Morgunblaðið - 27.01.1955, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 27. jan. 1955
5 utanlandsferða í sumar
Farið verður ti! tsSendingabyggða í Vesfurheimi
ERÐASKRIFSTOFA ríkisins mun á komandi vori og sumri
skipuleggja fimm hópferðir íslendinga til útlanda: tvær ferðir
til Norðurlanda, tvær til meginlands Evrópu og eina til meginlands
N-Ameríku. Munu ferðir þessar taka yfir tímabilið 3. maí til 7. júlí.
F
VINSÆLAR FERÐIR
Eins og kunnugt er hefir Ferða-
skrifstofa ríkisins skipulagt fjöl-
margar skemmtiferðir íslendinga
til útlanda á undanförnum árum,
sem notið hafa mikilla vinsælda.
Fólkið hefir komið ánægt og end-
urnýjað til baka, hrifið af öllu
því nýstárlega og furðulega, sem
það hafði séð og kynnzt á ferð-
um sínum um ókunn lönd meðal
framandi þjóða. Og ferðir þessar
liafa ekki einungis verið skemmti
og kynnisferðir hins íslenzka
ierðafólks, þær hafa um leið ver-
ið íslandskynning. Koma íslend-
inga frá norðurslóðum hefir vak-
ið athygli þar sem leið þeirra
hefir legið og áhuga erlendra
þjóða á að auka á þekkingu sína
á íslandi og íslendingum.
MEÐ SVIPUÐU SNIÐI
Samkvæmt samtali við for-
stjóra Ferðaskrifstofunnar Þor-
leif Þórðarson, í gærdag, verða
Evrópuferðirnar með svipuðu
sniði og undanfarin ár. Þó verða
Meginlandsferðirnar um viku
lengri, þar eð reynslan hefir sýnt
að farið hefír verið helzt til fljótt
yfir til að ferðafólkið fengi notið
ferðarinnar, sem skyldi. Mun
ferðafólkið hafa 24 daga til um-
xáða á Mcginlandinu í staðinn
fyrir 18 daga áður.
Ferðast verður mestmegnis á
íslenzkum farartækjum undir
leiðsögn íslenzkra fararstjóra
sem fyrr.
Fyrri ferðamannaflokkurinn til
meginlandsins mun leggja af
stað héðan 3. maí með Gullfossi
til Kaupmannahafnar. Þaðan
verður ferðast suður eftir Dan-
iríörku, Þýzkalandi, Sviss, Ítalíu
•og aftur norður eftir til Parísar
og flogið þaðan heim til íslands
1. júní.
MÆTAST í PARÍS
Þann sama dag kemur síðari
liópurinn flugleiðis til Parísar og
ferðast síðan suður eftir Frakk-
landi, Ítalíu og heim á leið um
Sviss, Þýzkaland, Danmörku og
jþaðan heim til íslands með Gull-
fossi, sem leggur af stað frá
' Kaupmannahöfn hinn 25. júní •—
eða flugleiðis, ef þess er frekar
óskað. Með því að skipuleggja
fqrðirnar þannig eru farartækin
motuð fram og til baka, svo að
J>au nýtast til hins ýtrasta en
það er mjög mikilsvarðandi
; -atriði til þess að ferðirnar geti
orðið sem ódýrastar og hag-
| kvæmastar.
I '
si-9 DAGA VIÐ ADRIA- EÐA
MIDJARDARHAF
Eins og áður er sagt verður nú
: fqrið hægar yfir á meginlandinu
1 en í ferðum undanfarinna ára,
svo að hægt verður að dveljast
lengur á fögrum og merkum
stöðum. Feneyjar verða teknar
aneð inn í áætlunina og gefinn
kostur á þriggja daga dvöl í
þeirri sérkennilega fögru og
frægu borg. Við Adríahafið og
i Miðjarðarhafið fær ferðafólkið
í ar> synda og sóla sig í 8—9 daga.
i NORÐURLANDAFERÐIRNAR
I . Fyrri ferðamannaflokkurinn til
Norðurlanda fer með flugvél 1.
júní til Kaupmannahafnar. Ferð-
azt verður um Danmörku, Sví-
Jflóð og Noreg og komið og dval-
1 ið á hinum merkustu og fegurstu
stöðum. Siglt verður heimleiðis
frá Kristiansand um Færeyjar og
komið heiro til Reykjavíkur 22.
