Morgunblaðið - 23.02.1955, Blaðsíða 1
16 síður
42. árgangur
44. tbl. — Miðvikudagur 23. febrúar 1955
Prentsmiðjtt Morgunblaðsin*
Kapphlaup S Þ. við 3. heimsslyrjöldina
Ennþá er hann einn meter á undan-
Faure leitar trausts
• PARÍS, 22. febr. — Edgar
Faure, leiðtogi Róttækra, mun á
morgun leita traustsyfirlýsingar
þingsins varðandi tilraunir hans
tií stjórnarmyndunar. Ekki þykir
horfa vænlega fyrir Faure sem
forsætisráðheraefni.
• Um tíma leit svo út, sem|
hans eigin flokkur mundi eklci
vilja styðja hann, en í dag lýstu
Róttækir yfir því, að þeir vildu
taka þátt i stjórnarmyndun hans.1
Kaþólski flokkurinn, þjóðveldis-1
menn og hægri flokkarnir hafa
enn ekki lýst yfir eindregnu fylgi
sínu við fyrirhugað ráðuneyti
hans, en hafa sagzt myndu veita
honum traust sitt í þinginu, sem
forsætisráðherraefni. Jafnaðar-
menn vilja hvorki taka þátt í
stjórnarmyndun hans nc heita
honum neinum stuðningi i þessu
efni. Kommúnistar hafa einnig
snúizt gegn Faure.
• Upphaflega mun Faure
hafa ætlað að mynda „vinstri“
stjórn, en þar sem kommúnistar
og jafnaðarmenn hafa neitað öllu
samstarfi verður stjórn hans mun
meira til hægri. Almennt var
álitið, að Faure myndi gegna
embætti utanrikisráðherra í
stjórn sinni eins og Mendes-
Framh. á bls. 9
Hörmulegt bílslys d Ásvullugötu
um hddegisbil í gær
2 smddrengir dóu
Vetrorríki herjar
sífellt í Evrópu
LONDON, 22. febrúar — Mikið
vetrarríki spennti járngreipar
sinar um mestan hluta Evrópu í
dag. í Mið Evrópu hefir hlýnað
ögn, en iafnframt hefir hlaðið
niður miklum snjó.
í Svissnesku Ölpunum hefir
hættan á snjóskriðum aukizt
mjög einkum þar sem nokkuð
hefir hlýnað. í Þýzkalandi, Pól-
landi og Austurríki hefir snjó-
koman valdið miklum samgöngu
truflunum, einkum þar sem
stormurinn hefir valdið því, að
snjóinn hefir skafið mjög í
skafla. Skagerak og Kattegat
eru nú ísilögð að nokkru leyti,
og óttast er, að það valdi nokkr-
um töfum á skipaleiðum.
40 manns hafa farizt af völdum
kuldans á meginlandi Evrópu.
Mikill kuldi og snjókoma hef-
ir verið á Bretlandseyjum í dag,
einkum i Norður-Skotlandi.
Hafa flugvélar og þyrilvængjur
unnið að því að varpa niður
matarbögglum og öðrum nauð-
synjavörum til bændabýla og
þorpa, sem einangrast hafa vegna
snjókomu. Er þetta harðasti vet-
ur, sem yfir Bretland hfeir kom-
ur, sem yfir Bretland hefir kom-
ið um margra ára skeið.
— Reuter-NTB.
I GÆRKVOLDI VAR EKKI
VITAÐ HVER ÓK BÍLiMUIVi
Upplý sa verður aðdragandu slyssins
HÉR i Reykjavík varð um hádegisbilið í gær eitt hið
hörmulegasta umferðarslys, sem orðið hefur á götum
bæjarins. Tveir litlir leikbræður, þriggja og fimm ára, biðu
bana undir bil við gatnamót Ásvallagötu og Blómvallagötu.
