Morgunblaðið - 21.07.1955, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 21. júlí 1955 I
HJÓNABANDSÁST
EFTIR ALBERTO MORAVÍA
Framh'aldssagan 36
„Já, alltaf", svaraði hún, án
hiks.
Ég sagði við sjálfan mig, að
hún væri ekki að segja ósatt. —
Sennilega hugsaði hún ávallt um
mig og hafði einnig gert það —
jafnvel skömmu áður, er hún
hafði gefið sig Antonio á vald, á
þreskiloftinu.
Auðvelt var að koma auga á
mótsögn í hugsunum hennar til
mín og viðhorfi, svo stöðugt og
svo áhrifalaust var það viðhorf,
að það hafði ekki einu sinni brost
ið mátt til að hindra hana í því
að svíkja mig, heldur hafði það
og líka gert svik hennar meira
lokkandi og ginnandi í hennar
augum.
En ég kaus heldur að telja sjálf
um mér trú um það, að hún hefði
raunverulega alltaf um mig hugs
að, eins og maður hugsar um ó-
ráðna, en samt bráð nauðsynlega
spurningu, sem snertir hann og
varðar meira, en allt annað. —
Hugsanir hennar voru, e. t. v. und
ir stjórn góðvildar, en mig lang-
aði til að álíta alla þætti skap-
gerðar hennar, að góðvildinni und
anskilinni, myrkva, torskilda og
ruglingslega. Þar var að finna
orsákir fyrir falli hennar á freist
ingástund sem þeirri, er hún
fleygði sér í faðm rakarans. Ég
viðurkenndi á engan hátt mikil-
vægi góðvildarinnar, sem ég áleit
samansetta af röksemdafærslu
óg almennri skynsemi, einvörð-
ungu. Hins vegar mat ég því
meira eðlishvöt, sem ég áleit
vera lífsnauðsynlega ástum og
listum.
Hins vegar trúði hún á ofur-
gildi þessarar góðvildar, sem hún
greinilega áleit sinn mesta skap-
gerðarkost, en fordæmdi eðlis-
hvöt sem hún dæmdi ranga og
ófullkomna.
Ég minntist þeirrar staðreynd-
ar, að maður er jafnan gjarnast-
ur á að elska það, sem maður
hvorki á né getur aflað sér.
Sökum sinnar sterku eðlishvaf-
ar aðhylltist hún hina hreinu
skynsemi, þar sem ég hins vegar,
troðfullur af blóðlausri skyn-
semi, dáði að sjálfsögðu auðlegð
eðlishvatarinnar.
„Og hvað er þá um listina að
segja“, sagði ég. „Getur góðvild-
in skapað hana?“
Hún þagði um stund og ég hélt,
að hún hefði, e. t. v. ekki heyrt
orð mín, sem ég hafði mælt í
hljóði,-en svo tók hún til máls,
lágri og ástúðlegri röddu:
„Jæja, nú skaltu reyna að koma
þér á fætur.....Og nú skal ég
segj a þér, hvað við skulum gera.
Ég ætla að fara upp í svefnher-
bergið mitt, hátta og leggjast í
rúmið og svo kemur þú og lest
söguna upp fyrir mig.......Þá
■skulum við bara athuga hvort
hún raunverulega er eins slæm
og þú heldur".
A meðan hún var að tala, reis
hún upp úr sæti sínu, með áköf-
um hreyfingum og ákveðnum
svip.
Ég gerði hið sama, óánægður
yfir þessari fyrirhöfn, sannfærð-
ur um ónýti sögunnar og tilgangs
leysi alls þessa umtals og um-
Stangs. En Leda stöðvaði allar
mínar hugsanlegu mótbárur, með
því að leggja höndina yfir varir
mér og segja:
„Nú, jæja, komdu þá......Það
er of snemmt ennþá að fullyrða
nokkuð um söguna þína......Nú
fer ég inn í svefnherbergið mitt
og þú getur komið þangað að
vörmu spori".