, júní., Seinnj ( Norðurlapdahópur-
i»n leggur • af stað héðan - með
m.s. Heklu 11. júní til Noregs
(Bergen) og mætir fyrri flokkn-
um í Osló 16. júní. Hann ferðast
fyrst um Noreg og þaðan liggur
leiðin um Svíþjóð til Danmerk-
ur. Frá Kaupmannahöfn verður
farið með rkipi eða flugvél til
íslands. Tekur ferðin 21 eða 26
daga eftir því hvort ferðazt er
heimleiðis með skipi eða flug-
vél.
FERÐ TIL ISLENDINGA-
BYGGÐA VESTAN HAFS
Ferðaskrifstofa ríkisins hefur
lengi haft hug á að efna til skipu-
lagðrar ferðar til íslendinga-
byggða í Ameríku og koma á nán-
ari tengslum við frændur og vini
þar. Nú hefir verið ákveðið að
láta til skarar skríða og efna til
slíkrar ferðar á vori komanda.
í bráðabirgðaáætlun er gert ráð
fyrir, að hér verði um skipti-
ferð að ræða, þ. e. a. s., að 40—50
íslendingar fari héðan, og á móti
komi jafnmargir Vestur-íslend-
ingar eða aðrir, sem kunna að
hafa áhuga fyrir ferðinni. í aðal-
atriðum er ferðaáætlunin þessi:
Flogið frá Reykjavík til New
York, en þar yrðu Vestur-íslend-
ingar fyrir og tækju flugvélina
heim til íslands. Gert er ráð fyrir
að Vestur-lslendingar komi til
New York í sérstökum leigu-
bifreiðum, sem íslendingarnir
fara með til Winnipeg og íslend-
ingabyggðanna. Um ferðaáætlun
þessa er ákveðið að hafa sam-
vinnu við Ferðaskrifstofu Mani-
toba-rikis cg íslenzk-kanadisku
félögin vestan hafs.
Lagt verður af stað héðan 7.
júní til New York og farið þaðan
eftir 3—4 daga dvöl til Washing-
ton og þaðan norður eftir til
Winnipeg. Skipulagðar verða
ferðir um Winnipegvatn og ná-
grenni og 17. júní verið á íslend-
ingahátíðinni að Gimli. Dagarnir
frá 19—28 júní verða ferðafólk-
inu til ráðstöfunar að eigin ósk,
því að margir munu eiga vini og
ættmenni á ýmsum síöðum þar
í íslendingabyggðunum. Komið
verður heim flugleiðis frá New
York 29. júní.
ÞEGAR MIKIL EFTIRSPURN
Fólk er nú þegar farið að hugsa
sér til hreyfings með fyrirspurnir
og pantanir til Ferðaskrifstofunn-
ar og almenningi bennt á, að
nauðsynlegt er að þátttakendur
gefi sig frqm hið fyrsta, sem unnt
er. Áætlað er að kostnaður við
Norðurlandaferðirnar hvora fyrir
sig verði kr. 5000,00 fyrir mann-
inn og í meginlandsferðunum kr.
7,300,00.
- SLYSIN
Framh. af bls. 1
væru komnir að þeim aftur og
talið björgun frá sjó útilokaða.
Björgunarsveitin frá ísa-
firði, sem er með Heiðrúnu, I
mun freista þess að komast á
land innan við Siéttutanga og
ganga síðan út með hlíðinni
að strandstaðnum. — Takist
það ekki er ekki um annað að
gera en fara inn í Hrappsfjörð,
en þaðan er vegalengdin á
landi margfalt Iengri.
