Morgunblaðið - 12.10.1954, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 12. okt. 1954 ]
N I C O L E
Skaldsaga eftii Katherine Gasin
Framhaldssagan 64
um atburði; hvort hún hefði haft
á tilfinningunni að þetta mundi
i-ke.
„Segið Adams að vísa dr.
3'enton upp á loft inn í vinnu-
stofu Sir Charles“.
; Ellen hikaði, en síðan endur-
tók hún fyrirskipunina fyrir
þjóninum.
Nicole renndi greiðu í gegnum
hár sitt. „Ég ætla ekki að klæð-
ast, Ellen. Ég verð í þessu“.
„En ungfrú Nicole. Þér getið
ekki verið í þessu! Dr. Fenton
it
„Dr. Fenton er því vanur, að
sjá fólk í morgunslopp", sagði
Nicole.
„En hvað mun Lady Gowing
halda?“
„Ellen“, sagði Nicole um leið
og hún bar ilmvatn bak við eyr-
un. „Ég er kominn á það stig, að
ég er hætt að hafa áhyggjur af,
hvað aðrir hugsa“. Að því búnu
gekk hún hratt til herbergisdyr-
anna.
í ganginum staðnæmdist hún.
Því í ósköpunum skyldi ég flýta
mér svona til hans? hugsaði hún
með sjálfri sér. Koma hans nú
gat engu breytt um það sem ó-
umflýjanlegt var.
Hún opnaði dyrnar snögglega.
Hann stóð við gluggann og sneri
baki að henni, en sneri sér hvat-
lega við er hún gekk inn í her-
bergið. Þau stóðu og horfðu hvort
á annað og þögn ríkti dálitla
stund.
Þá brosti hann. ,.Ég er Lloyd
Fenton. Manstu eftir mér?“
„Hvað vilt þú hingað?" sagði
hún. „Til hvers kemur þú?“
Hann lét sig falla ofan í stól.
5;
VINNA
Nokkrar stúlkur óskast nú þegar. — Uppl. hjá
verkstjóranum.
Niðursuöuverksmiðjan O R A
Kárnesbraut 34.
Atviima
Ungur maður, helzt með gagnfræðapróf óskast til
aðstoðar í vélasal Slippfélagsins í Reykjavík, —
Uppl. gefur Jakob H. Richter, verkstjóri.
Stúlka vön afgreiðslustörfum
óskar eftir atvinnu
m
m
m
helzt í vefnaðarvöruverzlun eða lyfjabúð. — Klinikstörf ;
koma einnig til greina. — Tilboð sendist í pósthólf 984, ■
fyrir 25. október, merkt: „20 — ára“. :
Sendisveinn óskast strax
Vól cilóein.l?a5a L $ík
uómó
UVAM.MHM
Atvinna
Fjölhæfur, reglusamur maður um fimmtugt, óskar eftir
starfi. — Tilboð merkt; „Öruggur — 982“, sendist afgr,
blaðsins fyrir 16. okt.
wnrni
•*»■■■
Vantar J/VRíMAPHANM
■
í byggingarvinnu eða mann, sem er vanur að vinna við :
járn. — Löng vinna. — Gott kaup. — Upplýsingar í ■
síma 80378, kl. 8 e. h.-t ;
■•■«»«»*»
„Seztu niður, Nick“, sagði hann.
„Þú virðist eitthvað svo óróleg
þegar þú stendur"
Hún settist andspænis honum.
„Ég ætti að sjálfsögðu að byrja
með að þakka þér fyrir“, hóf
hann mál sitt, „að þú skulir vilja
gefa mér nokkrar mínútur af
þínum dýrmæta tíma. Ef ég á að
vera hreinskilinn við þig, þá skal
ég strax viðurkenna, að ég bjóst
ekki við því, að þú mundir vilja
tala við mig“. Hún sagði ekkert,
svo að hann yppti öxlum um leið
og hann sagði: „Þú virðist ekkert
sérstaklega glöð yfir því að sjá
mig“.
