Morgunblaðið - 29.09.1954, Blaðsíða 2
2
MORQVPí BLA&1&
Miðvikudágur 29. sept. 1954
r
Operettan Meyjarskemman
færð upp á Ak
AKUREYRI, 28. sept.
SNEMMA í þessum mánuði hélt Leikfélag Akureyrar síðari hluta
aðalfundar. Hinn nýkjörni formaður, Vignir Guðmundsson,
lagði þar fram áætlanir stjórnarinnar um væntanleg verkefni
lélagsins á komandi leikári.
ÓPERETTAN MEYJARSKEMM-
AN FÆRÐ UPP
Undirbúningur var þá þegar
liafinn að uppsetningu tveggja
leikrita, en ekki það langt á veg
kominn, að fullvíst mætti telja,
að fyrirætlanir kæmust í fram-
kvæmd. Nú er aftur á móti svo
langt komið málum, að vænta
má, að hér á Akureyri verði kom-
ið upp bæði fyrstu óperettunni
og fyrsta barnaleikritinu, sem LA
tekur sér fyrir hendur. Ákveðið
2tefir verið að taka óperettuna
Meyjarskemmuna eftir Schubert.
Og hafa æfingar þegar staðið í
tæpan mánuð. Miklir erfiðleikar
hafa verið í sambandi við undir-
húning að sýningu þessa fyrir-
ferðamikla verks. Er þar fyrst að
nefna, að útvegun á tónlistinni,
sem sé nótunum, hefir gengið
nijög treglega, — og enn fremur
*>r ekki um að ræða neina vana
strokhljóðfæraleikara hér í bæ.
3Cn án þeirra verður Schubert-
hljómlistin aðeins svipur hjá
i-jón.
iNOKSKUR FIÐLULEIKARI
RÁÐINN
Tekizt hefir nú í félagi við Tón-
listarskóla Akureyrar og Kaup-
félag Eyfirðinga að ráða hingað
norskan fiðluleikara, sem leika
mun með hljómsveit Meyjar-
ekcmmunnar. Er hann væntan-
legur hingað til bæjarins í dag.
Standa því vonir til, að Akureyr-
ingar fái innan ekki mjög langs
•tfma að sjá fyrstu óperettuna,
sem færð er upp af samborgurum
þeirra. — Leikstjórn hefir á
hendi hinn kunni leikstjóri Ágúst
Kvaran, en söngvara æfir Árni
Ingimundarson söngstjóri Karla-
kórsins Geysis. Lothar Grundt
mun sjá um teikningu leiktjalda
en Þ.jóðleikhjsið hefir góðfúslega
lánað nokkuð af þeim búningum,
sem notaðir verða, en þeir eru í
þessum söngleik, sem kunnugt er,
bæði margir og glæsilegir. _________
HANS OG GRETA
NÆSTA VERKEFNI
Næsta verkefni leikfélagsins er
áætlað að verði barnaleikritið
Hans og Gréta eftir samnefndu
ævintýri H. C. Andersens. Er
bæði leikrit og leiktjöld fengið að
láni frá Leikfélagi Hafnarfjarðar,
en Sigurður Kristjánsson leikari
hér á Akureyri mun setja leikinn
á svið.
Frekari ákvarðanir hafa á
þessu stigi málsins ekki verið
teknar um starfsemi LA í vetur.
En gert er ráð fyrir, að tekin
verði tvö leikrit til sýningar eftir
áramót, og hefir í því sambandi
verið rætt við leikstjórana Guð-
mund Gunnarsson og Jón Norð-
fjörð. Ennfremur hefir komið til
tals að fá leikstjóra frá Reykja-
vík, sem jafnframt því að setja
hér leik á svið, gæti haft nokkrá
tilsögn fyrir yngri og óreyndari
leikara Akureyringa, — og enn-
fremur nýliða, er löngun hefðu
til þess að spreyta sig á leiklist-
inni. — H. Vald.
Frá kennaranám-
skcilnu
SVO sem frá var skýrt í Mbl. í
gær, var s.l. mánudag sett kenn-
aranámskeið í Laugarnesskólan-
um. Mun námskeiðið standa yfir
til föstudags. Mikill fjöldi kenn-
ara sækir námskeiðið og verða
þar fluttir margir fróðlegir fyrir
lestrar um lestrarkennslu í barna
skólum.
