Morgunblaðið - 11.07.1954, Side 4
4
MORGVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 11. júlí 1954 1
f dag er 192. dagur ársins.
!Árdegisflæði kl. 02,32.
Síðdegisflæði kl. 15,28.
Næturlæknir er í Læknavarð-
«tofunni, sími 5030.
Helgidagslæknir er Oddur Ól-
afsson, Hávallagötu 1, sími 80686.
Apótek: Næturvörður er í
IReykjavíkur Apóteki, sími 1760,
ífrá kl. 6. Enn fremur eru Holts
.Apótek og Apótek Austurbæjar
•opin til kl. 8.
• Messur •
EllilieimiliS: Messa kl. 10 árd.
ÍSéra Ólafur Ólafsson kristniboði
■jtredikar.
• Brúðkaup •
Nýlega voru gefin saman í
Ihjónaband af séra Magnúsi Guð-
THiundssyni ungfrú Margrét A.
iÁmadóttir frá Hymingsstöðum í
Iteykhólasveit og Matthías Guð-
sxnundsson, bóndi að Hvítanesi í
ögurhreppi.
• Hjónaefni •
Opinberað hafa trúlofun sína
’Wigfrú Erna Magnúsdóttir, Ný-
lendugötu 24 A, og Sigurbjörn
Kristinsson, Bústaðavegi 63.
• Flugferðir •
SjoftleiSir h.f.;
Hekla, millilandaflugvél Loft-
Seiða, er væntanleg til Reykjavík-
«r kl. 11,00 í dag frá New York.
Flugvélin fer béðan áleiðis til
Stafangurs, Oslóar, Kaupmanna-
liafnar og Hamborgar.
Hjálpræðisherinn
heldur kveðjusamkomu fyrir ltn.
iKristján Jörundsson í kvöld.
Skemmtiför kvennadeildar
S.V.F.Í.
Kvennadeild Slysavarnafélags
Islands fer hina árlegu skemmti-
,-för sína næst komandi þriðjudag.
Farið verður um Borgarfjörð. —
Allar upplýsingar í verzlun Gunn-
jþórunnar Halldórsdóttur, Hafnar-
—stræti, sími 3491.
• Gengisskráning •
heimspeki í Frakklandi, flytur
fyrirlestur, sem nefnist „Frönsk
nútímaheimspeki", í I. kennslu-
stofu* háskólans þriðjudaginn 13.
júli kl. 6,15. Öllum heimill að-
gangur.
(Sölugengi):
'100 svissn. frankar .. kr. 374,50
1 bandarískur dollar .. — 18,32
1 Kanada-dollar — 16,70
1 enskt pund — 45,70
100 danskar krónur .. — 236,80
T00 sænskar krónur .. — 315,50
100 norskar krónur . . — 228,50
100 belgiskir frankar . — 32,67
1000 franskir frankar . — 46,63
100 finnkk mörk — 7,09
1000 lírur —- 26,13
100 þýzk mörk — 390,65
100 tékkneskar kr — 226,67
100 gyllini — 430,35
(Kaupgengi):
1000 franskir frankar kr. 46,42
'100 gyllini — 428,95
100 danskar krónur .. — 235,50
100 tékkneskar krónur — 225,72
1 bandarískur dollar .. — 18,20
100 sænskar krónur .. — 314,45
100 belgiskir frankar . —• 32,50
100 svisn. frankar — 373,50
100 norskar krónur .. — 227,75
1 Kanada-dollar — 16,64
100 þýzk mörk — 389,35
GuIIverS íslenzkrar krónu:
100 gullkrónur jafngilda 738,95
■pappírskrónum.
• Söfnin •
Xistasafn ríkisins
er opið þriðjudaga, fimmtu-
daga og laugardaga frá kl. 1—3
e. h. og sunnudaga frá kl. 1—4
•íðdegis.
Málfundafélagið Óðinn.
Skrifstofa félagsins í Sjálfstæð-
ishúsinu er opin á föstudagskvöld-
um frá kl. 8—10. Sími 7104. —
Gjaldker tekur þar við ársgjöld-
■um félagsmanna, og stjórn félags-
ins er þar til viðtals við félags-
menn.
Fyrirlestur í háskólanum.
Hr. André Jacob, kennari í
• Skipafréttii •
Skipaútgerð ríkisins:
Hekla er á leið frá Kristiansand
til Thorshavn í Færeyjum. Esja
er á Austfjörðum á leið til Reykja-
víkur. Herðubreið er á Austfjörð-
um á suðurleið. Skjaldbreið fer frá
Reykjavík á mánudaginn vestur
um land til Raufarhafnar. Þyrill
kom til Reykjavikur í gær. Skaft-
fellingur er í Vestmannaeyjum.
Skipadcild S.Í.S.:
Hvassafell er í Keflavík. Arnar-
fell fór 8. júlí frá Keflavík áleiðis
til Rostock. Jökulfell fór 8. júlí
frá New York áleiðis til Reykja-
víkur. Dísarfell er á Austfjarða-
höfnum. Bláfell er í Riga. Litla-
1 fel 'kemur ti Hvalfjarðar í dag.