„Þú svaraðir ekki spurningu
minni. Til hvers ertu hingað
kominn?“
„Aðeins til þess að hitta þig.
Það skaðar engan, er það?“
„Nei, en þú kemur svo snemma.
Ég er ekki komin á fætur og Iris
frænka veit ekki að þú ert hér í
húsi hennar“.
Hann hló með sjálfum sér.
„Ertu ennþá algjörlega á valdi
Irisar frænku þinnar?"
Augu hennar skutu gneistum.
„Ég er ekki á v.aldi nokkurrar
manneskju".
Hann hallaði sér fram á hné
sér. „Jæja. En segðu mér. Ertu
hamingjusöm?“
„Auðvitað er ég hamingjusöm".
Bros kom á varir Lloyds —
hálfgert stríðnisbros. „Þú sýnir
það á undarlegan hátt. Ég bjóst
við því að hitta þig ljómandi af
ánægju og gleði. En þú ert
kannski eins og allir aðrir Eng- I
lendingar — hrædd við að sýna
gleði þína og hamingju".
„Lloyd, þú ert móðgandi".
„Það getur vel verið. En þú
hefur alltaf sagt, að þú vildir að
ég væri hreinskilinn“.
Hendur hennar sýndu að hún
var óþolinmóð. „Ég hef ekki
mikinn tíma“.
„Ertu að fara út?“
Hún andvarpaði óþolinmóð.
„Já, ég er að fara út til hádegis-
verðar“.
„Þá er ég enn einu sinni of
seinn“. ;
„Hvað áttu við?“
„Ég ætlaði að bjóða þér að
borða með mér“.
„Ertu genginn af vitinu? Þú
stormar hér inn og lætur eins og
p j þú hafir rétt til alls“. Augu henn-
ar smækkuðu. „Hvenær komstu
eiginlega frá París?“
„Snemma í morgun“.
Það varð löng þögn. Síðan
sagði Nicole. „Gerry sagði mér að
þú hefðir hætt við læknisstarfið“.
„Já, ég hef hætt við það um
stundarsakir". |
„Þú ert ekki sem aðstoðarlækn
ir í París?“ I
Hann bx-osti letilega. „Ég er í
fríi. París er stór og skemmtileg
borg“.
Nicole neri hendur sínar. Þetta
er of mikið af því góða, hugsaði
hún með sjálfri sér. Honum stóð
á sama um allt. Fyrst átti hún í
höggi við Roger, nú kom Lloyd
.... hvorugur þeirra skildi
hana. Hann skemmti sér vel í
París. Og tilhugsunin um það eitt
út af fyrir sig var nærri búin að
koma henni til að gráta. Hún
gerði örvæntingarfullar tidraunir
til þess að iáta ekki geðshrær-
ingu á sér sjá. „Ég held að betra
væri að þú færir, Lloyd“.
„Allt í lagi“, sagði hann og
stóð upp. „Ég hefði líklega ekki
átt að vera að ónáða þig. Þú hlýt-
ur að vera mjög upptekin núna
þessa dagana. Og hinn mikli dag-
ur er á laugardaginn, er það
ekki?“ Hann rétti fram hendina.
„Jæja, ég óska þér alls hins bezta
Ungling
vantar til að bera blaðið til kaupencla
við
NÖKKVAVOG
Sími 1600
Röskur sendisveinn
óskast strax
JRorgmibl&iHÍ)
Sími 1600
RAFGEYIVIAR
6 og 12 volta
Bðfreiðavöruverzlun Friðriks Berielsen !
Hafnarhvoli — Sími 2872
mmj4
Rakið yður eins milljóneri
fyrir aðcins
Jafnvel milljónerar geta ekki keypt betri
rakstur en þessi Gillette rakvél No. 24 veitir.
• Handhæg plastic askja
• Rakvélin er hárnákvæm Gillette framleiðsla
• Tvö Blá Gillette blöð fylgja
• Rakvélin og blöðin gerð hvort fyrir annað
• Notið það sameiginlega til að öðlast bezta
raksturinn
Gillette
No. 24 Rakvéloj
l