Morgunblaðið - 31.07.1954, Page 6

Morgunblaðið - 31.07.1954, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 31. júlí 1954 AKUREVRARBREF AUÐVITAÐ er það síldin, sem mest er talag um núna manna á meðal. Hefurðu frétt nokkuð í morgun? Nokkuð heyrt um síld í dag? Þeir voru víst að fá hana í nótt, veistu nokkuð hvað mikið? Þannig ganga spurningarnar þeg- ar menn hittast á förnum vegi, og meira að segja þó að menn hitt- ist ékki. Menn kalla þetta hver til annars á löngu færi, oft yfir þvera götuna. Og nú er bræla á miðunum. Engin síid í dag. Já, svona geng- ur það. Það er sannkallaður happ- drættisfisku þessi síld. Einn seg- ir að það sé síldarlegt í sumar, en annar segir að ómögulegt sé að segja hvernig þetta fari og líklega er það það eina, sem hægt er að segja með fullri vissu um síldina í sumar. En samt sém áður eru skipin komin tugum saman á miðin og mörg hafa fengið „slatta“. Við verðum bara jað vona ag þau fái sem flesta „slattana“. Kvenfólkið fer í stórhópum á síldarsöltunarstöðvarnar. Það er eitt af æfintýrum sumarsins að fara í síld. Sumir atvinnurek- endur, sem þurfa að hafa kven- fólk í þjónustu sinni, eru komnir í hreinustu vandræði. Síldin hef- ir lokkað frá þeim alla starfs- krafta þeirra. Þag liggur við að það sé sama þótt þeir bjóði ráð- herralaun. Æfintýrin á síldar- planinu eru miklu meira metin. EKKI ÍSLANDSSÍLD Ég heyrði á tal tveggja síldar- skipstjóra hér á dögunum. Annar var af eldri kynslóðinni og hætt- ur fyrir nokkru að fara á síld, en hinn var skipstjóri á norsku síldveiðiskipi, sem hingað kom til bæjarins. Þeir ræddu auðvitað um síldina. Töldu þeir að síldin, sem nú hefir veiðzt við Norð- austur-landið, væri ekki hin rétta Íslandssíld, eins og hún gerðist hér áður fyrr. Norski skipstjór- inn sagðist hafa fengið 300 tunn- ur í kasti hérna um daginn, en af því gat hann ekki notað til söltunar nema 145 tunnur, hinu varð hann að henda í sjóinn. En sem kunnugt er, salta Norðmenn um borð í skipum sínum. Þeim skipstjórunum kom saman um að hér væri um að ræða samskonar síld og veiðist við Skotland og Færeyjar, en ekki hina raun- verulegu Íslandssíld, eða Norður- landssíld. LÉLEG HEYSKAPARTÍÐ Sumarið kom að þessu sinni óvenju snemma og byrjaði mjög vel. Grasspretta hefir verið með ágætum, og sumarið í þeim efn- um langt yfir meðallag. En hey- skapartíðin hérna á Norðurlandi hefir verið fremur stirð til þessa, nema rétt fyrst. Júlímánuður hef ir verið misviðrasamur. Hey hafa þó ekki hrakizt til stórskemmda. Sumir byrjuðu að slá snemma í júnímánuði og það var til að búið væri með fyrrislátt túna um mánaðarmótin júní—júlí. En þetta var aðeins þar sem bænd- ur hafa súgþurrkun. Það hefir oftast verið hægt að taka heyið vel grasþurrt og hálfþurrt inn í hlöðurnar og síðan hefir blásar- inn lokið vig þurrkunina. En hinir, sem ekki hafa súgþurrkun- ina og litlar votheysgeymslur, hafa átt í meiri erfiðleikum, sér- staklega þeir, sem einhverra hluta vegna gátu ekki byrjað snemma að slá. Þetta sýnir að enn þarf mikið að gera til þess að fullkomna að- stöðu baenda til heyverkunar. Það vantar enn mikið á að allir hafi getað aflað sér þeirra ný- tízku tækja, sem þörf er til þess að hægt sé að reka sem hag- kvæmastan búskap. Vissulega eru þessi tæki dýr og sjálfsagt nálægt því að vera fjárhagsleg ofraun mörgum bóndanum, sem hefir orðið að gera svo mikið á Happdrættisfiskurinn — Kona fyrirfinnst engin — Ekki Íslandssí'd — Léleg heyskapartíð — Hin mikla þörf framhaldandi nýsköpunar — Á heilbrigðri skemmtun í sveit — Tryggingin í höndum almennings — Fremmri-Kotum verður að halda í byggð Pokahlaup á héraðsmóti ungmennafélaga í Eyjaf-rði. — Ljósm. V. Guðm. svo skömmum tíma. En þessi nýju tæki eru fljót að borga sig, þegar aðstæður frá náttúrunnar hendi eru óhagstæðastar svo sem t. d. heyskapartíðin nú síðasta mánuð. MILLJÓNATAP