Morgunblaðið - 28.01.1955, Síða 9
Föstudagur 28. jan. 1955
MORGUNBLAÐIÐ
9 !
Fjórir forsetar Norðurlandaráðsins bera sameiginlega fram tillögu um bættar samgöngur milli ís-
lands og hinna Norðurlandanna. Þeir sjást á myndinni talið frá vinstri: Erik Eriksen frá Danmörku,
Sigurður Bjarnason, Einar Gerhardsen frá Noregi og Herlitz frá Svíþjóð.
3- þing Norourlandardðslns
hefst i Stokkhólml í dag
Fgöldi tiilogna kommn iram
ssm miðo að onknn samstarii
IDAG kemur Norðurlanda-
ráðið saman til þriggja
þingfunda. Verða þar tekin til
merðferðar ýmis málefni sem
miða í áttina til nánari sam-
vinnu Norðurlandanna. Hafa
komið fram 75 mál um marg-
visleg efni. Þar af eru nokkur
að vísu aðeins álitsgerðir og
skýrslur um hvernig fyrri
ályktunum ráðsins hefur reitt
af í framkvæmd.
Það mál sem væntanlega mun
vekja mesta athygli hér á landi
er tillaga fjögurra forseta Norð-
urlandaráðsins um að athuga
þurfi möguleika á að tryggja
bættar samgöngur milli íslands
og hinna Norðurlandanna. Er þar
bent á hve mikla sérstöðu ísland
hefur að því leyti hve erfitt er
um ferðalög hina löngu leið hing-
að. En íslendingar vilja styrkja
sambandið við frændþjóðirnar á
Norðurlöndum.
Það varpar að vísu nokkrum
skugga á þetta mál, að frænd-
þjóðin í Svíþjóð hefur nýverið
sagt upp loftferðasamning við ís-
land og það þótt vitað sé að þýð-
ingarmestu samgöngutengsl ís-
lendinga við Norðurlöndin séu
einmitt flugið. Er vafalaust að sú
samningsuppsögn mun koma til
umræðu á þingfundum, þótt
Norðurlandaráðið sé varla bært
um að taka neina ákvörðun í því
máli.
★
Meðal annarra mála má telja:
Um efnahagssamstarf Norður-
landanna. Tillaga hefur komið
fram frá í áðherrafundi Norður-
landa að gera víðtækar ráðstaf-
anir til að efla samstarf Norður-
landaþjóðanna í efnahagsmálum.
Er lagt til að allsherjaryfirlit
verði gert um verzlun Norður-
landanna sín á milli og rannsaka
hvort ekki sé þegar í stað hægt
að skapa sameiginlegan markað
fyrir ýmsar vörutegundir, þar
sem lítil hætta er á árekstrum
miili framleiðslugreina tveggja
eða fleiri landanna. Sem dæmi
er nefnd efna og lyfjaiðnaður,
járn og stáliðnaður og rafmagns-
iðnaður.
Þá verði rannsakað hvort lík-
ur séu fyrir að hægt verði að
stofna til nýrra framleiðslu-
greina á grundvelli hins sameigin
]ega markaðs og hvort tilraunir
til að vinna markaðj í öðrum
löndum bíði tjón af stofnun sam-
eiginlegs Norðurlandamarkaðs.
★
Um bættar samgöngnr og ferð-
ir. Hinn 1. júlí 1954 var vega-
bréfaskoðun afnumin á ferðum
milli Noregs, Danmerkur og Sví-
þjóðar samkvæmt tilmælum
Norðurlandaráðsins. ísland hefur
nýlega bætzt í hópinn. Nú er lagt
til að athugaðir verði möguleikar
á að auðvelda ferðir til og frá
Finnlandi.
Um sameiginlegan vinnumark-
að. Stefnt er að því að koma á
frjálsum og sameiginlegum
vinnumarkaði Norðurlandanna.
Spor í áttina er það, að gera ýtar-
lega rannsókn á atvinnulöggjöf
landanna og samræma hana sem
mest má verða.
