Morgunblaðið - 02.07.1954, Page 11

Morgunblaðið - 02.07.1954, Page 11
Föbtudagur 2. júlí 1954 MORGUNBLAÐIÐ II t A Þuríður Olafsdóttir nning Islenzk 1 erlendls í DAG verður jarðsett að Síðu- ! múlakirkju í Borgarfirði Þuríður Ólafsdóttir húsfreyja frá Þor- gautsstöðum á Hvítársíðu. Þuríð- ur lézt í Landsspítalanum þ. 21. -f. m. 64 ára að aldri. Hun fæddist á Einifelli í Stafholtstungum 20. apríl 1890. Foreldrar hennar voru Ólafur bóndi Ólafsson, Fínnsson- ar bónda í Örnólfsdal. Kon Ól- afs Ólafssonar, og móðir Þuríðar var Ólöf Guðlaug Sigurðardóttir. Var Ólöf bróðurdóttir Þorbjarn- ar Sigurðssonar á Helgavatni, er kallaður var hinn ríki. Kona Ól- afs Finnssonar og amma Þuriðar var Ingibjörg Halldórsdóttir, Pálssonar fræðimanns á Asbjárn- arstcðum. Að Þuríði stóðu því gagnmerkar borgfirzkar bænda- ættir. Þ. 20. júní 1920 giftist 5—600 manns á „bændadegi" Snæfeliinga BORG í Miklaholtshreppi, 27. Búní. — Bændadagur Snæfellinga var haldinn að Breiðabliki í Miklaholtshreppi fimmtudaginn 24. júní s.l. — 500—600 manrs BÓttu samkomuna, sem var í alla Btaði mjög ánægjuleg og alhr, sem þangað komu, skemmtu sér pajög vel. Dagskrá dagsins var þannig: 1. Samkoman sett af formanni Búnaðarsambandsins, Gunn- ari Jónatanssyni í Stykkis- hólmi. 2. Guðsþjónusta, séra Þorst. L. Jónsson prestur í Söðulsholti. 3. Ræða fyrir minni héraðsins, Kristján Þorleifsson, Grund, Eyrarsveit. 4. Kvikmynd og ræða, Gísli Kristjánsson ritstj. 5. Ræða, Þórður Gíslason bóndi, , Ölkeldu. 6. Leiksýning, fluttur þáttur, tekinn úr Víglundarsögu. — Þáttinn tóku saman Gunn- ! ar Guðbjartsson, Hjarðar- I felli og Þórður Gíslason, Öl- ' keldu. Leikendur voru: Ketilríð- ur, leikin af Ragnheiði Guð- bjartsdóttur, Hvammi; Víg- \ lundur, leikinn af Páli Páls- j syni, Borg; Trausti, leikinn i af Hjörleifi Sigurðssyni, Hrísdal; Þórður, leikinn af Hjálmi Hjálmssyni, Hvammi; , Hólmkell, leikinn af Kjart- ani Eggertssyni, Hofsstöðum. 7. Bændakór, söngur, stjórn- andi séra Þorgrímur Sigurðs- son, Staðastað, organleikari ! frú Björg Þorleifsdóttir, Hól- koti. 8. Frumort kvæði flutt af Krist- jáni H. Breiðdal, Vegamótum. 9. Tveir gamanþættir, annar fluttur af Þóri Jóhannssyni og Sigvalda Jóhannssyni frá Syðra-Lágafelli, hinn þátt- urinn var fluttur af Hauk og Friðjóni Sveinbjörnssonum frá Snorrastöðxun og Guð- mundi Guðbrandssyni frá ' Tröð. H0. Síðan var stiginn dans af miklu fjöri þar til kl. 2 e.m. Dalbræður léku fyrir dansin- I um. Óhætt er að fullyrða að bænda- dagurinn hefur náð sínum rétta tog góða tilgangi fólksins hér í héraðinu. í fyrra og aftur nú eru það fjölmennustu samkomur, sem haldnar hafa verið í hérað- inu, og blær skemrntanalífsins á þessum dögum er alveg til fyrir- imyndar. — Skemmtiatriði þessa dags voru flest ljósmynduð og Bum kvikmynduð og sumt tekið á stálþráð. Skemmtinefnd var skipuð þess- tim mönnum: Gunnari Jónatans- Byni, Stykkishólmi, Gunnari Guðbjartssyni, Hjarðarfelli, Þráni Bjarnasyni, Hlíðarholti, Staðar- gveit, Páli Pálssyni, Borg, Þórði Gíslasyni, Ölkeldu og Sveinbirni Jónssyni, Snorrastöðum. i — Páll Pálsson.