Morgunblaðið - 04.08.1955, Síða 8
8
MORGIJJSBLAÐIÐ
Fimmtudagur 4. ágúst 1955
Ú4*,: H.f. Arvakur, Reykjavflc
Framkv.stj.r Sigfús Jónsson.
Ritstjórl: Valtýr Stefánsson (ábyrgCarm.)
Stjómmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vl*Vo
Lesbók: Arni Óla, sími 3045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinxaon.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Askriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanlamfa.
í lsuaasölu 1 krónu eintakið.
*
Ur daglega lífinu ® Feglar leita oppl. í himinJivoIfinu
Finnland eg Elorðurlandaráðið
IÞANN mund, er forsetar Norð-
urlandaráðs halda fund hér
á landi er tímabært að minnast á
afstöðu Finnlands til þessarar
stofnunar. Eins og kunnugt er
töldu Finnar sig ekki geta tekið
þátt í þessum samtökum nor-
rænna þjóða, er ákveðið var að
setja þau á laggirnar haustið
1952. En þeir tóku þátt í undir-
búningsstarfinu að myndun
þeirra og lýstu því þá yfir, að
þeir teldu mikils um vert, að
Norðurlandaráðið yrði stofnað.
Hinsvegar væri aðstaða þeirra sú,
að þeir ættu í bili erfitt með að
vera þar með.
Engum blandaðist hugur
um að það var tillitið til Rússa,
sem réði þessari afstöðu Finn-
anna. Það kom líka á daginn,
að Rússar litu Norðurlanda-
ráðið óhýru auga, sögðu að það
væri ein grein Atlantshafs-
bandalagsins, sem hefði það
hlutverk að tæla Svía og
Finna inn í það.
Að því hafa margsinnis verið
leidd rök, að þessi staðhæfing
Rússa er gersamlega út í bláinn.
Norðurlandaráðið hefur aldrei
fjallað um landvarnarmál Norð-
urlanda. Hlutverk þess er allt
annað, nefnilega að auka efna-
hagslega og menningarlega sam-
vinnu hinna norrænu þjóða,
víkka svið norrænnar samvinnu
og gera hana sem raunhæfasta og
jákvæðasta. En kommúnistar
hafa engu að síður hamrað á því,
að Norðurlandaráðið væri angi
af Atlantshafsbandalaginu.
Pravda hefur haldið áfram að
skamma það á þessum grund-
velli.
Nú hefur þátttaka Finnlands í
Norðurlandaráði blandast inn í
finnsku forsetakosningarnar.
Blöðin hafa rætt málið af kappi
og fyrirspurn hefur verið beint
til allra frambjóðendanna um af-
stöðu þeirra til málsins. Hafa þeir
allir nema tveir lýst því yfir, að
þeir væru fylgjandi þátttöku
Finna í ráðinu. Frambjóðandi
kommúnista, Eino Kilpi, hefur
hinsvegar lýst sig mótfallinn
henni og Kekkonen forsætisráð-
herra, frambjóðandi Bænda-
flokksins hefur ekki svarað fyr-
irspurninni. Er talið að hann vilji
bera kápurta á báðum öxlum
gagnvart málinu.
Um afstöðu hinna Norður-
landanna til þátttöku Finna í
Norðurlandaráði leikur eng-
inn vafi. Það hefur komið
fram á fundum ráðsins bæði
af hálfu íslendinga, Svía, Norð
manna og Dana, að þeir óska
þess eindregið að Finnar gangi
í þessi víðtækustu samtök,
sem mynduð hafa verið tii efl-
ingar norrænni samvinnu. Síð
ast nú fyrir fáum vikum lét
Haraldur Guðmundsson, for-
maður Alþýðuflokksins þá ósk
í ljós á fundi Norræna þing- j
mannasambandsins, sem hald-
inn var í Kaupmannahöfn, að
Finnland mætti sem fyrst
ganga í Norðurlandaráðið.
Sannleikurinn er líka sá, að
Finnar hafa þegar tekið þátt í
ýmsum ráðstöfunum, sem gerðar
hafa verið að undirlagi ráðsins
til aukins samstarfs Norðurlanda
þjóðanna á ýmsum sviðum. Má
segja að sæti þeirra hafi beðið
autt eftir þeim, hvenær sem þeir
teldu hyggilegt að hefja formlega
þátttöku í samtökunum.
