Morgunblaðið - 16.07.1955, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 16.07.1955, Blaðsíða 16
Veðurúilif í dag: SV eða V kaldi eða stinnings- kaldi. Rigning öðru hvoru. 158. tbl. — Laugardagur 16. júlí 1955 Meðal V-lslendinga Sjá erindi Gunnars Thoroddsens á blaðsíðu 6 og 7. llngur Reykvíkingur dmkknar í Þingvallavatni ö Þremur félögum hans bjargað á síðustu sfundu — Báf þeirra hvoifdi IGÆRMORGUN bárust þær fregnir út um bæinn að enn hefði orðið banaslys með sviplegum hætti. Austur á Þingvallavatni hafði skemmtibát, sem í voru fjórir ungir menn, hvolft og einn mannanna drukknað. Var það Gylfi Kristinsson, Stýrimannastíg 12, hér í bæ. Félögum hans þrem var bjargað og mátti eigi tæpara 6tanda um björgun þeirra, sem þakka má fröken Ólafíu Sigurðar- dóttur, Njálsgötu 67. VORU AÐ REYNA MÓTOR Þetta hörmulega slys varð á Þingvallavatni klukkan að ganga tvö í fyrrinótt. Þá var gott veður þar eystra. Gylfi heitinn og fé- lagar hans, Viðar Gestsson, Kristinn Sigurjónsson og Jón Norðmann, fóru út á skemmtibát. Var hann með allstórum utan- borðsmótor, sem þeir félagar munu hafa verið að reyna. er bar gæfu til þess að bjarga mönnunum úr bráðri lífshættu. t Gylfi heitinn Kristinsson var aðeins tvítugur að aldri. Hann var einkasonur Kristins J. Mark- ússonar, kaupmanns í „Geysi“ og konu hans, Emelíu Pétursdóttur, mesti efnismaður. Hann starfaði í verzlun föður síns. Æskan horfir vonglöð fram á veginn. Rigning eða sólskin skiptir ekki miklu máli — skapið er ætíð hið sama. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) 400 M UNDAN UANDI Báturinn var kominn um 400 metra leið út frá landi að vestan- verðu við vatnið, út af sumarbú- staðabyggðinni við Heiðabæjar- veginn, er honum hvolfdi skyndi- lega. ÆTLAÐI AÐ NÁ í BÁT Piltarnir fjórir náðu bátnum og héldu sér í hann, allir nema Gylfi heitinn. Hann mun hafa óttast að ekki væri neinnar bjargar að vænta úr landi, þar sem nótt var. Hann sagði við fé- laga sína, að hann myndi reyna að synda að landi, ná í bát og bað þá bíða rólega við bátinn. — Síðan iagði hann af stað. Hann mun hafa verið um það bil hálfn- aður að landi, í hinu nístandi kalda vatni, er honum fataðist sundið og hvarf hann sjónum fé- laga sinna. IIÚN GAT EKKI SOFNAÐ En meðan á þessu stóð hafði Ólafía Sigurðardóttir, gjaldkeri hjá fyrirtækinu Lýsi h.f., til heimilis Njálsgötu 67 hér í bæ, orðið þess vör hvað gerzt hafði úti á vatninu. Hún var í sumar- bústað nokkuð frá ásamt foreldr- um sínum Sigurði Sigurþórssyni í Hafnarsmiðjunni og konu hans, Kristínu Ólafsdóttur. Hafði Ólafía ekki getað sofnað og var á stjái í sumarbústaðnum. Hún mun hafa heyrt til bátsins úti á vatninu, en svo allt í einu tekur hún eftir því að vélahljóðið er þagnað og leit hún þá út á vatnið og sá hvernig komið var. í skyndi vakti hún Sigurð föð- ur sinn. Fóru þau í snatri niður að vatninu, en þar lá bátur Sig- urðar og brunuðu út að mönn- unum, sem héldu sér í bátinn. HJÁLPIN BERST Þegar þau Ólafía og Sigurður komu þangað, mönnunum til bjargar, voru þeir að því komnir að krókna úr kulda. — Var þá bvo af einum þeirra dregið, að hann hafði sleppt bátnum en félagi hans hclt honum uppi. — Annar