Morgunblaðið - 04.07.1954, Síða 14
1 14
MORGUNBLAÐI9
Sunnudagur 4. júlí 1954
Skugginn og tindurinn
SKÁLDSAGA EFTIR RICHARD MASON
Framhaldssagan 75
ráðin saman áður en Duffield
li amkvæmdi refsinguna.
„En við skulum sjá hvað set-
xu“ sagði Duffield við Douglas
og deplaði öðru auganu. „Ég væri
ekkert hissa á því þó að meira
Tjcri á sárum á óæðri endum
næsta skólatímabil en verið hef-
tir þetta.“
„Og okkar á milli sagt,“ bætti
hann við, „þá sé ég ekki betur en
ötl hlíðin sé vaxin þessum indæla
bambusviði sem upplagður er til
ídikra afnota.“
Douglas rakst á Pawley frammi
á anddyrinu seinna um morgun-
iun. Hvorugur þeirra mintist á
uppsögn hans. Pawley tók það
„cnnilega sem sjálfsagðan hlut að
Jiann hefði tekið uppsögnina aft-
•ir. Hann Ijómaði allur og var
Jiinn kátasti.
„Ég heyri að þið hafið jafnað
3neð ykkur sakirnar í gærkveldi
konan mín og þér. Það þykir mér
>njög gott að heyra. Svona mis-
„kilningar eiga sér oft stað en
}»að er alltaf hægt að jafna deil-
urnar ef við tölumst við í bróð-
orni.“
Douglas hafði ekki hugmynd ■
um hvað mikið Pawley vissi. Það f
var meira en óþægilegt til þess
að hugsa að þessi ánægjusvipur
hans væri af öðrum rótum runn-
irin en þeim að misklíðin hafði
Vérið jöfnuð. Og þegar frú Paw-
ley kom inn í borðsalinn til há-
■degisverðar, fannst honum breyt-
ijitgin á henni vera auðsæ bæði
íullorðnum sem börnum. Breyt-
jngin var svo auðsæ að hann sá
hana jafnvel yfir allan salinn.
Honum rann kalt vatn milli
skinns og hörunds. Hún var ekki
úþreyjufull og önug eins og henn-
ar var vandi. Hún bókstaflega
ljómaði af sælu. Óánægjusvipur-
ínn var horfinn af andliti hennar.
Þetta var í fyrsta sinn sem hann
hafði séð hana ánægða. Venju-
lcga voru börnin þögul við borðið
hjá henni, en nú voru þau kát og
glöð. Hlátur heyrðist einnig frá
borði Pawley og jafnvel frá
Duffield. Aldrei hafði áður verið
svo létt yfir öllum í borðsalnum
eins og í þetta sinn. Sennilega
Var ástæðan talin vera sú að nú
Var sumarfríið brátt í nánd
Douglas fékk sér ekki kaffi
íneð kennurunum eftir matínn, en
gekk heim í hús sitt. Síðar um
■daginn gekk hann fram og aftur
um skólalóðina. Það var laugar-
dagur og börnin áttu frí. Rose-
tnary var að reyna að móta kött
úr leir í vinnustofunni. John var
að bjástra við að stækka húsið
'sitt í trénu, til þess að geta boðið
jþangað fleiri gestum í einu.
JSiívía var í bílskúrnum og reyndi
að fá Joe til að segja sér, hvernig
actti að skipta um gír í bílnum,
$>ví m. a. hafði hún hugsað sér að
verða bílstýra hjá Douglas. Sum
•börnin voru að leik á grasflöt-
inni fyrir framan skólahúsið Þau
kölluðu til hans og báðu hann
að vera með í leiknum. En hann
fór aftur heim í hús sitt og velti
Jþví fyrir sér, hvað hann ætti til
bragðs að taka. Átti hann að vera
kyrr við skólann eftir allt sem
fyrir hafði komið, eða átti hann
að leggja af stað á nýjan leik og
leita gæfunnar á öðrum slóðum.
Hann gat ekki tekið nokkra
ákvörðun. Eftir kvöldverð kom
frú Pawley aftur. Nú gætti aftur
óþreyjunnar í framkomu hennar,
; en hún var annars eðlis en venju-
lega.
„Varstu hræddur um að ég
jnundi ekki geta komið?“
„Þú hefðir ekki átt að koma“,
sagði hann. „Einhver kann að
hafa séð þig.“
„Ég er allt of hamingjusöm til
að láta það skipta mig nokkru.“
Hún andaði ótt og skjálftinn byrj
aði aftur eins og hann kæmi ein-
hvers staðar úr dýpstu hugar-
fylgsnum. „Ó, Douglas, því gat
þetta ekki skeð fyrr? Nú höfum
við eytt til einskis miklum hluta
vetrarins... . “
Líkamlegar breytingar á henni
voru næstum eins greinilegar og
breytingin í framkomu hennar.
Brjóstin á henni voru þrýstnari
og rauðu dilarnir á hálsinum á
henni voru horfnir.
Hann sagði henni að hún yrði
að fara.
„Ég mundi vera kyrr til eilífð-
ar ef þú biður mig um það“, sagði
hún.
„Ég bið þig ekki um það“, sagði
hann.
„Tíu mínútur í viðbót“, hún
stundi við. „Elskarðu mig,
Douglas?"
