Morgunblaðið - 24.08.1955, Síða 1
16 síður
42. árgangur
190. tbl. — Miðvikudagur 24. ágúst 1955.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þrjú hraðamet í Stórfetd herför
Atiantshafsflugi [ í Norður-Afríku
Lflndon — Hlevv Vork —
london á 14,21 klst
London 22. ágúst.
ÞRJÚ ný heimsmet í flugi
yfir Atlantshaf voru sett
af brezkri Canberra þrýsti-
loftsflugvé! í dag. Flugvélin
flaug fram og aftur yfir hafið
frá London um New York til
London aftur á 14 klukku-
stundum 21 og þrem f jórðu úr
mínútu.
Flugleiðin, sem flugvélin fór
®r tæplega 7000 mílur. Meðal-
hraði flugvélarinnar á allri flug-
leiðinni var 481 míla á klst.
- Flugvélin lagði af stað frá
London, eftir að flugmennirnir
höfðu snætt morgunverð. Tæp-
lega sjö og hálfri klukkustundu
síðar lenti flugvélin á flugvelli
skammt frá New York. Vélin fór
með 461 mílu hraða á klst. á
vesturleið.
Flugvélin var ekki fyrr lent
en afgreiðslumenn hófu að fylla
á benzíngeyma vélarinnar. Hálfri
stundu síðar var flugvélin lögð af
stað austur um haf.
Metin sem sett voru með þessu
flugi eru:
Hraðámet á flugi vestur um
Atlantshaí.
Hraðamet á flugi austur um
Atlantshaf.
Og hraðamet á flugi vestur og
austur um Atlantshaf í einum
áfanga.
Engín mök við
vinstri-krata
RÓMABORG, 22. ágúst — Mið-
stjórn kristilega demokrata-
flokksins í Ítalíu er sögð hafa
gert þá samþykkt, að ekki skuli
teknir vinstri sósíaldemókratar
inn í ítölsku stjórnina. Miðstjórn-
in var sammála um það að ekki
kæmi til greina að vinstri kratar
fengju sæti í stjórninni fyrr en
þeir hefðu slitið öllu sambandi
við kommúnistaflokkinn.
Sendiför fyrrverandi
sfríðsglæpamanm
TÓKÍÓ, 22 ágúst. — SHgemitsu,
utanríkisráðherra Japana, legg-
ur af stað í kvöld í opinbera
heimsókn til Bandaríkjanna. •—
ShigemiLu var eftir síðasta stríð
ákærður fyrir stríðsglæpi en
;,hreinsaður“ síðar.
Tíundi fundurinn:
Enginn árangur
GENF, 22. ágúst — Fulltrúar
Bandaríkjanna og Kína-kommún
ista komu saman á tíunda fund
sinn í dag. Fundurinn stóð í 27
mínútur.
Þeir eru sagðir ræða um
heimsendingu 40 Bandaríkja-
manna frá Kína og nokkurra
tuga kínverskra stúdenta frá
Bandaríkjunum til Kína. Banda-
ríkjamenn segja að stúdentunum
sé frjálst að fara til Kína hve-
nær sem þeir óska þess.
Yfirburða flugvél þessi, sem kölluð er „Bell — X — 2“ fer með meira en 3000 km hraða á klukku-
stund. Flugvél þessi var reynd fyrir nokkrum dögum og flugtakið átti sér stað frá „móður-flugvél“
í mikilli hæð yfir Edwards flugstöðinni í Kaliforníu.
Súdanbúar ráða
j málum sínum til
lykla
KHARTOUM, Súdan, 22. ágúst
Þingið í Súdan samþykkti í gær-
kvöldi að setja á lagginrar al-
þjóðanefnd til þess að hafa eftir-
lit með kosningum til stjórnar-
skrárþings, sem ákveða skal
hvort Súdan skuli gerast sjálf-
stætt ríki eða sameinast Egvpta-
landi.
Uppreisn, sem hófst fyrir
nokkrum dögum í hernum í
Súdan, hefur nú verið kæfð.
