Morgunblaðið - 24.10.1954, Page 9
Sunnudagur 24. okt. 1954
MORGUN 8LABIÐ
I
Reykjavikurbréf: Laugardagur 23. október
Við vetrarkomu — Háskólahátíðira hreytir um form — Samtök SJálfstæðlsmanna
eflast — Affl, sem miklu goðu hefur áorkað — IMenningarmál rædd — Afstaðan
til skóla og lista — Þar sem kjörstjórnin glápir
á kjósandann „kjósa“ — Gistihús á Þingvöllum
98% kjósenda kusu og rúm 99%
kusu lista kommúnista. En það
var raunar eini listinn, sem í kjöri
var. Til þess að fullkomna hið
austræna lýðræði ákváðu komm-
únista í Austur-Þýzkalandi, að
greiða ailir atkvæði opinberlega,
fara ekki inn í kjörklefa með at-
kvæðaseðil sinn. Auðvitað var
þetta vísbending til annarra um
að gera hið sama.
Fólk hafði því ekki einu
sinni tækifæri til þess að skila
auðum atkvæðaseðli eða ónýta
hann. Hin kommúniska kjör-
stjórn sat frammi fyrir því og
horfði á „kosningaathöfnina“.
Úrslitin urðu í samræmi við
þetta.
Kommúnistar hér heima eru
orðnir hálf skömmustulegir á
svipinn þegar rætt er um slíkar
kosningar við þá. „Þjóðviljinn"
hefur að vísu marglýst því yfir,
að þetta sé langsamlega fullkomn
asta tegund ,,lýðræðis“. Það eigi
ekki nema einn flokkur að fá að
bjóða fram við kosningar tilþings
og bæjar- og sveitarstjórna. Það
sé kommúnistaflokkurinn.
Bjarni Benediktsson menntamálaráðherra: — Við verðum að sjá
um, að skólarnir geri sitt til að sem flestir unglingar verði
Nokkrar fyrirspurnir
VILL nú ekki þetta blað, sem
segist vera málgagn „róttækra
og frjálslyndra manna" gera
svo vel og útskýra það, í
hverju fullkomleiki þessa lýð-
ræðis sé fólginn? Er hann fólg-
inn í því, að fólkinu er bannað
að skiptast í flokka eftir mis-
munandi skoðunum? Birtist
hann e.t.v. í því að aðeins einn
flokkur fær að bjóða fram og
kjósendur eiga því ekki um
neitt að velja? Er hann í því
fólginn, að kjörstjórnin er lát-
in glápa á kjósandann meðan
hann er að greiða atkvæði?
Þetta er nóg í bili. Verður að
vænta þess að málgagn hinna
„róttæku og frjálslyndu“ svari
þessum fyrirspurnum snarlega.
Við bíðum og sjáum hvað setur.
Gistihús á Þing'völlum
Á ALÞINGI hafa ekki verið flutt
mörg mál af hálfu einstakra
þingmanna enn sem komið er.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins
hafa þó lagt fram nokkur frum-
vörp og þingsályktunartillögur.
Meðal þeirra er þingsályktunar-
tillaga, sem tveir þingmenn
flokksins flytja í Neðri deild um
undirbúning að byggingu sæmi-
legs gistihúss á Þingvöllum.
í greinargerð tillögunnar er á
það bent, að þótt margt hafi ver-
ið vel gert á þessum helga stað
sé þó hinn mesti vansi að því, •»
hvernig húsakynnum gistihúss-
þar sé hagað. Á þessumT stað eigi
að vera notalegt gistihús af hóf-
legri stærð. Það þurfi helzt að
geta verið opið allt árið og væri
því hentugt ef hægt væri að taka
nokkurn hluta þess úr notkun á
vetrum.
Vissulega er hér um nauðsynja-
og menningarmál að ræða. Gamla
Valhöll getur naumast talist hæf
til gistihússreksturs lengur. Hún
laðar hvorki að sér innlenda eða
erlenda gesti, enda er henni nú
aðeins haldið opinni fáeina mán-
uði ár hvert. Hafa þó ágætir
menn annast hótelhald þar.
Okkur vantar ekki „luxus-
hótel“ á Þingvelli. Þar á aS
vera notalegt gistihús, sem
veitt getur íslendingum sem
útlendingum góðan beina, gist
ingu og veitingar. Þangað á
fólk að geta leitað vetur, sum-
ar, vor og haust hvíldar og til-
breytingar, burt frá ys og þys
borgarlífs og dagsins önn.
Fólk hvaðanæva að af land-
inu, sem vill konia til Þing-
valla á að geta dvalið þar við
sæmilegan aðbúnað í nokkra
daga. Það getur það ekki með-
an þægindalaust og gamalt
timburhús er þar í gistihúss
stað. Þar eiga erlendir gestir
einnig að geta látið fara vel
um sig.
Afnám veitinga-
skattsins
SJÁLFSTÆÐISMENN hafa um
mörg ár barizt fyrir afnámi veit-
ingaskattsins, sem þröngvað hef-
ur mjög öllum gistihúsarekstri og
veitingastarfsemi í landinu. Rík-
isstjórnin hefur fallizt á að það
skuli gert. Mun það létta veru-
lega undir með þessari starfsemi.