Því verður ekki á móti mælt, þótt nýsköpun atvinnuveganna hafi verið bæði hröð og stórstíg á undanförnum árum, að enn eru gifurleg verkefni óleyst á þessu sviði. Og ef til vill hefir aldrei verið þörf hraðari nýsköpunar en einmitt nú, til þess að fullkomin nýting verði þeirra dýrmætu tækja og þeirra miklu verklegu framkvæmda, sem þegar hafa verið unnar. Það er t. d. enginn vafi á því, að þáð mun vera hægt a® sanna það tölulega, að við verðum ár- lega fyrir milljónatjóni af því að ekki er hægt að hagnýta fisk þann er hér berst á land svo sem skyldi. Okkur vantar hrað- frystihús og fiskþurrkunarhús og okkur vantar hafnarmannvirki. Þannig mætti lengi telja. Og okk- ur vantar vélar til landbúnaðar- ins, rafmagn, vélar og byggingar fyrir iðnaðinn, skip til flutninga o. s. frv. Og auðvitað stafar þetta af skorti á aflgjafa þeirra hluta, sem gera skal, peningunum. Alls- staðar vantar peninga og alla vantar peninga. Og ekki verður því neitað að: stundum er þeim misviturlega ráðstafað. En við verðum að bera .traust til þeirra manna, sem með stjórn þessara mála fara. Hið eilífa nag, rógur og metingur um heiffur og lof fyrir unnin afrek er ekki til þess fallinn að leysa þann vanda, sem við er að stríða. Grundvöllur þess að einhver geti leyst starf sitt vel af hendi, er að hann hafi traust þess er hann vinnur verkið fyrir og að hann hafi friff til þess að leysa verkefni sitt. Þe>- sem fara með æðstu stjórn efnahags- og atvinnumála þjóðarinnar eru þarna engin undantekning. Á IIÁTÍÐ UNGMENNAFÉLAGA Um og laust fyrir síðustu alda- mót, þegar íslenzka þjóðin tók aftur að roðna í vöngum og þlómi heilbrigðis og sjálfstæðis fór aft- ur að sjást á yfirliti hennar, leit ungmennafélagsskapurinn í fyrsta sinni dagsins ljós. Félags- þroski fæddist með æsku þessa lands. Eftir margra alda niður- lægingu og kúgun fann æskan að hún gat og mátti fleira en þræla þrautpínd fyrir vesölu lífsviður- væri. Lengi var ungmennafélags- skapurinn eini félagsskapur æsk- unnar í landinu. En brátt fjölgaði félögum æskunnar og nú er svo komið að vart verður tölu á þau komið. Hin síðari ár hafa því ung mennafélögin þokað í skuggann fyrir öðrum meira áþerandi fé- lögum, og er þar fyrst að nefna hin fjölmörgu íþróttafélög, sem að einum þræði yfirtóku starf ungmennafélaganna. Það var því nokkur viðburður að vera staddur á héraðsmóti nokkurra ungmennafélag'a hér í Eyjafirði. Félögin voru fjögur talsins og voru öll innan presta- kalla eins sóknarprests, séra Sig- urðar Stefánssonar á Möðruvöll- um í Hörgárdal. Voru þetta ung- mennafélögin í Glæsibæjar-, Arnarnes-, Skriðu- og Öxnadals- hreppum. Mót þetta var haldið, þar sem skerast Hörgárdalur og Öxnadalur, sumpart að Bægisá og sumpart að Melum í Skriðu- hreppi- í hinu ný-viðbyggða fé- lagsheimili þeirra Hörgdælinga. Hófst það með guðsþjónustu í Bægisárkirkju. Síðan voru þreytt ar íþróttir á túninu á Syðri-Bæg- isá og loks var sameiginleg kaffi- drykkja og dans að Melum. Það er fagur siður, þar sem æskufólk kemur saman til leiks og mannfagnaðar að hann hefj- ist með kirkjugöngu þar sem hlítt er guðsþjónustu. Einmitt það er mönnum áminning um að þreyta drengilegan leik, en því miður vill það stundum bregða við, að hin harða keppni leiði menn út fyrir takmörk þess, sem nefnt er drengilegur leikur. Ekkert slíkt sást á Bægisár- túninu, enda var þar ekki keppt til þess að slá nein met. Það voru hraustir ög heilbrigðir sveita- drengir, útiteknir og veðurbarð- ir, þjálfaðir í striti búverkanna, sem þarna háðu keppni. Vitan- lega kepptu þeir til þess að sigra hver um sig, en ánægja þeirra sem biðu lægri hlut var ekki að sjá neitt minni en hinna, er fóru með sigur af hólmi. Þarna háðu menn knattspyrnu, reiptog, tunnuboðhlaup og pokahlaup, iþróttir, sem ekki eru til á meta- skrám íþróttafrömuðanna. Síðan var haldið heim að Melum og sezt