Það var frá uppháfi ætlunin að
I að Norðurlandaráðið yrði samtök
jallra hinna norrænu þjóða. Sér-
staða Finna gagnvart Rússum,
varúð þeirra gagnvart hinum
austræna risa, varð þess valdandi,
að þeir töldu sér ekki mögulegt
að vera með frá byrjun.
Má og segja að dimmra hafi
verið í lofti haustið 1952 í alþjóða
málum en nú er. Nokkuð hefur
nú rofað til og vilja Rússar a.m.k.
láta líta svo út sem þeir vilji nú
umfram allt afmá öll spor „kalda
stríðsins".
Vel má því vera að Finnar telji
viðhorfin svo breytt nú, að þeir
I geti hafið þátttöku í Norðurlanda
ráðinu. En möguleika sína til þess
verða þeir auðvitað að meta sjálf
ir. Svör forsetaefnanna í finnsku
forsetakosningunum benda til
þess, að þeir telji aðstöðu sína til
þess betri nú en fyrir þremur ár-
j um, þegar ráðið var sett á lagg-
irnar.
íslendingar mundu fagna
því, ef Finnar teldu sér fært
að taka þátt í sem víðtækustu
norrænu samstarfi. Það
myndu Danir, Norðmenn og
Svíar áreiðanlega gera einnig.
Finnar eru útvörður Norður-
landa í austri á sama hátt og
ísland er það í vestri. Og tak-
mark Norðurlandaráðsins er
það eitt, að stuðla að bættri að
stöðu hinna norrænu þjóða, út
á við og inn á við, í friðsam-
legu starfi og uppbyggingu
landa sinna og þjóðfélaga. Það
er því gersamlega ástæðulaust
að gera því skóna, að það
hyggi á nokkurskonar hernað-
arlegar aðgerðir gagnvart ein-
um eða neinum.
# þágu friðar
UM þessar mundir eru haldnar
tvær merkar ráðstefnur vísinda-
manna, önnur í Kaupmannahöfn,
en hin í Lundúnum. Fjallar ráð-
stefnan í Kaupmannahöfn um há-
loftarannsóknir og möguleikana
á því, að mennirnir geti haldið út
í órafjarlægðir háloftanna, en
Lundúnaráðstefnan fjallar um
kjarnorkuna í stríði og friði.
Segja má með nokkrum sanni,
að vísindunum miði nú lengra
áleiðis á einum degi en mörgum
öldum áður fyrr, og er nú raunar
svo að sjá, að það sé orðið fátt
eitt, sem vísindamennirnir ráða
ekki við. — Kjarnorkan hefir
verið beizluð, svo að nú er hægt
að eyða stórborgum og jafnvel
heilum landsvæðum á einni
nóttu. Vísindamennimir á Lund-
únaráðstefnunni vilja því leitast
við að gera öllum heiminum heyr-
in kunnugt, hvílík gjöreyðing er
fyrir dyrum, ef kjarnorkustyrj-
öld skylli á. Þeir vilja benda
mönnum á, að eftir slíka styrjöld
verði jörðin ein rjúkandi rúst,
lífvana og gróðurlaus, eins og
Bertrand Russel komst að orði í
ræðu sinni á ráðstefnunni í dag.
Vísindamennirnir á báðum ráð
stefnunum vilja, að hæfileiki
mannsins og vísindaafrek verði
notuð til góðs, svo að nýir tímar
friðar og velmegunar megi ríkja
á þessari jarðkúlu okkar, sem nú
virðist allt í einu orðin svo ofboð
lítil miðað við það, sem áður var.
Allur heimurinn væntir þess,
að kjarnorkan verði einungis
beizluð til friðsamlegra starfa og
háloftarannsóknimar geri mann-
inum kleift að víkka út þekkingu
sína — leita hýrrá æfintýra án
ótta við styrjaldir og gfitnmdar-
æði.
I
FERÐIN til tunglsins er á dag-
skrá. Vér lifum á tímum atom
og geimvísinda. Forstjóri stjörnu
turnsins í París, André Danjon,
i hefir látið svo um mælt: Sú
ákvörðun Bandaríkjanna að
senda gervihnött út í himingeim-
inn boðar í raun og veru ekkert
nýtt, stefnt hefir verið að þessu
marki frá því að fyrstu eldflaug-
arnar voru gerðar í síðasta stríði.
Bandaríkjamenn hafa eins og
kunnugt er nú þegar sent, eld-
flaug upp í næstum 400 km. hæð.
