Morgunblaðið - 24.10.1954, Síða 14
14
MORGUNBLABIB
Sunnudagur 24. okt. 1954
Framhaldssagan 75
bæði listamenn, hvort á sínu
sviði. En hvað skyldi prófessorinn
segja ef hann heyrði þessa sam-
líkingu? datt henni í hug. Lloyd
gerði í fyrstu athugasemdir við
matinn sem hún matreiddi og
Eione gagnrýndi hana svo, að
«ngy var líkara en að hún gerði
allfr á annan hátt en þann, sem
réttur var að dómi Fionie. Samt
vaj- nú Fionie svo, að þegar
Llöyd fór að gagnrýna Nicole tók
húþ málstað hennar. Þau áttu
góða daga öll sömul sem í húsinu
voru. Lloyd og Nicole voru ánægð
með sínar blökku þjónustustúlk-
ur og hver dagur varð eins og
leikur — unz stærri hugðarefni
komu upp.
Judith var eitt þeirra. Eftir að
hún var í þennan heim komin,
sinnti Nicole engu öðru. Hún
horfði oft á barnið sitt og furð-
aði sig á því að þetta skyldi vera
mannleg vera af hennar holdi og
blóði. Hún hafði ekki áður hugs-
að um börn — aldrei umgengist
þau að neinu verulegu leyti. En
þegar hennar eigið barn var lagt
í fang hennar skyldi hún hversu
mikils hún hafði farið á mis.
Þegar hún og Judith voru flutt-
ar heim varð íbúðin skyndilega
mjög lítil. Barnaföt fylltu ótal
skúffur, sem áður höfðu geyrot
föt af Nicole. Hjúkrunarkonan
fékk eina herbergið, sem ekki
hafði áður verið notað — og jafn-
skjótt og hún kom tóku þær
Fionie að rífast. Fionie hafði
sínar ákveðnu skoðanir á því,
hvernig ala ætti upp börn og að
sjálfsögðu var hin lærða hjúkr-
unarkona á allt annari skoðun.
Orðaskipti þeirra urðu æ hávær-
ari unz þær rifust af heift. Það
varð Ijóst, að gera varð út um
það hvor þeirra ætti að vera á
heimilinu, Fionie eða hjúkrunar-
konan, og hvor ætti að fara.
Nicole vildi ekki missa Fionie,
því hún var henni ómissandi. Svo
að hjúkrunarkonan fór og það
varð friður í húsinu um tíma.
Aldrei mundi Nicole gleyma
því er Lloyd ók eftir Tygart
Drive í fyrsta sinn. Það var ekk-
ert óvenjulegt að hann byði henni
út í ökuferð; hann var vanur að
segja að það minnti hann á þá
tíma er þau voru í London og
hann ætlaði að segja eitthvað við
hana, sem hann vissi að hún vildi
ekki hlusta á. En í þá daga og
alltaf síðar er þau fóru út að aka,
þá ók hann eitthvað, enga
ákveðna leið og hélt heim þegar
hún óskaði þess. En í þetta sinn
var ökuferðin öðruvísi. Hann ók
hratt og sýnilega til einhvers
ákveðins staðar. Inn á Tvgarth
Drive sveigði hann og staðnæmd-
ist við efsta húsið Hún leit á
hann forvitin á svip. Hún gat
vaijla séð húsið fyrir trjánum en
þó var það mjög nálægt götunni
— en garðurinn var fallegur.
„Hvernig lízt þér á það,
Nicky?“ hafði hann spurt.
„Mér lízt vel á það, en ....“.
„Ég fékk lykilinn hjá umboðs-
manninum.“
Nicole varð steini lostin. „Þú
hefur þó ekki ... . ó Lloyd, ætl-
arðu að segja mér að....!“
Hann greip fram í fyrir henni.
„Nei ekki ennþá. Ég vildi að þú
sæir það fyrst.“
Hún var orðlaus og þau gengu
upp stigann að húsinu án þess að
mæla. Húsið var stórt, næstum of
stórt fyrir þau; en eftir að hafa
liaft svo litla íbúð og þau höfðu
búið í, þá mundu þau þó geta
dregjð andann þarna. Er þau
gengu um húsið hugsaði Nicole
sér, hvernig hún myndi raða nið-
ur í herbergin. Hún sá fyrir hug-
skotssjónum sínum sitt framtíð-
arheimili — eins og hún vildi
hafa það.
„Jæja, frú Fenton, hvernig lízt
þér á það?“ spurði Lloyd.
