
hraunhóla. Skammt austan við
Eldhraunið standa tveir bæir
norður undir Skaftá. Það ber
ekki mikið á þeim frá veginum
að sjá. Þeir eru hálf-faldir bak
við grasi gróna og mosivaxna
hólana, sem fylla þessa sér-
kennilegu sveit.
Vestri bærinn heitir Ytri-Dal-
hær. Hann á sína sögu, þótt ekki
sé hún þekkt, og ekki verður
hún skráð hér. Sá bærinn, sem
austar stendur heitir ílolmur. Sú
stofnun sem nú er rekin í Hólmi
er tilefni þessa greinarkorns.
AÐDRAGANDI
Haustið 1938 andaðist hinn nafn
kunni rafvirki Bjarni Runólfs-
son í Hólmi. Ekkja hans, Val-
gerður Helgadóttir, gaf Búnað-
arféiagi íslands jörðina, ef það
mætti verða til þess að ekki félli
með öllu niður það nytjastarf,
sem verið hafði dagsverk þess
nafnfræga skaftfellska völundar.
Búnaðarfélagið þáði gjöfina,
en hús og mannvirki á jörðinni
voru keypt fyrir 54 þús. kr.
Nokkur ár liðu unz félagið kom
þarna starfsemi á fót. Stóð helst
á manni til að veita henni for-
Stöðu, enda á fárra færi að taka
upp merkið þar sem Bjarni Run-
óifsson féll frá.
SKÓLASTJÓRINN KEMUR
Árið 1942 fluttist Valdimar
Runólfsson, bróðir Bjarna, að
Hólmi og tók þar við jörð og
þúi. Valdimar er trésmíðameist-
eri að iðn og hafði þá lengi stund-
Bð húsbyggingar í Reykjavík og
yerið um hríð formaður í félagi
trésmiða í höfuðstaðnum. Kvænt-
ur er Valdimar Rannveigu systur
Valgerðar frá Hólmi og eiga þau
þrjá syni.
Strax og Valdimar Rimólfsson
Irom að Hólmi, tók hann til
óspilltra málanna við að undir-
þúa stofnun smíðaskóla á staðn-
vm á vegum Búnaðarfélagsins.
Byrjaði hann á að endurbyggja
gamalt ítr'ðarhús, stækka það og
Jagfæra, svo að hægt væri að
ncta það til kennslu og íbúðar
íyrir nokkra nemendur. Var það
8ö vísu úr steinsteypu en all-
lirörlegt orðið. Endurbygging
hússins var mikið verk og taf-
Bamt svo sem oft vill verða þeg-
@r lagfæra skal Og endurnýja
Valdimar Runólfsson.
hússins að mestu lokið um ára-
mótin 1945—’46. Þá komu fyrstu
nemendurnir að Hólmi., Síðan
hefur skólinn starfað alla vetur
að undanskyldum vetrinum
1949—1950. Fæstir hafa nemend-
urnir verið fimm en flestir átta,
enda rúmar skólinn ekki fleiri
í núverrndi húsnæði. Alls hafa
tæplega 50 nemendur sótt skól-
ann þessi ár. Eru þeir úr flest-
um sýsium á landinu, en flestir
af Norðaustur-landi. Hafa þeir
yfirleitt reynst námfúsir og ár-
vakir við smíðarnar og reynt að
notfæra sér bæði bóklega og
verklega kennslu eftir því sem
ástæður hafa leyft. — Næstum
allir nemendurnir hafa verið úr
sveitum. Fæstir af þeim hafa
notið nokkurrar kennslu annarr-
ar en barnafræðslu áður en þeir
komu að Hólmi.
NÁMSTILHÖGUN
Námstíminn í Hólmi er sex
mánuðir, byrjar með nóvember
og stendur til aprílloka.
Venjulega er unnið að smíðum
7 klst. daglega. Þó dragast frá
2—3 stundir tvisvar í viku ul
náms í íslenzku og reikningi.