Og áður en ég gat svarað einu
orði, var hún farin út úr stof-
unni og hurðin féll að stöfum á
hæla henni.
Þégar ég var orðinn einn, gekk
ég að skrifborðinu og tók ósjálf-
rátt að blaða í handritinu.
Hin meðfædda góðvild konunn
ar minnar virtist fara sívaxandi.
Gat ég vonað, að sú góðvild
myndi vinna bug á næstu freist-
ingu? Mér var ljóst, að framtíð-
in ein gat svarað þeirri spurningu
minni, þótt knýjandi væri.
Ég kveikti mér í vindlingi og
stóð hreyfingarlaus, reykjandi,
við skrifborðið.
Þegar ég áleit nægilega langa
stund liðna, yfirgaf ég stofuna,
gekk með handritið undir hend-
inni að svefnherbergi Ledu og
drap á dyr.
! Hún svaraði þegar og bauð mér
í léttum og glaðlegum tón, að
ganga inn.
Hún var þá þegar komin í rúm-
ið og sat upp við dogg, í snyrti-
legustu náttfötum með fleignu
hálsmáli og knipplingum. Her-
bergið var rökkvað nema hvað
daufur Ijósbjarmi féll á höfða-
lag rúmsins, frá náttlampanum
á borðinu. Hún hallaðist að kodd-
anum með armleggina hvílandi á
hvítum rekkjuvoðunum, brosmild
og eftirvæntingarfull á svipinn.
Hún var fögur og á andliti
hennar hvíldi þessi skínandi heið
ríkja og leyndardómsfulla rósemi,
sem framar öllu öðru virtust
skapa fegurð hennar og þokka.
Ég virti hana þannig fyrir
mér, og varð undrandi, er ég
hugsaði til þess, að andlit henn-
ar, sem nú var svo mjög rólegt
og bjart, hefði skömmu áður af-
i myndast í tryllingslegum losta-
■ svip.
1 Hún sagði brosandi:
! „Reyndu nú að hressa upp á
skapið. Þú sérð að ég hef klæðst
mínum fínasta náttkjól, til þess
að hlusta á söguna þína“.
i Ég settist á rúmstokkinn fyr-
ir framan hana og sagði:
„Ég les söguna eingöngu vegna
þess, að þú æskir þess. .... Ég
er þegar búinn að segja þér það,
að hún er misheppnuð og einskis
virði".
„Skiftir ekki máli......Byrj
aðu nú á lestrinum, ég er reiðu-
búinn að hlusta".
Ég tók fyrstu blaðsíðuna og hóf
lesturinn. Ég las alla söguna, við-
stöðulaust, án þess að nema stað
ar, eða taka mér hvíld, en gaf
henni öðru hvoru hornauga, þar
sem hún hlustfjði, alvarleg á
svip, með vakandi athygli. Með-
an ég las, staðfestist ég í fyrri
skoðun minni á sögunni: Efnið
var sómasamlegt og þar með var
allt sagt. Samt sem áður virtust
mér nú þessi „sómasamlegheit",
sem stuttu áður voru að mínum
dómi aðeins einskis virði einkenni
meira virði, en ég hafði ímyndað
mér.
Allan tímann brauzt sú spurn-
ing um í huga mér og krafðist
svars, spurningin um það, hvað
konan mín myndi segja, að lcstri
loknum.
Mér virtust tvær leiðir standa
henni opnar til að velja um, önn-
ur var sú að hrópa samstundis:
„En Silvidq, hvað meinarðu eig-
inlega! Sagan er verulega góð!“
Seinni leiðin var sú, að viður-
kenna söguna s'em misheppnað
miðlungsverk. Fyrri leiðin var
leið hirðuleysis og blekkinga, að
telja mér trú um að sagan væri
góð, þótt henni sjálfri þætti hún
einskis virði, (og annað gat henni
ekki fundizt um hana) með því
sýndi hún berlega vilja sinn til
að draga mig á tálar og sannaði
jafnframt, að ekki væri að ræða
um annað samband okkar á
milli, en það sem einkenndist af
ósannindum og meðaumkun frá
hennar hálfu.