í eftirlitsnefndinni með kosn-
ingunum í landinu verða full-
trúar 7 þjóða: Noregs, Svíþjóðar,
Sviss, Júgóslafíu, Tékkóslóvak-
íu, Indlands og Pakistan.
Tilkynnt var í Karió í dag að
Bretar og Egyptar hefðu komið
sér saman um að kalla heim her-
lið sitt frá Khartoum og skal her-
inn vera farinn þaðan fyrir þ. 12.
nóvember n.k.
Einkaskeyti frá Reuter.
WASHINGTON, 22. ágúst — Ut-
anríkisráðuneyti Bandaríkjanna
mun senda stjórn Indlands og
sendiherra Indverja í Washing-
ton formlega afsökunarbeiðni
vegna þess að sendiherrann,
Metha, var beðinn að hafa sig á
burt úr veitingahúsi í Houston í
Texasríki í Bandaríkjunum. Yfir-
þjónn veitingahússins, sem neit-
aði að bera fram mat fyrir ind-
verska sendiherrann, gerði það
vegna þess að hann þekkti ekki
manninn og hélt að hann væri
svertingi.
Samkvæmt lögum í Texas er
bannað að hafa veitingasölu f\r-
ir hvíta menn og svertingja í
sömu salarkynnum.
SIGUBGANGA
„SJÁLFVIRKU
TÆKJANNA"
SAN FRANCISCO, 22. ágúst
„Sjálfvirku tækin“, sem koma
eiga í stað manna í iðnaðarfram-
leiðslunni, munu verða einhver
mesta framleiðslugreinin í Banda
ríkjunum á næstu árum, að því
er forvígismaður á sviði raf-
magnsmála skýrði frá á ráðstefnu
hér í dag.
Dean E. Woolridge, forseti
Ramo Woolridge fyrirtækisins
spáði því að framleiðsla „sjálf-
virku tækjanna“ (Automation)
myndi r.ema sem svarar þúsund-
um milljóna dollara og veita
hundruðum þúsunda manna at-
vinnu.
BUENOS AIRES, 22. ágúst —
Fulltrúi stjórnarandstæðinga réð-
ist ákaft á Peron forseta í útvarps
ræðu frá Buenos Aires í dag. —
Atburður þessi gerðjst í flug-
vallarveitingastofunm í Houston.
Sendih. hafði viðdvöl í Houston
ásamt fylgdarliði, á leið þeirra til
höfuðborgarinnar í Mexico,
Mexico City.
Stærsta blaðið í Houston gerir
mikið úr þessu máli í dag og seg-
ir að margir menn hafi hlýtt á er
yfirþjónninn bað sendiherrann
matast annars staðar.
Flugvallarhótelið var á sínum
tíma reist fyrir fé sambands-
ríkis Bandaríkjanna og er féð
var veitt var því heitið, að lögin
um aðskilnað hvítra og svartra
myndu ekki látá-n gilda á hótel-
inu. Ekki sízrt þess vegna þykir
aðalblaðinu í Houston mál þetta
alvarlegt.
„Genfarfimdur"
þingmanna
44. þjóða
HELSINGFORS, 22. ágúst — Á
meðal 400 þingmanna frá meir
en 40 þjóðum, sem koma saman
í Helsingfors í næsta mánuði á
44. alþjóðaþing þingmannasam-
bandsins, verða fulltrúar frá
Bandaríkjunum, Sovétríkjunum
og Kína-kommúnistum.
Það sem verður um rætt er:
Viðsjár í heiminum og önnur
heimsmál.
Gerhardsen fer
fil Moskvu
MOSKVA 22. ágúst. — Fregnin
um væntanlega heimsókn Einars
Gerhardsens, forsætisráðherra
Norðmanna til Sovétríkjanna var
birt í Moskvu í kvöld. Tassfrétta-
stofan birti þau ummæli Ger-
hardsens að milli Norðmanna og
Sovétríkjanna ættu sér ekki stað
nein veigamikil pólitísk ágrein-
ingsmál.