★
Um læknamenntun. Tillögur
hafa komið fram um að heimila
mönnum læknanám í hverju
Norðurlandanna sem er og gera
embættispróf í læknisfræðum
gild fyrir öll ríkin. Noregur hef-
ur lýst því yfir að framkvæmd
á þessu yrði erfið m.a. vegna
þess að innganga í læknadeild
háskólans í Ósló er mjög tak-
mörkuð vegna mikillar aðsóknar.
★
Um starf á skipum. Nokkrir
erfiðleikar eru fyrirsjáanlegir á
að koma í framkvæmd tillögum
um að heimila frjálsa ráðningu
á skip annarra Norðurlanda-
þjóða. Einkum telja Norðmenn
ýmsa vankanta á því, enda eiga
þeir stærstan kaupskipaflotann
og nokkuð atvinnuleysi er meðal
sjómanna. Nauðsyn ber til að
samræma reglur um slysabætur
og eftirlaun.
Um baráttu gegn lömunarveiki.
Það er talið þýðingarmikið að
læknar á Norðurlöndunum hafi
náið samstarf sín á milli. Lagt er
til að haldin verði skrá um önd-
unartæki í öllum löndunum,
einnig spjaldskrá um þá sem æf-
ingu hafa í meðferð lömunar-
sjúklinga. Ef lömunarveikisfar-
aldur brytist út í einhverju land-
inu kæmi hjálp jafnskjótt frá
hinum löndunum.
Meðal annarra mála má nefna:
Sameiginlegur blaðamannaskóli,
sameiginleg tannlæknakennsla,
samstarf rannsóknarstofa, sam-
starf í alþjóða-heilsuverndar-
stofnuninni o. m. fl.
Samband íslenzkra hankamanna
ZO ára n.L sunnudag
Afmælisins minnzf í ÞjóSleikhússkjaSlaranum
NÆSTKOMANDI sunnudag, 30. þ. m. á Samband íslenzkra bakna-
manna 20 ára afmæli. Var sambandið stofnað 30. janúar 1935,
og stóðu að stofnun þess, Félag starfsmanna Landsbanka íslands,
sem er elzt af starfsmannafélögum bankanna, stofnað 7. marz 1928,
og Starfsmannafélag Útvegsbankans, sem var stofnað 1. júní 1933.
Síðar bættust í hópinn Starfsmannafélag Búnaðarbanka íslands og
starfsmenn Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis. Mun sambandið
minnast afmælisins á laugardagskvöld í Þjóðleikhúskjallaranum
með veglegu hófi.
Alþjóðaróðstefna ó vegum S.Þ.
um verndun miðn og fiskistofns
Dr. Arni Friðriksson á undirbúningsfundi í New York
HLUTVERK
SAMBANDSINS
Skipulag sambandsins var fyrst
þannig, að einstakir bankamenn
voru, jafnframt því að vera félag-
ar í starfsmannafélögum, einnig
félagar og beinir þátttakendur í
starfi heildarsamtakanna. Árið
1948 var gerð sú breyting á skipu
lagi sambandsins, að fulltrúaráð
kjörið af sambandsfélögunum fer
með æðstu stjórn málefna sam-
bandsins og kýs stjórn þess.
Hlutverk sambandsins og til-
gangur, er samkvæmt lögum
þess: að vinna að skipulagðri fé-
lagsstarfsemi íslenzkra banka-
manna, að gæta hagsmuna banka-
manna í hvívetna og hafa á hendi
forustu fyrir þeim út á við í þeim
málum, sem snerta starf og kjör
sambandsfélaga almennt, að
vinna að því að auka þekkingu
bankamanna í bankafræðilegum
efnum og starfshæfni, með blaða-
útgáfu, fræðsluerindum og á ann-
an hátt, sem heppilegt er talið á
hverjum tíma og koma fram fyrir
hönd íslenzkra bankamanna á er-
lendum vettvangi.
FRÆÐ SLU ST ARFSEMI
FYRIR BANKAMENN
Hefur sambandið nú um 20 ára
skeið unnið að þessum málum.
