Morgunblaðið - 29.09.1954, Side 9
JMiðvikudagur 29. sept. 1954
lttORGVMILAÐIB
9
IÐNSKÓLINN í Reykjavik á
hálfrar. aldar 'afmse;li á
fcstudaginn kemur. ‘ Þá geta
iSnaðarmenji litið ýflr ; mikið
og hafipadrjúgt stárf; sem
Uníiið hefur verið og munu
þeir m. á. min.nast þessa
áf ánga með samkomu að potel
Borg á föstudagskvöldið.
.ðf.þ.eim 50. ár.um, sem.skól-
inh hefur starfáð héfur Helgi
Hérrhánh: Eiríkssbn : verið
skólastjóri í 31 ár. Undir hans
stjórn hefur skólinn vaxið og
dafnað, þannig að nemenda-
fjöldinn hefur margfaldazt og
það er einnig mest fyrir hans
sleitulausu baráttu, sem þeim
merkilega áfanga er náð. að
skólinn er nú að byrja að
flytja inn í ný húsakynni, hina
glæsilegu Iðnskólabyggingu á
Skólavörðuholti. Helgi Her-
mann mun nú láta af skóla-
stjórn og hitti fréttamaður
Mbl. hann nýlega að máli og
; fræðslan fyrst í fastara horf, en
hefur að sjálfsögðu breytzt með
j timanum.
I NÆGIR EKKI AÐ VERA
|LAGHENTUR
| —- Svo mikið er vist, heldur
í Helgi Hermann áfram, að nú er
ekki hægt að hugsa sér að iðnað-
armenn séu starfhæíir eða sam-
keppnishæfir, sem ekki kunna
teikrfingu o. fl. vel. Nú er af sá
timi, sem áður var, nema e.t.v.
í einangruðum sveitum að það
nægi að maður sé laghentur. Al-
menningur krefst orðið víðtækr-
ar fagþekkingar iðnaðarmanna.
STÆRSTI FRAMHALDSSKÓLI
LANDSINS
-— Nemendafjöldi í Iðnskólan-
um hefur aukizt mikið frá stofn-
un hans?
— Fæstir hafa nemendur verið
árið 1911—12 eða 47 talsins. En
flestir hafa þeir verið 987 vetur-
inn 1947—48.
Helgi Hermann Eiríksson hefur verið skólastjóri Iðnskólans í 31 ^
ár. í því starfi hefur hann hlotið óvenjulegar vinsældir meðan |
stórvaxandi þörf hefur tugfaldað tölu iðnnema. Árvekni hans og
dugnaðar hefur gætt á öllum sviðum íslenzks iðnaðar. Formaður
Iðnráðs Reykjavíkur var hann fyrstu 10 ár þess og forseti Lands- j
sambands Iðnaðarmanna fyrstu 20 árin, sem það starfaði og for- (
göngumaður að stofnun þeirra. Hann er verkfræðingur að mennt-
aun, tók kandidatspróf við háskólann í Glasgow. Nú er hann banka-
Stjóri Iðnaðarbankans.
rabbaði við hann um þetta *
£ óskabarn hans, Iðnskólann. I
JÓN ÞORLÁKSSON j
FRUMKVÖÐULL
— Hverjir voru stofnendur
Iðnskólans?
— Það var Iðnaðarmannafélag-
ið í Reykjavík. Aðalhvatamaður-
inn var Jón Þorláksson, sem þá
var ungur verkfræðingur nýkom-
inn til landsins. Hann var fyrsti
skólastjóri.
— Hverjir hafa rekið skólann
síðan?
— Iðnaðarmannafélagið, sem
<er eigandi skólans. Rétt er að
taka það fram að fjárhagsgrund-
völlur skólans er skólagjöldin,
cn auk þess hefur ríkið veitt skól-
anum styrk frá byrjun og Reykja
vikurbær síðustu 20 ár.
NÁMSKEIÐ UNDANFARI
IÐNSKÓLANS
— Var nokkurri iðnkennslu
haldið uppi hér áður en skólinn
var stofnaður?
-— Iðnnemar fengu áður enga
bóklega kennslu, nema hvað
Jðnaðarmannafélagið hélt uppi
námskeiðum frá árínu 1873. Þau
voru fyrst eingöngu í bóklegum
fræðum, en árið 1893 var kennslu
greinum breytt og þá voru tekin
upp námskeið þar sem eingöngu
Var kennd teikning. Námskeiðin
voru haldin á sunnudögum og
þátttaka í þeim ókeypis. Með
stofnun Iðnskólans komst iðn-
— Hvernig hefur nú gengið að
hýsa þennan mikla fjölda nem-
enda?