Seinni leiðin var leið ástarinn-
ar, jafnvel þótt það væri aðeins
ást eins og hennar, sem byggðist
á góðvild og ástúð . j
Ég braut heilann um það, og
ekki án kvíða, hvaða leiðina hún
myndi velja sér. Ef hún segði, að
sagan væri góð, hafði ég ákveðið
að hrópa: „Þessi saga er einskis
virði og þú ert sjálf ekkert ann-
DEPILL LITLI
Eftir M. H.
1
„Mamma! mamma! Megum við eiga hann, megum við
eiga hann,“ hrópuðu Lóa og Óli hvert í kapp við annað og
komu hlaupandi heim að húsinu þar sem mamma þeirra
var að sópa útidyraþrepin.
i „Gerðu það mamma ha?“ sagði Óli.
„Góða mamma gerðu þaðsagði Lóa. Hún hélt á ofur-
litlum kettling í fanginu.
. „Hvar hafið þið náð í þetta?“ spurði mamma þeirra.
I „Það var maður, sem gaf okkur hann. Maðurinn var með
hann í poka,“ svöruðu börnin bæði í einu. I
„Lofaðu okkur að eiga hann, elsku mamma — og sjáðu
bara hvað hann er ósköp lítill og fallegur,“ bætti Lóa við,
því henni fannst mamma sín ekki vera nógu hrifin .á svip-
inn. „Og hann á enga mömmu og engan pabba og engin
systkin.“
„Mjá,“ heyrðist mjótt og veikt í kettlingnum, eins og
hann væri að samþykkja það, sem Lóa sagði.
Mamma brosti og tók kettlinginn. Hann var svo lítill, að
hann gat hringað sig í lófa hennar, svartur hnoðri með
hvítan blett á bakinu.
„Jæja,“ sagði hún. „Það er þá bezt að kalla hann Depil,
vegna þess að hann hefur hvítan depil á bakinu. En þið
verðið að vera góð við hann, og gæta hans vel, því allir eiga
að fara vel með dýrin.“
„Já, já, hrópuðu Lóa og Óli. „Þú ert góð mamma, að lofa
okkur að eiga hann.“
„Ég ætla að gefa þér eitthvað mikið fallegt í jólagjöf,“
sagði Lóa.
Leirböð
Við höfum leirböð. — Þau eru innanhúss. — 3
S
Dvalarkostnaði mjög stillt í hóf. — Ekkert 3
3
■
sérgjald fyrir böðin, *!
■
■
Skíðaskálinn i Hveradöium 3
CASCO-L'IM
Fljótandi og duft, vatnsþétt og litlaust.
Leitið upplýsinga um CASCO PLUGG og
PLASTRA hjá járnvöruverzlunum.
Heildsölubirgðir:
SHBRSIHMiinHtJÍHHSBHf
Grjótagötu 7 — Símar 3573—5296
VIÐGERDIR
á eftirtöldum tækjum:
E A S Y þvottavélum
BLACK & DECKER rafmagnshandverkfærum
PORTER CABLE do.
R C A ESTATE eldavélum
A B C olíukyndingartækjum
P & H rafsuðutækjum
HARRIS logsuðutækjum
RIDGE snittvélum
a n n a s t :
Raftækjavinnustofa Jóns Cuðjónssonar
Borgarholtsbraut 21 — Simi 82871
Mjallhvitar-hveitið
fæst i öllum búðum
£~
SnowWiftrtj^ic*
wEmm
50 kg.
25 kg,
10 pund
5 pund i
5 punda bréfpoki
10 punda léi eftspoki
Iiveitið er framleitt aðeins úr bezta
hveitikorni
Biðjið ávallt um
Snow White" hveiti
(Mjallhvítarhveiti)
//
Wessanen tryggir yður vörugæðin
Bext að auglýsa r MorgunblaBinu -