Námákeiði hófst í gærmorgun
með söng og ávarpi er Helgi
Elíasson flutti. Næst var erindi
Olafs Gunnarssonar sálfræðings.
Fjallaði það um erfiðleika barna
við lestrarnám. Þá var sýni-
kennsla: lestur 7 ára barna, kenn-
ari Jónas Guðjónsson. Jónas hef-
ur um 10 ára skeið haft umsjón
með kennslu 7 ára barna í Laug-
arnesskólanum og getið sér hið
bezta orð sökum alúðar í starfi.
Því næst flutti Þorsteinn Einars-
son, þróttafulltrúi, erindi. Að
lokum flutti Ársæll Sigurðsson
framsöguerindi uin samband
lestrar og stafsetningar. Ársæll
hefur verið eftirlitsmaður í ís-
lenzkukennslu í Austurbæjarskól
anum á annan áratug og gegnt
því starfi með prýði. Hann hefur
ritað kennslubók í stafsetningu
Ritæfingar, sem ætlaðar eru
yngri deildum barnaskólanna.
Erindi Ársæls var ágætlega sam
ið, en ekki vannst tími til um
ræðna.
Á morgun hefst námskeiðið
með morgunsöng og ávarpi er
biskup íslands, hr. Ásmundur
Guðmundsson, flytur. Aðrir ræðu
menn verða Björn Guðmundssoh
kennari og Árni Þórðarson skóla-
stjóri. Einnig verður sýnikennsla
og bekkjarleikfimi.
Sakamálðfimarifin brjófa nið
ur sfarf kennaranna
Frá fuiltrúaþingi framhaidsskolakennara
Sextugur í dag:
Þorsteinn J. Sigurðs
son kaupmaður
KVEÐJA
91
1111 i
• © 3
lerferð gegra ifiiivelunuiii
AKURNESINGAR hafa bundizt
samtökum um að skera upp her-
ör til að herja á háhyrninginn.
Klukkan 2 í nótt leggja 17 Akra-
bátar af stað suður til Keflavík-
ur. Flaggskipið í flota þeim verð-
ur Heimaskagi og mun skipstjór-
inn, Njáll Þórðarson, stiórna sókn
inni. í Keflavík ganga hermenn
úr varnarliðinu um borð í bátana
með hríðskotariffla og vélbyssur.
Þegar á sjó hefur gefið undan-
farna daga, hafa jafnan einn eða
fleiri bátar eyðilagt net sín af
völdum háhyrninganna. Er ætl-
unin að herja á Faxaflóadýpinu'
vestan til og norður úr. Er von-
andi að þeim takist að reka þenn-
an vágest af síldarmiðunum.
í dag munu Akranesbátar alls
hafa misst um 200 net af völdum
háhyrningsins. Er bátarnir komU
af veiðum í dag, lönduðu þeir
alls um 900 tunnum síldar. Voru
aflahæstir, Fylkir, með 120 tunn-
ur og Fram 102 tunnur. •— Var
síldin afar misjöfn, fór t. d. af
einum bát öll í bræðslu, en gðrÍB
voru með prýðis söltunarsíld.
—Oddur.
-9
FIMMTA fulltrúaþing Lands-
sambands framhaldsskóla-
kennara var haldið í Reykjavík
•dagana 23.—25. sept. s.l. Þingið
«sátu 26 fulltrúar frá 12 skólum.
Formaður sambandsins, Helgi
Þorláksson, setti þingið og minnt
xst fyrst Ármanns heitins Hall-
dórssonar, námsstjóra, sem lézt
síðastliðið vor. Á öðrum degi
tingsins var einnig tilkynnt lát
«ins þingfulltrúans, frú Jóhönnu
Ólafsson, skriftarkennara. Risu
fundarmenn úr sætum sínum til
lieiðurs við minningu þessara
látnu félaga.
Þingforseti var kjörinn Svein-
hjörn Sigurjónsson, en varafor-
setar Haraldur Steinþórsson og
Þorsteinn Bjarnason.
