Morgunblaðið - 02.07.1954, Side 6

Morgunblaðið - 02.07.1954, Side 6
6 MORGUNtíLAÐIÐ Föstudagur 2. júlí 1954 Fimmtugur í dag: Sveinbjörn Arnnson verzlunarstjéri SVEINBJÖRN kom hingað til Reykjavíkur 14 ára að aldri frá Ólafsvík. Hann kom í atvinnuleit og var brátt ráðinn sem sendi- sveinn við verzlun Haraldar Árnasonar, sem þá þegar var eitt af beztu firmum í höfuðborginni. Þar hefuy hann unnið alla tíð síðan til heilla fyrir hið gamla og góða verzlunarfyrirtæki. Á æskuárunurr* komu þegar í ljós hjá Sveinbirni afbragðs mannkostir hins sanna verzlunar- manns svo sem trúmennska ásamt dugnaði, árvekni og skyldurækni samfara prúðmennsku í fram- komu. Sveinbjörn hefur á liðnum ár- um þroskast í starfi og þroskað sína hæfileika og fullyrða má, að hann sé prýði sinnar stéttar. Sveinbjörn á mörg hugðarmál og hefur mikið starfað fyrir þau 1 góðum félagsskap, þar á meðal í ,,gamla“ K.R., þar sem hann hefur oft unnið afbragðsvel. Enn- fremur hefur hann átt sæti í stjórn Verzlunarmannafélags Reykjavíkur árum saman. Hefur hann jafnan þótt farsæll í störf- um enda er Sveinbjörn einn af þessum bjartsýnu dugnaðarmönn um, sem ánægja er að kynnast, og sem vilja láta allt gott af sér leiða i hvívetna. Sveinbjörn dvelst nú ásamt fjölskyldu sinni í London. Fjöldi vina og kunningja munu senda honum hugðarkveðjur með hlýj- um árnaðaróskum og þakklæti fyrir vel unnin störf, vináttu og tryggð. K. L. G. Jaðar býður upp á ágæf skemmtiatriði SUMARHÓTELIÐ að Jaðri tek- ur til starfa um þessi mánaðamót og tekur á móti dvalargestum í lengri eða skemmri tíma eins og undanfarin sumur. Jaðar hefir jafnan kapplcostað að stilla verði í hóf til þess að gera sem flestum kleift að dvelja á þessum fagra stað og njóta hvíldar og hress- ingar. í vor hefir verið unnið að brey't ingum á véitingasalnum og hann stækkaður, svo að nú rúmast þar fleiri gestir en áður. Leiksvið er nú fyrir miðju í salnum og er gert ráð fyrir að skemmtiatriði fari fram á hverju kvöldi. Jaðar hefir gert ráðstafanir til þess að fá þekkta erlenda skemmtikrafta og hefir aflað sér ágætra sam- banda erlendis. Margir kraftarnir koma frá hinum kunna skemmti- stað Atlantic Palace í Kaup- mannahöfn, en margir fslending- ar kannast við þann stað og vita að þar koma aðeins fram beztu skemmtikraftar sem völ er á. KOMA í BYRJUN MÁNAÐARINS Fyrstu skemmtikraftarnir koma í byrjun júlí. Það eru ung og fögur stúlka, Marie la Garde dægurlagasöngkona. Hún hefir verið nefnd hin danska Vera ZEIS? IKON CARL ZEISS. OBERKOCHEN — ZEISS IKON A/G. STUTTGART og BERLIN Þegar þið kaupið ZEISS-vörur — þá kaupið þið fyrsta flokks vörur gegn samkeppnisfæru verði. ZEISS-IKON-spegillampar og öryggislæsingar af- greitt frá verksmiðjunum til kaupmanna og kaupfélaga. Myndlistar og verðtilboð frá umboðinu: G. M. BJÖRNSSON Innflutningsverzlun og umboðssla Skólavörðustíg 25, Reykjavík. Mdlning ■ ■ Nú fæst Hörpusilkið í öllum regnbogans litum. ■ ■ ■ ■ ■ ■ ICeqnboqlnn, cyCauaaueq 62 : RÚÐUGLER I ■ ■ ■ 2, 3, 4, 5 og 6 mm. rúðugler, fyrirliggjandi. j ■ ■ ■ CjlerólípLtn Cs? CCpecjlacjerli, L.p., I Klapparstíg 16 — Sími 5151 ■Oaujimv Veltingat|ald Viljum kaupa eða leigja veitingatjald (150—170 fer- ; • metra fyrir þjóðhátíð Vestmannaeyja 1954. : Tilboð sendist fyrir 5. júlí til Ingólfs Arnarsonar, Aust- j urveg 7, Vestmannaeyjum. ; ■ ■ * m Iþróttafélagið Þór, Vestmannaeyjum. : Carmen og Antonio Lynn og hefir sungið víða um lönd og nýtur mikilla vinsælda. Hún er nýkomin úr hljómleika- ferðalagi frá Helsingfors og borg- um í Vestur-Þýzkaiandi. Eitt af uppáhaldslögum hennar er „Ósk- aðu mér gæfu“ eða „Wish me luck“. Undirtektirnar við þetta lag voru dálítið óvenjulegar er hún söng það í Þýzkalandi, því þar streymdu