Morgunblaðið - 09.01.1955, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 09.01.1955, Blaðsíða 16
VeðurúiKf í dag: NA kaldi eða stinningskaldi. — Víðast Iéttskýjað. Frost 3—7 sti". ftevlnavíirsrisrái Sjá grein á bls. 9. jóíc uóueinn Á Forláksmessu var jólasveinn- inn Kertasníkir, sem Flugfélag íslands flutti hingað, önnum kaf- inn við að koma öllum hinum mörgu jólagjöfum til barna í Reykjavík. Eru mörg vitni að því að hann var á ferli þennan dag. Ljósmyndarinn Pétur Thomsen fylgdi honum eftir inn á harna- heimili og sjúkrahús víðsvegar um bæinn. Sýna myndirnar hann nr. 1 heilsa upp á ungan sjúkling á Landspítalanum. Nr. 3 í barna- heimilinu Drafnarborg í gamla Vesturbænum. Nr. 3 í Tjarnar- borg. Á myndinni nr. 4 sést, að þegar börn urðu á leið jólasveins- ins dokaði hann við til að gefa þeim eitthvað gott úr poka sín- um. Strákarnir með skíðasleðann höfðu ekki trúað því, að jóla- sveinar væru til, en hlupu nú heim til að segja mömmu, hver hefði orðið á vegi þeirra. Jóla- sveininum þótti gaman að gefa börnunum jólagjafir, en honum þótti líka gaman að njóta gest- risni og hugulsemi litlu barn- anna, þegar þau gáfu honum fallegt jólakort á mynd nr. 5. SKBK&& ' iflD 1 B 1 i'H i • . -r Hf Enskur togori stór- skemmir feát vii 'Þingeyrurbryggju Sigldi á hann á mikilli ferð. ÞINGEYRI, 8. janúar. IMORGUN vildi til sá ótrúlegi atburður, að brezkur togari frá Grimsby sigldi á vélbátinn „Gullfaxa", þar sem hann lá við bryggju hér á Þingeyri. Miklar skemmdir urðu á bátnum, en engin slys á mönnum. SAU HÆTTUNA Vélbáturinn Gullfaxi, sem er tuttugu smálestir, lá upp með bryggjunni að utanverðu, þegar togarinn Viviana frá Grims- by renndi inn fyrir Þingeyrar- oddann. Landmenn bátsins, sem voru á bryggjunni og ætluðu að taka lóðirnar í land, sáu að togarinn hélt sig óeðlilega nálægt 3andi og stefndi beint á bátinn á mikilli ferð. SKIPVERJAR SVAFU í BÁTNUM Skipverjar voru um borð í bátnum og sváfu þar í kojum sínum. Höfðu þeir ætlað í róð- ur þá um nóttina, en orjið að snúa við vegna veðurs. Þegar þeir, sem á bryggjunni voru, sáu hvað verða vildi, hlupu þeir til og vöktu bátverja, sem vöknuðu allir nema einn. Fóru þeir, sem vöknuðu allir í land á sokkaleistunum. — Færðu þeir sfðan bátinn nokk- uð upp með bryggjunni, en svo virtist, sem togarinn sveigði enn nær landi, og skipti eng- um togum að hann lenti með mikilli ferð á kinnung bátsins. Gekk stefni togarans inn í lúkarinn og vaknaði þá sá, sem sofið hafði við það að sjór fossaði inn í lúkarinn. Vildi það honum til happs, að hann svaf stjórnborðsmegin, en áreksturinn varð bakborðs- megin. Manni þeim var síð- an bjargað í land. Báturinn skemmdist mjög mikið og sökk þarna á þess- ari stuttu leið til lands. Þykir mikilli furðu gegna, að svo óhönduglega skyldi til takast hjá hinum enska tog- ar, en mikið lán að engin slys urðu á mönnum. Veður var bjart er þetta vildi til. Gullfaxi er annar af tveim vél- bátum, er stunduðu róðra frá Þingeyri, en þriðji báturinn, sem Þingeyingar eiga, Fjölnir, er gerður út frá Hafnarfirði á þess- ari vertíð. — M. A. , lil Vcsimaanaeyja í GÆRDAG var dregið í Happ- drætti dvalarheimilis aldraðra sjómanna um tvo vinninga sem voru eins og kunnugt er vélbátur og Chavroletbifreið. Upp komu þessi númer, 14689 sem var vél- báturinn. Var sá miði seldur í umboðinu Austurstr. 