Morgunblaðið - 16.11.1954, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.11.1954, Blaðsíða 1
41. árgangur. 262. tbl. —- Þriðjudagur 16. nóvember 1954. PrentsmiSja Morgunblaðsinft. Frábær ræða Gunnars Gunnarss. á fjölmennum fundi Heimdallar sem áttur sip er fils að ldta Fjallræðuna í skiptum fyrir feigðurgafidru gerræðis og grimmdur" „K’onnmúnisminn er ægilefft NorSnr-heim- skiEiita!diln opmið ( flnpél SAS Kaupmannahöfn, 15. nóv. Einkakeyti frá Páli Jónssyni. MIKIL hátíðahöld voru á Kastrup-flughöfninni hér í bæ, er flugvél SAS-flugfélagsins lagði af stað í för sína til Amer- íku yfir N.-heimskautssvæðin. En hér er stigið merkilegt spor í sögu flugsins. Með þessu verður Norður-íshafið einskonar Mið- jarðarhaf fluglistarinnar, þar sem samgöngur iiggja milli tveggja heimsálfa. MIKIL HÁTÍÐAHÖLÐ Kastrup-flughöfnin var fagur- lega skreytt í þessu tilefni. Um 600 heiðursgestir voru viðstadd- ir, þeirra á meðal fjöldi þlaða- manna frá öllum löndum Evrópu. Utanríkisráðherra Dana, H. C. Hansen, Petersen samgöngu- málaráðherra Norðmanna og Lindell samgöngumálaráðherra Framh. á bls. 12 fall af æðra stigi á Iægra4í AFJÖLMENNUM umræðufundi sem haldinn var á sunnudaginn í Heimdalli, félagi ungra Sjálfstæðismanna, flutti Gunnar Gunn- arsson skáld langa og ýtarlega framsöguræðu um „Vestræna menn- ingu og kommúnisma“. Fundurinn hófst með því að formaður fé- lagsins, Þorvaldur Garðar Kristjánsson lögfræðingur, setti fundinn og kynnti frummælanda. Ræða Gunnars Gunnarssonar vakti óskipta athygli fundarmanna. Hóf hann mál sitt með dæmisögu um Rauð- hettu og híðbjörn einn, sem bauð henni fylgd um skógarþykkni, en með sama hætti býður ofbeldisstefna kommúnismans vestrænum menningarþjóðum vafasama fylgd um skógarþykknin. Ræða Gunn- ars fer hér á eftir í heild. Gunnar Gunnarsson flytur ræðu sína í Sjálfstæðishúsinu. Ráðstefnu tillaga Rússa ekkert nýmæli en augljóslega beint gegn stabfestingu Parisarsamningannc LONDON, 15. nóv. SIR ANTHONY EDEN, utanríkisráðherra Breta, lét svo ummælt' í neðri deild brezka þingsins í dag, að tillaga Ráðstjórnar- j ríkjanna um alþjóðaráðstefnu um öryggismál Evrópu væri aug- ljóslega beint gegn staðfestingu Paríar-samninganna um Þýzka-1 landsmálin og várnir Vestur-Evrópu, eftir því sem brezka útvarpið skýrði frá í kvöld. Eden kvað tillögu þessa hafa ekkert nýtt að geyma nema dagsetningu þá, er Rússar óskuðu eftir, að ráðstefnan hæfist á. Eden gaf þessa yfirlýsingu sem svar við fyrirspurnum Clement Attlee, leiðtoga stjórnarandstöðunnar. i New York. — Miðstöð innflytj- endaeftiriitsins, Ellis, hinni þekktu eyju í höfn New York borgar, er 20 milliónir innflytj- enda eða þeirra, sem vonuðust til að verða það, hafa farið um á s.l. 62 árum, var iokað í gær. Hefur innfyltjendaeftirlitið nú verið falið yfirvöldum í New York. ★ STAÐFESTING SAMNING- & ANNA FYRSTA SPORIÐ | Eden kvað brezku stjórnina líta svo á, að aðeins með sam-; þykkt og framkvæmd Parísar- j samninganna, er leggja