að krásum hlöðnu kaffiborði, þar sem étið var og drukkið af hjartans lyst, ræður fluttar og sungið milli kaffibollanna og að síðustu þveittust menn og sveitt- ust í dunandi dansi. Það var fög- ur og sönn gleffi, sem einkenndi þetta skemmtanahald unga fólks ins. Þar ríkti hirspursleysi og heilbrigð kátína, þar sem-æsku- fjörið var eini aflgjafinn. HJÁLPARSTARFSEMI ALMENNINGS Það ber vott um rikan skiln- ing og samúð alls þofra fólks, hve oft gengur vel fjársöfnun til þeirra, sem hart hafa orðið úti af slysum, eldsvoðum og náttúru- hamförum. í mörgum tilfellum verða raunir þessa óhamingju- sama fólks aðeins að litlu bættar með fégjöfum. Ástvinamissi fær( aðeins læknishendi tímans grætt. En það fer oft saman er menn missa ástvini sína og hin verald- legu verðmæti. Þá er eina bóta- greiðslan, sem þetta fólk hlýtur, samskotafé samúðarfulls almenn ings. Mér kemur þetta í hug vegna þess að með tiltölulega skömmu millibili hafa slys og eyðilegging af völdum náttúruhamfara herj- að tvö sveitabýli hér norðan lands. Annað var þegar eldur eyddi bæinn að Sandhólum í Eyjafirði og varð þremur dætr- um hjónanna þar að bana og hitt var þegar skriðurnar í Norður- árdal í Skagafirði eyðilögðu að mestu jörðina að Fremri-Kotum. Það mun þegar hafa safnazt nokk urt fé til handa Sandhólafólkinu, þótt það að sönnu bæti aðeins að litlu einu þann sorglega missi er það fólk varð fyrir. ALMENNINGSÞÖRF AÐ KOTUM SÉ HALDIÐ í BYGGÐ Fyrir skömmu er svo hafin, söfnun handa fólkinu að Kotum. Svo sem kunnugt er, eru Fremri- Kot afskekkt jörð. Ræktanlegt undirlendi var lítið, og jörðin að öðru leyti grýtt og brött fjalls- hlíð. Nú hafa skriðurnar lagst yfir svo til allt þetta litla ræk|- aða og ræktanlega land. Lífstarf bóndans er í einu vettvangi þurrkað út og framtíðarmögu- leikarnir gereyddir. Eftir stendúr íbúðarhúsið í miðri urðinni. Það mun ekki hafa verið kannað hvort mogulegt er að ryðja burt aurnum og gr'jótinu af túninu og því landi, sem búi& hafði verið undir ræktun. En þó að það væri hægt er það víst að stórfé þarf til þess að vinna það verk. Ég er þess fullviss að enginn skattgreið andi þessa lands myndi fárast út af því þótt hið opinbera legði fram nokkurt fé til þessa verks, ef framkvæmanlegt reynist. Þýí auk þess að bæta bóndanum það gífurlega tjón, sem hann hefir orðið fyrir, er það almennings- þörf að einmitt þessu býli sé haldið í byggð. Þess er skemmst að minnast er bílslysið varð í Giljareit á Öxnadalsheiði og annar hinna ungu manna, er hrapaði í gilið, komst við illan leik niður að Fremri-Kotum og gat þannig orðið sér og félaga sínum til bjargar. Það er mjög vafasamt að maðurinn hefði haft sig norður í Bakkasel, því að þangað er mun lengri leið, jafn illa og hann var á sig kominn. Ekki er líklegt að undrast hefði verið um mennina fyi’r en næsta dag, er þeir komu ekki fram í Reykjavík og á þessum tíma átti enginn bíll erindi yfir heiðina í nærfellt sólarhring eftir að þeir félagar fóru þar um. Það eru því miklar líkur til þess að báðir þessir menn hefðu látið lífið ef Fremri-Kot hefðu verið í eyði. Enn er svo ógetið gestrisninnar á Fremri-Kotum, þegar menn eru í erfiðum vetrarferðum að berj- ast yfir Öxnadalsheiði. Að þessu athuguðu má mönn- um ljóst vera, hve mikil þörf er að því að Fremri-Kot séu byggð áfram, ef þess er nokkur kostur. Vignir. POTAX SÚPUKRAFTUR - SÚPUTENINGAR Ml)) HmFwa i Olse^ %CliM Sími 1—2—3—4 x&l Svejnéáorf verkfrceðingur cand.polyt. f(ársnesbraut 22 simi 2290 /V[tá4l^</aJj2Íkn.LrigaA ^ÓArxitiáJaúriqaA ÚtboÓóHjóinqaA uMkjjAxEÁinquA i. bqqquhqauEAk|yLGi6ú Frá Laugarvatni Gistihúsið á Laugarvatni verður ekki starf- rækt í sumar. Óheimilt er að tjalda í Laugarvatnslandi án leyfis. Fólki undir áhrifum áfengis er stranglega bannað að dvelja á Laugarvatni. Bjaini Bjarnason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.