Morgunblaðið - 13.10.1954, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 13.10.1954, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 13. okt. 1954 jHttMoMfe Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanlands. í lausasölu 1 krónu eintakið. I forystu mesta tramtara áratuginn IRÆÐU, sem Bjarni Benedikts- son, menntamálaráðherra, flutti á fundi Sjálfstæðiskvenna- félagsins Hvatar í fyrrakvöld benti hann m.a. á þá staðreynd, að Sjálfstæðisflokkurinn er eini stjórnmálaflokkur íslendinga, sem verið hefur í ríkisstjórn all- an fyrsta áratug hins íslenzka lýðveldis. Hann hefur setið í ríkisstjórn á víxl með Framsókn- arflokknum, Alþýðuflokknum og Kommúnistaflokknum. Ráðherrann kvað það alþjóð kunnugt, að á þessu tímabili hefðu orðið stórfelldari framfar- ir á öllum sviðum íslenzks þjóð- lífs en nokkru sinni fyrr í sögu landsins. Af þeirri staðreynd mætti draga nokkrar ályktanir um starf og stefnu þess flokks, sem allan tímann hefði tekið þátt í ríkisstjórn. Sannleikurinn væri sá, að Sjálfstæðisflokkurinn hefði öðrum flokkum fremur mótað stjórnarstefnu þessa fyrsta áratugs lýðveldisins. Það eru hugsjónir okkar Sjálfstæðis- manna, sem hafa sett svip sinn á hina miklu framfara- sókn íslenzku þjóðarinnar, sagði ráðherrann. Vissulega er þetta rétt hermt. í>að var fyrir forgöngu Sjálf- stæðisflokksins og formanns hans, sem hin fyrsta þingræðis- stjórn lýðveldisins var mynduð haustið 1944. Alþingi hafði þá ekki getað myndað ríkisstjórn í tvö ár. Þess vegna fór svokölluð utanþingsstjórn með völd er lýð: veldið var stofnað. Sjálfstæðis- flokkurinn hafði forystu um að reka það slyðruorð af löggjafar- samkomunni að hún gæti ekki myndað stjórn, og fullnægt þar með þeirri frumskyldu sinni að sjá landinu fyrir starfhæfri ríkis- stjórn. Það var að vísu ætlan Sjálf- stæðismanna að hin nýja stjórn yrði mynduð með þátttöku allra flokka. En Framsóknarflokkur- inn skarst úr leik. Hann var enn- þá í fýlu eftir þá leiðréttingu, sem gerð var á kosningafyrir- komulaginu sumarið 1942, sem þó hafði í för með sér stórum lýðræðislegri skipun Alþingis. Framsókn ætlaði sér beinlínis að koma því þannig fyrir, að ómögu- legt reyndist að mynda þingræðis stjórnir vegna þess að hún var ekki lengur stærsti þingflokkur- inn. En hún misreiknaði sig hrapalega. Sjálfstæðisflokkurinn myndaði stjórn með hinum svo- kölluðu verkalýðsflokkum. Hann markaði frjálslynda og stórhuga stefnu og hikaði ekki með að vinna að framkvæmd hennar með hinum sósíalistísku flokk- um. Að framkvæmd þessarar stefnu, sem Sjálfstæðismenn mörkuðu á morgni lýðveldis- ins hefur í raun og veru verið unnið óslitið síðan. Að upp- byggingu atvinnulífsins hefur verið starfað af festu og markvísi. Sóknin hefur verið misjafalega hröð, en henni hefur alltaf verið haldið áfram. Framsóknarflokkurinn steig örlagaríkt víxlspor þegar hann varð utangátta við nýsköpunar- stjórnina. Þar með missti hann af strætisvagninum þegar Islending- ar lögðu upp í stórfelldustu sókn sína til bættrar aðstöðu í lífsbar- áttunni. — Sjálfstæðisflokkurinn heyrði kall hins nýja tíma og hlýddi því. Þess vegna hafa á- hrif hans með þjóðinni stöðugt farið vaxandi. — Framsóknar- flokknum verður hins vegar stöð- ugt þyngra undir fæti. Hann er innbyrðis sundurþykkur. Leið- togar hans óttast hálfkommúnísk an vinstriflokk eins