Lesin hefur verið Njála með skýr
ingum og nokkrar æfingar hafð-
ar í stafsetningu og stílagerð.
Reikningskennslunni hefur ver
ið hagað eftir því hvernig kunn-
áttu hvers árgangs hefur verið
háttað. Eftir kl. 5 á daginn er
ætlast til að nemendumir smíði
fyrir sig sjálfa. Hafa þeir yfir-
leitt stundað smíðina prýðilega
og náð ótrúlegri leikni og af-
köstum.
{
Séð heim að Hólmi.
það sem gámalt er og úr sér
jgengið. Þó var viðgerðinni að
Inestu lokið í árslok 1945.
Húsið er tvær hæðir og kjallari.
I kjallaranum er komið fyrir
ýmsum rafknúnum trésmíðavél-
Um. s. s. sög, hefli, borvél o. fl.
!Á næstu hæð er vinnustofa nem-
©nda. Þar er hægt að koma fyrir
átta hefilbekkjum. Auk þess er
é hæðinni snyrtiklefi og eitt lítið
herbergi.
Á efri hæðinni, sem er með
tveimur kvistum. eru tvær rúm-
góðar stofur í suðurhlið en að
Dorðan fjögur lítil svefnherbergi,
hvert fyrir tvo nemendur. Borð-
$tofa, eldhús og íbúð ráðskonu er
I íbúðarhúsi skólastjórans, sem
er áfast skólahúsinu.
t
SKÓLINN TEKUR TIL STARFA
i Eins og áður segir, var viðgerð
Eftir hvert námsár hefur verið
haldin sýning á smi|Ciisgripum
nemendanna og hefur það al-
mennt komið fólki á óvart hve
mikið og vel hefur verið unnið
á ekki lengri tima. En það sýnir
hverja alúð skólastjóri og nem-
endur hafa lagt við skólastarfið
yfir veturinn.
HYAÐ HF.FUR VF.RID SMÍÐAÐ
Áherzla hefur verið lögð á að
æfa nemendur í smiði þeirra
muna, sem nauðsynlegir eru á
hverju heimili, s. s. eldhússtólar
og skápar, hillur, borð o. s. frv.
Ennfremur hefur skólinn tekið að
sér að smíða hurðir og glugga,
innréttingar í eldhús, geymslu-
skápa í nýbyggingar o. m. fl. Þá
hafa ýmsir munir verið teknir til
viðgerðar.
Fyrir sjálfa sig hafa nemend-
urnir flestir smíðað hefilbekki og
næstum allir hafa þeir smíðað
stofuskápa, sem hafa verið hin
fallegasta og vandaðasta smíð.
Má verðleggja þessa muni næst-
um á sömu upphæð og fæðis-
kostnaður nemenda hefur numið
yfir veturinn, enda hefur verið
reynt að stilla öllum kostnaði svo
i hóf sem mögulegt hefur verið.
Ráðskona skólans hin síðari ár
hefur verið Sveinbjörg Jónsdótt-
ir, Heiðarseli, Síðu.
S. 1. vetur tóku nemendur það
upp hjá sjálfum sér að nota frí-
stundir sínar til að smíða smá-
hillur og tínur og skera þær út
og myndskreyta. — Voru margir
þessara muna einkar fallegir, og
er vonandi að framhald verði á
þessu næsta vetur.
Smíðaskólinn í Hólmi er ekki
gamall. Eirls og sagt er hér að
I framan hefur hann aðeins starfað
í 8 ár. Samt hygg ég að sú reynsla
hafi fengist af þessari starfsemi
að hún bendi í áttina, sem halda
' skal. Fjölmennur smíðaskóli, sem
^ gæti rúmað tugi nemenda mundi
I vera svo dýr í byggingu og erfið-
I ur í rekstri, að það mundi reyn-
! ast flestum sveitapiltum um
! megn að kosta sig þar til náms.
