Morgunblaðið - 24.10.1954, Page 16
Veðurúllit í dag:
SV-kaldi. Siðan skýjað. Gola.
úfgttttÞIii&tfi
244. tbl. — Sunnudagur 24. október 1954
Reykjavílurliré!
er á bU. 9.
Ægir finrtur síld
út af Reykjanesi
Dýptarmælir sýndi óhemju fiskmagn
1’ TNDANFARNA viku hefur Ægir verið hér í Faxaflóa og nágrenni
og svipazt um eftir, hvort þar væri nokkra síld að finna, sem
bátarnir hefðu ekki orðið varir við. Fyrir illviðrakastið í vikunni
varð vart við síld norður af Géirfugladrang á Reykjanesi. Var þá
ekki mögulegt að rannsaka það betur vegna óveðurs, en í fyrrinótt
fór skipið aftur á sömu slóðir og varð þá enn vart við miklar
lóðningar á töluvert stóru svæði.
Árni Friðriksson
• kjörinn dr. phil. h.c,
Blaðamönnum var skýrt frá
þessu um borð í Ægi í gær, en
þar voru auk skipherrans, Þórar-
ins Björnssonar og Kristjáns
Júlíussonar loftskeytamanns, Pét
ur Sigurðsson, forstjóri land-
helgisgæzlunnar, Davíð Ólafsson,
fiskimálastjóri og Sigurður Egils
son, framkvæmdastjóri Lands
sambands ísl. útvegsmanna.
STÓR OG FALLEG SÍLD
Lagði Ægir net og lét reka
í tvo tíma 7 mílur misvísandi
norður af Geirfugladrang
Fékkst þá staðfesting á því að
þarna var síld, en einnig
renndu Ægis-menn færi og
fengu upsa og þorsk. Síldin
var stór og falleg, yfir 30 cm.
að lengd.
Aftur var látið reka 10 sjó-
mílum vestar, og fékkst þar
enn síld, hún var blandaðri
en magnið virtist mikið, óð
hún allt í kringum skipið.
Benda likur til þess að þarna
sé síld á stóru svæði, en auk
þess annar fiskur, að minnsta
kosti upsi og þorskur. Lóðning
in var á 20—45 metra dýpi og
í neðri kantinum fékkst færa-
fiskurinn.
Við viljum ekki fullyrða
neitt um að hér sé óhemju
síldarganga á ferðinni, segja
Ægismenn, en það er mikið
magn þarna af einhverju. Ég
hefi aldrei séð svona miklar
lóðningar fyrr, sagði Þórarinn
Björnsson skipherra.
ENGIN SÍL*D í HVALFIRDI
Ægir leitaði víðar en á þessu
svæði, en var ekki síldar var.
T. d. var lóðað í Hvalfirði. Feng-
ust þar góðar ióðningar, en ekk-
ert fékkst í net. Aftur á móti
náðu þeir nokkrum sandsílum
í háf.
VANTAR UM 15 ÞÚS.
TUNNUR BF.ITUSÍLDAR
Alls hafa 70 þús. tunnur síld-
ar farið til frystingar á þessu
ári á öllu landinu, en af því
magni hafði beitunefndin gefið
heimild til útfiutnings á 15 þús.
tunnum til Póllands, en aftur-
kallaði leyfið, er helmingur síld-
arinnar hafði verið fluttur út.
Reiknað er með að beitu-
þörfin verði 70—80 þús. tunn-
ur á vetrarvertíðinni. Er því
fyrirsjáanlegt að til vandræða
horfir, ef ekki aflast meiri
síld og loðnan bregzt í vetur.
Mun vanta um 15 þús. tunnur
beitusíldar en auk þess vant-
ar mikið upp í samninga af
saltsíld. í fyrra var frysta síld-
in 112 þús. tunnur.