og pestina. Blað hans sé engan kost vænni en að jafna Sjálfstæðismönnum við bófaflokka í Suður-Ameríku! Þannig er allt á sömu bókina lært hjá hinni gömlu maddömu. Hún hefur glatað jafnvægisskynj an sinni og hrekst nú um á mis- vindasömu hafi stjórnmálanna. Sjálfstæðismenn fagna því, að hafa átt þess kost, að standa í fararbroddi í baráttu þjóðarinn- ar fyrir bættri aðstöðu í landi sínu. Þeir munu halda áfram að gegna því forystuhlutverki, sem þjóðin sjálf hefur fengið þeim. En þeir hika ekki við að benda henni á, að ýmsar hættur eru á vegi hennar. Hún má ekki stofna hinum mikla árangri, sem náðst hefur af starfi hennar fyrsta ára- tug lýðveldisins, í hættu. Hin nýju atvinnutæki verða að vera í gangi, sem mestan hluta hvers árs. Ella veita þau almenningi ekki atvinnu og öryggi um af- komu sína. Skip, verksmiðjur og hraðfrystihús verða að vera í stöðugum rekstri. — Atvinnan verður að vera varanleg. Halla- rekstur veitir ekki stöðuga at- vinnu. Allt þetta verður íslenzka þjóðin að 'gera sér Ijóst. Sjálf- stæðisflokkurinn treystir á heilbrigða dómgreind hennar og þroska. Á þeim grundvelli byggir hann starf sitt og bar- áttu fyrir allar stéttir hins ís- lenzka þjóðfélags. Hólar innrás á Formésu ENN Á NÝ hefur Chou En-lai, forsætisráðherra Peking-stjórn- arinnar látið flytja boðskap um það að kínverskir kommúnistar ætli sér hvað sem það kostar að hertaka Formósu. En meðan hann ógnar þannig með innrás yfir nærri 200 km breitt Formosu-sundið, sætir það nokkurri furðu, að kínverskir kommúnistar eiga í hinum mestu örðugleikum með útvirki eitt, sem Þjóðernissinnar hafa aðeins tæpa 5 km frá strönd meginlands- ins, það er eyjan Qeumoy. Á þess ari eyju eru staðsettir 50 þúsund af samtals um 300 þúsund æfðum hermönnum Þjóðernissinna. í augum kínversku Þjóðemis- sinnanna, er eyjan Quemoy ann- að og meira heldur en yzta varn- arstöð. Fyrir þá er hún stökk- bretti til þeirrar gagnsóknar, sem þeir hyggja á, einhverntíma í ná- inni framtíð. Er ólíklegt þrátt fyrir dig- urbarkaleg ummæli Chou En-lais, að kínverskir kommúnistar reyni til innrásar á Formósu fyrr en þeir hafa unnið bug á litla ey- virkinu rétt við bæjardyr þeirra. Leikfélag Reykjavíkur sýnir „Eríingjann" á flmmfud. LEIKFÉLAG Reykjavíkur hefur’ frumsýningu nnnað kvöld á leiknum „Erfingjanum" eftir Ruth og Augustus Götz, en leik- ritið er byggt á sögunni Washing- ton Square eftir rithöfundinn Henry James, sem var Banda- ríkjamaður en gerðist brezkur borgari. Henry James var með mestu ritsnillingum aldarinnar sem leið og kannaði nýja stigu í skáldsagnagerð, en Washington Square er með kunnustu og beztu skáldsögum hans. Hefur farið mikið frægðarorð af leik- J ritinu og það sýnt víða um heim. I Leikritið gerist um 1850 á ■ heimili auðugs læknis í New | York. Gefur bað tilefni til að sýna tízku þeirra tíma og má 1 geta þess, að Leikfélagið sneri sér til hr. Ragnars Þórðarsonar til að tryggja sér efni og sauma- skap, sem hæfði hinum kröfu- freku búningum leiksins. Hefur | verzlunin Gullfoss séð um kven- búningana eftir teikningum leik- stjórans, Gunars R. Hansens. Leiktjöldin málaði Lothar Grund, skjalaþýðari. | Leikritið hefur þýtt María Thorsteinsson, en leikstjóri er Gunnar R. Hansen. Aðalhlut- verkið í leiknum fer Guðbjörg Þorbjarnardóttir með, Gahterine, einkaerfingja læknisins, sem