Ritarar voru kjörnir: Björn
l'orsteinsson, Helgi J. Halldórs-
son, Bryndís Steinþórsdóttir og
•Gestur Magnússon.
Auk skýrslu stjórnarinnar voru
xædd allmörg mál á þinginu, sem
vörðuðu kennslu og uppeldi, svo
®g hagsmuna- og kjaramál kepn-
ara.
Guðmundur Þorláksson, mag-
xster, skýrði frá störfum nefndar
Jjeirrar, er merintamálaráðherra
hafði skipað á s.l. skólaári til að
athuga og gera tillögur um náms-
«fni skólanna, en Guðmundur var
fulltrúi Landssambands fram-
haldsskólakennara í nefndinni.
Jliörn Þorsteinsson sagnfræðing-
xir, ræddi um nauðsyn á bættri
iennslutækni, Halldóra Eggerts-
■dóttir, húsmæðrakenpari, ræddi
um hazarblöð, sakamálarit og
.glæpakvikmyndir og skaðsemi
þeirra. Hvatti hún þingið til að
taka þetta vandamál til athug-
unar og reyna að finna leiðir til
að stemma stigu við þessum ó-
sóma, sem bryti það niður, sem
kennarar byggðu upp. Helgi Þor-
láksson hafði framsögu um kjara-
og launamál. Ýmis fleiri mál
voru rædd á þinginu.
Formaður sambandsins var
endurkosinn Helgi Þorláksson.
Meðstjórnendur: Halldóra Egg-
ertsdóttir, Sigurður Ingimundar-
son, Haraldur Ágústsson, Þráinn
Löve, Gunnar Benediktsson og
Björn Þorsteinsson.
Fulltrúar á þing B.S.R.B.: Sig-
urður íngimundarson, Helgi Þor-
láksson, Sigríður Arnlaugsdóttir
og Björn Þorsteinsson.
Framh. af bls. 1
en hún fer fram í Lancaster
House og var Eden í forsæti. All-
ar umræður fóru fram í anda
vináttu og bræðralags.
JAFNVEL FRAKKAR
ÁNÆGöIR
Milli morgun- og síðdegisfund-
arins komu utanríkisráðherrar
þríveldanna saman til skrafs og
ráðagerða með Adenauer. Var
rætt um það hvernig flýta megi
fyrir því að Þýzkaland verði
sjálfstætt rfki. Adenauer sagði í
ræðu að Þýzkaland væri reiðu
búið til þess að setja alla heri
sína undir yfirstjórn Nato og að
gangast undir allar þær kvaðir
sem Evrópuherinn hefði á herðar
þeirra lagt. — Voru jafnvel
Frakkar ánægðir með ræðu hans
og töldu m. a. að hann hefði
ekki vísað á bug tillögu Mendes
France að þetta yrði gert með
útvíkkun Brússelbandalagsins.
r
Athusasemd frá ASI
um kosningu
hjá skipasmiðum
ÞJÓÐVILJINN sagði frá þ'ú I
gær að Sveinafélag skipasmiða
hefði kosið fulltrúa á Alþýðu-
sambandsþing á fundi í fyrra-
kvöld.
Kom þetta allmjög á óvart,
þar sem vitað var að ákveðinri
hópur félaga hafði óskað eftil!
allsherjaratkvæðagreiðslu í fé-
laginu.
í tilefni þessara „kosninga"
kommúnista hjá skipasmiðum,
skrifaði framkvæmdastjóri ASÍ
eftirfarandi bréf til formanna
Sveinaf élagsips:
„Heiðruðu félagar!
f gær, þann 27. þ. m., sendum
við ykkur bréf, þar sem við lögð-
um fyrir ykkur að viðhafa alls-
herjaratkvæðagreiðslu um kjöC
fulltrúa á 24. þing Alþýðusam-
bandsins, en til okkar hafði bor-
izt skrifleg ósk 14 manna í félag-
inu um að það skyldi gert.
Okkur hefur verið tjáð, a3
þrátt fyrir þessi fyrirmæli hafi
þið kosið á fundi í gærkvöldi og
þar með haft að engu óskir og
fyrirmæli er ykkur hafði borizt
og voru í fyllsta samræmi við lög
og reglur sambandsins.
