Morgunblaðið - 24.10.1954, Page 7
Sunnudagur 24. okt. 1954
MORGUISBLAÐIÐ
7
0®
0$
llli i
Eifiar E. Guðmiindsson
frá ilraumim, sextujnir
x O
TIMINN FLYGUR. „Allt
streymir fram“, sagði gríski
heimspekingurinn. Og í dag 24/10
verður Einar B. Guðmundsson
frá Hraunum sextugur. Ekki er
það kallaður hár aldur á vorri
öld, en virðulegur aldur engu að
síður og minningarík vegamót í
lífi hvers manns.
Einar er fæddur að Hofi í
Hörgárdal og af ágætu bergi brot-
inn í báðar ættir. Faðir hans var
Guðmundur hreppstjóri Davíðs-
son prófasts Guðmundssonar að
Hofi í Hörgárdal, albróðir Ólafs i
Davíðssonar og þeirra merku,
systkina. En móðir Einars er Ólöf .
Einarsdóttir, bændahöfðingja, al-
þingismanns og völundar á i
Hraunum Guðmundsscnar, og er j
sú ætt mikil og stórmerk, þótt i
eigi verði hér rakin. Laukur,
þeirrar ættar er Baldvin Einars-j
son frá Hraunum, sá, er brautj
brautina í frélsis- og sjálfstæðis-
baráttu þjóðarinnar og gaf út
Ármánn á Alþingi, en féll fyrir
aidur fram rúmlega þrítugur. j
Foreldrar Einars hófu búskap
að Hofi, en fluttust fljótlega að
, ættaróðali móðurinnar, Hraunum
í Fljótum, og bjuggu þar í ára-
tugi.
Hraun er mikil jörð og glæsi-
leg ,dýrust að landverði állra
jarða í Skagafjarðarsýslu. Þar eru
flest gæði þau, er góða jörð
megi prýða. Og á Hraunum
höfðu setið merkir bændur mann
fram af manni og gert garðinn
frægan. Bar því staðinn hátt,
ekki aðeins í vitund Fljótamanna
heldur og víða um bvggðir. i
Foreldrar Einars, þau Ólöf og
Guðmundur, héldu staðinn lengi
með rausn og prýði. Hrauna-
heimilið var óvenjulegt sveita-
heimili fyrir margra hluta sak-
ir. Mannmargt var þar jafnan
fram eftir árum og fjör og glað-
værð einkenndi heimilislífið.
Margan gest bar að garði á
Hraunum og var öllum vel fagn- ,
að. Þótti ungu fólki í sveitinni
það mikill viðburður að fá að
koma að Hraunum og mega helzt
dveljast þar nokkra daga. Yfir
heimilinu var menningarbragur,!
sem bar húsbændunum fagurt
vitni. Húsmóðirin var búkona.
mikil og skörungur og hafði á'
öllu gát. Húsbóndinn var fræði-
maður meiri en bóndi og hverj-
um manni fróðari og skemmti-
legri. Hann átti bókasafn svo
stórt, að fágætt mun vera um
ísienzka bændur, en auk þess
mikil söfn eggja og steina.
Á þessu myndarheimili ólst
Einar upp, eina barn hjónanna,
er lifði. Ungur var hann settur
til mennta og stúdentsprófi lauk '
hann 18 ára að aldri árið 1913.!
Hann stundaði síðan um skeið
nám við landbúnaðarháskóiann í
Kaupmannahöfn. og ferðaðist sið-
an um Noreg og Þýzkaland. til
þess að kynnast landbúnaði og
búnaðarháttum með þeim þjóð-.
um. Gerðist þá bóndi á Hraun- j
um og bjó þar í tvo og hálfan'
áratug. Gegndi hann ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir sveit sína.