Þor- steinn Ö. Stephensen leikur. Systur hans leikur Hólmfríður Pálsdóttir, en biðil Catherine leik ur Benedikt Árnason og er það fyrsta hlutverk hans hér á leik- sviði eftir leiknám í London að afloknu stúdentsprófi hér. Önnur hlutverk leika: Nína Sveinsdóttir, Gerður Hjörleifs- dóttir, Hélga Valtýsdóttir, Mar- grét Ólafsdóttir og Jóhann Páls- son. | Leikritið er viðamikið og al- vöruþrungið, þó að gamansemi bregði fyrir. Það verður að telj- ast til vandasamari sviðsetninga, sem Leikfélagið hefur ráðist í. Allir aðilar hafa lagst á eitt um það, að gera sýninguna eins vel úr garði og framast var kostur á. Vegna örðugleika, sem félagið á við að stríða, húnæðis- leysi fyrir vinnustofur og tak- markað æfingapláss, hefur orðið að skjóta á frest sýningum á „Frænku Charleys“, sem félagið hefur sýnt við mikla aðsókn nú í haust, og vérður næsta sýning á gamanleiknum á sunnudaginn kemur kl. 3. I Um fyrirætlanir félagsins í vetur er annars fullsnemmt að ræða, en það hefur m. a. tryggt sér sýningarréttinn á norska leikritinu „Gjenta som elska fanden“ eftir Borman og Töms, en það vakti freikna athygli í Oslo í hitteð fyrra. 220 skip bíða... LUNDÚNUM 12. okt. — Enn versnuðu horfurnar í verkfalli hafnarverkamanna í Lundúnum í dag, því búist er við að enn leggi 4500 manns niður vinnu. Nú þegar hafa 27 þúsund manns hætt störfum sínum og 220 skip bíða nú afgreiðslu. í dag áttu starfsmenn á drátt- arbátum að eiga fund saman og þar átti að ákveða hvort þeir leggðu niður vinnu í samúðar- skyni. Ef svo fer eru skipasigl- ingar um Lundúnahöfn algerlega lamaðar. — Reuter-NTB. ULÁ andi óhrifar: Sprakk — í fyrsta skipti á 10 árum. KONA í úthverfi bæjarins skrif- ar: j „Ég varð fyrir dálitlu óhappi á sunnudaginn. Svoleiðis var mál J með vexti, að ég ætlaði að lofa krökkunum mínum í bíó kl. 3, j bóndinn hafði brugðið sér burt úr , bænum, og fór ég um 2 leytið af stað í bílnum mínum í bæinn til að sækja miðana — en þá skeði ógæfan: það sprakk hjá mér á einu hjólinu og ég stóð uppi öld- ungis ráðalaus. Ég hef ekið bíl í 10 ár og aldrei hafði þetta komið ■ fyrir hjá mér, og vissi hreint ekki j hvað ég ætti til bragðs að taka — ráfaði þarna um í hálfgerðu ráðaleysi og reyndi að finna ein- hverja leið út úr vandræðum mínum. Ég átti eftir að fara heim aftur og ná í krakkana. Tíminn var orðin anzi naumur. Drengilega af sér vikið. EN ÞÁ barst mér óvænt hjálp, bifreið staðnæmdist hjá mér og bílstjórinn — ég hafði aldrei séð manninn fyrr — vatt sér um- svifalaust að því að skipta um hjólbarða — eins og hann kom fyrir í sunnudagsfötunum, þetta var þó ekki beinlínis verk fyrir hvítu skyrtuna hans. Það er á- nægjulegt og hughreystandi að fyrirhitta slíka greiðvikni og hjálpsemi, það er ekki svo sjald- ! an, sem nöldrað heyrist og skammazt yfir því gagnstæða: I stirðbusahætti og ókurteisi í við- skiptum fólks. — Ég held, að það j hafi ekki verið mjög áberandi að ég átti þarna í erfiðleikum, svo að þetta drengilega viðbragð mannsins var því lofsverðara — og ennþá fremur hafi hann verið atvinnubílstjóri, en það er mér ekki fullkunnugt um. — Mjög þakklát var ég og hrifin yfir þess ari framkomu hans. — Kona í úthverfi". Sælgætið — freistari 1 skólabarna, GAMALL kennari hefur orðið: „Nú er talsvert um það rætt ‘ að koma af stað hreyfingu til þess að kenna skólabörnum spar- Fimmpunda