FLESTIR TOGARANNA í VAR
Undanfarna daga hefir verið
hið versta veður á djúpmiðum
út af Vestfjörðum, og hafa tog-
ararnir legið í vari, mjög margir
undir Grænhlíð, frá því á laug-
ardaginn.
Kunnugt er þó um, að nokkrir
brezkir togarar héldu sjó, sem'
kallað er, úti á djúpmiðum. Á
miðunum hefir geisað norð-aust-
an fárviðri þessa daga með haf-
róti. En er slík veður gerir úti
fyrir Horni, er ekki annarra kosta
völ en halda sjó, þ. e. að halda
kyrru fyrir og andæfa móti veðri.
jonsson
iiéiassif
Skúli
FYRSTA NEYÐARSKEYTIÐ
Það mun hafa verið um klukk-
an hálf tvö í gærdag, sem fyrsta
neyðarskeytið heyrðist í ísafjarð-
arradíói. Var það frá togaranum
„Lorella“, frá Hull (byggður
1947). Skeytið var mjög stutt-
ort, sem bcndir til þess, að slys-
ið hafi borið að með mjög skjót-
um hætti: Liggjum á hliðinni,
þörfnumst skjótrar hjálpar. —
Síðan rofnaði sambandið, og hef-
ir ekki spurzt frekar til togar-
ans, en á honum munu hafa ver-
ið um 25 menn.
Vitað var, að togarinn var milli
40 og 50 sjómílur norð-austur af
Horni, er þetta gerðist. En á svip-
uðum slóðum voru þrír aðrir
brezkir togarar. Á meðal þeirra
var stór nýlega byggður (1950)
Hull-togari, „Roderigo". Þessi
togari mun þrátt fyrir hið ægi-
lega veður og dimmviðri, hafa
lagt af stað í leit að hinum nauð-
stadda togara.
LEITAÐ ÚU LOFTI
Jafnframt fór af stað frá
Keflavíkurflugvelli björgunar-
flugvél frá bandaríska flughern-
um. Er hún búin ratsjá til leitar
úr lofti. Var hún komin á vett-
vang um það bil klukkustund
áður en dimmdi. Leitaði hún á
eins stóru svæði og hægt var að
koma við, og mun hafa haft sam-
band við aðra brezka togara um
hvar bæri helzt að leita. Flugvél-
in var á flugi fram í myrkur, en
árangurslaust.
ANNAR BREZKUR TOGARI
Um kiukkan hálf sex sendi
svo „Roderigo“, sem hafði ætl-
að hinum til aðstoðar, frá sér
neyðarskeyti og var það jafn
stutt og skeyti „Lorella“ um
hjálparheiðni fjórum klukku-
stundum áður. Neyðarskeytið
hljóðaði svo: Er að hvolfa.!
Síðan var allt hljótt. Óttast er,
að „Roderigo“ hafi einnig
farizt með allri áhöfn, um 25
Takmarkað gildi
nema
Ráðstjórnin fallist á frjálsar
kosningar í V.-Þýzkalandi
Bonn, 26. jan. — Reuter-NTB.
VESTUR-ÞÝZKA stjórnin í Bonn svaraði að afloknum ráðuneytis-
fundi í dag tilkynningu Ráðstjórnarríkjanna frá í gær, að
bundinn væri endi á styrjaldarástand milli landanna tveggja.
★ TAKMARKAÐ GILDI
Segir í svarinu, að þessi til-
kynning Ráðstjórnarríkjanna hafi
takmarkað gildi. Tilkynningin
gætv%rðið til þess, að samband
þess&ra landa færðist í rnun eðli-
légfafe horf, ef Ráðstjórnarríkin
féllust á, að frjálsar kosningar
yrðu -haldnan um *llt-Þýzkaland
og væru fús til að gera friðar-
samning við Þýzkaland samein-
að.
Kveðst stjórnin vona, að ár-
angur þessarar tilkýnningár verði
að Rússar leysi úr haldi. þá þýzka )
stríðsfanga, sem enn ey haldið
fangabúðum í Rússlandi.
