Morgunblaðið - 29.09.1954, Side 16
Veðurúflif í dag:
Þykknar upp með SV átt, rigning
með kvöldinu.
222. tbl. — Miðvikudagur 29. september 1954
Iðnskólinn
Sjá grein á bis. 9.
Votnsveitanefaid skipnð til nð gern
lieildaráætlun um vatnsveitubam-
kvæmdir og byggingunýrra geyma
Jón Sigurðsson verkfr. settur vatnsveitustjóri
ISTEFNUSKRÁ Sjálfstæðismanna við bæjarstjórnarkosningarnar
í vetur var sérstaklega rætt um vatnsveitumálin. Sjáifstæðis-
menn Iofuðu að beita sér fyrir því, að lagðar yrðu nýjar vatnsæðar
i þá bæjarhluta, þar sem vatnsskortur er, og að byggja nýja
vatnsgeyma.
NEFNDARSKIPUN í VOR
Snemma í vor hófu bæjarfull-
trúar Sjálfstæðismanna umræð-
ur um endurbætur á vatnsveit-
omni. í aprílmánuði fól borgar-
■stjóri þeim Jóni Sigurðssyni,
slökkviliðsstjóra, dr. Birni Björns
syni og Ágúst Bjarnasyni skrif-
'ístofustjóra, að gera tillögur um
bættar bruna- og eldvarnir.
Lögðu þeir meðal annars til, að
vatnsveitukerfið væri endurskoð-
að með tilliti til brunavarnanna.
MIKIL VERKEFNI
Eftir þessar umræður og athug-
anir þótti sýnt, að mikil verkefni'
þyrfti að leysa af hendi á næst-
unni í vatnsveitumálum. Störf
■hitaveitustjóra, sem vatnsveitan
befur einnig heyrt undir, hafa
hinsvegar aukizt mjög vegna
samþykktar bæjarstjórnar 19.
ágúst s.l. um margvíslegar rann-
sóknir og framkvæmdir hjá hita-
veitunni. Óskaði hitaveitustjóri
því að losna um sinn við störf
vatnsveitustjóra vegna annríkis.
SAMÞYKKT BÆJARRÁÐS
m GÆR
Á fundi bæjarráðs Reykja-
víkur í gær flutti Gunnar Thor
oddsen borgarstjóri, svohljóð-
andi tillögu:
„Vegna mjög aukinna starfa
er leiða af framkvæmd álykt-
ana bæjarstjórnar 19. ágúst s.I.
um fyrirætlanir og fram-
kvæmdir varðandi hitaveit-
una, hefur Helgi Sigurðsson
hitaveitu- og vatnsveitustjóri
óskað þess að vera fyrst um
sinn til 1. maí n.k. laus frá
starfi vatnsveitustjóra.
Bæjarráð fellst á það og sam
þykkir að fela Jóni Sigurðs-
syni slökkviliðsstjóra að gegna
starfi vatnsveitustjóra fyrst
um sinn til 1. maí 1955.
Jafnframt samþykkir bæj-
arráð að fela Guðmundi H.
Guðmundssyni bæjarráðs-
manni, Valgeiri Björnssyni,
hafnarstjóra og Jóni Sigurðs-
syni, settum vatnsveitustjóra,
að sjá um, að gerð sé heildar-
áætlun um vatnsveitufram-
kvæmdir bæjarins, miðað við
næstu framtíð, m. a. um bygg-
ingu vatnsgeyma, og að endur-
skoða vatnsveitukerfið með
tilliti til eld- og brunavarna.“
Var tillaga borgarstjóra sam-
þykkt einróma.
Jón Sigurðsson
ÞALKUNNUGUR MÁLEFNUM
VATNSVEITUNNAR
Hinn nýi vatnsveitustjóri, Jón
Sigurðsson verkfræðingur, sem
settur er í starfið fyrst um sinn
til næsta vors, mun gegna áfram
starfi slökkviliðsstjóra. Hann er
þaulkunnugur málefnum vatns-
veitunnar, því að hann starfaði
sem verkfræðingur við vatns- og
hitaveituna í mörg ár, áður en
hann varð slökkviliðsstjóri.
Vatnsveitunefndin mun strax
taka til starfa, en formaður henn-
ar er Guðm. Helgi Guðmundsson,
bæjarfulltrúi.
Síldveiðar Jörundar í
Norðursjó ganga að óskum
AKUREYRI, 28. sept.
EINS OG kunnugt er fór Akureyrartogarinn Jörundur til Norð-
ursjávar í byrjun sept. til þess að stunda þar síldveiðar fyrir
þýzkan markað. Skipið veiðir með botnvörpu af þýzkri gerð, sem
lengi hefur verið notuð með góðum árangri við veiðar þarna í
Norðursjónum. Þetta er í fyrsta sinn sem slík tilraun er gerð af
ísienzku skipi.
Togarinn seldi í dag í Hamborg
«ftir 10 daga veiðiferð 3200 körf-
ur (50 kg) á 56658 mörk, auk þess
hraðfrysta síld fyrir 7250 mörk.