Vonandi getur sú ráðstöfun átt
nokkurn þátt í að á Þingvöllum
rísi innan skamms gistihús, sem
er samboðið staðnum.
Bráðs sjúkdóms vart í
kúm í Sfokkseyrarh
Stokkseyri, 23. október.
IHAUST hefur borið óvenjumikið á lasleika í kúm og hafa þrjár
drepizt síðan í sumar, þar af tvær af sama heimili.
Við vetrarkomu
VETUR er nú genginn í garð.
Fyrir norðan, vestan og austan
hefur fyrsta stormhrinan gengið
yfir. Snjóar hafa þó ekki fallið
svo teljandi sé. Á annesjum
norðanlands er þó nokkur snjór
kominn og sér sunnanlands hef-
ur einnig fallið snjór í byggð
enda þótt hann hafi tekið upp
fljótlega.
Sumarið hefur þegar fengið sín
eftirmæli. Það hefur verið bænd-
um sæmilega hagsætt víðasthvar
á landinu. Vélbátaútgerðina hef-
ur það leikið hart með síldar-
hallæri fyrir Norðurlandi. Af því
spretta svo atvinnuerfiðleikar í
fjölda sjávarþorpa og kaupstaða.
Þar sem togarar eru gerðir út og
hafa landað afla sínum hefur at-
vinna þó verið mikil síðari hluta
sumars og í haust.
Ríkisbúskapnum hefur sumarið
verið mjög hagstætt. Samkvæmt
upplýsingum, sem fram komu við
1. umræðu fjárlaga á Alþingi má
gera ráð fyrir að greiðsluafgang-
ur þessa árs verði ekki undir 50
millj. kr. en sennilega töluvert
meiri.
Yfir vetrarkomn er nú eins
og ævinlega nokkur svipur
uggs og trega. Enda þótt þjóð-
in búi nú yfirleitt í húsakynn-
um, sem veita gott skjól móti
f júki og frostum og njóti góðra
lífskjara, lifir óttinn við mátt
hins norræna vetrar ennþá í
undirvitund hennar. í margar
aldir barðist islenzkt fólk í
lágum hreysum við sult og
seyru. Þá olli harður vetur
bæði skepnu- og mannfelli.
f
Háskólahátíð
HÁSKÓLI ÍSLANDS hefur nú
haldið hina árlegu hátíð sina við
vetrarkomu. Að þessu sinni fór
hún fram með öðrum hætti en
undanfarin ár. Stúdentar fengu
nú háskólaborgarabréf sín afhent
á sjálfri hátíðinni og niður var
látinn falla vísindalegur fyrir-
lestur, sem jafnan hefur verið
haldinn hin síðari ár. Er það mjög
vel farið, að forráðamenn Há-
skólans hafa á ný horfið til fyrri
venja um svip setningarhátíðar
Háskólans. Hún var orðin alltof
formlaus og litlaus.
í skólanum eru nú samtals 726
stúdentar innritaðir. Eru 40
þeirra í guðfræðideild, 243 í
læknadeild, 97 í lögfræðideild,
95 í viðskiptadeild og 218 í heim-
spekideild, en af þeim nema 51
íslenzk fræði. Hinir eru við mála-
nám í B.A. deild og heimspeki-
nám.
í verkfræðideild eru 33 stúd-
entar og af stúdentum þeim, sem
taldir eru innritaðir f læknadeild
nema 15 tannlækningar.
Þróun háskólans hefur verið
traust og örugg. Fyrir framsýni
og dugnað prófessors Alexanders
Jóhannessonar og fleiri kennara
hans, eignaðist skólinn ný og
glæsileg húsakynni í byrjun
styrjaldarinnar. Hefur það orðið
Stofnuninni ómetanlegur styrk-
ur. En þótt mörgum þætti hinn
nýi háskóli full rúmmikil bygg-
ing er nú svo komið að hann
hefur þörf fyrir öll sín húsakynni,
og vel það. Nýjar deildir hafa
verið stofnaðar við skólann og
kennsla aukin í hinum eldri
deildum.
Samtök Sjálfstæðis-
manna eflast
LANDSMÁLAFÉLAGBÐ Vörður
boðaði s.l. miðvikudag til fundar
um menningar- og menntamál.
Við það tækifæri gengu rúmlega
hálft þriðja hundrað manns í fé-
lagið. Er það stærri hópur en
nýtir menn.
gengið hefur í það nokkru sinni
fyrr á einum fundi. Hinir nýju
félagar voru fólk úr öllum stétt-
um bæjarfélagsins, sjómenn, iðn-
aðarmenn, menntamenn, verka-
menn, verzlunarmenn og opin-
berir starfsmenn, konur og karl-
ar.
Þannig eru samtök Sjálf-
stæðismanna í landinu byggð
upp. Þar mætast þúsundir
manna úr öllum stéttum og
starfshópum hins íslenzka
þjóðfélags og starfa saman að
sameiginlegum áhugamálum.