1
SKÚLI V. GUÐJÓNSSON pró-S’
fessor við Árósaháskóla varð
bráðkvaddur að heimili sínu i
Árósum, í fyrrakvöld. Hann hafði
eftir því, sem skýrt er frá í skeyti
frá Kaupmannahöfn, kennt van-
heilsu síðastliðið ár. Var talið að
hann hefði veikt hjarta. En nú
var hann á batavegi, farinn að
klæðast, þegar hann hné niður
örendur við kvöldborðið heima
hjá sér.
S k ú 1 i v a r
fæddur 16. nóv.
1895 að Vatns-
koti í Hegra-
nesi. Hann varð
s t ú d e n t frá
Reykjavíkur-
skóla árið 1917
og tók lækna-
próf hér við
Háskólann
1923. En síðan
tók hann próf
í læknisfræði
aftur við Hafnarháskóla 1931, —
hafði þá unnið sem læknakandi-
dat á Blegdamspítala og á Ríkis-
spítalanum í Kaupmannahöfn og
verið aðstoðarlæknir Ríkisspítal-
ans í Söderborg.
Snemma lagði hann stund á
næringarefnafræði og rannsókn-
ir á mataræði, og vann við rann-
sóknir á ýmsum atvinnusjúkdóm-
um. Námsferðir fór hann víða um
lönd, svo sem til Þýzkalands,
Ítalíu, Hollands, Noregs og Ame-
ríku og fleiri landa. En á árinu
1931 gerðist hann umsjónarmað-
ur við fjörefnarannsóknastofu
ríkisins og heilbrigðisrannsókna-
stofu þess í Kaupmannahöfn. Var
hann yfirlæknir við atvinnueft-
irlitið í Danmörku frá árinu 1933
og ráðunautur við stjórn atvinnu
og slysatryggingar í Danmörku
frá sama ári.
Privatdósent var hann í vinnu-
heilsufræði við Kaupmannahafn-
ar háskóla. Prófdómari í heilsu-
fræði við læknaembættispróf við
Háskólann þar. En 1939 gerðist
hann prófessor í heilsufræði og
manneldisvísindum við háskól-
ann í Árósum.
Hann átti sæti í fjöldamörgum
nefndum vísindamanna og mann-
eldisráði ríkisins í Kaupmanna-
höfn. Auk þess hefur hann verið
í ýmsum nefndum um heilbrigð-
ismál í Danmörku. — Fulltrúi
dönsku stjórnarinnar var hann
við alþjóðamál og ráðstefnur í
Genf og víðar.
Árið 1936—37 var hann for-
stjóri vísindaleiðangurs til Fær-
eyja til að rannsaka mataræði
Færeyinga. Árið 1939 hafði hann
birt 44 vísindagreinar í ýmsum
erlendum tímaritum og skrifað
kafla um heilsufræðileg efni í
alfræðiorðabækur, landafræði-
bækur og kennslubækur. Flutti
hann fjölmarga fyrirlestra fyrir
lækna og stúdenta og alþýðu
manna um heilsufræðileg efni.
Skúli heitinn var óvenjulega
áhugasamur og hugkvæmur mað-
ur er jafnan gerði sér far um
að brjóta nýjar brautir í rann-
sóknum sínum og fræðimennsku.
En eftir að hann hafði lokið
læknisprófi hér, gerðist hann svo
heillaður af þeim viðfangsefnum
í vísindagrein sinni er við hon-
um blöstu erlendis, að hann gaf
sér ekki tíma til að dvelja lang-
dvölum hér á landi. Oft dvaldi
hann hér á sumrin einkum við
laxveiðar og undi sér þar vel,
einkum er hann á síðari árum
hneigðist til Ijóðagerðar. Eru
margar hnyttnar vísur hans, er
hann orti við ýmis tækifæri dag-
lega lífsins, löngu orðnar land-
fleygar. Sitthvað af ljóðum hans
hefur verið prentað.