Útvarpið í Moskvu birti þá
fregn í kvöld að æðsta ráð Sovét-
ríkjanna hefði boðið þingmanna-
nefndum frá Belgíu og Japan í
heimsókn til Sovétríkjanna. Jap-
anarnir eru væntanlegir í lok
þessa mánaðar og Belgir í byrjun
næsta mánaðar.
(hevrolet hefir
aðeins befur
NEW YORK — í keppninni milli
Ford og Chevrolet um fyrsta
sætið í bílasölu í Bandaríkjunum
stóðu leikar þannig, effir fyrstu
sex mánuði þessa árs (skv. iðn-
aðarskvrslu R. L. Polk & Co.) að
Chevrolet hafði heldur betur,
hafði selt 756,317 bíla gegn
741.481 Fordbíl.
Veriíur Ben Yussef
kvaddur heim ?
París 23. ágúst.
í MEÐAN stjórnmálamenn
frá Frakklandi og Mar-
okko ræddu í dag í Aix la
Bains um möguleikana á því
< að kalla heim til Marokko
Ben Yussef soldán, fóru fram
í Norður-Afríku stórfelldustu
hernaðaraðgerðir, sem þar
hafa átt sér stað frá því aS
bylting Rif Kabala ættflokks-
ins vair bæld niður árið 1920.
Talið er að Frakkar tefli nú
fram í Norður Afríku um 160
til 180 þús. manna liði, þar af
100—200 þús. í Algier og 40
til 60 þús. í Marokko.
Ef óeirðir halda áfram í N.-
Afríku er talið að svo geti farið
að Frakkar neyðist til þess að
skerða her sinn hjá Atlantshafs-
bandalaginu, sem aðsetur hefir
í Vestur-Þýzkalandi, og senda
hann til Norður-Afríku. Engin
tilmæli hafa þó enn borizt til
Gruenthers, yfirhershöfðingja
Atlantshafsbandalagsins, um
þetta efni.
V’
í ATLANTSFJÖLLUM
Þjóðernissinnarnir í Marokko
hafa leitað hælis í Atlantsfjöll-
unum, fyrir suð-austan Casa-
blanca. Flugvélar vörpuðu í dag
eldflaugum að herjum uppreisn-
armanna þar.
Landherinn sækir að virkjum
uppreisnarmannanna í fjöllunum
og fara skriðdrekar í fararbroddi.
Víglínan þarna er sögð vera 100
km breið.
í Algier eru horfurnar á því að
Frökkum takist að bæla niður
uppi’eisn þjóðernissinna taldar
betri heldur en í Marokko, enda
þótt álitið sé að forystumaður
uppreisnarmanna þar fari enh
frjáls. En Frakkar hafa þar mik-
inn og vel þjálfaðan fjallaher.
Á TALI VIÐ EL GI.OUE
Á stjórnmálasviðinu vekur það
helzt athygli að Faure forsætis-
ráðherra, sat í dag lengi dags á
fundi með E1 Gloue, pashanum
í Marrakesh. E1 Gloue var aðal-
hvatamaður þess á sínum tíma
að Ben Yussef var sendur í út-
legð frá Marokko.
Nú er talið að EI Gloue sé fús
til þess að samþykkja að Ben
Yussef verði kvaddur heim með
vissum skilyrðum.
Meðal stjórnmálamanna heima
í Frakklandi sætir heimköllun
Ben Yussefs harðri andspyrnu og
getur svo enn farið að Norður-
Afríkumálin valdi nýrri stjórnar-
kreppu í Frakklandi.
Hlutleysi
MOSKVA, 22. ágúst — Útvarpið
í Moskvu sagði í kvöld, að langt
væri frá því að hlutleysisstefnan
í Danmörku og Noregi væri
dauð.
í fyrra fyrirlestri hafði útvarp-
ið rætt um hlutleysið í Sviss og
Austurríki.
Indverska sendiherranum í Was-
hington neitað um afgreiðslu