Morgunblaðið - 11.07.1954, Page 9
Sunnudagur 11. júlí 1954
MORGVIHBIAÐIB
9
ReykJavíkurbréf:
Laugardagur 10. íúli
Tengslin milli landsins og fólksíns — Norrænir búvísinda-
menn — Verkamannabústaðirnir og vinir þeirra — Raunhæf
úrræði til sköpunar jafnvægi í byggð landsins — Raforkufram-
Að þekkja landið
VIÐ Islendingar höfum eins og
flestar aðrar þjóðir mikla ánægju
af ferðalögum. Fjöldi fólks fer
árlega til útlanda og ferðast þar
um, víkkar sjóndeildarhring sinn
og kynnist mönnum og málefnum
meðal framandi þjóða. Er það vel
farið.
En margir þeir, sem mest ferð-
ast um erlendis hafa ekki gert
sér það ljóst, að þeir eiga mikið
óséð af sínu eigin landi, bæði
byggðum þess og óbyggðum. Og
ísland býr yfir fjölmörgum dá-
semdum, sem veita ferðafólki er
leittar hvíldar og hressíngar út í
náttúrunni unað og tilbreytingu.
Ferðafélag íslands hefur allt
frá stofnun sinni unnið ötullega
að því að kynna þjóðini land sitt.
I því skyni hefur það m. a. gefið
út Árbók sína. f henni eru ein-
stökum héruðum og landshlutum
gerð góð skil af ritfærum og
kunnugum mönnum. Þar eru
birtar myndir af landslagi og
sögufrægum stöðum.
Tengslin milli landsins
og fólksins
ÞETTA starf Ferðafélagsins
er ákaflega merkilegt og gagn-
legt. íslendingar eiga að
þekkja land sitt og knnna að
meta fegurð þess og stórfeng-
leik. Það treystir tengslin milli
landsins og fólksins og hefur
mikla uppeldislega þýðingu
fyrir hina uppvaxandi kyn-
slóð. Sú æska, sem þekkir
sögu lands síns og sambandið
milli hennar og þess verður
við það betri og þroskaðri ís-
lenzk þjóð en ella.
Síðasta Árbók Ferðafélagsins
er um Borgarfjarðarsýslu norð-
an Skarðsheiðar. Er hinu fagra
Borgarfjarðarhéraði lýst þar og
brugðið upp fjölda mynda úr
sögu þess að fomu og nýju. Hver
sá, sem les þessar héraðslýsing-
ar Árbókanna öðlast við það stór-
aukna þekkingu á landi sínu. Á
Ferðafélagið miklar þakkir skild-
ar fyrir þetta útgáfustarf sitt. En
það hefur gefið Árbók sina út
síðan árið 1928. Er þetta rit nú
orðið mjög eftirsótt.
Norrænir búvísinda-
menn
UNDANFARIÐ hefur staðið hér
yfir fundur norrænna búvísinda-
snanna. Hafa þar hitzt fulltrúar
frá öllum Norðurlöndum. Er
þetta í fyrsta skiptið, sem slíkur
fundur er haldinn hér á landi.
Að því er vafalaust mikill
fengur að fá hingað ágæta kunn-
áttumenn á sviði landbúnaðar-
.mála. Danir, Norðmenn, Finnar
og Svíar eru áreiðanlega allir
lengra komnir áleíðis á sviði vís-
indalegrar starfsemi í þágu Iand-
búnaðarins en við íslendingar
erum. Er engin skömm að því
fyrir okkur að játa það hrein-
skilnislega. Við hljótum því að
leggja hið mesta kapp á að til-
einka okkur smám saman þeirra
reynslu og þekjkingu á bessu
sviði. Islenzkur landbúnaður þarf
ekki síður en aðrar atvinnugrein-
ar á vísindalegu rannsóknarstarfi
að halda. Sem betur fer höfum
við einnig á að skipa ungum
menntamönnum, sem hlotið hafa
menntun, er þessari elztu at-
vinnugrein þjóðarinnar má að
miklu gagni koma. Við verðum
aðeins að kunna að notfæra okk-
ur þessa menntun, byggja upp-
kvæmdir fyrir vestan og austan
Við Skorradalsvatn, ein myndanna í Árbók Ferðafélagsins um Borgarfjarðarsýslu.
byggingu búnaðar okkar i vax-
andi mæli á vísindalegu starfi og
hagnýtum rannsóknum, bæði í
ræktun, meðferð búpenings og á
fleiri sviðum.
Ef samvinnan við hina norrænu
búvísindamenn hefur aukið skiln
ing frammámanna búnaðarsam-
taka okkar á mikilvægi þess þá
er vissulega vel farið.
Verkamannabústað-
irnir og vinir þeirra
BYGGINGAFÉLAG verkamanna
hér í Reykjavík átti nýlega 15
ára afmæli. Var þess minnst í
blöðum, m. a. hér í blaðinu með
ítarlegum greinum. Hér er um
félagsskap að ræða, sem unnið
hefur merkilegt og gagnlegt starf
í þágu húsnæðisumbóta í höfuð-
borginni.
Skrif Mbl. um verkamannabú-
staðina hafa orðið til þess að mál-
gögn Alþýðuflokksins og Fram-
sóknarflokksins hafa fyllzt mátt-
lausri heift og hellt fáryrðum
yfir það. Sætir þetta hinni mestu
furðu. Þessir flokkar hafa jafnan
þótzt vera miklir og einlægir
vinir verkamannabústaðanna.