I Þá hefur það ásamt starfsmanna-
( félögunum unnið að hagsmuna-
, málum bankanna. Á fyrsta starfs-
ári sínu hóf það útgáfu Banka-
blaðsins, sem hefur komið út
reglulega síðan. Einnig hefur það
unnið nokkuð að fræðslustarf-
semi fyrir bankamenn, með ýms-
um hætti og hefur nú verið að
undirbúa aukningu þeirrar starf-
semi.
ÞÁTTTAKANDI f SAMB.
NORRÆNNA BANKAMANNA
Sambandið kom þegar á fyrstu
starfsárum sínum á sambandi við
erlenda bankastarfsmenn, eink-
um á Norðurlöndum. Þetta sam-
starf sem féll að mestu niður
á styrjaldarárunum, var tekið
upp aftur þegar henni var lokið
og hefur haldizt síðan. Einn fund-
ur norrænna bankamanna hefur
verið haldinn hér á landi, árið
1949. Sambandið er nú þátttak-
andi í Sambandi norrænna banka
manna, sem var stofnað-í Kaup-
mannahöfn árið 1953.
STJÓRN FÉLAGSINS
Fyrstu stjórn Sambands ís-
lenzkra bankamanna skipuðu.
þessir menn: Haraldur Jóhannes-
son formaður og meðstjórnendur,
Baldur Sveinsson, Einvarður
Hallvarðss., Elías Halldórsson og
F. A. Andersen.
í núverandi stjóm eiga sæti:
Þórhallur Tryggvason formaður,
og meðstjórnendur Adólf Björns-
son, Bjarni G. Magnússon, Ein-
varður Hallvarðsson og Sverrir
Thoroddsen.
253 krónur
f\TÍr 8 rélta
getraunaleikjanna á
J
ÚRSLIT
laugardag:
ÚRSLIT getraunaleikjanna í gær:
Aston Villa 3 — Blaekpool 1 1
Burnley 0 — Newcastle 1 2
Chelsea 0 — Manchester C 2 2
Huddersfield -— Cardiff frestað
Leicester — Everton frestað
Manch. Utd 1 — Bolton 1
Preston 3 — W Bromwich 1
| Sheff. Utd — Arsenal frestað
Sunderland 2 — Portsmouth 2
Tottenham 7 — Sheff. W 2
Wolves 2 — Charlton 1
Liverpool 4 — Blackburn 1
Vegna þíðu í Norður Englandi
féllu nokkrir leikir niður, þar
sem vatnsflaumur gerði velli ónot
hæfa. Bezti árangur reyndist 8
réttir en aðeins 9 leikjanna á seðl-
inum gátu farið fram. Voru 5
seðlar með 8 réttum og 4 með
kerfi, sem gefa hvert 253 kr.
1. vinningur: 157 kr. fyrir 8
rétta (5)
2. vinningur: 16 kr. fyrir 7
rétta (97)
x
1
X
1
1
1
Dr. Árni Friðriks.son á undirbún-
ingsfundi í New York.
IAPRlLMÁNUÐI í vor verður
haldin alþjóðaráðstefna í
Rómaborg á vegum Sameinuðu
þjóðanna, sem á að fjalla um
,verndun fiskimiða, fiskistofns og
önnur gæði hafsins.
| Undanfarna daga hefur staðið
. yfir, í aðalstöðvum S.þ. í New
jYork, undirbúningsfundur að þess
ari ráðstefnu. Meðal 8 sérfræðinga
| og tveggja áheyrnarfulltrúa, sem
þenna fund sitja, er Islendingur-
inn Dr. Árni Friðriksson, aðalfor-
stjóri Alþjóðahafrannsóknarráðs-
I ins. Þetta er sérfræðinganefnd,
| sem á að gera tillögur til Dag
Hammarskjölds, aðalforstjóra S.þ.
um tilhögun og dagskrá alþjóðaráð
stefnunnar. 1 nefndinni eiga sæti,
auk dr. Árna, fulltrúar frá Ítalíu,
Kanada, Bretlandseyjum, Banda-
ríkjunum, og Peru, fleiri en einn
frá sumum þessara þjóða. Allir
eru nefndarmenn sérfræðingar á
sViði hafrannsókna og fiskifræði.