NÍU BÁTAR Á REKNETJA-
VEIÐUM
Allir aðkomubátar, sem stund-
uðu reknetjaveiðar við Faxaflóa
eru farnir heim og nú stunda að-
eins níu bátar þá veiði, sjö Akra-
nesbátar og tveir frá Sandgerði.
Þeir fóru þegar í gær á þær slóð-
ir, sem Ægir var síldarinnar var,
og hafa látið reka þar í nótt. —
Fæst þá væntanlega einhver
vitneskja um, hversu mikil síld
er þarna.
Séra Krisl jáai
Róbcrtsson hlaut
flest atkvæði
UM hádegi í gær voru kunn úr-
slitin í prestkosningunum á Ak-
ureyri á sunnudaginn var. —
Enginn hinna fimm umsækjenda
náði lögmætri kosningu. — Flest
atkvæði hlaut séra Kristján Ró-
bertsson 1063, en með 1043 atkv.
var séra Birgir Snæbjörnsson. —
Hinir prestarnir hlutu atkv. sem
hér segir: Jóhann Hlíðar 823 at-
kvæði, Þórarinn Þór 264 og Stef-
án Eggertsson 150 atkv.
Auðir seðlar og ógildir voru 18.
— Á kjörskrá voru 4916, en 3361
greiddu atkvæði.
ÍVIÆÐIVEIKI í SKAGAFIRfll?
Gnuisamlegri kind slátrað
Sauðárkróki, 23. október.
ÞAU illu tíðindi gerðust hér í gær, að full ástæða er til þess að
álíta að mæðiveiki sé komin upp í Staðarhreppi í Skagafirði,
og hefur slegið miklum óhug í bændur út af atburði þessum.
VEITTI ATHYGLI
VEIKRI KIND
í gær, þegar bóndinn að Vík
í Staðarhreppi, Haukur Hafstað,
var að smala fé sínu, veitti hann
athygli einni fullorðinni kind,
sem ekki virtist heil heilsu. Hefur
hún ásamt öðru fé gengið á Stað-
arafrétt í sumar.
SLÁTRAÐ ÞEGAR í STAÐ
Hringdi Haukur strax til Sauð-
árkróks út af kindinni og fór
Pétur Jónasson, sem er trúnaðar-
maður Sauðfjárveikivarna þar,
tafarlaust að Vík og var ánnj
slátrað. — Lungu hennar voru
þannig, að full ástæða er að ótt-
ast að hér sé um mæðiveiki að
ræða. Voru þau send í dag með
flugvél til Reykjavíkur til frek-
ari rannsóknar.
ÆTTUÐ FRÁ
HAFSTEINSSTÖÐUM
Kind þessi var ársgömul, og
keypti Haukur hana í fyrra sem
lamb af Jóni Bjarnasyni bónda
að Hafsteinsstöðum, sem er næsti
bær við Vík. En þar sem bóndinn
þar keypti allmargt fé í fyrra
víða að, kveðst hann ekki þora
að fullyrðá af hvaða stofni hún
sé. — Guðjón.
Á HÁSKÓLAHÁTÍÐINNI í gær
lýsti forseti Norrænudeildar,
prófessor Einar Ólafur Sveins-
son, doktorskjöri mag. scient
Árna Friðrikssonar framkvæmda
stjóra alþjóða hafrannsóknarráðs
ins. Norrænudeild Háskóla ís-
lands ákvað á fundi sínum 15.
okt. s. 1. að kjósa Árna Friðriks-
son dr. phil. h.c.