— Skólinn hefur átt við hús-
næðisvandræði að etja síðustu
árin, en nú er það mál að leysast
með hinni nýju Iðnskólabygg-
ingu. Fyrstu tvö árin, sem skól-
inn starfaði, var hann til húsa í
Vinaminni og einnig í svokölluð-
um Borgarasal, en haustið 1906
hafði Iðnaðarmannafélagið reist
hús það við Vonarstræti, sem
skólinn hefur síðan starfað í.
Var það mikið þrekvirki að koma
upp svo stóru og myndarlegu húsi
á þeim tíma.
— í fyrstu þurfti skólinn
ekki nema eina hæff hússins,
en þegar nemendum fjölgaffi
varff að taka þaff allt undir og
strax áriff 1929 var þaff orffiff
of lítiff og þurfti aff taka hús-
næ’ði á leigu úti í bæ og alla
tíff síffan. Fyrst voru allar
kennslustundir á kvöldin, því
að iffnnemar vinna sitt sem
lærlingar samtímis. En aff því
kom aff gera varð 1. og 2. bekk
aff dagskóla. 3. og 4 bekkur
eru að sjálfsögffu áfram kvöld-
skóli, en húsnæffiff hefur alls
ekki nægt þeim, sem sjá má
af því aff í þessum tveimur
bekkjum hafa verið um CÓ0
nemendur.
RYGGINGARSAGA
NÝJA SKÓLANS
— Var þá ekki snemma farið
að hyggja að smíði nýs skóla-
húss?
— Jú, því mun fyrst hafa
verið hreyft árið 1928 og var
stöðugt unnið að þeim málum,
fyrst lengi árangurslaust, þangað
til 1944 að tókst að fá framlög á
fjárlög ríkisins og fjárhagsáætlun
bæjarins um 300 þús. kr. fjárveit-
ingu frá hvorum aðilja. Sama ár
var skipuð bygginganefnd, sem í
áttu sæti Helgi Hermann Eiríks-
son, sem formaður, Kristjón
Kristjónsson sem ritari, Einar
Gíslason máiarameistari, Jónas
Sólmundsson húsgagnasmiða-
meistari og Guðraundur H. Guð-
mundsson. Bygginganefndin
efndi til samkeppm um uppdrátt
að Iðnskólabyggingu og varð Þór
Sandholt arkitekt hlutskarpastur.
Hann verður nú skólastjóri í
þeirrí byggingu, sem hann er
sjálfur höfundur að. Byrjað var
á byggingunni árið 1946 og er
henni nú svo langt komið að
kennsla hefst í henni að ein-
hverju leyti einmitt nú á afmæl-
inu.
HAGNÝT KENNSLA í STAÐ
TUNGUMÁLA
Er við ræddum nánar um iðn-
fræðsluna komst Helgi Hermann
Eiriksson að orði á þessa leið:
— Fyrstu árin voru auk ís-
lenzku, reiknings og teikningu
kennd tungumál, danska, enska
og þýzka. En sú breyting var gerð
skömmu eftir að ég kom að skól-
anum að tungumálakennsla var
felld niður, nema danska, en það
mál hjálpar flestum iðnaðar-1
mönnum til frekara sjálfsnáms
og framhaldsnáms. |
En í staff málakennslunnar
hefur veriff tekin upp síaukin
kennsla í hagnýtum fræffum,'
svo sem bókfærslu, skrift, raf-
magnsfræffi og efnisfræði.
Tekin hefur veriff upp bókleg
kennsla í sérgreinum en reynt,
Iðnskólinn nýi á Skólavörffuholti.
- | aff binda bóklega námiff hinu
I verklega námi eins og hægt er.
Á AÐ SÉRHÆFA NÁMIÐ
FREKAR?
— Það atriði, sem mikið er
búið að ræða um, segir Helgi
Hermann, hvort rétt sé að sér-
hæfa iðnnámið ennþá meira en
nú er.gert m.a. samkv. amerísk-
um sið. Við eldri mennirnir
að minnsta kosti, teljum það vafa I
(Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
samt að draga mjög úr hinni al-
mennu fræðslu. Ég tel ekki hægt
að heimta miðskólapróf til inn-
göngu í skólann, nægilegt sé
unglingaprófið, því að annað gæti
útilokað nemendur sém hafa góða
hæfileika til að verða iðnaðar-
menn. Að vísu er það æskilegt að
nemendur geti komið í skólann
sem bezt undirbúnir, þá mætti
e.t.v. breyta kennslu nokkuð í ís-
Framh. á bls. 12,
Samtal við Þór Sandholt
ÞAÐ eru eðlilega miklar vonir
bundnar við Iðnskólann, er
hann flytur í hið nýja veglega
hús á Skólavörðuholti, því
þrengslin í gamla skólanum hafa
orðið starfinu þar fjötur um fót. 1
— Þar hafa stundum nær 7-—800 j
nemendur verið við nám í 10
kennslustofum, en í nýja skói-
anum verða stofurnar 30 þegar
hann er full búinn, auk vinnu-
stofa, og hver um sig stærri en
stofur gamla skólans. — Á þessa
leið fórust hinum nýja skóla- '
stjóra Iðnskólans, Þór Sandholt, '
orð er tíðindamaður Mbl. hitti
hann að máli litla stund fyrir
nokkrum dögum.
