Morgunblaðið - 15.04.1955, Qupperneq 12
U
MORVUNBLAÐtð
Föstudagur 15. apríl 1955
Sólþurrkaður
SALTFISKUR
fœst enn í
VERZLIfN
SIMI <i205
TIL LEIGU
Tvö herb. og eldhús, ásanit
baði, eru til leigu, í nýju
húsi í Smáíbúðarhverfi. —
Töluverð fyrirframgreiðsla
nauðsynleg. Tilboð merkt:
„Ibúð — 34“, sendist blað-
inu fyrir hád., laugardag.
Moccasínuskór
Verð kr. 98,00.
^deídur k.f.
Austurstræti 10.
- SKOGASKOLI
Frh. af bls. 9.
megi rauðgreni hér. Væri það
mjög hagstætt, að ræktun rauð-
grenis tækist, þar sem auðvelt
er að fá það frá Norður-Noregi.
* BLÁGRENI frá
HALLORMSSTAÐ
Hundrað og fimmtíu plöntur
af blágreni voru gróðursettar
. vorið 1954. Voru þær fengnar frá
i Hallormsstað, og var elzta blá-
; grenið af þessari tegund gróður-
; sett þar fyrir 50 árum og hefir
þrifizt mjög vel. Ekki er vitað
i með vissu hvaðan þetta blágreni
er upphaflega ættað, en allar lík-
ur benda til, að það sé fengið
frá háfjallahéruðum Colorado-
fylkisins í Bandaríkjunum.
I
+ SKJÓLBELTI ÚR BIRKI
Birki var gróðursett fyrst ár-
ið 1950 fyrir austan furureitinn
til að skýla furunni. Hefir þetta
skjólbelti vaxið vel. Árið 1952
voru smábirkiplöntur gróðursett-
ar, en þær kól nokkuð í vor-
hretinu 1952, en birki um allt
land fór þá mjög illa eins og
kunnugt er. Vorið 1954 voru enn
gróðursettar 7 þús. birkiplöntur
og virðast þær ætla að þrífast
mjög vel.
j O—#—O
* SANDRÆKT Á
SKÓGASANDI
Nú stendur til að hafizt verði
handa um sandrækt á Skóga-
sandi í vor. Telur Jón æskileg-
ast, að byrjað yrði á því að
koma upp skjólbeltum, ef mögu-
legt reynist. Hefir Jón ekki lát-
ið sitja við orðin tóm. í apríl
s. 1. ár voru gróðursettar 200
víðiplöntur og 300 birkiplöntur
á girtum landskika skammt fyrir
sunnan Kverná.
* MARKVERÐUR
ÁRANGUR
Mjög lítill gróður er á sand-
inum, sem er 3 þús. ha. að
stærð, og var því ekki búizt
við, að árangur yrði sérlega
mikill, en raunin hefir orðið
önnur, allar plönturnar hafa
vaxið mjög vel, og ekkert kal
hefir enn komið fram á þeim
— ennþá a. m. k., bætir Jón
við af sinni venjulegu gætni.
En óhætt er að fulyrða, að
hér er um markverðan árangur
‘ að ræða.
) Þess ber þó að geta, að hér
er um úrvalsplöntur að ræða,
er vaxnar voru nokkuð úr grasi,
þegar þær voru gróðursettar.
Mikill húsdýraáburður var bor-
inn að þeim, og ekki veitir af,
þar sem sandurinn hefir nær ein-
göngu að geyma steinefni, öii
lífræn efni hefir blásið burt fyr-
ir löngu. Talsverður vinnusparn-
aður yrði að því, ef hægt væri
að gróðursetja trjáplöntur áður
en sandræktin hæfist, þar sem
mun fljótlegra er að gróðursetja
tré í sand en graslendi.
O—®—O
ic MIKILL GRASVÖXTUR
HÁIR GRÓÐURSETNINGU
Trjágróður ætti að geta þrifizt
mjög vel í brekkunum ofan við
Skógaskóla. Brekkur eru mjög
hagkvæmar til trjáræktar, þar
sem vatnið er þar á mikilli hreyf-
ingu, safnar það í sig miklu súr-
efni, er leysir upp jarðefnin og
auðveldar vinnslu plantnanna og
aukið súrefni auðveldar einnig
„andardrátt" rótanna. í brekkun-
um vex mikið af mjaðjurt og
blágresi, en það er órækur vott-
ur þess, að jarðvegurinn er
góður.