Minni skólar með sem næst ein-
um tug nemenda virðast langt-
um hentugri og sá nemendahóp-
ur e. t. v. tvískiptur, undir stjórn
ötulla og úrræðagóðra manna,
ætti að geta tekið að sér bygging-
ar húsa að öllu leyti og slegið
tvær flugur í einu höggi: lært af
reynslunni og byggt upp í sveit-
unum bæði íbúðar og penings-
hús.
Smíðaskólinn í Hólmi er vísir í
þessa átt, en ekki er ennþá séð
hvert framhaldið verður. En ég
hygg að það sé engin tilviljun
að hann er staðsettur í þeirri
sýslu þar sem hagleikur og hug-
kvæmni í verklegum efnum er
ríkari heldur en í flestum eða
öllum öðrum byggðum lands-
ins. G. Br.
Ágæfar hayskapar-
horfur í Hi
hreppi
BORG, Miklaholtshreppi, 15. júní
— Hér í Miklaholtshreppi hófst
sláttur hinn 9. þ.m. og hefir aldrei
verið byrjað að slá svo snemma,
elztu menn muna ekki slíkt. Stöð
ugir þurrkar hafa verið núna
undanfarið og er búið sumstaðar
að ná inn í hlöðu vel þurri, hvann
grænni töðu. Verði útlit fyrir
áframhaldandi þurrka, þá mun
verða haldið áfram að slá af
fullum krafti.
Nýlega var haldinn aðalfundur
búnaðarsambands Snæfellsnes-
sýslu, var fundurinn haldinn í
félagsheimili Miklaholtshrepps
að Breiðabliki. Mættir voru full-
trúar úr öllum hreppum sýslunn-
ar nema Fróðárhreppi. Mörg mál
voru afgreidd á fundinum.
Fulltrúi á Búnaðarþing til
næstu fjögra ára var kjörinn
Gunnar Guðbjartsson bóndi á
Hjarðarfelli, varamaður var kjör
inn Páll Pálsson bóndi á Borg.
Stjórn búnaðarsambandsins
skipa nú: Gunnar Jónatansson,
Stykkishólmi formaður, Gunnar
Guðbjartsson, bóndi, Hjarðarfelli
og Þórarinn Bjarnason, bóndi,
Hlíðarholti, Staðarsveit.
Ákveðið er að hinn árlegi
bændadagur Snæfeliinga verði að
Breiðabliki í Miklaholtshreppi h.
24. júní n.k. Mun verða vandað
til dagskrárinnar, því bændur og
húsfreyjur munu fjölmenna þann
dag að Breiðabliki. — P. P.
TIL MOSKVU
LUNDÚNUM — Nefnd brezkra
Verkamannaflokksþingmanna
heldur til Kína í ágústmánuði.
Mun nefndin dveljast tvo tíma í
Moskvu. Fararstjóri er Attlee.
Bevan er einnig með í förinni.
Bragi Steingrímsson, dýralæknir:
DÝRALÆKNINGAMÁL
ÞAÐ getur verið nokkrum vand-
kvæðum bundið að ræða dýra-
lækningamál í viðtalsformi í út-
varpi. Þá er erfitt að svará í
stuttu máli aukaspurningum
óviðbúinn um heilsufar búfjár-
ins. — Það er ekki aðalatriðið
að vera með mælgi um þau efni,
heldur fyrst og fremst að athuga
vel einstök atriði í því sambandi.
Kúasjúkdómar hafa á seinni
árum valdið vaxandi vandræðum
hér á landi og fjárhagslegu tjóni.
Krampadoði (tetani), sem stund-
um lýsir sér sem bráðadauði hjá
kúm, verður með ári hverju al-
gengari. Menn hafa litið vitað
orsakir kúadauðans hér á landi.
Ég hygg að algengasta orsök
kúacjpuðans hafi verið krampa-
doði. Vitanlega geta sjúkdóms-
orsakirnar verið margvíslegar.