- Þuríður eftirlifandi manni sín- um Guðmundi Jónssyni frá Efra- Nesi í Stafholtstungum. 1921 reistu þau hjónin bú að Þorgauts- stöðum í Hvítársíðu og bjuggu þau þar alla tíð síðan. Tengdaforeldrar Þuríðar, Mar- grét Jóhannesdóttir og Jón Guð- mundsson fluttust að Þorgauts- stöðum er þau hættu búskap í Efra-Nesi. Dvöldust gömlu hjón- in á Þorgautsstöðum til æviloka við umönnun og nærgætni sonar og tengdadóttur. Ekki eignuðust þau Þorgauts- staðahjón afkomendur, en á heimili þeirra dvöldust börn og unglingar tímum saman. — Nær- gætni og festa Þuríðar höfðu góð áhrif á alla, sem dvöldust í návist hennar. Hæglát, prúð og yfir- lætislaus í daglegri framgöngu og hlý þeim, sem náðu að kynnast henni. Eg, er þessar línur rita og kona mín, stöndum í mikilli þakkar- skuld við Þuríði vegna sona okk- ar er dvalist hafa á sumrum lang- dvölum á þessu góða heimili. Reyndist Þuríður þeim sem bezta móðir. Við fráfall Þuríðar er rrjikill söknuður ríkjandi meðal vanda- fólks hennar og vina. Eftir lifir minningin um góða og mikilhæfa konu. Blessuð sé minning hennar. Á. Þ. Ó. Skattgreiðendur í Eyjum SKATTSKRÁ Vestmannaeyja kom út í gær. Hæstu skattgreið- endur eru: Fiskiðjan h.f. kr. 34.857, Kaupfélag Vestmannaeyja 34.064, Lifrarsamlag Vestm. 33.504, Reynir h.f. 30.206, And- vari mb. 26.224, Ársæll Sveinsson ELISABETH Urbaniak og pró- fessor dr. Paul Mies, fluttu ný- lega söngleik eftir Hallgrím Helgason í Suchteln í Rínarhér- aðinu. Þetta listafólk frá Köln hefur margsinnis beitt sér fyrir | útbreiðslu íslenzkrar tónlistar, ! einnig í ræðu og riti. — Blaða- dómar eru hinir beztu; bent er á „sterkan persónulegan tjáningar- vilja höfundarins“ og tónbúning, ■ er hafi að baki sér áratuga þróun: frá Marx Reger til Wolfgang Fortners. Annað blað leggur áherzlu á „sérkennileik í tón- smíði norrænna þjóða“, sem | runninn sé frá síðgneistandi afli þýzkrar rómantík. í næsta mánuði mun júgóslav- neski píanistinn Vera Velkov, leika píanósónötu Hallgríms nr. 2 í útvarpið í Belgrad, og dr. Friedrich frá Braunschweig sömu sónötu í útvarpið í Hann- over. Hinn 10. maí flutti Walter Manthey frá Munchen sönglög eftir Hallgrím í Heidenheim í Wúrtemberg. Var Vetrarsólhvörf- um Einars Benediktssonar tekið bezt í útseldum sal hljómleika- húss borgarinnar, er tekur þús- und manns í sæti. Blöðin undir- strika þjóðleg tilþrif höfundarins og nútíðarmeðferð hljómanna. Undlirleik annaðist Gerd Loh- meyer. Ungverski fiðluleikarinn Rétyi Gazda og píaftóleikarinn Hans Posegga í Múnchen leika fiðlu- tónsmíðar eftir Hallgrím í út- varpið í Múnchen á næstunni, en Posegga leikur einn píanósónötu sama höíundar. Þ. 