Þessa einstaklinga getur
greint á um ýmistlegt. Þeir eru
ekki alltaf sammála í öllum
málum. En þeir hafa þroska
til þess að rökræða málin hver
frá sínu sjónarmiði og samein-
greint á um ýmislegt. Þeir eru
mestu máli skiptir, kjarna
Sjálfstæðisstefnunnar, ein-
staklings- og athafnafrelsi,
framfarir og umbætur á fjöl-
mörgum sviðum íslenzks þjóð-
lífs.
Þessi mikli fjöldi þróttmikils
fólks úr öllum stéttum þjóðfé-
lagsins, sem fyllir Sjálfstæðis-
flokksins býr vissulega yfir miklu
afli. Flokkur þess hlýtur því að
hafa aðstöðu til þess að hrinda
mikilvægum hagsmunamálum al-
þjóðar í framkvæmd. Og Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur notað
þessa aðstöðu. Hann hefur beitt
sér fyrir flestum stærstu átökun-
um, sem gerð hafa verið s.l. einn
og hálfan áratug til framfara og
umbóta í landinu.
Einmitt af þeirri ástæðu óttast
andstæðingar hans nú, að svo
kunni að fara við næstu kosning-
ar, að hann fái hreinán þingmeiiri-
hluta. Tíminn hefur beinlínis lýst
því yfir, að hann telji 9 kjördæmi
Framsóknarflokksins í bráðri
hættu fyrir frambjóðendum Sjálf
stæðismanna.
Umræður um
menningarmál
Á FYRRGREINDUM fundi Varð-
arfélagsins nú í vikunni voru
menningar- og menntamál aðal-
umræðuefnið. Var Bjarni Bene-
diktsson menntamálaráðherra
málshefjandi. Flutti hann af-
burða greiriargóða ræðu, þar sem
hann gerði fræðslumál þjóðarinn-
ar, skólabyggingar og afstöðuna
til fagurra lista aðallega að um-
ræðuefni. Hefur efni hennar áður
verið rakið hér í blaðinu.
En ein aðal niðurstaða ráð-
herrans um hlutverk hins ís-
lenzka skóla í dag var sú, að
hann ætti að kenna æskunni
það, sem íslenzku þjóðinni
hefði reynzt bezt, hina fornu
þjóðtungu, bókmenntir og
kristna trú.
Um afstöðu Sjálfstæðis-
flokksins til listanna komst
hann þannig að orði, að hún
hlyti að vera sú, að styrkja
bæri þá listamenn, sem ein-
hvers væru megnugir til að
fara sínar eigin götur, hvort
sem það væri í bókmenntum,
tónlist eða myndlist.
Þessi fundur Sjálfstæðisfólks í
Reykjavík var hinn ánægjuleg-
asti. Miklar umræður urðu um
ræðu menntamálaráðherra og
tóku þessir menn til máls:
Guðmundur Einarsson mynd-
höggvari, Sigurður Pétursson
gerlafræðingur, formaður Nátt-
úrufræðifélagsins, Guðmundur G.
Hagalín rithöfundur, Lúðvig Guð
mundsson skólastjóri og dr.
Sveinn Þórðarson skólameistari
Menntaskólans á Laugarvatni.
„Kosningarnar“
í Austur-Þýzkalandi
KOMMÚNISTAFLOKKUR Aust-
ur-Þýzkalands vann mikinn sig-
ur i „kosningum“ þeim, sem þar
fóru fram um síðustu helgi. Um
BRÁÐUR SJÚKDÓMUR
í sumar veiktist kýr hjá Hall-
grími Jónssyni bónda að Vestra-
íragerði og varð að drepa hana
eftir skamman tíma. í síðastlið-
inni viku veiktist önnur kýr hjá
honum, viku eftir burð og er
hún búin að vera veik í nokkra
daga, var svo af henni dregið að
drepa varð hana einnig.
ÞRIÐJA TILFELLIÐ
Þá veiktist um sama leyti kýr
hjá Eyþóri Eiríkssyni í Bjarnar-
ey, sem einnig hafði borið fyrir
viku. — Sjúkdómurinn lýsti sér
með sama hætti og í síðari kúnni,
sem veiktist í Vestur-íragerði og
varð að drepa hana eftir nokkra
daga.
LÆKNIS LEITAÐ
í öllum tilfellunum var leitað
til dýralæknis Árnessýslu, Jóns
Pálssonar á Selfossi. Neytti hann.
allra bragða til þess að bjarga
kúnum, en svo bráður var þessi
sjúkdómur að ekkert stoðaði. —•
Ekki er heldur vitað hvort hér
sé um sama sjúkdóm að ræða I
öllurn tilfellum.
TALSVERT BORIÐ A
LASLEIKA
í haust hefur talsvert borið á
einhverjum lasleika í fleiri kúm.
hér í hreppnum, þótt ekki hafi
orðið að aflífa nema þessar
þrjár. — Er tjónið hjá Hallgrími
í Vestra-íragerði mjög tilfinnan-
legt, þar sem öll kúaeign hans
var í sumar fjórar kýr, og hefur
hann nú misst helming þeirra.
— Magnús. i