Morgunblaðið - 16.07.1955, Blaðsíða 1
16 síður
43. árgangur
158. tbl. — Laugardagur 16. júlí 1955
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Eisenhower
g
Bulganin
fer á
„tappinn"
MOSKVA, 15. júlí: — Búlganin
marskálkur verður aðalfulltrúi
Rússa á „toppinum" í Genf á
mánudaginn.
Þetta varð augljóst í Kreml í
dag. í fyrsta skipti í sögunni
héldu sovétleiðtogarnir almenn-
an fund með erlendum blaða-
mönnum, var fundurinn haldinn
i ráðherraherberginu í Kreml.
Búlganin las upp skrifaða yfir-
íýsingu, þar sem hann lýsti yfir
þeirri ósk Sovétríkjanna, að tak-
ast mætti að draga úr viðsjám í
heiminum á' Genfarfundinum. —
Búlganin lagði enn sem fyrr
áherzlu á vilja Sovétríkjanna til
þess að stofna öryggiskerfi í
Evrópu.
Greinilegt er að öryggiskerfið
— einhvers konar Locarno-sátt-
máli um gagnkvæmt öryggi í
Evrópu — verður höfuðmál
Rússanna um lausn vandamála
í Evrópu.
Viðstaddir í ráðherraherberg-
inu, er Búlganin las stefnuyfir-
lýsingu sína, voru aliir rússnesku
fulltrúarnir, sem verða í sendi-
nefndinni til Genf.
Ekki var blaðamönnum gefið
tækifæri, að vestrænum sið, til
þess að leggja spurningar fyrir
ráðherrann að loknum lestri
yfirlýsingarinnar.
Rússnesku fulltrúarnir leggja
af stað til Genf á morgun.
—*—
f Washington hefir verið lýst
yfir ánægju yfir yfirlýsingu Bulg-
anins, einkum þykir það rétt mælt,
aS Genfarfundurinn geti ekki leysl
máliu í einu vetfangi.
Þýzkaland ehl
PARÍS 15. júlí: — Utanríkisráð-
herrar vesturveldanna, MacMill-
an, Pinay og Dulles, luku fundi
sínum í dag með fullu samkomu-
lagi um afstöðuna til mála, sem
rædd verða á Genfarráðstefnunni.
Sagt er að ráðherrarnir hafi sett
sameiningu Þýzkalands mjög of-
arlega á dagskrá.
Sigur Adenauers
BONN, 15. júlí: — Annari um-
ræðu um 6 þús. manna sjálfboða-
liðsfrumvarpið lauk í dag. Á morg
un verður frumvarpið endanlega
samþykkt í Bundestag og verður
sent þaðan til efri málstofúnnar.
Endanleg samþykkt liggur vænt
anlega fyrir á mánudaginn, dag-
inn sem Genfarfundurinn hefst.
Enn hefir Adenauer kanslari
komið fram máli sínu.
Vegabréfsáriiun
1 FRAMHALDI af samkomulagi
milli íslands og Bretlands frá 20.
júní 1947 og 26. október 1948 um
afnám vegabréfsáritana hefur
brezka utanríkisráðuneytið með
erindi, dags. 4. júlí, tilkynnt, að
samkomulagið nái einnig til
Gibraltar frá 20. júlí 1955.
íslenzkir þegnar, sem ferðast
vilja til Gibraltar eru því und-
anþegnir áritunarskyldu á vega-
bréf frá nefndum degi.
(Frá utanríkisrá ðuneytinu).
Eisenhower forseti hefur verið á ferð hér á landi áður. Mynd þessi
er tekin árið 1951 af Eisenhower þáverandi yfirmanni herja At-
lantshafsbandalagsins og Kristínu Snæhólm, flugfreyju hjá Flug-
félagi fslands.
Malenkov hrósar
blaðamönnum, segir
að þeir segi sann-
leikann
MOSKVA, 9. júlí: — Einn af
samráðherrum Malenkovs, fyrr-
um forsætisráðherra og núver-
andi raforkumálaráðherra, hefir
hrósað Malenkov fyrir góða
frammistöðu í raforkumálunum.
Sjálfur hrósaði Malenkov við
sama tækifæri amerískum blaða-
mönnum.
Við móttöku í argentinska
sendiráðinu í Moskva lagði
argentinski sendiherrann, Bravo,
þú spurningu fyrir Malenkov,
hvernig orkumálin stæðu í Sovét
ríkjunum. Anastas Mikoyan,
varaforsætisráðherra, greip þá
fram í mál þeirra og sagði að
áætlunin um raforkuframleiðsl-
una hefði verið að fullu efnd og
betur þó.