Samkvæmt 33. gr. sambands-
laganna svo og samkvæmt reglu-
Framh. á bls. 12.
Engar skipavið-
grðir í Lundúnum
LUNDÚNUM, 28. sept.: — Um
8000 starfsmenn á ýmsum verk-
stæðum við Lundúnahöfn lögðu
niður vinnu í dag í samúðar-
skyni við skipasmiði, sem eiga í
verkfalli. Eru þá allir er að smíð-
um og viðgerðum skipa vinna í
Lundúnum í verkfalli.
Samband þessara starfsmanna
hefur sent áskoranir til skipa-
smiða í öðrum löndum og beðið
þá að annast ekki viðgerðir skipa
sem venjulega hafa fengið við-
gerð í Lundúnum.
— Reuter-NTB
Hallar nú að hausti senn,
hægt í laufi þýtur.
Ævisumar alla menn
eitt sinn kveðja hlýtur.
En þótt fölni foldar traf,
fenni í bæjardyrnar,
þér munu varla eldast af
æsku hugsjónirnar.
Fyrst við aðfall ellinnar
er hún bara að látast:
Sextugur vinnur sigur þar
sem þeir yngri mátast.
Láttu geisa um lífsins höf
lengi gamm með snilli.
Fram á yztu ævihöf
auðnan sjálf þig hylli.
Fyrsta flugvélin
MOSKVA, 28. sept.
Moskva-útvarpið sagði
frá því í gær, að fyrsta flugvélin,
sem smíðuð hefir verið í hinu
kommúniska Kína, hafi verið
reynd með góðum árangri. Þetta
markar upphaf að stofnsetningu
flugvélaiðnaðar í Kína.
Réri 150 vertáðcar og
er áfitræður i dag
Ólafur Ólafsson fré Bolungarvík.
IDAG á Ólafur Ólafsson sjó
maður frá Bolungarvík átt-
ræðisafmæli. Hann fæddist að
Minnahrauni í Skálavík ytri, hinn
29. september þjóðhátíðarárið
1874. Voru foreldrar hans Sæunn
Sigurðardóttir og Ólafur Guð-
mundsson, og ólst hann upp hjá
þeim.
Árið 1899 kvæntist Ólafur Jó-
hönnu Kristjánsdóttur, ágætri
konu, sem reyndist honum traust-
ur og einlægur förunautur. Eign-
uðust þau sex börn, sem öll eru
á lífi. Konu sína missti Ólafur
fyrir 20 árum með hinum svip-
legasta hætti. Drukknaði hún er
vélbát úr Bolungarvík hvolfdi á
ísafjarðarpolli. Var honum það
mikill hnekkur og óbætanlegur
missir.
Sjómennskan varð lífsstarf Ól-
afs Ólafssonar. Hana stundaði
hann, fyrst á árabátum frá Bol-
ungarvík og síðan á vélbátum.
Samtals mun hann hafa stundað
sjó í um það bil 150 vertíðir.
Þótti hann jafnan harðskeyttur
og dugandi sjómaður. Lenti hann
í ýmsum mannraunum, m. a.
hvolfdi undir honum árabát er
hann var 19 ára gamall. Fórust
I félagar hans þá allir en sjálfur
komst hann á kjöl og rak síðan
að landi og bjargaðist með naum-
indum.
1 Um sextugsaldur missti Ólafur
. sjón á öðru auga. Nú er sjón hans
á hinu auganu einnig orðin mjög
döpur. Sér hann aðeins glætu
með því. En þrátt fyrir það fer
hann allra sinna ferða og er hinn
hressasti.
Hingað til Reykjavíkur flutti
Ólafur Ólafsson fyrir 22 árum.
Hefur hann búið hér síðan. Er
heimili hans nú að Höfðaborg 95.
En í dag mun hann dvelja 6
heimili Alberts sonar síns, að
Blönduhlíð 29.
Vinir þessa aldraða vestfirzka
sjómanns senda honum einlæg-
ar heillaóskir áttræðum, um leið
og þeir þakka honum starfið og
baráttuna á sjónum í þágu lands
og lýðs.