„Nei“, sagði hann.
„Þú ert hræddur við að segja
það“, sagði hún. „Þú ert svo
skrítinn."
Áður en hún fór sagði hún:
„Ó, ég gleymdi því, ég er með
bréf til þín.“ Hún stakk hendinni
í buxnavasann.
Hann varð fullur eftirvænting-
ar .. þetta gæti verið bréf með
skýringum á skeytinu frá Judy.
Auðvitað mundi ekkert standa í
því nema endurtekning á því
sem hafði staðið í skeytinu, en
hann þráði að fá það samt. Hann
vildi að hún hefði gert sér það
ómak að skrifa honum.
Frú Pawley rétti honum bréfið.
Það var ekki frá Judy. .. Það
var auglýsingamiði frá bókaverzl
un í Kingston. Hann fleygði því
í ruslafötuna.
„Góða nótt, Douglas.“ Hún
vafði handleggjunum um háls
hans.
„Góða nótt ......“
Hann hafði næstum kallað
hana frú Pawley. Það var hlægi-
legt. Hann gat fengið sig til að
snerta hana og hann gat stillt
sig þegar hún sýndi honum atlot ‘
en hann gat ekki hugsag sér að
kalla hana Joan.
—o—
Næsta dag kom Silvía til hans
í bókasafnið. Hún hafði skrifað
aðra sögu.
„Hún er ósköp barnaleg", sagði
hún. „En þér sögðuð mér að
skrifa um eitthvað, sem ég mundi
eftir.“
Sagan var stutt en sú langbezta
sem hún hafði skrifað og einnig
sú sannasta. Hún var um stúlku,
sem hét Eve. í garðinum heima
hjá Eve var runni sem óx út yfir
stéttina. Eve gætti þess alltaf
þegar hún gekk framhjá runnan-
um að láta hann ekki snerta sig,
vegna þess að þá fannst henni
að eitthvað illt mundi koma fyr-
ir sig. Og sömuleiðis ef eitthvað
kæmi fyrir runnann. Dag nokk-
urn sagði faðir hennar að hann
ætlaði að höggva runnann. Hann
skeytti ekki mótmælum hennar.
Eve var mjög reið og þar sem hún
var ekki viss um að runninn gæti
komig fram hefndum á fullorðn-
um manni, sem væri tilfinningar-
laus, þá tók hún það að sér að
eyðileggja eitthvað_ fyrir honum
í útvarpinu hans. Áður en faðir
hennar komst að því, hætti hann
vig að höggva runnann. Nú fann
Eve til sektar fyrir það að hún
skyldi hafa eyðilagt útvarpið
Vondi kóngurinn
4
Brá hann þá sverði sínu í bræði og hjó, en það varð vind-
högg, því á mýflugurnar gat hann ekki komið höggi. Þá bauð
hann að sækja dýrindisábreiður og vefja þeim utan um sig,
því að þá gæti engin mýfluga komizt að sér og stungið sig.
Var nú svo gert sem hann sagði fyrir. En ein mýflugan
settist í innhverfu innstu ábreiðunnar. Hún skreið inn í
eyra konungs og beit hann þar.
Hann logsveið af bitinu og eitrið læsti sig inn í heilann.
Fleygði hann þá af sér ábreiðunum eins og óður maður, reif
sundur klæði sín og dansaði allsnakinn frammi fyrir dátum
sínum.
Þeir voru menn bíræfnir og siðlausir og gerðu ekki annað
en spottast að vitlausa kónginum, sem ætlaði að fara her-
ferð á hendur guði sjálfum, en varð óðara yfirstiginn af
einni ofurlítilli mýflugu.
SÖGULOK.
Til sölu
3300 ferm. lóð
á fallegum stað í Kópavogi.
ÁRNI GUÐJÓNSSON. héraðsdómslögmaður
Garðastræti 17 — Sími 5314 og 2831
Sueinááon
ver/cfrceSingur cand.potyt. /{ársnesbraut 22 sími 2290
A[töóíö^thiiÍ2ÍLauigoA ^ámaijilkmaqQA Cltbú&AÍýdiriqaA
&LÁqj^andi uznkjfiŒAinquA i bqqqiriqouMJ^ÁGiói
*J TIVOLI"
Opnor í dng kL 2
500 kr. verðlaun
fær sá, scm verður 30. þús. gesturinn í Tivoli.
Kcmur í dag. — Skemmtiatrið: kl. 4.
Búktal, Baldur og Konni.
Munnhörputríó Ingþórs liaraldssonar
Töfrabrögð, Baldur Gcorgs.
Selskóparnir leika listir sínar i Tívolitjörninni.
Candy-floss og blöðrur handa börnunum.
30. þús. gesturinn kemur í Tivoli í dag.
Skemmtið ykkur, þar sem fjölbreyttnin
STRAUBRETTIÐ
MEÐ BLÁA BAIMDHVU
er hægt að hækka eða lækka svo hægt er að
sitja eða standa við strauningu. Þess vegna er
líka hægðarleikur fyrir böm eða unglinga að
hjálpa mömmu sinni við staruninguna
Höfum tvær gerðir fyrirliggjandL
Fást aðeins hjá okkur.
\Jéla- oý ra^tœhjaverzlb
umn
Bankastræti 10 — Simi 2852