Nú er Einar skrifstofumaður í
Reykjavík og hefur verið það um
árabil. 1
Emar B. Guðmundsson
óræk merki ættar sinnar. í skóla
reyndist hann góður námsmaður,
ejns og vænta mátti, og ágætur
félagi. Búskapurinn farnaðist
Einari vel og var honum hugðar-
efni, en Hraun er mannfrek jörð,
ef nýta á hana til nokkurar hlít-
ar. Erfitt var hins vegar orðið
að fá fólk hin síðari búskapar-
ár Einars, svo að hann mun
frekar hafa kosið að láta jörðina
af höndum en eiga á hættu að
halda ekki veg hennar og reisn
í fullum heiðri. En Einar.’á fleiri
hugðarefni, og eftir að hann
íluttist til Reykjavíkur, gafst
honoum betra tóm til að sinna
þeim. Einar er maður vel ritfær,
eins og hann á kyn til. Hefur
hann fengizt nokkuð við þýðing-
ar og tekizt það mæta vel. Mest
þeirra rita, er hann hefur snar-
að á íslenzka tungu er skáld-
sagan Fjötrar eftir Sommerset
Maugham. Þá hefur Einar ritað
nokljuð og hafa birzt eftir hann
ritgerðir í timaritum, og eina bók
hefur hann samið og gefið út:
Þungir straumar (1951). Það
er mála sannast að rit Einars eru
ekkert léttmeti. Þar eru tekin til
meðferðar hin torráðnustu vanda
mál menningarinnar og um þau
fjallað af staðgóðri þekkingu og
heimspekilegri .yfirsýn. Ætla ég,
að Einar B. Guðmundsson hafi
oinna fyrstur íslenzkra manna
leitast við að brjóta til mergjar
í rituðu máli og allítarlega þá
hættu í ýmsum myndum, sem
menningu nútímans, eða borg-
menningunni, eins og hann orðar
það, fylgir. Um niðurstöður hans
geta að sjálfsögðu orðið misjafn-
ir'dómar, en vafalaust mun hugs-
andi möiinum þykja girnilegt að
kvnnast kenningum hans ,og
kunnugt er mér um það, að er-
lendir fræðimenn hafa talið þær
athyglisverðar. .
Einar bendir á það, og færir
til ýmis rök, að menningin, eins
og hún er og hefur þróazt um
aldir, muni að lokum leiða til
falls og tortímingar. Á einum
stað segir hann m. a.: „AUt bend-
ir, til þess, að drengskapur, orð-
heldni, hugrekki, sannleiksást og
margt fleira, sent við teljum til
mannkosta, sé í meiri metum haft
meðal frumstæðra þjóða en í
„siðmenntuðum“ þjóðfélögum. Sé
eitthvert vit í þessu, getur borg-
menningin, eða þróunin síðustu
sjö þúsund árin, varla talizt g'óð“.
Einar er djúphyggjumaður,
dulur í skapi og hæglátur í fasi,
en hlýr og skemmtilegur í
kunningja hópi og vel kynntur.
Engi er hann sundurgerðarmað-
ur, og lætur sér fátt um finnast,
þótt hann bindi ekki bagga sína
sömu hnútum og samferðamenn-
irnir.
Ég veit, að margir óskuðu að
fá að sjá afmælisbarnið á morg-
un, en sú von getur ekki ræzt,
því að í dag og næstu daga mun
hann staddur utan bæjafins.
Gömlum sveitunga og góðum
víni sendi ég heilla kveðjur.
Krisíinn Stefánsson.
Salirnir opnaBir \
klukkan 6.
Dansað lil ,kl. 1.
lf.ikhúskjallarinn •
í
OLAFUR jensmin
verkfræðiskrifstofa
Nnsrbólsbraut 47, Kópavogi.
Snni 82652.
aluminium union limited
THE ADELPHI, STRAND, LONDON W.C. 2.
Umboðsmenn:
O H BCAlkg
REYKJAVÍK.
Fáuin til afgrciðslu 25. nóvember úrvalstegundir
af ítölskum eplum
DELICÍOUS
KALTERER BQHMER
JOHNATAN oJL
i
Þeir viðskiptamenn okkar, er enn ekki hafa nantað epli hjá oss,
ættu að senda oss pantanir hið fyrsta.
EGGEBT IBISTJÁMSSÍM & Co. h.f.
JjðKABimtJiDnssott
LÖGGILTUR S.XIALAIíTDANDI
® OGDOMTÚL&LUftiENSWJ •
StlfeJUSVOlI - sia3 81855