gulrófa í GÆR var hringt til Mbl. og spurst fyrir um það hvað myndi vera þyngsta gulrófan, sem kom- ið hefði upp úr garði hér á landi. — Þessari spurningu var vand- svarað. — Þetta var heima hjá Olafi Pálssyni, Skeggjagötu 6. — Hafði heimilinu verið sendur rófupoki frá Skógum undir Eyja- fíöllum. — Upp úr pokanum kom rófa, sem vegur 5 pund. — Hún var alveg eðlilega vaxin, heil og ósprungin. — Konan spurði hvort þetta myndi ekki vera þyngsta gulrófan, sem komið hefði upp úr garði hér á landi? Þeirri spurn- ingu er hér með vísað áfram, ef ske kynni að einhver hefði tekið upp stærri rófu. Kjötið frá Bíldudal nrirsÆrr- flult lil Palreksfj En freistarinn er á næstu grös- um enn sem fyrr. Sælgætisbúð- irnar standa opnar rétt á móti skóladyrunum, svo að segja, og þangað veltur mörg krónan úr BÍLDUDAL, 12. okt. — Slátrunii stendur yfir þessa daga. Er frem ur fáu fé slátrað hér, vegna fjár skiptanna. Kjötið er bæði salta? og einnig mikið af því sent ti frystingar til Patreksfjarðar þa: sem frystihúsið hér getur ekk tekið við því vegna viðgerðai sem er að fara fram á því. í gærdag tepptist bílvegurin: yfir Hálfdán, svo ekki var hæg að flytja kjötið. Var fjallvegtír inn mokaður í dag, svo flutninga geta haldið áfram. — Páll. vasa smáfólksins. Væri ekki unnt að koma í veg fyrir, að slíkar verzlanir væru svona fast við skólana? Getur orðið að ástríðu. UMFRAM allt ættu mæður að gæta þess, að börn hafi með sér nesti í skólann, ef þau þurfa að neyta þar einhvers, t.d. smurt brauð og mjólk — en ekki pen- inga. Þeir lenda því miður oftast hjá sælgætissalanum. Það er ekki heiisusamlegt að éta sælgæti í stað matar og oft er mikið sæl- gætisát fyrsta þrepið niður á við — það getur orðið að ástríðu og orðið undanfari drykkjuhneigðar og annarra lasta. — Gamall kennari“. Tröllkonuhlaup. MOSFELLSKVÍSL heitir á í Þistilfirði norður og rennur í Sandá, þar sem heitir Tröllkonu hlaup. Þar rann Sandá milli tveggja kletta, sem eru hvor á móti öðrum, og þar er áin örmjó. Sagan segir, að tvær tröllkon- ur hafi búið í fyrndinni, önnur í Balafelli, en hin á Svalbarðs- gnípum. Þegar þær vildu finnast, stukku þær yfir Sandá, þar sem beitir Tröllkonuhlaup, og dregur það nafn af því. - Húsmæðrafél. Framh. af bls. 2 Þá hefur einnig verið mikil að- sókn að matreiðslunámskeiðum félagsins. — Á hverju mánaðar- námskeiði eru aðeins 12 konur, og kennt er 4 stundir á dag frá kl. 2—6, alla virka daga nema laugardaga. — Kenndur er al- gengur matur, veizlumatur, bök- un, smurning á brauði og ýmsir ábætisréttir. | í ráði er að hafa fleiri mán- aðarnámskeið, en þau geta að öll- um líkindum ekki hafizt fyrr en eftir jól. — Þá er einnig í ráði að hafa kvöld-matreiðslunám- skeið og vonandi verður hægt að hafa eitt slíkt fyrir jól, og hefst það líklega í nóvembermán- I uði. — Þau námskeið verða þrjú kvöld í viku. —o— Námskeið Húsmæðrafélags Reykjavíkur eru mjög vinsæl meðal húsmæðra, enda eru þau sniðin. mjög eftir þörfum hús- , mæðranna, og námstímanum hag anlega fyrir komið. Formaður Húsmæðrafélagsins er frú Jónína Guðmundsdóttir. Tyrkland ISTANBUL, 7. okt. — í dag voru 131 manns dæmdir til fangelsis- vistar frá 6 mánuðum upp í 10 ár fyrir þátttöku í leynistarfsemi kommúnistaflokksins, er miðar að því að kollvarpa stjórninni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.