giftingartilboðin til hennar. Trúlegt er að mörgum leiki forvitni á að sjá og heyra þessa ungu stúlku, er hún kemur fram á Jaðri. Einnig kemur Roy Bylund töframaður, sem skemmt hefir á hinum fræga skemmtistað Liseberg í Gautaborg. Hann sýnir ýmis nýstárleg atríði, t. d. skugga mynditr, sem harm framkallar með höndunum einum saman. FRÆGT DANSPAR Um miðjan júlí kemur spanskt danspar, Carmen y Antonio. List þeirra er óviðjaf ianleg og hin spanska fegurð þeirra og yndis- þokki heilla alla sem hafa séð þau dansa. Margir Islendingar, sem voru á ferð í Kaupmanna- höfn í vor, munu hafa séð þau og mun þeim seint úr minni líða hin dásamlega list beirra. Carmen og Antonio koma hingað frá Rotterdam, en þa sýna þau um þessar mundir. Carl Billich o. f' kunnir hljóð- færaleikarar sjá ”m tónlistína. í sumar er fegu>ra á Jaðri en nokkru sinni fyrr og júlikvöldin Framh. á bls. 12 P.V.G. SioBka: SjóSifahúsmáiIii Á SÍÐASTA Alþingi var kosin milliþinganefnd í heilbrigðis- málum og er henni m. a. ætlað að gera tillögur um staðsetn- ingu, stærð og tilhögun sjúkra húsa utan Reykjavíkur. — í nefndina voru kosnir lækn- arnir Kjartan Jóhannsson al- þingismaður, Alfreð Gíslason og Esra Pétursson. Kjartan Jóhannsson baðst undan störf- um í nefndinni og skipaði þá heilbrigðisstjórnin Pál Kolka héraðslækni til að taka sæti í henni og vera formann henn- ar. Mbl. hefur snúið sér til Kolka læknis og leitað frétta hjá honum um gang spítala- málanna og spítalabyggingar- innar á Blönduósi sérstaklega, en hún hefur vakið mikla at- hygli, bæði sökum stærðar og þess, hve vel hún hefur geng- ið. Gefum vér honum nú orð- ið. ★ Ahugi fyrir þvi, hversu bæta skuli úr sjúkrahúsþörf þjóðar- innar, virðist fara mjög vaxandi, bæði meðal lækna og almennings. Aðalmálið á væntanlegu lækna- þingi, sem haldið verður á Ak- ureyri seint í þessum mánuði, verður skipun læknishéraða og sjúkrahúsþörf utan Reykjavíkur. Hef ég lofað að hafa framsögu i því máli. Þá hefur Alþingi sýnt með skipun sérstakrar milli- þinganefndar í heilbrigðismál- um, að það vill taka þessi mál eitthvað fastari tökum en verið hefur. Sú nefnd er nú að afla ýmislegra gagna og upplýsinga, sem ekki er tímabært að skýra frá fyrr en við höfum í félagi fjallað um þau. Um spítalabygginguna okkar hér á Blönduósi er það að segja, að hún gengur eftir áætlun. Þeg- ar á það er litið, að ekki hefur verið unnið við bygginguna neroa í 13 mánuði samtals, síðan byrjað var að slá upp fyrir undirstöð- um, og að sjaldnast hafa unnið þar fleiri en 15 menn, má eigin- lega segja, að verkið hafi gengið betur en áætlun stóð til. Húsið var orðið fokhelt á síðasta ári, hitalögn, vatnslögn og skólplögn er að mestu lokið, múrhúðun langt komin á tveimur hæðum og fjögur herbergi ásamt eldhúsi eru orðin íbúðarhæf, enda búa þar nú byggingarmeistarinn og yfirsmiðurinn, meðan verið er að fullgera húsið. Með sama áfram- haldi getur stofnunin tekið til starfa á næsta ári. Margir óttuðust, að bygging þessi yrði óhæfilega dýr vegna þess að grafa þurfti fyrir undir- stöðum hússins rúma þrjá metra niður á fastan grundvöll. Þetta verk reyndist þó mjög létt, því að engin steinvala var í jarðveg- inum og var útgreftrinum því lokið á skömmum tíma með vél- skóflu. Ég hef sannfærzt bezt um það, að hússtæði þetta var hent- ugt, við að sjá, hversu geysilegur tími og vinna fer í að graía grunninn fyrir nýju Landspítala- byggingunni, þar sem allt verð- ur að sprengja niður í klöpp. Það sem veldur okkur mestum erfiðteikum nú, er það að ríkis- sjóður leggur ekki fram tillag sitt jafnóðum nema að litlu leyti. Á fjárlögum er ár eftir ár ekki áætlað til byggingu sjúkrahúsa, sjúkraskýla og læknisbústaða nema ein og hálf milljón króna, enda þótt vitað sé, að raunveru- leg fjárþörf þeirra verka af þessu tagi, sem verið er að framkvæma, sé miklu meiri. Alþingi fer að eins og stórbóndi, sem segði við fjósamanninn sinn: „Heyrðu, góði minn, þú átt að hirða kýrnar mínar í vetur, en þú færð ekki nema 20 hesta af heyi handa hverri kú núna. Ef þér þykir það of lítið, skal ég láta þig fá það, sem á vantar, að ári eða árið þar á eftir, því að þá ætla ég að heyja meira.