Með þeirri vitneskju, sem vís-
indamenn búa nú yfir, væri hægt
að gera hina furðulegustu hluti,
hélt Danjon áfram. Til þessara
hluta vantar aðeins peninga. Ég
lít svo á að hægt myndi vera með
skömmum fyrirvara að undirbúa
J geimferð til tunglsins, ef einhver
ein eða fleiri þjóðir vildu leggja
fram milljónirnar, sem til þarf.
Augljóst er að ferðin til tungls-
ins — hvenær svo sem hún verð-
ur farin — verður dýr. Gervi-
hnötturinn, á stærð við fótknött,
sem Bandaríkin ætla að senda út
í himinhvolfið árið 1958 á að
kosta um 160 milljónir króna, ef
áætlanir standast. En flestum ber
saman um að áætlanirnar séu of
lágar, sumir segja allt of lágar,
nefnd hefir verið himinhá upp-
hæð í þessu sambandi, eða
milljónir dollara.
VeLk andi áhri^ar:
„Regla íslenzka víkingsins“
FYRIR nokkru fékk ég bréf frá
„Víkingi", sem hljóðar á
þessa leið:
I „Ég held, að það hafi verið í
fyrra, sem ég hitti útlendinginn,
sem flogið hafði í íslenzkri flug-
vél norður fyrir heimskautsbaug
í miðnætursól júní-mánaðar. —
Hann hafði meðferðis skjal þessu
til staðfestingar, nokkurs konar
heiðursskjal, gefið út af Flugfé-
t lagi íslands, þar sem staðfest var,
svart á hvítu, að hann væri þar
| með réttu einn af „reglu íslenzka
I víkingsins" — The Order of the
| Icelandic Viking — eins og það
' stóð á skjalhausnum. — Útlend-
j ingurinn Ijómaði eins og Sól í
1 framan af ánægju og hreykni —
og einlægri hrifningu yfir þessari
ógleymanlegu og einstæðu
reynslu sinni og hann fór heldur
ekkert í felur með staðfestingar
plaggið, heldur sýndi það hverj-
um og hvar sem færi gafst, með
Íflóði af áhrifamiklum lýsingar-
orðum um þennan merkilega at-
burð í lífi hans. —- Þetta var, vel
að merkja, Englendingur.
M
Sjálfur einn af
reglunni
ÉR þótti útlendingurinn, í
gleði sinni og hrifningu ó-
' neitanlega dálítið barnalegur, en
1 samt hafði ég gaman af þessu og
— viti menn! Nú er ég sjálfur
orðinn meðlimur þessarar merki-
legu reglu íslenzka víkings og ég
fékk heiðurs-skjalið, svo sem
vera bar, sams konar og það, sem
ég hafði séð Englendinginn veifa,
sem hróðugastan fyrir ári síðan.
1 Ég brá mér sem sé á síðustu Jóns
messu norður til Grímseyjar og
norður fyrir heimskautsbauginn
! og naut þar fegurðar miðnætur-
sólarinnar í eins ríkum mæli og
hugsast gat.
Skemmtileg hugmynd
ÞAÐ er áreiðanlegt, að enginn,
sem tekst á hendur slíkt ferða
lag — og er heppinn með veður
iðrast þess eftir á og mér finnst
líka skemmtileg þessi hugmynd
um stofnun sérstakrar reglu —
hins íslenzka víkings, þeirra,
sem gerzt hafa svo frægir að
horfa á miðnætursólina norðan
heimskautsbaugs. — Auðvitað er
það allt í gamni gert og skjalið
sjálft í þeim anda. Það er í senn
smekklega og skringilega úr
garði gert og skemmtilegur
minjagripur fyrir útlenda gesti,
sem heimsækja landið, enda mun
það gefið út fyrst og fremst sem
slíkt.
Hálf lúrt
EN það er nú sama. Það eru
ekki einungis útlendingar,
sem nota sér þessar skemmtiferð
ir norður í heimskauts-sólina,
heldur fjöldamargir íslendingar
líka og þeim finnst hálf !úrt að
vera dubbaðir til riddara víkings
reglunnar íslenzku —- á ensku!
Því leikur mér forvitni á að vita,
hvort háttvirt Flugfélag ísJands
sæi sér ekki fært að láta prenta
regluskjalið á móðurmálinu einn-
ig. Þannig væri það okkur íslend
ingum mun skemmtilegri eig'n til
minningar um „heimskauts“-för-
ina. — Með virðulegri reglu-bróð
urkveðju.