Las próf. Einar Ól. Sveinsson
síðan álitsgerð deildarinnar um
doktorskjörið. — Árni Friðriks-
son er fæddur að Króki í Ketil-
dalshreppi í Barðastrandasýslu
22. des. 1898. Hann varð stúdent
1923 og lauk magistersprófi í
dýrafræði frá Hafnarháskóla
1929. Tók hann síðan að starfa
að fiskirannsóknum, fyrst í Dan-
mörku og síðar hér. Varð hann
stjórnandi fiskideildar Atvinnu-
deildar Háskólans 1937 og gengdi
fjölmörgum trúnaðarstörfum í
íSl. vísindafélögum. 1938 varð
hann fulltrúi í alþjóðahafrarín-
sóknarráðinu og varð fram-
kvæmdastjóri þess fyrir tveim-
ur árum síðan. Hann hefur samið
fjölda ritgerða vísindalegs efnis
bæði á ísl. og á erl. tungu. Kvænt
ur er hann danskri konu Ebbu
Chr. Bagge.
fslenzku skákmenn-
irnir segja frá
í DAG segja íslenzku skákmenn-
irnir, sem fóru á Amsterdam-
mótið, nokkuð frá keppni sinni
þar og mótinu í heild. Verður það
í Sjálfstæðishúsinu kl. 3 e. h.
Guðmundur Arnlaugsson segir
frá mótinu, en skákmennirnir
munu sýna eitt og annað úr skák-
um sínum.
Þá mun Gunnar Thoroddsen,
borgarstjóri, ávarpa skákmenn-
ina.
Það skal tekið fram að síðdegis
kaffi verður engu að síður í Sjálf
stæðishúsinu í dag, og þeir, sem
þangað koma, geta hlýtt á frá-
sögnina.
AKUREYRI
ABCD EFGH
m mmm
ABCD EFGH
REYKJAVÍK
9. leikur Akureyringa:
e6xd5
Laugardagsleikurinn stendur tíl
þriðjudags.
Tveir menn týnast með
trillubáti frá Reykjavík
Fór í róður á fimmtudaginn
t HINU INDÆLA veðri, sem
var hér í Reykjavík í gær-
dag, sendi Slysavarnafélag Is-
lands út leitarflugvél til að
skyggnast um eftir trillubát,
sem ekkert hefur spurzt til,
frá því á fimmtudaginn. Leit
flugvélarinnar ,bar ekki ár-
angur. — I gærkvöldi var bát-
urinn talinn af, en á honum
voru tveir menn.
Síðdegis í gær fannst á þeim
slóðum, er báturinn lagði lín-
una, belgur merktur honum.
Þetta bendir ótvírætt til að
þeir féiagar hafi lagt línuna,
en slysið orðið áður en þeir
drógu hana.
Bátur þessi hét Áfram RE 265.
Á honum voru tveir menn, eig-
andi hans, Jón Pétursson, sem á
heima á Kleppsvegi 106. Lætur
hann eftir sig konu og 4 börn
uppkomin, 25—28 ára. Hinn mað-
urinn er Gestur Sölvason, Suður-
pól 4, sem fór með honum í þenn-
an róður. Hann lætur eftir sig
uppkominn son.
Þeir félagar lögðu af stað í
róðurinn milli kl. tvö og þrjú á
fimmtudaginn. Ætluðu þeir út að
„bauju 4“ hér í Faxaflóanum. —
Á þeim slóðum sáu aðrir bátar
þá félaga á fjórða tímanum.
ÆTLUÐU AÐ KOMA
UM NÓTTINA
Síðan hefur ekkert til þeirra
spurzt. — Þeir ætluðu sér að
koma að landi aðfaranótt föstu-
dagsins. — Á fimmtudagskvöldið
var nokkur strekkingur af norð-
austri hér í Faxaflóanum. Telur
Slysavarnafélagið sennilegt að
þetta kvöld hafi slysið viljað til,
en með hvaða hætti verða aðeins
getgátur einar.
ÁRANGURSLAUS LEIT
Á föstudagskvöldið var lýst
eftir bátnum í útvarp, en þann
daginn allan var bezta veður. —
í gær var enn haldið áfram að
lýsa eftir bátnum. — Um allan
Faxaflóa og allt suður að Reykja-
nesi, í Miðnessjó og Eldeyjar-
banka var fjöldi skipa, en ekk-
ert þeirra hafði orðið vart við
ferðir þeirra Jóns og Gests á
trillunni Áfram.