piltanna var að því kom- lnn að gefast upp vegna kuldans en sé þriðji var furðu hress. Gylfa sáu þau hvergi. IIEIMA í BÚSTAÐNUM Heima í bústað Sigurðar var hlúð að mönnunum eftir föng- um. Var svo dregið af þeim pilt- inum, sem sleppt hafði takinu á bátnum, að óttast var um líf hans fram eftir nóttu. En hann hresstist svo og félagar hans, fyrir góða aðhlynningu fjöl- ekyldu Sigurðar Sigurþórssonar, f gærdag var fjöldi báta að leita á vatninu, en sú leit hafði ekki borið árangur er síðast voru hafðar fregnir að austan. Ný skymasfervél bæfisf í flugKolann EINS og kunnugt er hafa Loftleiðir fest kaup á nýrri fjögurra hreyfla skymaster- vél, og hefir félagið þá orðið þrjár millilandaflugvélar til umráða Er starfsemi þess orðin það viðfangsmikil, að því var nauðsynlegt að auka flugvélakost sinn. Eftir því sem blaðið hefir fregnað, kemur hin nýja vél hingað til lands síðdegis í dag, og verður henni áreiðanlega vel fagnað. Hæstu vmningar í B-flokki í GÆR var dregið í B-flokki Ríkishappdrættisins. — Hæsti vinningurinn 75 þús. kr. kom á miða nr. 18058. Næst hæsti vinn- ingurinn 40 þús. kr. á miða nr. 123,737. Kr. 15 þús. nr. 6408 og 10 þús. kr. vinningar á nr. 4590, 49460, 149689. Kr. 5 þús. vinning- ar á miða nr. 1726, 5656, 12418, 129289 og 142426. Ungur stúdent drukknar SAUÐÁRKRÓKI, 15. júlí — Sá hörmulegi atburður gerðist við Austari Jökulsá í Skagafirði s. 1. þriðj udagskvöld, að ungur mað- . ur, Hólmsteinn Valdimarsson, I einkabarn hjónanna að Stein- i túni í Lýtingsstaðahreppi, drukkn | aði í ánni, er hann lagði til sunds í henni. Hólmsteinn var í vegavinnu við svokallaðan Austurdalsveg efst í Skagafirði. Var vegavinnu- flokkurinn skammt innan við j Bústaði, en þar fyrir neðan fell- , ur áin í miklum þrengslum og er straumhörð. Mun Hólmsteinn hafa ætlað að synda þarna yfir ána að lokinni vinnu á þriðju- dagskvöldið, en fataðist sundið og drukknaði. — Lík hans hefir ekki fundizt enn. Hólmsteinn var aðeins tvítug- ur að aldri. Hann lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum á Akureyri s. 1. vor. Svíarnir unnn Rvík- urúrvalið 4: Haeken vann úrvalslið Heykjavík- ur í gærkveldi nicð 4:1. Leikar Stóðu 2:1 í fyrri hálfleik. Komið goll veður fyrir norðan SIGLUFIRÐI, 15. júlí: — Eftir á þriðja sólarhrings brælu og þoku hér fyrir norðan, birti til í kvöld, og sjó var tekíð að lægja. Við Grímsey hafa legið um 50 Skip og mörg á Siglufirði. Héldu þau á miðin í kvöld. — Guðjón. Vegabréfsárilun óþörf til Tyrkiands MEÐ ERINDUM, dags. 28. júní 4955, hafa sendiherrar íslands og Tyrklands í París gert sam- komulag um afnám vegabréfs- áritana fyrir borgara annars landsins, sem ferðast vilja til hins, enda sé ekki um launaða atvinnu eða lengri dvöl en þriggja mánaða að ræða. Samkomulagið gekk í gildi hinn 1. júlí 1955. (Frá utanríkisráðuneytinu). Svíarnir bættu svo tveimur mörk um við í síðari hálflcik og unnu réttmætan sigur. Rússneska sýning;- in verður seld VERZLUNARFULLTRÚI Rússa hér, Shchelokov, hefur leitað til heildverzlunar Kristjáns Gísla- sonar, uru að hún taki að sér að selja allan þann varning, sem verið hefur til sýnis á rússnesku vörusýningunni í Miðbæjarskól- anum