1 Ferm er væntanlegt til Keflavíkur
í dag. Lita er á Aðalvík. Sine
. Boye lestar salt í Torrevieja um
12. júlí. Kroonborg er í Amster-
dam. Havjarl fór frá Aruba 6. júlí
áleiðis til Reykjavíkur.
Sameinaða.
Dronning Alexandrine fór frá
Kaupmannahöfn s. 1. föstudags-
kvöld. Væntanleg til Reykjavíkur
næst komandi miðvikudag.
• Aímæli •
Bæjarbíó í Hafnarfirði:
, ,ANNA“
BÆJARBÍÓ í Hafnarfirði hefur
um nokkurt skeið vakið almenna
athygli fyrir frábærar kvik-
myndir, sem það hefur sýnt,
hverja eftir aðra. — I vor sýndi
það mexikönsku myndina ,,Glöt-
uð æska“, afburðagóða mynd um
vandamál æskunnar, þar sem
byggt var á raunsæi og djúpum
skilningi á viðfangsefninu. Vakti
mynd þessi mikla hrifningu allra
þeirra er hana sáu og þeir voru
margir, því að myndin hlaut
mikla aðsókn.
Nú hefur Bæjarbíó sýnt hátt á
fimmtu • viku ítalska afburða-
mynd, stórbrotna og áhrifamikla
að efni og listræna að efnismeð-
ferð og allri gerð. Mynd þessi, er
nefnist „ANNA“ eftir aðalpersón-
unni, lýsir á hrífandi hátt lifi og
baráttu dægurlagasöngkonunnar
„Önnu“, glæsilegrar og ungrar
stúlku, er svellur suðrænt, ólg-
andi blóð í æðum, en er þó gædd
þróttmikilli skapgerð og fágæt-
um persónuleika. Þungbær
reynsla hennar og hin sterka
innri barátta til þess að sigrast á
ásæknum freistingum, og að lok-
um hrein og fölskvalaus ást,
hreinsa hug hennar og efla per-
sónuleika hennar til þess átaks
er að lokum færir henni þann sig
ur, sem er öllum sigri meiri, að
fórna sjálfri sér fyrir háleitt lífs-
starf. —
Hin glæsilega og frábæra
ítalska leikkona Silvana Mang-
ano, leikur aðalhlutverkið
„Önnu“, af stórbrotinni snilld og
|
sterkri og djúpri innlifun. Er fá-
gætt að sjá í kvikmyndum jafn
eilsteyptan og áhrifamikinn leik.
— Silvana Mangano hefur áður
sést hér, — í hinni stórbrotnu
ítölsku kvikmynd „Beizk upp-
skera“, er Gamla Bíó sýndi fyrir
nokkrum árum og hefur nú tekið
aftur til sýningar. Einnig í þeirri
mynd er leikur hennar áhrifa-
mikill og heillandi.
Af öðrum ágætisleikurum er
fara með hlutverk í ,,Önnu“, ber
fyrst og fremst að nefna Jacques
Damesnil, er leikur læknirinn,
prófessor Ferri. Er leikur hans
snilldargóður, heilsteyptur og
sannfærandi og gerfi hans í full-
komnu samræmi við persónuna.
Þá fer Vittorio Gassmann, sem
kunnur er hér af leik sínum í
„Beizk uppskera", einnig með1
allmikið hlutverk í þessari mynd
er hann leysti ágætlega af hendi.
— Raf Vallone, sem lék einnig í
„Beizk uppskera“, fer hér og með
veigamikið hlutverk, og sýnir
nú sem áður þróttmikinn og
prýðilegan leik. — Auk þeirra
leikenda sem nú hafa verið taldir,
má geta þess að tvær systur (?)
Silvana Mangano fara þarna með
smærri hlutverk. —
„Anna“ er heillandi rhynd og
fögur, og einstök í sinni röð All-
ir sem sjá hana hljóta að hrífast
af henni og óska þess með sjálf-
um sér að kvikmyndahús höfuð-
borgarinnar hefðu þó ekki væri
nema við og við, upp á slíka
kostafæðu að bjóða.
Ego,
85 ára er á morgun, 12. júlí,
Þórður Jónsson frá Bjóluhjáleigu
í Holtum, nú til heimilis að Finn-!
bogahúsum hér í bæ. Þórður er nú
í heimsókn hjá ættingjum sínum
í Rangárþingi.
Félag austfirzkra kvenna
i fer skemmtiferð n. k. þriðjudag.
Farið verður frá Búnaðarfélags-
húsinu við Lækjargötu kl. 1 e. h.
Upplýsingar eru gefnar í síma
3035 og 6048.
Verkfall verkfræðinganna.
I 1 tilkynningu stéttarfélags verk-
fræðinga, sem birtist i blaðinu í
gær, misritaðist dagsetningin á
viðræðufundunum, sem fram hafa
farið. Stóð 1. til 9. júlí, en átti að
vera 1. til 9. júní.
Minningaspjöld
Krabbameinsfél. íslands
fást í öllum lyfjabúðum í Rvík
og Hafnarfirði, Blóðbankanum
við Barónsstíg og Remidía. Enn
fremur í öllum póstafgreiðslum
út á landi.