LEITIN ÚR LOFTI
í gærdag tók Slysavarnafélagið
flugvél á leigu hjá félaginu Þyt
til leitar úr lofti og fór skrif-
stofustjóri Slysavarnafélagsing
Henrý Hálfdánarson með flug-
vélinni. Bjart var yfir og af-
bragðs skyggni. Þræddi flugvél-
in strandlengjuna frá Reykjavík
og allt suður fyrir Reykjanes. —i
Flogið var yfir Miðnessjó djúpt
og grunnt, sömuleiðis Eldeyjar-
banka og um Faxaflóa allan, en
án nokkurs árangurs.
Ókeypis krana» I
bílar fyrir
FIB-bíla 1
STJÓRN Félags ísl. bifreiðaeig-
enda hefur ákveðið að greiða
dráttarbíls-kostnað fyrir félags-
menn, ef bílar þeirra bila og
verða óökuhæfir úti á þjóðveg-
um, og draga þarf þá til næsta
bílaverkstæðis.
í fyrrasumar hafði F.l.B. við-
gerðarmenn á Þingvallavegi og á
leiðinni austur yfir Fjall um
Sogsfossa til Þingvalla. — Alls
var um 200 bílum veitt aðstoð.
— Mun félagið einnig næsta sum-
ar hafa vegaþjónustu fyrir fé-
lagsmenn sína.
Góður afli hjá 1
Akranesbátunum
AKRANESI, 23. okt. — Undan-
farið hafa trillubátar héðan aflað
mest ýsu. Upp á síðkastið hefur
aflinn verið blandaðri og vænn
þorskur slæðzt með. í dag reru 11
trillubátar og öfluðu þeir frá 400
—900 kg hver bátur. Baldur, 18
tonna fékk 1600 kg á 12 bjóð.
Hingað kemur Tröllafoss I
kvöld og mun byrja þegar í kvöld
og halda áfram í nótt að lesta
fiskimjöli og skreið. — Oddur.
Kommúnisli kjðiinn
FÉLAG íslenzkra hljóðfæraleik-
ara kaus fulltrúa á Alþýðusam-
bandsþing að viðhafðri allsherj-
aratkvæðagreiðslu á fimmtudag
og föstudag.
Kjörinn var kommúnistinn
Bjarni Böðvarsson með 32 atkv.,
en listi lýðræðissinna hlaut 29
atkvæði.
Pétur Sigurðsson húskólurit-
uri sæmdur próíessorsnulnbót
FORSETI ÍSLANDS hefur
skv. tillögu menntamálaráð-
herra sæmt Pétur Sigurðsson,
háskólaritara, sem um þessar
mundir hefur gegnt starfi sínu
í 25 ár, prófessorsnafnbót.
Pétur Sigurðsson var skip-
aður háskólaritari 1. október!
1929. Hann er fæddur 17. febr. ’
1896 á Ánabrekku í Mýra-j
sýslu. Foreldrar hans eru Sig-1
urður Pétursson fangavörður,'
©g kona hans Guðríður Gils- i
dóttir. Pétur varð stúdent 1914 j
og mag. art. 1923. Hann var
aðstoðarbókavörður við Lands j
bókasafnið 1925 og þar til hann ]
tók við stöðu háskólaritara
1929. Pétur hefur einnig ver-
ið framkvæmdastjóri Háskóla-
happdrættisins og Tjarnarbíós
og í stjórn íþróttasambands
íslands var hann 1922—31. —
Hann er kunnur fyrir ritstörf
og frábæra útgáfu á ýmsum
bókmenntum. — Kvæntur er
hann Þóru Sigurðardóttur frál
Búðum í Fáskrúðsfirði.
Próf. Pétur Sigurðsson. j