myndi, hornsteininn, að öryggi og sam- j eiginlegu markmiði vestrænna þjóða, yrði lagður réttur grund-I völlur að viðleitni þeirra, er beindist að frekari samvinnu og' skiiningi við Ráðstjórnarríkin. Staðfesting Parísarsamnings- Ins af öllum aðiljum, er að þeim Stóðu, mun á engan hátt hindra viðræður á víðum grundvelli um mál þau, er tillaga Ráðktjórnar- ríkjanna fjallar um. En staðfest- ing Parísar-samninganna er fyrsta sporið, sagði Eden. Við uppástungu þess efnis, að Ráðstjórnarríkin yrðu hvött til betra samstarfs um afvopnunar- málin, er leiddi til þess að vest- rænar þjóðir sýndu meiri tilhliðr unarsemi um önnur alheims- vandamál, svaraði Eden því til, að hann væri slíku samþykkur, en þörf væri fyrir betri samvinnu! Framh. á bls. 12 ftayuib oy Bræðralagið ætluðu ú steypa stjórn Egyptalands KAIRÓ, 15. nóv. — Reuter-NTB. EINN af leiðtogum Bræðralags Múhameðstrúarmanna, Ibrahim el Tahib, skýrði í dag fyrir rétti frá þeim þætti, er Naguib, for- seti Egyptalands, hefði átt í tilræði því, er Nasser forsætisráðherra var sýnt á dögunum. En Naguib var eins og kunnugt er, hand- tekinn s. 1. sunnudag og er nú haldið í gæzluvarðhaldi á óþekkt- um stað í Kairó. SAMSÆRI NAGUIBS OG HODEIBYS E1 Tahib kvað þá Naguib og æðsta leiðtoga Bræðralagsins, Hassan el Hodeiby, hafa gert með sér sáttmála þess efnis, að Bræðra lagið efndi til uppreisnar gegn núverandi stjórn Egyptalands og Naguib kæmi til liðs við þá ásamt hernum, er hann taldi víst, að myndi fylgja sér. Ringulreið sú, er leiða myndi af uppreisninni, myndi gera þeim kleift að koma forráðamönnum ríkisins fyrir kattarnef. E1 Tahib sagðist sjálf- ur hafa fengið einum Bræðra- lagsfélaganna í hendur sprengi- efni til að myrða Nasser og inn- anríkisráðherrann. Síðan yrði ný stjórn sett á stofn undir forustu Naguib, er myndi beita áhrifum sínum til að róa landsþúa. Framh. á bls. 12 RAUÐHETTA I SAMFYLGD UM SKÓGINN F'INU SINNI var lítil stúlka, er i átti sér rauða hettu. Hún hét María Anna og langaði ó- sköpin öll til að skreppa út í nálægan skóg og heilsa upp á hana ömmu sína. Frændur hennar Sámur og Mikkjáll' höfðu að vísu varað hana við því: í skóginum væri á vakki híðbjörn einn mikill og grimmur, hefði sá þegar gleypt gömlu konuna, síðan íklæðst föt- um hennar og rauðu húfunni. Rauðhetta litla trúði þeim ekki meira en svo og fór ferða sinná eigi og síður, enda mætti hún von bráðar ömmu sinni. Gamla konan vék sér að henni ofur blíðlega og bauð henni frið- samlega sambúð á leið þeirra um myrkviðinn. — Hvers vegna hefur þú svona beittar klær, amma mín? spurði Rauðhetta litla. — Og það er nú til þess að geta varizt honum Sámi, sem vill mig feiga, og honum Mikkjáli, sem er svo hefnigjarn, frændum þínum, og eins til þess að geta séð um að þú fáir að lifa í friði og við, alls- nægtir, táta mín, anzaði gervi- amman ungu stúlkunni. Sjáum til! hugsaði Rauðhetta litla með sjálfri sér: Nú skil ég betur hvers vegna frændur mínir skrökvuðu að mér! — En hvers vegna