T. d. visst fóður getur valdið
banvænni lifrarbólgu. Líka getur
járn í kúm valdið bráðum bana
o. s. frv.
Fyrir 15—20 árum var krampa-
doði mjög algengur í kúm í ná-
grenni Reykjavíkur, en lýsti sér
þá sjaldan sem bráðadauði. Síð-
an hefur veikin magnazt veru-
lega víða á landinu og bráðdrpp-
ur oft kýrnar. Af þessum ástæð-
um er mikil nauðsyn á því að
menn viti um orsakir veikinnar,
sérstaklega ef hægt væri að koma
í veg fyrir hana. Einkum þurfa
menn á þeim stöðum þar sem
árlega drepast margar kýr að vita
hvað hægt er að gera til varnar.
Það var mjög fróðlegt að kynn-
ast sömu veiki í kúm í Þýzka-
iandi og fá að vita að veikin er
engan veginn bundin við íslenzk-
an bústofn. Það er staðreynd að
orsakir veikinnar eru þekktar og
það hefur tekizt að koma í veg
fyrir hana.
Krampadoði kemur í þýzkar
kýr sem gefin er sérstök bráð-
sprottin taða. Taða þessi vex
einkum á engjum sem nefnast
„Rieselfelder“, (áveituengjar). Á
engjar þessar er veitt frárennsl-
inu frá stórborgum. Það er köfn-
unarefnisríki áburðufinn, sem
veldur hinni öru sprettu á engj-
unum. Álitið er að efnahlutföllin
í þessari bráðsprottnu töðu séu
of þröng eða of mikið af eggja-
hvítu samanborið við kolvetni.
Reynslan hefur sýnt, að það er
hægt að koma í veg fyrir krampa
doða í kúm ef þeim er gefið ann-
að fóður með kraftmiklu töð-
unni af áveituengjunum. Á þenn-
an hátt hefur að miklu leyti tek-
izt að útrýma veikinni. Fóðrið
sem kúnum hefur verið gefið
með bráðsprottnu töðunni hafa
verið rófusneiðar (úrgangur frá
sykurvinnslunni) og hálmur. —
Þessi fóðurbreyting er mikilvæg-
asta atriðið til þess að útrýma
krampadoða.
Þá ber að hafa hugfast, að með
einhliða og óhófslegri áburðar-
notkun, sérstaklega af köfnun-
arefnisríkum áburði og kalí-
áburði er hægt að breyta töð-
unni í óhollt fóður handa kúm.
Fosfor og kalkáburð verður líka
að nota á túnin. Til þess að forð-
ast krampadoðann hefur líka
reynzt vel í Þýzkalandi að nota
steinefnablöndu handa kúm eins
og farið er að nota á íslandi og
Dr. Bruckner dýralæknir fór
fyrstur að nota.
Þess er enginn kostur að draga
verulega úr notkun köfnunar-
efnisáburðar við íslenzka tún-
rækt, því eitt mikilvægasta at-
riðið í íslenzkum landbúnaði er
mikil fóðuröflun. — Hins vegar
verður að athuga áburðarspurs-
málið vandlega á þeim stöðum
þar sem krampadoði hefur gert
vart við sig, byggja meir á vís-
indum og láta handahófið í áburð
arnotkun ekki vera ríkjandi.
Til þess að fyrirbyggja veik-
ina gæti verið nauðsynlegt að
flytja inn erlent fóður til þess
að gefa með bráðsprottinni töðu.
Þá þyrfti fyrst og fremst að flytja
inn rófusneiðar. Á þeim er mikið
framboð og þær eru ódýrt fóður.
Kúasjúkdómum þyrfti að veita
miklu meiri athygli en gert er á
íslandi. Yfirleitt er mikils um
vert að eiga hraustar kýr, því
þær einar geta framleitt heiL
næma mjólk handa uppvaxandi
æskulýð. Mjólkin er ein þýðing-
armesta fæðutegundin í landint.