FRAMHALDSNÁM SVEINA
Meðal þess sem margir iðnað-
armenn tengja vonir sínar við eru
möguleikar til framhaldsnáms
fyrir iðnsveina, sem ætla sér að
verða meistarar í iðn sinni. Er
slíkt framhaldsnám mjög gagn-
legt fyrir væntanlega meistara.
Það auðveldar þeim starfið, gerir
þá hæfari og samkeppnisfærari.
SÉRSKÓLAR
Þá er hugmyndin um sérskóla
í ýmsum iðngreinum ekki síður
merkileg, sagði Þór Sandholt.
Fyrsti sérskólinn sem settur verð
Þór Sandholt er arkitekt að menníun. — Lærffi hann húsagerffar-
list í Liverpool og skipuíag bæja á sama staff. — Frá þvi á árinu
1942 hefur hann veiiff starfsmaður Reykjavíkurbæjar, bygginga-
fuiltrúa og hjá húsameistara bæjarins og veitt hefur hann for-
stöffu skipulagsdeild Reykjavíkurbaéjar. — Kona hans er frú
Guðbjörg H. Sandholt.
ur á stofn í Iffnskólanum, mun
liklega verffa prentaraskóli. Hafa
prentarar iengi verið aff undir-
búa þetta mál og keypt til skól-
ans margt véla og áhalda til
prentunar.
Fleiri munu hafa í huga aff
koma upp sérskólum í iðn sinni.
Þeir létta mjög undir verklegu
kennsluna hjá meisturunum og
eiga að tryggja að nýjungum í
iðngreininni verði miðiað meðal
iðnnemanna. Sérskólarnir út-
heimta menn með fullkomna vél-
þekkingu og yfirleitt fullkomn-
ustu þekkingu i iðngreininni á
hverjum tíma.
\
KENNSLUKVIKMYNDIR
Annar veigamikill þáttur í starfi
Iðnskólans, er hann nú kemst í
gott húsnæði, er að taka upp
notkun kennslukvikmynda. Hvar
vetna er nú farið að nota kennslu
kvikmyndir í iðnskólum erlendis
með miklum árangri. í gamla
skólanum við Tjörnina var ekki
hægt að koma slíku við vegna
þrengsla.
FLUTT í NÝJA HÚSIÐ
— Nær verður skólinn tekinn
í notkun?
— í vetur munu verffa milli
700—800 nemendur í Iffnskólan
um og er skólastarfið hefst nú í
október mun skólinn þegar flytja
í þrjár kennslustofur. — Þar
mun teiknikennsla fara fram m.
a. fyrir húsasmiði_Ég geri mér
vonir um, aff geta fiutt alveg i
nýja skólann um áramótin.
Er nú verið að vinna við að
standsetja ' 14 kennslustofur. Þó-
við flytjum inn í nýja húsið. er
það ekki fullklárað sagði Þór
Sandholt. — Gangagólf eru dúk-
iaus, hurðir vantar víða fvrir stof
urnar, ljóstæki vantar svo og
húsgögn. — Ég vonast til að fjár-
veitingar til skólabyggingarinnar
haldi jafnt og þétt áfram unz
skólinn er fullgerður, en á því er
mjög knýjandi nauðsyn. — Viff
skulum t. d. hafa það í huga, að
frá því að skólinn tók til starfa
munu fast að 16000 iðnaðarmenn
hafa stundað nám í skólanum.
Svo framlag Iðnskólans til þjóð-
arbúsins er ekki orðið svo lítið.
— Miðað við núverandi tölu bæj-
arbúa jafngiidir þetta því, að
þriðji til fjórði hver Reykvíking-
Framh. á bls. 12,
Iðrisiiélliiii 5
Hinn vinsæli skólastjóri
Helgi Hermann lætur af
stjórn eftir 31 árs starf