ertu með þenna óskapa ístruhúk, amma mín? bætti hún við upphátt þessu næst. Við þá spurningu varð gamla konan heldur en ekki hnuggin: Skelfing þykir mér fyrir því, Rauðhetta mín, að þú skulir vilja fylla flokk þeirra manna, sem gera mér get- sakir og reka áróður gegn mér alsaklausri, stundi hún fram og fékk varla tára bundizt. Þá varð Rauðhetta litla heldur en ekki niðurlút. Síðan gengu þær götuna fram. En er Rauð- hetta litla hafði ekki skilað sér heim aftur um háttamál fór þeim ekki að lítast á blikuna, Sámi og Mikkjáli en vinir ungu stúlkunnar og frændlið gervallt fylltist sárum ugg um afdrif hennar. v Lengri er sagan ekki í sviss- neska blaðinu, er eigi alls fyrif löngu rifjaði upp gamalt ævin- týr þeirra Grimmsbræðra eitt- hvað á þessa leið. Nánari fregn- ir af flakki Maríu Önnu um myrkviðinn lágu ekki fyrir og raunar vandséð enn um sögulok og feigðarflan fleiri óráðinna ungmenna en þessarar frænku vorrar á Signubökkum. ÓJAFNT ER LAUNAÐ Til eru þeir á meðal vor og málfærir vel og pennaliprir, er sýnist öruggt að treysta ömm- unni þrýstnu með beittu klærn- ar og meira að segja henni einni. Þó munu hinir fleiri, enn sem komið er, en ekki að sama skapi skipulagðir og því naumast jafn- sigurstranglegir í viðureign, þar sem annar aðilinn heimtar sér til handa grið og frelsi og þiggur fúslega, án þess að honum hvarfli að gjalda líku líkt. Hér vestan tjalds á áróðursmönnunum að vera heimilt það, sem austan tjalds er dauðasök eða þrælkun- ar. Slíkt Væri því aðeins rétt- lætanlegt, að þar byggju alfull- komnir menn, að Ráðstjórnarrík- in væri í raun og sannleika land- ið fyrirheitna. Má vera, að svo sé. Til þess benda meðal annars hugarfarsbreytingar þær, er eiga sér stað um leið og sólin rauða rís á himin og gera vart við sig einkum þegar kosin er land- stjórn. Hér vestra æílar allt af göfl- um að ganga þá er svo ber und- ir, ólíkustu og ólíklegustu flokk- ar ota hver sínum tota og hljóta fylgi eftir efnum, vér skulum vona málefnum og ástæðum. Austan tjalds er friðurinn fullkomnari. Þar er aðeins einn flokkur í framboði, og ekki svo vel að gengið sé á röðina, sú aðferð hefði þó nokkuð til síns máls. En ónei. Þar er skilningur almennings svo þroskaður, að allir menn vita hvað þeir vilja og vilja aðeins eitt: styrkja höfuðengla almáttugrar stjórnarforustu, seih þó neytt hefur verið upp á þá. Vér sáum það átakanlega í Austur-Þýzkalandi eigi alls fyrir löngu, þar sem 99,3% af þeim, er mættu á kiörstað, óskuðu ein- um rómi að fá að halda forystu sinni óbrenglaðri. í Austurríki aftur á móti brá öðru vísi við. Þar voru enn margir kallaðir, en fáir útvaldir. Þeir létu sig hafa það, Austurríkismenn, að skila kommúnistum ekki nema 8,6% greiddra atkvæða á sjálfu hernámssvæði Rússa. Annars staðar í fandinu kusu aðeins 5% með kommúnistum. Má af slíku bezt sjá og skynja, hver nauðsyn til ber að svo aum- lega afvegaleidd þjóð og kúguð Framh. á bls. 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.