Malenkov veitti athygli nokkr-
um blaðamönnum, sem stóðu
álengdar og vék tali sínu til
þeirra og sagði „að blaðamenn
ættu ekki einvörðungu að upp-
lýsa fólk, heldur ættu þeir að
móta almenningsálitið — með því
að segja sannleikann".
Argentinski sendiherrann band
aði þá hendinni til blaðamann-
anna og sagði: „En við þekkjum
þessa menn og við vitum að við
getum treyst þeim“.
Malenkov lyfti þá glasi til
blaðamannanna og sagði bros-
andi: „Við vitum að þið eruð
hugrakkir menn og segið sann-
leikann".
Heyderdahl fer
leiðangur ti!
Páskaeyjar
NORSKUR leiðangur til rann-
sókna á fornleifum leggur af
stað í september n.k. undir for-
ustu Thors Heyderdahls til þess
að rannsaka Páskaeyna í Kyrra-
hafi. Heyderdahl er heimskunn-
ur af hinum fræga Kontiki-leið-
angri fyrir nokkrum árum.
í framhaldi af Kontiki-leið-
angrinum ætlar Heyderdahl að
leita aukinna sannana á Páska-
eynni fyrir þeirri fullyrðingu
sinni, að margar eyjar í sunnan-
verðu Kyrrahafi hafi byggzt frá
Ecuador og Peru í Suður-
Ameríku.
Páskaeyjan er lítil eldfjallaey,
3700 km frá ströndum Suður-
Ameríku. Hún er einkum kunn
af hinum fjölmörgu steinstólpum,
allt að tíu metra háum, sem talið
er að höggnir hafi verið af æfa-
fornri þjóð, sem engar sögur
fara af.
Norski leiðangurinn ætlar að
vinna að uppgreftri fornminja á
evnni um eins árs skeið og leita
að minjum byggðar á eynni til
þess að reyna að komast nær því,
hvenær þjóðin var uppi, sem hjó
hina frægu steinstólpa, segir
Heyderdahl.
avik í dag
Móttaka íslendinga
í GEIMF í KVÖLD
T^WIGHT D. EISENHOWER, forseti Bandaríkjanna, ætlar
■L' að hafa tveggja kLukkustunda viðdvöl á Keflavíkurflug-
velli í dag. Forseti íslands, hr. Ásgeir Ásgeirsson, og for-
sætisráðherra, hr. Ólafur Thors, ásamt Bjarna Benedikts-
syni dómsmálaráðherra og Eysteini Jónssyni fjármálaráð-
herra munu taka á móti forsetanum.
Einkaflugvél Eisenhowers forseta lendir á Keflavíkur-
flugvelli klukkann 11 f. h. í dag. Forsetinn mun sitja ár-
degisverðarboð í Keflavík í boði íslendinga.
Skömmu eftir hádegi mun flugvél forseta, „Columbine" halda
áfram ferð sinni til Genfar. Ráðgert er að flugvélin verði lent í
Genf í kvöld.
Miklar varúðarráðstafanir hafa verið gerðar til öryggis forset-
anum á leið hans austur um haf. Skip hafa verið staðsett með
vissu millibili á leiðinni, sem flugvélin fer yfir og einnig eru
flugvélar á varðbergi bæði vestan hafs og eins hér austan hafs.
Utanríkisráðherra íslands getur ekki tekið á móti forsetanum,
þar eð hann fór í fyrradag til Parísar til þess að sitja fund Atlants-
hafsbandalagsins Á fundinum munu Macmillan utanríkisráðherra
Breta og Pinay, utanríkisráðherra Frakka gefa þjóðum Atlants-
hafsbandalagsins skýrslu um undirbúninginn undir Genfarráðstefn-
una.
Auk forseta íslands og ráðherranna þriggja munu skrifstofu-
stjórinn í utanríkisráðuneytinu og forsetaritari sitja árdegisverðar-
boð með Eisenhower forseta í Keflavík. Af hálfu íslendinga verða
þar ekki aðrir en að sjálfsögðu munu fulltrúar frá Bandaríkjunum
sitja boðið.
Peron að hsíta
BUENOS AIRES, 15. júlí: —
Peron forseti sagði í dag að hann
ætlaði að leggja niður embætti sem
forseti Peronistaflokkgins. Hann
kvaðst ætla að gegna störfum sem
forseti Argentínu þar til árið
1958, en ekki gefa kost á sér sem
forsetaefni að nýju.