Hvað kostar undir bréfin?
Einföld flugpóstbréf (20 gr.):
Danmörk, Noregur, Svíþjóð kr.
2,05; Finnland kr. 2,50; England
og N.-írland kr. 2,45: Austurríki,
Þýzkaland, Frakkland og Sviss kr.
3,00; Rúsland, Italía, Spánn og
Júgóslavía kr. .3,25. — Bandaríkin
(10 gr.) kr.í 3,15; Canada (10 gr.)
kr. 3,35. — Sjópóstur til Norður-
landa (20 gr.) kr. 1,25 og til ann-
arra landa kr. 1,75.
Heimdellingar!
Skrifstofan er opin milli kl. 2
og 3 virka daga.
Safn Einars Jónssonar
er opið sumarmánuðina daglega
frá kl. 13,30 til 15,30.
Bæjarbókasafnið.
Lesstofan er opin alla virka
daga frá kl. 10—12 Árdegis og kl.
1—10 síðdegis, nema laugardaga
kl. 10—-12 árdegis og kl. 1—4 sið-
degis.
joommjasatnto
er opið sunnudaga kl. 1—4 og
þriðjudaga, fimmtudaga og laug-
ardaga kl. 1—3.
• Utvarp •
9,30 Morgunútvarp. Fréttir og
tónleikar: „Myndir á sýningu",
hljómsveitarverk eftir Moussorg-
sky. 11,00 Morguntónleikar (plöt-t
ur): a). Kvintett fyrir blásturs^
hljóðfæri og píanó (K 516) eftir
Mozart. b) Tríó í Es-dúr op. 100,
eftir Schubert. 15,15 Miðdegistón-t
leikar (plötur). 16,15 Fréttaút-
varp til íslendinga erlendis. 17,00
Messa í Dómkirkjunni (Prestur
séra Jakob Jónsson. Organleikari
Páll Halldórsson). 18,30 Barnatími
(Baldur Pálmason): a) örnefni
og sagnir; III: Helgafell / Vor í.
eyjum (Stefán Jónsson námsstj.).
b) Lára Rafnsdóttir (8 ára) leik-
ur á píanó. c) Björn Magnússon
frá Ægissíðu flytur frásögu: Hest-
urinn Ófeigur. d) Upplestur og
tónleikar. 19,30 Tónleikar: Artur
Rubinstein leikur á píanó (plötur).
20,20 Tónleikar (plötur). 20,35 Er-i
indi: Múhamed; fyrra erindi (Sig-
urbjörn Einarsson pi'óf.). 21,05
Einsöngur: Sigurður Skagfield ó-
perusöngvari syngur; Fritz
Weishappel leikur undir á píanó.
21.25 Samfelld dagskrá um svif-
flug. 22,05 Danslög (plötur). 23,30
Dagskrárlok.
Mánudagur 12. júlí:
19,30 Tónleikar: Lög úr kvik-i
myndum (plötur). 20,20 Tónleikar
Boston Promenade hljómsveitin
leikur (plötur). 20,40 Um daginn
og veginn (Dr. Broddi Jóhannes-
son). 21,00 Einsöngur: Miliza
Korjus syngur (plötur). 21,25 Er-
indi: Um síld og síldveiðar; síðara
erindi (Guðmundur Jörundsson
skipstjóri). 21,45 Hæstaréttarmál
(Hákon Guðmundsson hæstaréttar-
ritari). 22,10 „Heimur í hnot-
skurn“, saga eftir Giovanni Gua-
reschi; XIX: Góðvildarmenn; —.
sögulok (Andrés Björnsson).
22.25 Dans- og dægurlög: Tip-Toþ
hljómsveitin leikur og syngur
(plötur). 23,00 Dagskrárlok.
- Afhugasemd
Framh. af bls. 2
unnið vel, án þess pólitísk sjón-
armið kæmu til greina.
Tíminn minnist á fjárútvegun
1950, sem raunverulega var tekin
úr vösum olckar kaupstaðabúa.
Ekkert af því fé fór til Bygginga-
félags verkamanna, heldur gekk
það til greiðslu á yfirdráttarskuld
við Landsbankann, vegna lána til
verkamannabústaða úti á landi.
Má Tíminn telja það fé eftir, ef
hann vill. En fjárgjöfin 1952 var
bundin því skilyrði, að Búnaðar-
bankanum yrðu gefnar 20 millj.
Þa ðgóðverk var því selt með
góðum hagnaði, þó féð væri tekið
úr sameiginlegum sjóði þjóðar-
innar.
Og svo er það æskulýðsfylking
Tímans. Það er leitt að sjá efnis-
pilta, sem hafa fengið gott upp-
eldi, puða við að slökkva þanti
frelsis- og umbótaeld, sem bænd-
urnir kveiktu fyrir 70—80 árum,
og sem var undirstaðan að fram-
förum 20. aldarinnar. Þeir hefðu
varla trúað því gömlu bændurn-
ir, að sonarsynir þeirra myndu
prédika einokunar- og einræðis-
kenningar kommúnismans.
Hannes Jónsson.