1 og hreppti hann Árni Eiríksson Smyrilsvegi 24, Reykjavík. Hinn vinningur- inn sem var bifrciðin kom á 21072 Og hlaut hana Georg Sig- urðsson verkamaður, Drekastíg 16, Vestmannaeyjum. Sá miði var seldur í Vestmannaeyju.n. Sefiu 330 ha vé! í bál á 9 dögum AKRANESI, 8. jan.r — Vélbátur- inn Böðvar eign Haraldar Böðv- arssonar & Co. fer í dag niður úr Dráttarbraut Akraness. Böðvar er 85 brúttó lestir að stærð. Búið er að setja í hann nýja vél, sem kom til Akraness á annan jóla- dag. Vélin er dönsk og heitir Grenoaa, 330 ha. og vegur 16 lestir. Vélsmiðja Þorgeirs og Ell- erts settu vélina í Böðvar á 9 dögum og mun það vera hraða- met hérlendis. Hefur oft tekið 1—1 Vz mán. að setja vél í bát. Verkstjóri í vélsmiðjunni er Vig- fús Runólfsson, en Hendrik Steins son vélvirki framkvæmdi niður- setningu vélarinnar. — Oddur. 80—90 bátar í Vest- masmaeyjum í höfn vegna verkfalls Sfsmig! unnið að samkomulagi VESTMANNAEYJUM, 8. jan. VERTÍÐ er ekki hafin hér enn og stafar það af því að samningar hafa ekki tekizt á milli útgerðarmanna og sjómanna um kaup og kjör. Er allt reynt til þess að flýta fyrir samkomulagi í þeim efnum, svo bátafjöldinn tefjist sem minnst. En héðan munu á vertíðinni verða gerðir út 80—90 bátar. KROFUR SJOMANNA OG TILBOÐIÐ Kaup- og kjarasamningar sjó- manna runnu út um áramótin. — Gerðu þá sjómenn kröfur um ýmsar breytingar. Voru höfuð- kröfur þeirra brjár. Útgerðarmenn tóku þessar kröfur sjórnannanna þegar til athugunar og lögðu fram ákveðið tilboð til sjómanna. — Hafði í tilboðinu verið gengið að einni kröfu sjomannanna algerlega, en að hinum tveim að meira eða minna leyti. Fundi var þá skotið á í sjó- mannafélaginu Jötni og var tilboð útgerðarmanna þar fellt með 18 atkvæðum gegn 14. — Fleiri mættu ekki, en um 200 manns munu vera í félaginu. LEITAS TIL SÁTTASEMJARA RÍKISINS Síðan hefir ekkert gengið f samkomulagsátt utan það, að leit- að hefur verið aðstoðar sátta- semjara ríkisins. Er búizt við, að hann muni skipa einhvern hér á staðum í sinn stað. Þeir, sem tefldu fyrir Reykjavík. — Talið frá vinstri: Eggert Gilfer, Jón Pálsson og Ásmundur Ásgeirsson. SKÁK sú, sem staðið hefir í blað inu að undanförnu varð alls 45 leikir. Reykvíkingar hlutu hvitt og fóru varlega af stað, en Norð- lendingar tefldu hins vegar frek- ar djarft langt fram í tafl, og varð staðan frekar opin hjá þeim þegar fram í sótti. Þegar leið á taflið komust þeir í leikþvingun og gáfust réttiiega upp, því að út- séð var þá um úrslitin.: —c Má segja, að skákin hafi strax í* upp-, hafi verið fjörug, og er því að þakka, hversu Norðlendingar tefldu djarft. Komu þeir oft og tíðum með ýmis skemmtileg af- brigði. Báðir aðilar þakka hvorir öðr- um fyrir skemmtilega og drengi- lega keppni. — Einnig vill Mbl. þakka báðum aðilum fyrir góða frammistöðu í skák þessari, sem allmikill fjöldi híanna ' fýlgdist með af miklum áhuga. Uppsel! á sinféníufón leiksna í dag SINFÓNÍUHLJÓMSVEITIN efn- ir til tónleika í Þjóðleikhúsinu kl. 3,30 í dag. Stjórnandi er Ró- bert A. Ottóson, en einleikari er fiðlusnillingurinn Isaac Stern. Viðfangsefnin eru: Forleikur að söngleiknum „Leikhússtjór- inn“, eftir W. A. Mozart, fiðlu- konsert í e-moll eftir F. Mendels- sohn og sinfónía nr. 4 í d-moll eftir R. Schumann. Mikil aðsókn er að hljómleik- um þessum, og voru allir að- göngúmlðar þegar uppsel'dir ! gfer.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.