í gærkvöldi klukkan átta, er rannsóknarlögreglan skýrði
blöðunum frá þessum hörmulega atburði, hafði ekki tekizt
að upplýsa með hverjum hætti slysið varð. — Er rannsókn-
arlögreglunni aðeins kunnugt um eitt vitni í málinu. — En
það er von allra hugsandi manna, að allir þeir, sem ein-
hverjar upplýsingar gætu gefið í sambandi við rannsókn
hins sviplega slyss, gefi sig þegar i stað fram við rannsókn-
arlögregluna.
Drengirnir litlu, sem létu lífið
í slysi þessu, hétu Magnús Már
Héðinsson, fóstursonur Oddgeirs
Karlssonar, loftskeytamanns, og
Lilý Magnúsdóttur, Hringbraut
56. Var Magnús fimm ár. Hinn
drengurinn, Stefán Sigurður
Hólm, Ásvallagötu 27, var þriggja
ára, sonur Guðjóns Hólm Sig-
valdasonar, héraðsdómslögmanns
og konu hans Guðrúnar Stefáns-
dóttur.
taldi sig hafa orðið þess vart, að
slys hefði orðið þarna, en mjög
greinilega sést úr búðinni staður
sá á götunni, sem börnin höfðu
orðið fyrir bílnum.
Ekki hafði Gísli Ástþórsson séð
slysið, en barn, sem gekk í veg
fyrir hann, er hann kom að
gatnamótunum, hafði sagt honum
af slysinu.
EINA VITNIÐ
Stuðningur Brunabótafélajisins við
á.' C
brunavarnir hefur lækkað iðsiöldin
Á „MAGASLEDA“
Drengirnir litlu voru með lít-
inn „magasleða“ rétt vestan við
gatnamót Ásvallagötu og Blóm-
vallagötu. En á þessu horni er ný-
lenduvöruverzlun Péturs Krist-
jánssonar. Var margt fólk inni í
búðinni.
Sýnt írom á það með sterkum
röknm á Alþingi oð larsælost
er fyrir sveitarfélögin að tryggja
hjá sínu eigin félagi
Á SAMA TÍMA og bifreiðatryggingar hafa verið að
hækka, hafa brunatryggingar stöðugt farið lækkandi. Ástæð-
an til þess er sú að brunavarnir í kaupstöðum og kauptún-
um hafa stöðugt aukizt og eflzt. Þessar auknu varnir stafa
fyrst og fremst af því að Brunabótafélag íslands hefur lagt
áherzlu á að stuðla að þeim. Eru núna í útlánum hjá félag-
inu á annan milljónatug kr. Það er lán til að byggja vatns-
veitur, kaupa slökkvitæki og leggja brunasíma. Það er vegna
þessara framkvæmda, sem tryggingariðgjöld lækka.
'tr Þannig fórust Emil Jónssyni orð í gær við umræður
um brunatryggingamálin.
'tr En frumvarpið um breytta skipan á stjórnarháttum
Brunabótafélagsins var samþykkt til þriðju umræðu með
20. atkv. gegn 8. Greiddu aðeins Framsókn atkvæði á móti
frumvarpinu. Höfðu breytingartillögur tveggja Framsóknar-
manna um að hamla gegn því að sveitarfélögin sjálf réðu
stjórn Brunabótafélagsins, fyrst verið felldar með miklum
meirihluta atkvæða.
HÆGT AÐ NÁ
BETRI KJÖRUM
MEÐ STÓRUM SAMNINGUM
Á sama þingfundi voru um-
ræður um frumvarp Framsókn-
armanna um brunatryggingar I
sveitum.'Er þar í rauninni um
sama málið að ræða og fléttuð-
ust umræður í báðum málunum
saman.
Skúli Guðmundsson tók ty
rnáls og virtist hann ekki koma
auga á að hægt væri fyrir tryggj-
endur að ná hagkvæmari samn-
ingum þegar þeir standa sam-
einaðir, heldur en ef þeir tryggðu
hver í sínu lagi.