Það er Allsherjarþing S.þ., sem
nýlega er lokið, sem samþykkti að
þessi ráðstefna skyldi haldin. ^Nið-
urstöður og samþykktír hennar
verða síðar lagðar fyrír Alþjóða-
laganefndina til frekari aðgerða.
Alþjóðalaganefndin hefur um hríð
haft til athugunar ýmis mál, er
varða nýtingu gæða hafsins og
hafbotnsins, svo sem lög og reglur
á úthafinu, landhelgismál o. s. frv.
Allar þátttökuþjóðir S.þ. og
meðlimir sérstofnanna samtakanna
eiga rétt á þátttöku í Róm-ráð-
stefnunni.
Islendingar létu þessi mál mjög
til sín taka er þau voru til um-
ræðu í'laganefnd síðasta Allsherj-
arþings og gætti áhrifa þeirra þar
mikils. Hans G. Andersen, þjóðrétt
arfræðingur og fulltrúi Islands í
Norður-Atlantshafsbandalaginu
var fulltrúi íslands í nefndinni. —
Má gera ráð fyrir að íslendingar
fylgist vel með því er gerast kann
á Róm ráðstefnunni, svo mjög sem
landhelgismálin og verndun fiski-
miða og fiskstofnsins skifta hag
þjóðarinnar.
Ekki boðinn
WASHINGTON — Talsmaður
einn sagði á dögunum að Eisen-
höwer forseti hefði fellt nafn
McCarthys af lista yfir boðsgesti
við tvær „þýðingarmiklar“ át-
veizlur í Washington í þessari
viku.
Höfðakaupsiaður
lengdur við raflögn-
ina á Sauðanesi
SKAGASTRÖND, 27. jan. — S. 1.
laugardag var rafmagnskerfi
Höfðakaupstaðar tengt við raf-
línu sem lögð var frá rafstöðinni
á Sauðanesi við Blönduós. í
Höfðakaupstað er fyrirhugað að
hafa tvær spennistöðvar fyrir
innanbæjarkerfið. Var önnur
þeirra tekin í notkun á laugar-
daginn, en efnið i hina er nú ný-
komið til landsins og verður nú
sett upp á næstunni.
Er ekki vanþörf á að flýta þeim
framkvæmdum, þar sem rafspenn
an er mjög lág í stórum hluta
þorpsins.
Á 19 bæjum sem eru innan við
1 km fjarlægð frá háspennulín-
unni milli Blönduóss og Höfða
kaupstaðar var gefinn kostur á
að fá rafmagn Voru 18 þeirra
tengdir við línuna í desember
síðastliðnum. —Jón.
Reykjavík vann
Haínaríjörð
Á SUNNUDAGINN fór fram hér
í bænum skákkeppni milli Reykja
víkur og Hafnarfjarðar. Var teflt
á sex borðum og fóru leikar svo
að Reykjavík vann Sigruðu
reykvisku skákmennirnir með
414 vinning gegn 1%.
Á 1. borði gerðu jafntefli Bald-
ur Möller og Ólafur Sigurðsson.
Á 2. borði einnig jafntefli milli
Gunnars Gunnarssonar og Sigur-
geirs Gíslasonar. Á 3. borði vann.
Sturla Pétursson Árna Finnsson.
Á 4. borði vann Birgir Sigurðs-
son Jón Kristjánsson og á 5. borði
vann Kári Sólmundarson Þórir
Sæmundsson. Á 6: borði jafntefli
piilli Freysteins Þorbergssonat og
Magnúsar Vilhjálmssonar.
Samtímis þessari keppni tefldi
skákmeistarinn Friðrik Ólafsson
fjöltefli á 24 borðum. Sem fyrr
sýndi Friðrik frábæra skákhæfi-
leika og vann á öllum borðunum
nema einu, en þar varð jafntefli
milli hans og Þorsteins Friðjóns-
sonar.
Margt áhorfenda var og var
skákkeppnin mjög skemmtileg. ,