“ Við Húnvetningar skiljum ekki slik búvísindi. Við skiljum ekki, að það borgi sig fyrir ríkissjóðinn að svelta þau fyrirtæki, sem þegar eru hafin, svo að þau standi ekki aðeins hálfköruð, arðlaus og gagnslaus árum saman, heldur hlaði á sig aukakostnaði í vöxtum, viðhaldi og upphitun á meðan, ofan á venjulegan byggingarkostnað. Ég hef heyrt sagt, en veit ekki á því fullar sönnur, að þegar Keflavíkurspítali, sem var eitt- hvað um 12 ár í smíðum, var loksins fullgerður, hafi tollar, vextir, upphitun og viðhald á meðan hann var í smíðum, num- ið hærri upphæð en öllum ríkis- sjóðsstyrknum til byggingarinn- ar. Hitt er þó öllu verra, að þegar þetta hús er loksins komið upp, verður það alveg ófullnægjandi, af því að fólksfjöldi héraðsins hefur aukizt svo, meðan á bygg- ingunni stóð, og stærð þess er svo óhentug þar að auki, að það hlýtur að verða mjög dýrt i rekstri, miðað við rúmafjölda. Það munar ótrúlega litlu á stofn- kostnaði 20 rúma spítala og 40 rúma spítala. Útbúnaður á skurð- arstofu, röntgenstofu, sótthreins- unartækjum, fólkslyftu, matar- lyftu, eldhúsi, þvottahúsi og ým3- um tækjum til rannsókna og lækninga er svo að segja hinn sami. Það þarf aðeins nokkrar sjúkrastofur í viðbót á stærri spítalanum og þær eru tiltölulega ódýr hluti hússins. Um reksturinn er svipaða sögu að segja. Sama kaup verður að greiða dýrasta starfsfólkinu, svo sem yfirlækni, yfirhjúkrunar- konu og matmóður, hvort sem spítalinn hefur 20 rúm eða 40. Starfsorkan nýtist miklu betur á stærri spítalanum, svo að þar þarf aðeins að bæta við lítið eitt fleiri starfsstúlkum. Hinn fastí og óhjákvæmilegi kostnaður dreifist þar á fleiri legurúm og fleiri legudaga og það er því hag- kvæmara, bæði fyrir ríki og hér- uð, að hafa spítalana færri og stærri, eftir því sem samgöngur og aðrir staðhættir leyfa. Þessi viðhorf réðu stærð nýja spítalans okkar á Blönduósi og tilhögun hans að öðru leyti. Við litum ekki aðeins á lágmarks- þörfina fyrir sjúkrarúm, þörf þeirra sjúklinga, sem þurfa að komast á spítala í bráðri lífs- nauðsyn. Við vildum einnig skapa örvasa gamalmennum heimili, þar sem hægt væri að hjúkra þeim í námunda við ætt- ingja þeirra og vini, í stað þess að senda þau í önnur héruð og gefa þar með þeim. Við vildum lika skapa skilyrði til þess að hægt væri hér innanhéraðs að framkvæma þær rannsóknir og aðgerðir, sem teljast verða vanda litlar í höndum hæfs læknis, og tryggja einnig með því, að hæfir iæknar fáist til að líta við Blöndu óshéraði í framtíðinni. Við vilj- um m. ö. o. ekki aðeins gera hér lélega þrautalendingu, heldur öllu fremur sæmilega höfn, þótt hún verði nokkru dýrari. Það er búraháttur, sem ekki borgar sig, að skera legurúmafjöldann á nýj- um spítölum mjög við neglur, ef fólksfjöldi og staðhættir gera spítalabyggingu á annað borð nauðsynlega og mögulega. Hin nýskipaða milliþinganefnd í heilbrigðismálum er nú að safna skýrslum um þá reynslu, sem fengizt hefur af rekstrarkostnaði og öðru, er máli skiptir, á sjúkra- húsum af mismunandi stærð. Allt mun þetta liggja ljósar fyrir, þeg- ar unnið hefur verið úr þeim upplýsingum, en það verður væntanlega nú í haust. P. V. G. Kolka. ★★★★★★★★★★★★★ ★ ★ ★ D ★ ★ Dezt að auglýsa I ★ ★ MORGUNBLAÐINU ★ ★ ★ ★★★★★★★★★★★★★

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.