Samtals er því salan um 64.000
mörk, sem má teljast mjög gott.
Er þetta önnur sala togarans, en
hann hefur nú alls stundað þess-
ev veiðar í 23 daga og hefur selt
fyrir samtals 105.000 mörk.
Skipstjóri á Jörundi er hinn
kunni aflamaður Sigurjón Ein-
arsson frá Hafnarfirði, en með
togaranum er einnig fiskileið-
sögumaður, sem verður með hon-
iim nokkrar fyrstu veiðiferðirnar.
Síldin úr Jörundi hefur reynzt
jiijög góð vara, en hún er seld ný
upp úr ís, en það er þakkað út-
búnaði á lestum skipsins, sem
eru aluminium innréttaðar og
ennfremur með kæliútbúnaði, og
hefur það komið sér mjög vel
því heitt hefur verið í Norðursjó
að undanförnu. Gert er ráð fyrir
að skipið geti farið 2Vz veiðiferð
á mánuði og allt að þrjár, þegar
styttist á miðin, en nú sem stend-
ur er nokkuð langt að fara. Veið-
arnar hafa verið stundaðar und-
an Flamboroughhead á Englandi,
en síðan færist flotinn suður á
bóginn eftir því sem líður á
haustið. Gert er ráð fyrir að
Jörundur geti stundað þessar
veiðar fram tíl jóla. — Vignir:
Það var nóg að gera s. 1. sunnudagsmorgun. Nýfallinn snjórinn
loddi svo vel saman, að það tók enga stund að vclta gríðarstórum
snjóbolta. — Og svona var þetta hjá börnunum, sem sjást hér á
! myndinni fyrir ofan. Þau voru ekki lengi að velta boltum í meira
en mannhæðarháa kerlingu og karl. En hjónin voru bæði fallin
fyrir miðdegiskaffi. (Ljósm. H. Teits.)
úml. 6000 kr. slolið í sima-
í Gerðum í Garði
Fulltrúaráðs-
fundur Sjálfstæð-
isfélagamia F
FUNDUR verður haldinn i Full-
trúaráði Sjálfstæðisfélaganna i
Reykjavik kl. 8.30 í kvöld í
Sjálfstæðishúsinu. Málshefjandi
á fundinum verður Ingólfur
Jónsson viðskiptamálaráðherra,
Áríðandi er að fulltrúar sýn|
skírteini við innganginn.
Þetta er fyrsti fundur Fulltrúa-
ráðsins á vetrinum og munlg
verða rædd á honuin ýms þau
mál, sem nú cru efst á baugi og er
þess vænzt, að fulltrúar mætj
vel og stundvíslega.
Þjóftarinn handtekiiin í gær
ASUNNUDAGSKVÖLDIÐ var framinn innbrotsþjófnaður í sím-
stöðvarhúsið í Gerðum í Garði. Við athugun kom í ljós, að
stolið hafði verið um 6200 krónum í peningum., Þjófurinn var
handtekinn í gær.
VAR AÐ VINNA I
HÚSINU
Á sunnudagskvöldið var mað-
ur sá, sem hér um ræðir en það
er píltur um tvítugt, að vinna
í símstöðvarhúsinu ásamt öðrum
manni, sem þar hefur íbúðarher-
bergi á, leigu. — Um kvöldið kl.'
hálfellefu fór maðurinn til Kefla-
víkur, en pilturinn varð eftir.
Hann mun þá þegar hafa
brotizt inn í skrifstofu Lands-
símans. Notaði til þess spor-
járn og önnur verkfæri. Þeg-
ar inn kom fann hann strax
peningakassa, sem í voru um
6200 kr. í handbæru fé, en
að auki ávísanir, sem þjófur-
inn tók ekki.
LEITAÐ ÞAR TIL í
GÆRMORGUN
Á mánudaginn féll þegar grun-
ur á manninn. Hann á ekki heima
þar í þorpinu, þó Suðurnesjamað-
ur sé. Var þá hafin leit að hon-
um og leitað árangurslaust bar
til um kl. 11 í gærmorgun að
rannsóknarlögreglumenn hand-
tóku hinn tvítuga mann í Verka-
Gamla klukkau
riíin-Ný uppídag
TÍMABÆRT, þó fyrr hefði verið,
varð manni nokkrum ?,ð orði á
Lækjartorgi í gærkvöldi, er hin
gamla Persil-klukka á torginu
var rifin niður. — Hún er lengi
búin að þjóna vegfarendum vel
og örugglega, en upp á síðkastið
var sú þjónusta orðin harla hvim
leið, því ekki voru allar klukku-
skífurnar fjórar í lagi. Sú, sem
vissi mót Austurstræti var ógang
fær og var málað yfir hana fyrir
nokkuð löngu síðan.
En ný Persil-klukka mun rísa
á Lækjartorgi og það jafnvel'
í dag. — Heildsölufyrirtæki
Magnúsar Kjaran, sem átti þá
gömlu, lætur setja á sama stað
nýja klukku, og væntanlega
fallega.
mannaskýlinu við höfnina. —
Viðurkenndi hann, þegar í stað
verknaðinn.