„Þú þarft ekki að spyrja. Þú
hlýtur að sjá það á mér, að ég er
í sjöunda himni. Hvers vegna
sagðir þú mér ekkert um þetta?“
„Ég held að ég hafi ekki þorað
það. Ég hélt að þú mundir segja
| að sérhvert það hús, sem þú hefð-
ir ekki sjáf komið auga á í upp-
hafi, myndi verða ómögulegt og
ekki væri ómaksins vert að skoða
! það.“
i Hún brosti til hans og síðan óku
þau heim aftur — til þess að segja
| Fionie fréttirnar. Nicole gerði það
I með hálfum huga, því að þetta
| stóra hús mundi verða miklu erf-
iðara fyrir hana að þrífa.
I „Þetta er það eina rétta, sem
það hafið gert, frú Fenton“, varð
Fionie að orði. „Þá loksins fær
| barnið einhvern sólargeisla án
þess að aka þurfi með það um
húsumgirta garða“. — Annað
sagði hún ekki og Lloyd og Nicole
glöddust, því þau fundu, að hún
mundi allt vilja gera fyrir Judith
litlu.
Þau bjuggu húsið húsgöngum
áður en þau fluttu inn í það.
Nicole sá fyrir því öllu. Og þeg-
ar því verki var lokið, var þarna
heimili eins og Nicole hafði alltaf
dreymt um að eignast. Þar fór allt
vel, allt stílhreint, ekki of mikið
inni og ekki of lítið. Lloyd var
ánægður á svip er hann leit yfir
verk hennar. „Þú kannt sannar-
lega að láta fara vel um fólk
þitt“, sagði hann. Fionie brosti
gleitt og sagði: „Þér eruð betri í
að raða niður húsgögnum en að
elda.“
Húsið var það mikið stærra en
þeirra fyrri íbúð, að þau urðu að
ráða aðra þjónustustúlku auk
Bess. Og garðyrkjumann fengu
þau og, sem einnig var blökku-
maður. Finonie iðaði í skinninu
af ánægju, því að nú fékk hún að
stjórna fleirum, en það var henn-
ar mesta ánægja. Auk þess hafði
hún þessa litlu elskulegu stúlku
til að annast um og dekra við,
og húsráðendurnir, Lloyd og Nic-
ole, gerðu allt sem hún sagði.
Þau undu vel í hinu nýja húsi
þessi hamingjusama fjölskylda og
starfsfólk hennar. Nicole hafði
rólega daga, gestir voru fáir
nema þá helzt á kvöldin, og hún
tók að leika meira á píanóið held-
ur en hún hafði gert allt frá því
að hún yfirgaf skólann í Frakk-
landi. Þau Lloyd drógust inn í
hring menntamanna í New York,
fremur en að því fólki er sam-
kvæmin sóttu. En sér til dálit-
illar undrunar komst Nicole að
því að þetta fólk vildi ekki tala
Vélritunarstúlka
óskast nú þegar.
Enskukunnátta æskileg.
S. Arnason & Co.
HAFNARSTRÆTI 5
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
**********
„SCOTCH
segulbandið
tekur öllu öðru fram
RADIO &
RAFTÆKJA-
STOFAN
Óðinsgötu 2, Rvík
Frá íþróttaveUinum
Síðustu leikir haustsmótsins í knattspyrnu
fara fram í dag.
S Kl. 2 e. h. keppa Þróttur
— Fram og kl. 3:
Valur — K. R.
Dómari:
Haukur Óskarsson.
Sjáið síðustu leiki hautsins.
Mótancfndin.
- AUGLÝSING ER GULLS ÍGILDl -
býður yður fjölbreyttasta
úrval SENDIFERÐA- og
STATION bíla, en nokkur
önnur bílasmiðja veraldar.
Y F I R 6 0 gerðir slíkra bíla falla undir
ákvæði Innflutningsskrifstofunnar um inn-
flutning sendiferðabíla.
FORD er fallegur — FORD er þœgilegur
FORD er öruggur — FORD er ódýr
KR: KRISTJANSSON h.f.
UNDRAÞVOTTAEFNIÐ
TIDE
Eftir því sem fleiri og fleiri reyna TIDE, þeim mun
meiri vinsældum á það að fagna. — Athugið að þér
þurfið að nota minna af TIDE en venjulegu þvottaefni,
það er því drýgra og þar af leiðandi ódýrara.
Reynið TIDE og sannfærist
Samkór Reykjavíkur
óskar eftir söngfólki:
sóprönum, tenórum og bössum. — Upplýsingar í
síma 7348 og 81459 eða hjá söngstjóranum Robert
A. Ottssyni, síma 7473.
Kvenfélagið Heimaey
Vinsamlegast skilið munum á bazarinn fyrir 10. nóv.
til undirritaðra:
Margrét Gunnarsdóttir, Reykjahlíð 12. Jónína Jóns-
dóttir, Seljaveg 25. Magnea Kristmann, Hringbraut 113,
Ragnhildur Eyjólfsdóttir, Miðtún 48, Gréta Guðjohnsen,
Grenimel 31.