Víkingur".
Gagnleg viðvörun
RAUNSÆISMAÐUR hefir orð-
ið.---------
„Kæri Velvakandi!
Mér þykir kvikmyndin „Mor-
fin“, sem Bæjarbíó í Hafnarfirði
sýnir um þessar mundir, ein hin
athyglisverðasta, sem völ hefir
verið á hér í kvikmyndahúsunum
um langt skeið. Það er ekki ein-
ungis, að hún sé afbragðs vel leik
in, heldur er hún gerð af óvenju-
lega miklu og tilgerðarlausu raun
sæi. — Miskunnarlausu raunsæi,
kann. ýmsum að finnast, með
endalok myndarinnar sérstaklega
í huga, en einmitt þess vegna —
hvernig hún endar, verður mynd-
in í heild gagnleg viðvörun, öll-
um þeim, sem á hana horfa, ekki
aðeins gegn hinni háskalegu mor-
fin-nautn, heldur og gegn hætt-
unni af hvers kohar nautna-sýki,
sem hið breyska mannsins eðli
er undirorpið. Það er enginn re;.’f
ara-blær yfir þessari mynd, né
heldur neinn glansmyndar-stíll!
— og gildir það einu, við fáum
nóg af slíku samt.
Raunsæismaður".
Merkið,
sem
klæðir
landið.
EN hvað um það þótt Hafliði sé
dýr. Nicolet prófessor, fram-
kvæmdastjóri alþjóðanefndar
jarðeðlisvísinda hefir bent á, að
með gerfihnöttunum sé á tveimur
klukkustundum hægt að afla
meiri upplýsinga heldur en með
tíu til tuttugu ára lýjandi starfi í
öllum rannsóknarstofum í heim-
inum.
Þess er vænzt að gerfihnettirn-
ir sendi látlaust frá sér radio-
skeyti til jarðarinnar með upplýs
ingum sem teknar eru upp á tæki
sem komið er fyrir inni í hnött-
unum. Vísindamenn um allan
heim munu fylgjast með hnött-
unum, þeim verður skýrt frá
brautinni, sem þeir fara eftir um-
hverfis jörðina — yfir norður-
og suðurheimsskautið — og frá
tíðni útvarpssendinganna. Þannig
fá vísindamennirnir ómetanlegar
upplýsingar um geimgeisla, út-
varpsöldur, um norðurljós og önn
ur náttúrufyrirbæri.
★
Raunar er gervihnötturinn að-
eins til á pappírnum eins og er
— þann dag í dag er hann saman-
settur aðeins úr stærðfræðifor-
múlum, uppdráttum og uppskrift
um um rejmslu, sem dregin hefir
verið saman á undanförnum tíu
árum í landvarnaráðuneytinu í
Bandaríkjunum. Tveir sérfræð-
ingar, þýzkir, og einkum þó ann-
ar þeirra, dr. Werner von Braun,
— hinn heitir dr. Hermann
Oberth — hafa stjórnað eldflauga
tilraununum vestan hafs. Þessir
menn áttu frumkvæði að þýzku
eldflaugunum, V—1 og V—2.
★ ★ ★
Gerfihnettirnir hafa verið kall-
aðir „fuglarnir“. „Fuglarnir
verða sendir í loft upp svo að
þeir geti skýrt okkur frá því,
hvernig umhorfs er þarna uppi í
himinhvoifinu", sagði dr. Water-
mann, annar vísindamannanna,
sem viðstaddur var í Washington
þegar fyrsta tilkynningin um
gerfihnettina var birt.
„Gufuhvolf jarðar verkar eins
og geysistór skjöldur, sem ver
jarðarbúa fyrir ýmiskonar geisla
verkunum eins og útfjólubláum
geislum og geimgeislum og fyrir
öðrum hlutum, eins og loftstein-
um, frá hinu ytra hvolfi. En um
leið hylur gufuhvolfið mönnum
sýn ýmissa þeirra hluta, sem auk-
ið gætu þekkingu þeirra á alheim
inum“. Þessvegna er mikilsvert
að koma tækjum, sem geta sent
frá sér upplýsingar til jarðar, út
fyrir gufuhvolfið.
★ ★ ★
EN gerfihnettirnir — „fuglarn-
ir“ — eru aðeins fyrsti áfang-
inn. Næsti áfanginn er að komið
Erh. a bls. 12.