cg Listamannaskálanum. Hér er um allmargar vöruteg- undir að ræða, ýmiskonar vélar, rennibekkir, bílar og landbún- aðarvélar. Einnig mikið af lækn- ingaáböldum, sem eru talin vera ailmikils virði, ýmiskonar mæli- tæki, Ijósmyndavélar, sýninga- vélar fyrir bíó og rafvólar. Þá er ailmikið magn af álnavöru, tepp- um og grávaran öll, en þar á meðal er minkapels og aðrir tveir úr Karakúlskinnum, og mikið af krystalvörum og fleira. íiögrefflaii eltir tvær unsiar C1 o <o stúlkur upp í Hvalfjörð | Höföu stolfð tíilklum peuingum - IFYRRINÓTT komust tvær ungar stúlkur hér í bænum, í kast við lögregluna. — Þær höfðu farið inn í mannlaust herbergi og stolið þar 4.500 krónum. SKRIÐU INN UM GLUGGA Um klukkan 10 í fyrrakvöld var því veitt eftirtekt við hús eitt hér í bænum, að tvær ungar stúlkur komu út úr leigubíl, fóru á bak við húsið og skriðu þar inn um glugga í þvottahúsi. Nokkru síðar komu þær út úr húsinu og hurfu á brott í bílnum. ★ Það kom nokkru síðar í ljós, að stúlkurnar höfðu farið inn í herbergi bílstjóra nokkurs sem leigir herbergi í kjallaranurn. — Þar höfðu horfið 4500 krónur. SÁ BÍLNÚMERIÐ Húsráðandinn hafði orðið var við ferðir stúlknanna og mun hafa þótt þær grunsamlegar, því hann skrifaði hjá sér númer leigu bílsins og gat gefið rannsóknar- lögreglunni það upp, er hún var beðin að upplýsa þjófnað þenna. ÞRIGGJA BÍLA VARÐ AÐ LEITA Hófst nú leit um bæinn að bílnum með stúlkunum tveim. Hann varð á vegi lögreglumann- anna um miðnættið. En þá voru stúlkurnar farnar úr honum. — Bílstjórinn vissi ekki hverra er- inda þær höfðu farið í húsið. Það upplýstist að stúlkurnar höfðu farið í annan leigubíl. Hófst nú leit að honum um allan bæinn. Hann fundu lögreglumenn laust fyrir klukkan 1 um nóttina og enn gripu lögreglumennirnir í tómt, því stúlkurnar höfðu farið Utanríkisráðherra farinn á ráðherra- íund DR. KRISTINN Guðmundsson, ut anriki-sráðherra, hélt á fimmtu- dagsmorgun af stað áleiðis til Parísar. Mun hann sitja ráðherra- fund Norður-Atlantshafsbanda- 1 lagsins er þar hefst í dag. (Frá utanríkisráðuneytinu) úr bílnum fyrir nokkurri stundu, yfir í annan leigubíl og höfðu þær ætlað I honum vestur i Stykkishólm!! Nú var þessum bíl veitt eftir- för út úr bænum og ekið hratf upp í Hvalfjörð. Er lögreglu- mennimir komu inn í Hvalfjarð- arbotn, náðu þeir bílnum, með stúlkunum. — Þær höfðu boðið með sér ungum pilti í ökuförina vestur. Var bílnum með þær snúið við til Reykjavíkur. Báðar voru stúlkurnar undir áhrifum áfengis. V. 19 OG 16 ÁRA Önnur stúlknanna, sú sem eldrl var, 19 ára, viðurkenndi í gær að hafa stolið peningunum. Hún hafði notað nokkuð af þeim til að greiða með ýmsar lausaskuld- ir, borgað gat hún nokkuð til baka, en fyrir öðru, sem hún hafði eytt af þýfinu, gat hún ekki gert grein fyrir. Vinkona hennar, sem er 16 ára, virðisl standa utan við þetta mál, þann- ig að sú eldri lagði á ráðin og framkvæmdi þjófnaðinn. — Hún kvaðst hafa ætlað vestur í Stykk- ishólm til að hitta þar ungan mann! mmmm 1 REYKJAVlK H ABGDEFGH3 ASGVEFGHl SIOIKHÓLMOK ) 22. De3xDe7 Rc6xDe7 1 23. Hdl—d8f Kg8—g7 j 24. HdS—e8 Re7—c6 ]

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.