Morgunblaðið - 24.10.1954, Qupperneq 1
16 síður og Lesbók
SAIUKOMIJLAG í PARÍS
■<«>
Ný háskólabygging ráðgerð
Hdsbólahátíðin var í gær
„Skefjefa^s efnishyggja og sfröng sérhæfing
ei«i rsiesfa mein núfímans"
HÁSKÓLAHÁTÍÐIN fór fram í gærdag- og hófst hún kl. 2 e. h.
Til hennar voru boðnir forseti íslands, erlendir sendiherrar og
ýmsir gestir. Var hátíðasaiur Háskólans þéttsetinn stúdentum að
auki. í forsæti var hinn nýkjörni rektor, dr. Þorkell Jóhannesson.
Flugbátur fers!
BREZKUR Sunderland flugbátur
fórst við Færeyjar í dag. Einn
maður fórst, þriggja er saknað.
Báturinn átti að sækja brezkan
sjómann, sem settur hafði verið
í land í Færeyjum hættulega
veikur af togara í gær.
Veður var drungalegt og lág-
skýjað var, er báturinn fórst.
Kol gr.afin 16 m úr
jörð á Skarðströnd
FYRSTU kolin úr íslenzkri kolanámu verða brennd í Toppstöð-
inni við Elliðaárnar. f>að eru kol úr námu hlutafélagsins Kol,
en hún er í svokölluðum Tindum á Skarðsströnd. Þar hafa bor-
anir verið gerðar, sem leiddu í ljós að tilraunir um stórvinnslu
yrðu gerðar. Leiði þessar tilraunir, er fram fara í vetur, til jákvæðs
árangurs, hefst þar vinnsla í stórum stíl og íslenzk kol sem verða
samþærileg að gæðum og verði við erlend kol.streyma á markaðinn.
-------------------‘S’UNDIRBÚNINGS-
AÐGERÐIR
RÆÐA REKTORS <*>
Hátíðin hófst með því, að Dóm-
kirkjukórinn söng hátíðarljóð
Háskóla íslands við lag eftir dr.
Pál ísólfsson og stjórnaði tón-
skáldið kórnum. — Guðmundur
Jónsson, óperusöngvari, söng ein-
söng.
Þá flutti hinn nýi rektor magni
ficus Háskólans, dr. Þorkell Jó-
hannesson, ræðu.
í upphafi máls síns minntist
hann dr. Bjarna Aðalbjarnarson-
ar, sem andaðist 1. des. s.l., en
hann var um langt skeið próf-
dómari við norrænudeild skól-
ans. Drap hann á hinar merku
rannsóknir dr. Bjarna á konunga-
sögunum, sem hann hlaut dokt-
orsnafnbót fyrir frá Oslóarhá-
skóla 1937.
„Með Bjarna hefur þjóð vor
misst einn af sínum beztu fræði-
mönnum og Háskóli íslands einn
sinn fremsta lærisvein“, sagði
rektor.
DR. ALEXANDER ÞAKKAÐ
Á stjórn Háskólans hefur sú
hreyting orðið að próf. Alexand-
er Jóhannesson lét í haust af
störfum sem rektor skólans, en
hann hefur gegnt rektorsembætt-
inu lengur og oftar en nokkur
annar háskólakennari og nú síð-
ast samfleytt í sex ár. Þakkaði
hinn nýi rektor dr. Alexander
frábærilega vel unnin störf í
þágu Háskólans, ötula forystu í
byggingarmálum hans og baráttu
fyrir bættum kjörum prófessora
og stúdenta. Undir hans stjórn
Framh. á bls. 2
Klukkunni var
seinkað í nóft
KLUKKUNNI var seinkað í
nótt um eina klukkustund. —
Munduð þér eftir að seinka
yðar kiukku? Ef svo er ekki,
er ekki eftir neinu að bíða!
Heimsmet
RÚSSNESKI hlauparinn Kutz
bætti í dag heimsmet Chataway
í 5 km hlaupi. Tíminn var 13:51,2
4/10 úr sek. betri en heimsmet
Chataways. Mct Kutz var sett í
Prag.
Miklar undirbúnirígsfram-
kvæmdir hafa verið gerðar þar
vestra. Fyrst var vegur lagður
frá þjóðveginum að námunni og
lagað í kringum námuopið,
bryggja var byggð og sjálf nám-
an opnuð. Hún er þannig, að
grafnir hafa verið 16 m lóðrétt
niður og út frá þeim göngum er
unnið. Lyfta hefur verið sett í
þessi 16 m göng og jafnskjótt og
kolin eru grafin úr kolalögun-
um, eru þau sett á vagn, sem ekið
er eftir spori að lyftunni og vagn-
inum lvft upp — honum ekið
eftir spori og kolunum hvolft í
bynginn, sem býður útskipunar.
KOLIN VEL NOTHÆF
Blaðið átti í gærdag tal við
Helga Sigurðsson, verkfræðing,
um þessar tilraunir, sem nú eru
Framh. á bls. 2
Þýzkaland sjálistætt
8ÖGLLEGIJR DAGIJR
París, 23. okt.
IDAG hlutu Þjóðverjar fullt sjálfstæði, þeim var boðið að gerast
fimmtánda aðiidarþjóð Atlantshafsbandalagsins, Þjóðverjar og
Frakkar náðu samkomulagi um framtíð Saar-héraðsins, og Þjóð-
verjar og ítalir gerðust aðilar að Brusselbandalaginu, sem upp frá
þessu heitir Bandalag Vestur-Evrópu.