Ætla mætti að þeir fögnuðu því,
að vinsamlega væri um þau sam-
tök ritað, sem haft hafa forystu
um byggingu þeirra. En það er
nú öðru nær. Tíminn og Alþýðu-
blaðið eru hreinlega móðguð og
sárreið yflr vinsamlegum skrifum
Morgunblaðsins um Byggingafé-
leg verkamanna.
Vinátta þessara blaða við
verkamannabústaðina er eitt-
hvað annarleg. Þau geta ekki
þolað það, að saga þeirra sé
sögð af samúð og skilningi af
öðrum en þeim sjálfum. Er
þetta einlæg vinátta? Sýnir
þetta fölskvalausan áhuga fyr-
ir því að haldið verði áfram af
vaxandi krafti að byggja
verkamannabústaði?
Mér er næst að halda að svo
sé ekki. Það má vel vera að ein-
hverjir hafi ekki tekig hugmynd-
inni um byggingu verkamanna-
bústaða af fullum skilningi fyrir
25 árum. En það er áreiðanlega
langt síðan sá misskilningur gerði
vart við sig.
Verkin tala
UM afstöðu Sjálfstæðisflokks-
ins til verkamannabústaðanna
tala verkin greinilegast. Ekk
ert bæjarfélag hefur stutt
byggingu þeirra eins öfluglega
og Reykjavík undir forystu
Sjálfstæðismanna. Höfuðborg-
in hefur jafnan staðið í fyllstu i
skilum með framlög sín til
þessara framkvæmda. Er það
Norrænir búvisindamenn, talið frá vinstri: Árni G. Eylands, stjórnarráðsfulltrúi, Karsten Iversen,
tilraunastjóri (Danmörku), dr. Lars Spildo, forstjóri (Noregi), prófessor Pentti Kaitera (Finn-
landi) og prófessor Frederik Nilsson (Svíþjóð). (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
meira en hægt er að segja um
þau bæjarfélög, sem Alþýðw-
flokkurinn hefur stjórnaö'.
Það er t. d. landsfrægt
jafnaðarmenn. á ísafirði svik-
ust um það ár eítir ár að inna
af höndum lögboðnar greiðsl -
ur til verkamannabústaðanna.
Enginn stjórnmálaflokkur hef-
ur heldur stutt byggingar smá-
íbúða sem fjöldi verkamanna og
láglaunafólks hefur ráðist í eins
rösklega og Sjálfstæðisflokkur-
inn. Undir hans forystu er nú.
einnig unnið að undirbúningi
framibúðar lausnar á lánsfjár
vandamálinu, sem staðið hefur
allri byggingarstarfsemi í land-
inu mjög fyrir þrifum undanfarin.
ár.
Hið lítilmótlega nart Al-
þýðublaðsins og Tímans í
Sjálfstæðisflokkinn fyrir að
minnast 15 ára afmælis Bygg-
ingafélags verkamanna f
Reykjavík myndarlega er þ\í
ekki aðeins gersamlega órök-
stutt. Það sýnir hlægilega.
minnimáttarkennd flokk.%
sem finna að þejr hafa dagaði
uppi eins og nátttröll fyrir rís-
andi degi. Fólkið trúir ekbi
rausi þeirra um umbótaf jand-
skap Sjálfstæðisflokksins. Þa®
trúir því ekki vegna þess, að'
það sjálft hefur reynt og noti®
forystu hans um flest mestu
hagsmunamál þess. Það er
kjarni málsins.
Framkvæmdaáætlun
til sköpunar jafnvægis
í byggð landsins
ÓLAFUR THORS, forsætisráð-
herra hefur fyrir skömmu skipað
þá alþingismennina Gísla Jóns-
son, forseta Efri deildar og Gísla
Guðmundsson, þm. N.-Þingey-
inga, í nefnd til þess að gera til-
lögur um samræmdar aðgerðir
til sköpunar og viðhalds jafnvægi
í byggð landsins. Er þessi ráð-
stöfun byggð á þingsályktunartil-
lögu, sem Sjálfstæðismenn og
Framsóknarmenn stóðu að á Al-
þingi fyrir rúmu ári síðan.
Það sem vakti fyrir flutnings-
mönnum þessarar tillögu vai’
fyrst og fremst það, að gerðar
yrðu ráðstafanir til þess að bæta
aðstöðu þeirra byggða í landinu,
til sjávar og sveita, sem við erfið-
asta aðstöðu hafa búið. Þeir töldu
það mjög hættulegt fyrir alþjóð-
arhagsmuni, að fólkið héldi áfram
að streyma frá framleiðslustöð-
um utan af landi til hinna stsérstu
kaupstaða, þar sem það síðau
eyddi gjaldeyri í staðinn fyrir
að skapa hann.
Hér er vissulega um ‘.tórmál að
ræða. Veltur mikið á þ,í ?ð eng-
in vetlingatök verði höfð á hv£
verkefni, sem hinni nýsköpu ."Xt
nefnd hefur verig falið, því ao
sjálfsögðu er það ekki nóg nð
fela greindum og gegnum mönn-
um að gera um það tiIJögur.
verður að framkvæma þær
sýna raunhæfa viðleitni til þtss
að stöðva samþjoppun fólksins á
einum stað á landinu.
Enda þótt Reykjavik og'
umhverfi hennar sé lífvæn-
legur landshluti geta íslenö-
ingar ekki byggt lífsbjargar-
viðleitni sína á þvi starfi einu,
sem þar er unniff Þaff verður
að framleiða fisk tií utflutn-
ings og landbúnaðarafurffir til
innanlandsneyzlu, og jafnvel
tii útflutnings, víðsvegar urn
lamlið, Við verffum jafnframi;
Framh. á bls. 12
«ð
og