Þó Skúli hafi ekki fengizt við
störf hérlendis eftir að hann lauk
læknaprófi, er mikil eftirsjá að
honum í hópi íslendinga, vegna
þess hve mikils hann var virtur
meðal vísindamanna annarra
þjóða. Slíkir fulltrúar íslendinga
verða þjójSinni ávallt til sóma,
Jh.varisem Jæir. fara.. I...... !
Svar vi5 orðsendinou
Riíssa um slit
vináttusamuinga
• LONDON, 26. jan. — Bretait
og Frakkar hafa nú svarað orð-
sendingu þeirri frá Ráðstjórnar-
ríjtjunum í s. 1. mánuði þar sem
Rússar lýsa yfir því, að sam-
þykkt Parísar-samninganna
hefði í för með sér, að einskia
væru nýtir þeir gagnkvæmu vin-
áttusamningar, er þessar þjóðirt
gerðu með sér á styrjaldarárun-
um. Sendiherrar Breta og Frakka
afhentu svór sín í dag í Moskvu,
• Enn er ekki kunnugt um,
hvernig svör við orðsendingunni
voru orðuð, en búizt er við, að
Bretland og Frakkland fallist
ekki á þá staðhæfingu Rússa, að
samþykkt Parísar-samninganna
eigi enga samleið með vináttu-
samningum þessum.
Friður í Formósu-
Framh. af bls. 2
koma í veg fyrir frekari út-
breiðslu bardaganna.
í varnarsamningnum er gert
ráð fyrir, að Bandaríkjamenn
komi til liðs við þjóðernissinna-
stjórnina, ef ráðist er á Formósa
eða Pescadores-eyjarnar. Sjálfur
hefur Eisenhower nýlega lagt
áherzlu á, að hér sé aðeins um
varnarsamning að ræða.
„Við hér í Bretlandseyjum
virðum Eisenhower forseta og
vitum, að hann væri tregur til að
grípa til þess að beita vopnavaldi
á vegum Bandaríkjanna, og þvi
aðeins myndi hann gera þao, að
ástandið væri orðið slíkt að hans
áliti, að Formósu og Pescadores-
eyjunum væri milcil hætta b :in“,
sagði Eden.
★ EYJARNAR VIÐ
STRENDUR MEGIN-
LANDSINS
Eden ræddi einnig það vanda
mál, er skapaðist vegna þeirra
eyja við strendur meginlandsins,
er enn væru á valdi þjóðernis-
sinna. Teldu kínverskir komm-
únistar sig eiga ótvíræðan rétt
til þessara eyja. Benti utanríkis-
ráðherrann á, að lausn þessa
máls yrði því aðeins komið til
leiðar, að jdlir aðilar vildu ieggja
sinn skerf fram til íriðsamiegrar
úrlausnar.
Forustumaður stjórnarandstöð-
unnar, Clement Attlee, lýsti yfir
því, að Bandaríkin hefðu gert sig
sek um að sletta sér fram í borg-
arastyrjöld. Benti hann á, að
Bandaríkin hefðu verið ein um
þær ráðstafanir, er gerðar hafa
verið, en SÞ hefði á engan hátt
átt þátt í þeim. Ef um væri að
ræða stöðvun bardaganna og leita
friðsamlegrar lausnar, ætti kín-
verska alþýðulýðveldið að fá þá
aðstöðu, er því sæmdi með SÞ.
★ FORMÓSA — ÓAÐSKILJ-
ANLEGUR IILUTI
AF KÍNA?
Utanríkisráðherrann svaraði
því til, að Formósa hefði aldrei
á yfirstandandi öld tilheyrt Kína,
þar sem Bretar álitu aftur á móti,
að eyjarnar rétt við meginlandið
væru hluti af meginlandi Kína.
Kvað Attlee, að utanríkisráð-
herranum sæist í þessu efni yfir
stóra þætti í sögu Kína. Japanir
hefðu á sínum tíma hertekið For-
mósu og enginn hefði þá haldið
því fastar fram en Chiang Kai-
Shek, að Formósa væri óaðskilj-
anlegur þl.utj. g£ Kípa....1 ,
A