Það væri vel til fallið i sam-
bandi við krampadoðann .og aðra
kúasjúkdóma að fá hingað til
lands frægan dýralækni og
reyndan til þess að gefa holl ráð
og rannsaka kúasjúkdóma. Þá
myndi ég mæla með próf. Rosen-
berger frá Dýralæknaskólanum í
Hannover.
Próf. Rosenberger hefur að
undanförnu gert ýmsar þýðing-
armiklar rannsóknir á garna-
veiki í kúm. Hann hefur t. d.
þaulprófað þau ,,paratuberkulin“
sem hæfust eru til að finna mcð
garnaveiki í kúm.
í Hannover var verið að gera
tilraunir með inngjafir á „super-
fosfati“ við garnaveiki í kúm.
Það er ekki talið að þetta efni
drepi garnaveikissýklana, sem.
sitja djúpt í slímhúð meltingar-
færanna. Það er álitið að focv-
forinn í superfosfati örfi efna •
skiptin í líkamanum og á þann
hátt er reynt að skýra þau heilsu-
bætandi áhrif, sem superfosfat-
inngjafir hafa haft á garnaveik-
ar kýr. Það hafa verið reynd
fleiri lyf við garnaveiki og hafa
þau haft heilsubætandi áhrif. —
Superfosfatið hafði betri áhrif á
kýrnar en hin lyfin. Kýrnar fóru
að þyngjast á tiltölulega stuttum
tíma, meltingin varð miklu belri,
hárlag og útlit skepnunnar varð
miklu frísklegra. Bændur á Aust-
urlandi hafa á undanförnum ár-
um haft mikinn áhuga fyrir þvi
að fá slíkt lyf, sem gæti bætt
kindum garnaveiki. Það er þýð-
ingarmikið að fá úr því skorið
hvort superfosfatinngjafir hand'a
j fé gætu haft fjárhagslega þýð-
, ingu í sauðfjárbúskap hér á landi,
: þó ekki lækni þeir veikina. Það
má vænta þess að þessar inn-
gjafir gætu bætt holdafar kind-
anna og að ær, sem drepast að
öðrum kosti nokkru fyrir sauð-
burð, gætu náð nokkrum bata.
Þess væri líka full þörf að hægi
væri að létta verulega á þeim út-
gjöldum sem afurðatjón bænda
vegna garnaveiki bakar rikis-
sjóði.
Egilsstöðum 10. júní 1954.
Bragi SteingTÍmsson.
Vestur-klendinpr
minnast 10 ára 1
aftnæli íslemka
lýðveldisins
TÍU ára afmæli íslenzka lýðveld-
isins var minnzt í Winnipeg 17.
júní með útvarpsdagskrá og al-
mennri samkomu. Útvarpað var
hálftíma dagskrá frá aðalútvarps
stöð borgarinnar og fluttu ávörp
þeir, dr. Valdimar J. Eylands,
forseti þjóðræknisfélagsins og
Thor Thors sendiherra. Var
ávarp hins síðarnefnda flutt af
hljómplötu. Dagskránni lauk með
því að leikið var „Ó guð vors
lands“.
Þjóðræknisdeildin Frón í
Winnipeg efndi til samkomu að
kvöldi þess 17. júní og stjórnaði
Jón Jónsson forseti- deildarinnar
henni. Kveðja barst frá Thor
Thors, en ræður fluttu Björn Sig-
urbjörnsson, fyrir minni Jóns
Sigurðssonar, og séra Bragi Frið •
riksson, lýðveldisdagsminningu,
Einar Páll Jónsson flutti frumort
kvæði og lesið var einnig kvæði
eftir Sigurð Júl. Jóhannesson.
Elma Gíslason söng einsöng og
Þóra Ásgeirsson lék einleik á
píanó.
Samkoman var fjölmenn og
þótti takast vel.