Þetta var sögulegur dagur. Fram á síðustu stundu var óvíst
hvort hinir þrír samningar, sem gerðir höfðu verið undanfarna
dága um hið nýja varnarkerfi Vestur-Evrópu, yrðu undirritaðir,
þar eð ekki gekk saman með Mendes France og Adenauer um
framtíð Saar.
Með því að báðir aðilar t
slökuðu nokkuð til, tókst að
lokum, skömmu áður en und-
irskrift samninganna skyldi
hefjast, samkomulag, sem fel-
ur í sér að Saar verður sett
undir vernd Vesturevrópuríkj-
anna með landsstjóra, skipuð-
um af þeim.
Frakkar og Þjóðverjar ætla að
koma sér saman um reglugerð, er
fjallar um málefni héraðsins,
banninu gegn starfsemi flokka,
er styðja Þjóðverja, verður af-
létt, og síðar fara fram kosningar
í Saar.
Þar með var vegurinn ruddur (
og um miðjan dag í dag hófst
hin hátíðlega undirskrift samn-
inganna, sem eru í 13 köflum á
270 þéttrituðum síðum.
Fréttaritarar segja að undir-
ritun samningsins um sjálfstæði
Þýzkalands hafi aðeins tekið sex
mínútur. Undirskriftin fór fram
í Quai d’Orsay, franska utanrík-
isráðherrabústaðnum, og undir
samninginn rituðu Dulles, Aden-
auer, Mendes France og Sir Ant-
hony Eden.
Síðan komu fulltrúar Brússel-
bandalagsins og undirrituðu samn
inginn um bandalag Vestur-
Evrópu.
Að því búnu héldu ráðherr-
arnir (nema Adenauer) til aðal-
töðva Atlantshafsbandalagsins,
þar sem fyrir voru aðrir fulltrúar
bandalagsins (þ. á. m. dr. Krist-
inn Guðmundsson, utanríkisráð-
herra íslands). Þar var undirrit-
aður samningur um að bjóða
Þjóðverjum þátttöku í bandalag-
íu.
Stórt spor var stigið. En enn
eiga hin einstöku ríki eftir að
staðfesta samningana. Og fyrst
og fremst verður beðið með nokk
urri óþreyju eftir staðfestingu af
hálfu franska þingsins.
Er búizt við að franska
þingið greiði atkvæði um
samningana fyrir áramót. —
Hin ríkin munu bíða eftir
Frökkum, enda talið víst að
staðfesting fáist af hálfu
þeirra.
Rússar sendu frá sér boð í dag,
sem greinilega voru ætluð til
þess að gerast heyrin kunn um
sama leyti og samningar tækjust
í París. Bjóða þeir nú til fjór-
veldaráðstefnu um Þýzkalands-
málin og vilja að hún hefjist þeg-
ar í næsta mánuði. Þátttakendur
eiga að vera Frakkar, Bretar og
Bandaríkj amenn.
Láta þeir nú líklega um að
þeir vilji fallast á skilyrði Vest-
urveldanna fyrir slíkum fundi,
en þau eru frjálsar kosningar um
allt Þýzkaland og friðarsamning-
ar við Austurríki. Vilja þeir að
sendiherrar Vesturveldanna í
Vínarborg komi saman til þess
að ræða friðarsamningana.
Adenauer til Islands
BONN, gærkvöldi. — Adenauer
kanslari kom hingað í kvöld. —
Hann lét svo um mælt við kom-
una, að þetta væri stór dagur,
sem fagna bæri í samskiptum
Frakka og Þjóðverja.
Eftir helgina leggur Adenauer
af stað vestur um haf til Banda-
ríkjanna, með stuttri viðkomu á
Islandi.
í WASHINGTON verður Aden-
auer gestur Bandaríkjastjórnar í
þrjá daga. Er gert ráð fyrir að
undirritaður verði sérstakur
þýzk-bandarískur vináttusamn-
ingur.
Framh. á bls. 12
NÝJA HÆTTAN!
Sex ára telpa fyrir bif-
hjóli og stórslasast
SEX ára' telpa varð í gærdag
fyrir stóru bifhjóli, sem 17 ára
unglingur ók og stórslasaðist
hún. Barnið heitir Sigrún Karls-
dóttir, Mávahlíð 19. — Var litla
telpan flutt meðvitundarlaus í
Landsspítalann. Kom þar í ljós
að hún hafði hlotið slæmt fót-
brot og höfuðkúpubrotnað, en
auk þess skrámaðist hún mjög.
Slysið varð á Miklubrautinni
um kl. hálf tvö. Var litla telpan
á leið þvert yfir götuna er pilt-
urinn á bifhjólinu kom með all-
mikilli ferð. Rakst hann á hjólinu
utan í barnið, sem festist með
báðar fæturna í bifhjólinu og
drógst með því eftir götunni um
30 metra leið, áður en piltinum
tókst að stöðva bifhjólið.
Hjólið hafði hann nýlega keypt
og var einnig nýlega búinn að fá
akstursleyfi.
I gærkvöldi er blaðið spurðist
fyrir um líðan Sigrúnar litlu var
því svarað til að hún væri kom-
in til meðvitundar og líðan henn-
ar væri sæmileg.