30. maí söng óperusöngkon- an Christel Röttgen frá Köln, sönglög eftir hinn sama á hátíðar- hljómleikum karlakórsins Wies- dorf í iðnaðarborginni Leverkus- en, sem minntist 75 ára afmælis síns. Blaðið „Kölner Stadtan- zeiger“ tekur fram, að lögin séu „frísklega kaldhömruð og spenni lagbogann hátt, bæði í einsöngs- rödd og undirspili“. Leverkusener Rundschau telur hinar íslenzku lagasmíðar vandsungnar, en í þeim birtust fullkomið vald yfir hnitmiðuðum og sérstæðum hljómasamböndum. Píanóundir- leik annaðist Georg Gatz. Á hljómleikum, sem haldnir voru í Stokkhólmi 26. maí til heiðurs prófessor Boon, lék Ger- hard Oppert aðra píanósónötu Hallgríms Helgasonar. Var góður rómur gerður að verkinu, sem er í samþjöppuðu formi á háu list- rænu stigi. Önnur tónverk á þess- um hljómleikum voru eftir Bach (ítalskur konsert), Mozart (píanó konsert í d-moll), Beethoven (E dúr sónata op. 14). Síbelíus (pí- anólögin Kilykki) og Schumann (píanókonsert). Á tónleikum, sem haldnir voru 23.403, Magni h.f. 18.406, Ófeigur mb. 17.725, Fiskimjölsverksmiðj- an h.f. 15.584, Ástþór Matthíasson 14.963. í Þrándheimi á 50 ára afmæli norska organistafélagsins, lék Rolf Karlsen orgelverk (Ricer- cara) eftir Hallgrím Helgason. BEDFORD 12 sæta bifreið, gerð 1947, í góðu standi, er til sölu og sýnis í Camp Turner á Keflavíkurflugvelli milli kl. 3 og 5 e. h. laugardag og sunnudag 3. og 4. júlí. Tilboð sendist Frank Bastard, British Overseas Air- •ways Corporation, Keflavíkurflugvelli, fyrir 7. júlí. IMýleg Ford bifreið til sölu. — Vel með farin, lítið keyrð. Ford ’49 amerísk fólksbifreið til sölu. Bifreiðin er til sýnis á Laugavegi 170 í dag. Úr mánaskinsaríunni í Bingólettóóperettunni. — Talið frá vinstri: Áróra Halldórsdóttir, Nína Sveinsdóttir, Sigfús Halldórsson og Emilía Jónasdóttir. — Ljósm. Mbl.: ÓÍ. K. M. „Frúrnar þrjár og Fúsi fara út á land“ Góðkunnir ieikarar ferSasf um me5 leikþáif FRÚRNAR þrjár og Fúsi, nefnir leikflokkur sig, sem nú er á leið til Vestfjarða eftir nokkra daga til að lífga upp á fásinnið þar. Og Vestfirðingar verða áreiðan- lega ekki fyrir vonbrigðum, því leikararnir eru engir aðrir en Emilía Jónasdóttir, Nína Sveins- dóttir, Áróra Halldórsdóttir og Sigfús Halldórsson. Framkvæmda stjóri fyrirtækisins er Indriði Halldórsson. FJÖLBREYTT SKEMMTIATRIÐI Þessir vinsælu leikarar, hafa sem sagt ákveðið að ferðast um landið með gamanþátt sinn. Til að byrja með verður farið á Vestfirði, en síðan um Suður-, Norður- og Austurland. Eru skemmtiatriði hin snjöllustu, og vekja án efa kátínu áhorfenda. Aðalatriði þáttarins eru þessi: Nína Sveinsdóttir syngur gaman- vísur, Áróra Halldórsdóttir syng- ur brúðuvísur og kemur fram í þeim þætti klædd sem brúða. Þá syngur Emilía Jónasdóttir einnig gamanvísur sem nefnast Litla gula hænan. Einnig leikur Sigfús Halldórsson og syngur bæði frum samin dægurlög