Ráðgert var í gærkvöldi að for-
seti Bandaríkjanna flytti útvarps
ræðu frá Washington, þar sem
hann gerði þjóð sinni grein fyrir
fyrirætlunum sínum í Genf.
Forsetinn hefir átt mjög ann-
ríkt undanfarna viku og öll störf
hans hafa miðað að því að stilla
til friðar, til þess að ekkert
heima fyrir geti spillt fyrir ár-
angri af Genfarráðstefnunni. —
Það sem gerzt hefir í vikunni er
m. a. þetta:
• Á þriðjudaginn keypti forset-
inn sér frið af hálfu Bandaríkja-
þings á meðan á Genfarráðstefn-
unni stendur, með því að lofa
þingmönnum því, að senda þeim
skýrslu daglega um gang mála í
Genf. Venjan er sú, að utanríkis-
málaráðherra gefi utanríkismála-
nefnd skýrslu um alþjóðaráð-
stefnur, að ráðstefnunum lokn-
um, en að þessu sinni hefir forset
inn kosið að fara aðra leið, til
þess að eiga ekki á hættu, að
menn eins og McCarthy og aðrir
vekji upp umræður í þinginu,
sem haft gætu skaðleg áhrif í
Genf. — McCarthy hefir nú bor-
ið fram í öldungadeildinni tillögu
um að Bandaríkin slíti stjórn-
I málasambandi við öll kommún-
istaríki og viðurkenni útlaga-
stjórnir þessara ríkja.
, Á þriðjudaginn gerði forsetinn
ógildan hinn svokallaða Dixon
Yates samning um raforkuver í
Memphis í Bandaríkjunum, en
samningur þessi hefir um eins
árs skeið valdið miklum póli-
tískum erjum í Bandaríkjunum.
• Á miðvikudaginn veitti Eisen-
hower heilbrigðismálaráðherran-
ann í stjórn sinni, frú Ovetu Culp
Hobby, lausn frá störfum í náð.
Við embætti hennar tekur Mari-
on Folsom, sem áður var aðstoð-
arfjármálaráðherra.
I Eisenhower hélt fund með
blaðamönnum á miðvikudaginn
og frú Hobby var viðstödd á
tfundinum. — Forsetinn bvrjaði
fundinn með því að ávarpa
frúna og segja: Þetta er mjög
hryggilegur dagur. Síðan skýrði
hann blaðamönnunum frá lausn-
arbeiðni hennar.
Látið er í veðri vaka að frúin
hafi beðist lausnar frá störfum
til þess að geta gefið sig alla að
hjúkrun eiginmanns síns, sem er
maður sjúkur. En hitt er flest-
um kunnugt, að frúin hefir sætt
allharðri gagnrýni fyrir störf sín,
einkum hefir hún verið talin eiga
sök á því, hvernig fór um með-
ferð á Salk-bólusetningunni í
Bandaríkjunum. Ekki jók það
vinsældir frúarinnar, er hún ný-
lega reyndi að koma sökinni á
óförunum í bólusetningarmálinu
á landlækni Bandaríkjanna, Leo-
nard Sheele.
í fyrsfa skipti
WASHINGTON, 15. júlí. — Er
Eisenhower forseti kemur til ís-
lands í dag, er það í fyrsta skipti
á friðartímum, frá því á dögum
Woodrows Wilson, að Bandaríkja
forseti kemur til Evrópu.
í fyrsta skipti á tíu árum munu
æðstu menn stórveldanna fjög-
urra nú hittast til þess að ræða
friðarmál í heiminum.
Ellefu stórar töskur eru á leið-
inni til Genf eða komnar þangað
með skjöl, samninga o. fl. úr
ameríska utanríkisráðuneytinu,
en skjöl þessi varða mál, sem
rædd verða á Genfarfundinum.
Talið er að rædd verði á Genf-
arfundinum allt að því 20 mál.
Hammarskjöld
er
GENF, 15. júlí: — Dag Hammar-
skjold verður „gestgjafi" æðstu
manna stórveldanna á Genfarfand
inum.
Evrópuráð SÞ hefir umráð yfit
Þjóðabandalagshöllinni, þar sem]
fundir stórveldanna verða haldnir.
Hammarskjold hefir verið um'
viku skeið í Genf til þess að und-
irbúa hina miklu ráðstefnu.