Björn Ólafsson framsögu-
maður meirihluta allsherjar-
nefndar svaraði þessu. Hann
dró upp einfalda og skýra
mynd af því, hve húseigendur |
standa miklu betur að vígi
þegar sveitarstjórn gerir
tryggingarsamning fyrir þá
alla í einu, heldur en ef hver
einstakiingur ætti að semja
Framh. á bls. 9 1
VEGFARANDI KOM AÐ
Laust fyrir klukkan 12 í gær-
dag kom Gísli Ástþórsson þangað
inn og bað um að hringt yrði
þegar í stað í lögregluna, því að
ægilegt slys hefði orðið fyrir ut-
an búðina. Varð fólkið, sem
þrumulostið, því að ekkert þeirra
Önnur kjarnorkusprengjutilraunin í Nevada
Sprengjublossinn sást í Los
Angeles—Hús skulfu í Las Vegas
Las Vegas, 22. febr. — Reuter-NTB.
IDAG var önnur kjarnorkusprengjan á þessu ári sprengd í til-
raunaskyni á eyðimörk Nevada-ríkis í Bandaríkjunum. Sprengj-
unni var komið fyrir á 100 metra háum turni. Kjarnorkusprengjan
var af meðalstærð, en talsvert kröftugri en sú, er sprengd var á
svipuðum slóðum í s.l. viku.
Eldblossinn frá sprengingunni
sást í Los Angeles og San Franc-
isco, sem eru 440 km fyrir suð-
vestan tilraunasvæðið, og hús
skulfu í Las Vegas, 130 km suð-
vestur frá sprengjustaðnum, en
ekki er kunnugt um að tjón hafi
orðið á mannvirkjum.
if BLOSSINN GULRAUÐUR
Mikill gulrauður blossi gaus
upp við sprenginguna, en við
fyrri tilraunir hefur blossinn ver-
ið skjannahvítur.
200 manns fylgdust með gangi
sprengingarinnar, vel varðir í
djúpum skurðum í fjögurra km,
fjarlægð, og 40 flugvélar fylgd-
ust með sprengingunni úr lofti.
Upphaflega höfðu fulltrúar
bandarísku kjarnorkumálanefnd-
arinnar ætlað að koma mun
kröftugri sprengju fyrir á 170 m
háum turni, en vegna óhagstæðra
veðurskilyrða var óttazt, að
geislavirkt ryk kynni að valda
tjóni í nágrenni tilraunasvæðis-
ins.
Eftir tveggja klukkustunda leit
rannsóknarlögreglumanna að
vitnum að atburði þessum, tókst
að hafa uppi á níu ára telpu, sem
kvaðst hafa séð er slysið varð.
f
\
FRÁSÖGN TELPUNNAR
Hafði hún staðið á gatnamót-
unum. Séð litlu drengina, sem
setið höfðu á sleðanum við jaðar
götunnar og hefðu þeir ekki
hreyft sig úr stað á honum.
Bíll hafi komið niður Blóm-
vallagöliina (aí Sóivalagötu),
beygt inn á Ásvallagötuna, og
hafi hann ekið yfir drengina.
Bílnum var ekið áfram vestur
Ásvallagötuna. Rannsóknarlög
reglan telur enga ástæðu til
að véfengja frásögn telpunn-
ar. Hún gaf ýmsar aðrar upp-
lýsingar um bílinn og útlit
hans, en rannsóknarlögreglan
taldi ekki tímabært í gær að
skýra frá því, meðfram af
þeim sökum, að hún beinir
þeim óskum til allra bílstjóra,
sem leið áttu um þessi gatna-
mót, að koma til viðtals hið
fyrsta.
Vitað er, að drengirnir biðu
báðir bana samstundis.
ORÐIÐ ÞESS VAR?
Rannsóknarlögreglumenn áttu
í gær tal við allmarga bílstjóra,
en í gærkvöldi hafði ekki tekizt
að upplýsa hvaða bíll það var,
er olli slysinu.
Rannsónkarlögreglan telur,
miðað við þær upplýsingar, sem
kunnar eru og hún ekki vefeng-
ir, sé mjög ólíklegt, að bílstjór-
inn hafi ekki orðið slyssins var.
Hugsast geti að við taugaáfallið,
sem bílstjórinn hafi orðið fyrir,
hafi hann gripið til þess að aka
í burtu, en muni gefa sig fram,
er hann hefur áttað sig á atburð-
inum.