og einnig önnur lög. Er margt af þessum lögum ný og hafa ekki heyrzt áður. ÞRÍR LEIKÞÆTTIR OG ÓPERETTA Þá eru þrír leikþættir. Nefnist einn þeirra Systurnar, annar sem, nefnist Pólitískir eiginmenn sof.;. aldrei heima og sá þriðji Araor önnum kafinn. Þá er óperettau sem nefnist Bingólettóóperettan, með leik, söng og dans. Munu öll atriðin taka um tvær klukku- stundir. ÉF VEÐUR LEYFIR? Eins og fyrr segir, ætlar leik- flokkurinn að ferðast víða um landið. Ef veður ekki hamlar, verður fyrsta skemmtunin á Isa firði á miðvikudagskvöldið x næstu viku. Þá hafa leikararnir hugsað sér að vera í Bolungarvík á föstudag, Flateyri á laugardag og Suðureyri á sunnudag. Síðan fer leikflokkurinn á hvern fjörð alla leið til Patreksfjarðár. Frá Patreksfirði heldur flokkurinn aftur til Reykjavíkur en héðan verður síðan haldið suður, norð- ur og austur um land. Fyrsta skemmtunin sunnanlands muu verða að Laugalandi í Reykholts- dal í Borgarfirði, þá á Sauðár- króki, Siglufirði, Ólafsfirði, Ak- ureyri og síðan haldið lengra austur á firðina. Heiri flutningar á farþeg- um og vörum en verið hefur í MÁNUÐINUM sem leið fluttu Loftleiðir fleiri farþega, varning og póst landa í milli en nokkru sinni fyrr i sögu félagsins. Fluttir voru 1344 farþegar, rúm 11 tonn af flutningi og tæplega 2 og hálft tonn af pósti. Á sama tíma í fyrra voru ekki fluttir nema 617 far- þegar svo að aukningin er nú 117,8% og ekki nema rúmt tonn af pósti. MIKILL VÖRUFLUTNINGUR Mesta breytingin hefir þó orðið á flutningi ýmiss konar varnings, en þar hefir aukningin orðið 606%, miðað við sama tímabil síðastliðið ár og er það ein af augljósustu sönnunum þess hvert stefnir, því að nú er svo komið að margvíslegur varningur, sem fyrir. örfáum árum var eingöngu fluttur á sjó yfir úthöfin er nú færður frá seljendum til kaup- enda með flugvélum. ÞRISVAR í VIKU YFIR ATLANTSHAF Loftleiðir munu halda uppi þrem ferðum í viku yfir Atlants- hafið með viðkomu í Reykjavík þangað til 1. október næstkom- andi Gera má ráð fyrir að eftir mánaðamótin október-nóvembcr verði einhver fækkun á ferðum, en óráðið er þó enn hve mikil húu verður. ERLENBIR FARÞEGAR Fullskipað hefir verið í öllum. ferðum félagsins að undanförnu austur yfir Atlantshafið, en fyrir hefir komið að nokkur sæti hafa verið laust í Ameríkuferðunum. Gera má ráð fyrir að á því verði breyting í þessum mánuði því að bandariskt ferðafólk, sem farið hefir til Evrópu í sumarleyíi er nú tekið að búa sig til heimferö- ar, og meðal þess hafa vinsældir Loftleiða farið stöðugt vaxandi. Björgvin Frederiksen kosinn s sfjórn s.f. Faxa Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI var Björgvin Frederiksen kosinu í stjórn s.f. Faxa í stað Birgisí Kjaran, með því að hann óskaðí lausnar vegna þess að hann Cr hættur að eiga sæti í bæjarstjórn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.