Mikill grasvöxtur er þarna og
getur það háð nokkuð vexti
plantnanna nema þær séu því
stærri. Þyrfti því nauðsynlega
að vera fyrir hendi vinnukraftur
til að reita grasið frá plöntun-
um. Ýmsa fleiri örðugleika á
Jón við að etja — en veðráttan
veldur þyngstu búsifjunum —
einkum þurr, köld landáttin úr
norðri.
* STÆKKUN SKÓG-
RÆKTARSVÆÐISINS
Nú stendur til að færa út skóg-
ræktargirðinguna og stækka
landssvæðið upp í 70 ha. Er
þetta mjög hagkvæmt, þar sem
þá er hægt að koma upp skjól-
beltum á víð og dreif um skóg-
ræktarsvæðið, áður en hafizt er
handa um að gróður^etja ýmsar
trjátegundir.
O—•—O
Nafnið Skógar bendir til þess,
að fyrr á tímum hafi dalhvosin
verið vaxin skógi. Vonandi er,
að nafnið eigi eftir að verða
sannnefni á komandi árum.
G. St.
Nokkur
Skuldahráf
að upphæð 40 þús. kr., til
sölu með sanngjörnum af-
föllum. Tilboð sendist afgr.
Mbl., fyrir mánudag, —
merkt: „100 — 40“.
Byggingafélag alþýðu,
Reykjavík.
AÐALFUNDUR
félagsins verður haldinn í Alþýðuhúsinu, Hverfisgötu,
mánudaginn 18. apríl n. k. kl. 8,30 síðdegis.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Stjórn Byggingafélags alþýðu.
VETRARGARÐURINN
VETRARGARÐURINN
DANSLEIRU
í Vetrargerðinum í kvöld klukkan 0.
Hljómsveit Baldurs Kristjánssonar leikur.
Miðapantanir í síma 6710 eftir kl. 8.
V. G.
Gömlu dansarnir
kvöld kl. 9 — Miðasala frá kl. 8.
Hljómsv. Svavars Gests
Söngvari Sig. Ólafsson
Dansstj. Árni Norðfjörð
Opið ■ kvöid
Dansað til kl. 1
Ókeypis a-ðgöngumiðar afhentir frá kl. 8.
Hljómsveit hússins leikur.
Matur frá klukkan 7.
Po
lclótti
'orunn —>. ^fonannóaoiur
heldur píanó-hljómleika í Austurbæjarbíói, þriðjudag-
inn 19. apríl klukkan 7 e. h.
Aðgöngumiðar seldir hjá Eymundsson, Lárusi Blöndal
og í Austurbæjarbíói.
Unglinga
vantar til að bera blaðið til kaupenda við
Vesturgötu og Lækjargötu.
Talið strax við afgreiðsluna — sími 1600.
MARKÚS Eftir Ed Dodd
jjp IICPIIÍG TO GET UNUSUAL
PiCTURES OP MOUNTAINíT'
w GOATS, MAR-L TRAIL AND
HI5 PRIENDS ESTABLI5H
CAM.p WÍGW IN THE ROCKIES
Magnús Tharlaeius
■ueMaréttarlögmaður.
Málflutningaskrifatofa.
í Áðalstræti 9. — Slmi 1875.
IT IS...IT'S TKE 'K'l KNOW WHAT VE5, WECL
BE5Tt„AHD I VOU MEAH...thAtJ HAVE tq G=T I
WE'D BETTER A> OL’ MORTGAGE N THESE GCAT
GET AT THEM/iS EEGIHHIMG toIPCTUEES THIS
AS SOOM AS [ SNICP AROLJND WBEK, CQ. TH=
POSSIBLEl V LOST POREST/iM PLACE WILL
. j BELONG to
V^-Ka MÍPARLAND/
1) Þeir félagarnir reisa tjöld
hátt uppi í fjöllum. Þar vonast
þeir til að geta náð góðum mynd-
um af steingeitum.
2) — Þetta virðist áhrifamikið
landslag til að taka myndir í.
— Já, það er það sannarlega.
Við ættum líka að hefja mynda-
tökur sem bráðast.
3) — Ég skil hvað þú átt við,
að lánadrottnarnir séu nú þegar
farnir að snuðra kringum Týndu
Skóga.
— Já, við verðum að flýta okk-
ur, ef það á að koma að gagni.