Á 36 KLST.
En er hann var handtekinn,
36 klst. eftir að hann framdi inn-
brotið, var hann búinn að eyða
hverjum eyTÍ úr peningakassan-
um í vín, bílferðir og eins mun
hann hafa gefið peninga. Piltur-
inn er í gæzluvarðhaldi og rann-
sókn í málinu er að mestu lokið.
Snjóskríða fellur !
í SiglufjarSarskarði i
SIGLUFIRÐI, 28. 'sept, n
IMORGUN snemma vildi þaS?
til að snjóskriða féll á snjó-
ýtu, sem var að moka í Siglu-
fjarðarskarði. Ýtustjórinn, BjönQ
Hafliðason, sem var einn á ýt-
unni, komst hjálparlaust undanj
snjófarginu, en enginn annar vat!
þarna viðstaddur er skriðan féll,
Var Bjöm að verki með ýtunaí
í svonefndum Sneiðing, Siglu-
fjarðarmegin Skarðsins, er skrið-
an, sem ekki var mjög stór, féll,
Gróf hún ýtuna algjörlega í föna,
Veittist Birni örðugt að komasj
út úr henni og síðan undan snjó-
farginu, sem var allmikið. SlapgJ
hann þó ómeiddur.
I í dag var farið með aðra ýtft
til þess að grafa hina fyrrnefndo
upp og er talið að því verði lokisB
í kvöld. Siglufjarðarskarð hefuB
verið ófært vegna snjóa síðan A
föstudag í fyrri viku. Hefur jarð-
ýta unnið að því að ryðja skarð-
ið en snjóað hefur jafnóðum.
— Stefán, 1
Hafnarfjarðarbáfar
í herferð
Eldur í mannlaus-
um sumarbústað
BORG í Miklaholtshreppi 28.
sept.: — Þegar heimilisfólkið í
Dal kom á fætur á mánudags-
morgun, varð það þess vart að
eldur var kominn upp í sumar-
bústað Kristjáns Einarssonar í
Reykjavík. — Var sumarbústað-
urinn mannlaus og varð því að
brjótast inn í húsið, Var þar all-
mikill reykur í norðurenda húss-
ins. Hjálp barst fljótlega og var
eldurinn slökktur á skömmum
tíma. — Talsverðar skemmdir
urðu þó á húsinu. Eldsupptök
munu hafa verið út frá arin.
— Páll.
í boði Bandaríkja-
og Kanadast jórnar
ÁRNI EYLANDS stjórnarráðs-
fulltrúi og frú fóru í gær áleiðis
til Bandaríkjanna í boði Banda-
ríkjastjórnar. Munu þau dvelj-
ast vestra fram yfir hátíðar. —
Kanadastjórn hefur einnig boðið
þeim hjónum til Kanada, og
iriunu þau heimsækja þar m. a.
íslendingabyggðir.
H AFN ARFIRÐI — Síldveiðibát-
arnir öfluðu með minna móti I
fyrrinótt. Fram hafði rúmar 100
tunnur en hinir frá 9 og upp í 60.
Bárust á land um 400 tunnur,
| Síldin var með smæsta móti og
1 var ekki hægt að salta hana alia,
Hins vegar hefir síldin, sem bor-
izt hefur á land að undanförnu,
verið stór og falleg.
í nótt fóru bátarnir ásamg
Akranesbátum til Keflavíkur,
þar sem þeir taka um borð banda
| ríska hermenn, sem eiga að herja
á háhyminginn allt frá Snæfells-
nesi til Sandgerðis. Þrátt fyrií
herferðina um daginn, gerir há-
hyrningurinn enn mikinn usla I
netum sildarbátanna. 1 '
Togarinn Ágúst kom af karfa-
veiðum í fyrradag, og var hann
með um 300 tonn eftir 10 dag«
útiveru. G. E. ■
—:--------------
Piltarnir ssm slösuð-
ust í Höfðakaupsfað
Kaupmannahöfn — Prófessor
Niels Bohr lýsir yfir þeirri skoð-
un sinni, að einhvern tíma í fram
tíðinni geti kjarnorkan fullnægt
öllu því orkumagni, sem heimur-
inn þarfnast.
á bafavegi
LIÐAN þeirra Páls Vilhjálms-
sonar og Vilhjálms litla Gísla-
sonar, er slösuðust allmikið I
bifreiðarslysi í Höfðakaupstai
síðastliðinn miðvikudag, er nfi
miklu betri, tjáði Páll Kolkai
læknir á Blönduósi blaðinu ]
gær. Eru þeir báðir mjög skorniíl-
í andliti og einnig eru höfuðkúp-
ur þeirra beggja brákaðar. Taldf
læknirinn þá samt báða úr lífs-
hættu. Bifreiðarstjórinn er einnig
á batavegi, en hann hefur legið
i í heimahúsum í Höfðakaupstað. J