Morgunblaðið - 06.10.1955, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 06.10.1955, Blaðsíða 14
14 MORGVNBLAÐ19 Fimmtudagur 6. okt. 1955 Ekki med vopnum vegið EFTIR SIMENON Framhaldssagan 8 hún var skrifuð?" spurði Maigret. „Við skulum fara og fá okkur eitthvað að drekka“. Þeir sneru þó ekki heim að höll- inni, heldur gengu til veitinga- hússins, þar sem koma þeirra vakti mikla eftirtekt Fjórir bændur sem sátu saman að drykkju urðu ókyrrir í sætum sínum og heilsuðu greifanum og umsjónarmanninum með ótta- þlandinni virðingu. Marie Tatin kom hlaupandi framan úr eldhúsinu og þurrkaði hendur sínar sem ákafast á svuntuhorninu. „Monsieur Maurice“, stamaði hún. „Ég er ekki ennþá búin að jafna mig eftir hinar sorglegu fréttir .... blessuð greifafrúin okkar.... “ Og hún var raunverulega grá- andi. Sennilega gerði hún það í hver skipti sem einhver samborg- ari hennar dó. „Þér voruð líka við messuna“, hrópaði hún upp yfir sig og leit á Maigret. „Að hugsa sér annað eins og þetta. Þarna veirti eng- inn neinu athygli og ég vissi ekki um neitt, fyrr en menn komu hingað og sögðu mér að.... “ í slíkum tilfellum er alltaf erfitt og óviðfeldið að sýna minni sorg, en þeir sem engin vináttu- eða venzlabönd tengja við hinn látna. Meðan Maurice hlustaði á sam hryggð hennar, reyndi hann að leyna óþolinmæði sinni, gekk að hillu, tók þaðan rommflösku og hellti í glösin. Kippir fóru um axlir hans um leið og hann tæmdi glasið í ein- um munnsopa og hann hagði við Maigret: „Ég held að ég hafi fengið kvef á leiðinni hingað í morgun". „Það eru allir hérna búnir að fá kvef“, svaraði Marie Tatin, en beindi því næst orðum sínum til Maigrets. „Þér verðið einnig að gæta yð- ar vel. Ég heyrði að þér hóstuðuð talsvert í nótt“. Bændurnir gengu út úr veit- ingastofunni. Ofninn var glóandi rauður. „Ja, þvílíkur dagur“, sagði Marie Tatin, en vegna þess hversu mjög hún var rangeygð, var erfitt að segja um það með nokkurri vissu á hvorn mannanna hún horfði, umsjónarmanninn eða greifann. „Langar ykkur annars ekki í eitthvað að borða? Að sjá nú annað eins og þetta. Þarna hef ég verið svo trufluð af öllu þessu tali, að ég hef ekki einu sinni haft sinnu á því að skipta um föt“. Hún lét sér nægja að setja á sig svuntu, utan yfir svarta kjól- inn, sem hún klæddist aðeins, þegar hún fór til kirkju. Hattinn sinn lét hún liggja eftir á borð- inu. Maurice de Saint-Fiacre heJlti aftur í glasið sitt og drakk út, en leit svo á Maigret, eins og til að spyrja hann ráða. „Við skulum fara“, sagði um- sj ónarmaðurinn. „Ætlið þið að borða hérna há- degisverð? Ég er búin að slátra hænu og ....“ En mennirnir voru þegar farn- ir út úr stofunni og heyrðu ekki orð hennar. Framan við kirkjuna stóðu fjórir eða fimm veiðivagnar, en hestarnir voru bundnir við trén og Maigret og greifinn sáu höfuð þeirra hossast upp og niður yfir lága kirkjugarðsvegginn. ’ Inni í hallargarðinum glamp- aði og stirndi á gulan kappakst- ursvagn greifans. „Var ávísunin dagsett síðar, en „Já, en henni verður framvísað í bankanum á morgun". Nú varð þögn, sem ekkert rauf nema fótatak þeirra á hörðum veginum, skráfið í hinum blikn- uðu laufblöðum, sem vindurinn feykti um og frís hestanna. „Hafið þér miklum störfum að gegna?“ Greifinn brosti með kaldhæðn- um svip: „Ég er einn þeirra manna sem nefndir eru einu nafni ónytjungar. Ég hef hins- vegar fengist við margt um dag- ana. Ég ætlaði t. d. einu sinni að stofna kvikmyndatökufélag .... þar áður var í hluthafi í útvarps- félagi....“ Allt í einu kvað skothvellur við hinum meginn við Notre Dam tjörnina og þeir sáu mann hlaupa að einhverju dýri, sem hann hafði skotið. „Þetta er Gautier, ráðsmaður- inn“, sagði Maurice. „Hann hlýt- ur að hafa farið að heiman áður en....“ Hann lauk ekki við setninguna, en stappaði hælunum niður í jörð ina, gretti sig í framan og snökkti. „Vesalings gamla konan“, muldraði hann á milli samanbit- inna varanna. „Þet.ta er — þetta er svo auðvirðilegt .... Og Jean, þessi skítugi, litli ræfill ....“: Um leið og hann sleppti síðasta orðinu, komu þeir auga á Jean, sem skálmaði fram og fatur í garðinum framan við höllina, við hJið læknisins. Hann virtist vera að tala af mjög miklum ákafa, þvi að hann bandaði út horuðum höndunum, orðum sínum til áherzlu. Með vindinum barst öðru hverju daufur reykelsisilmur, að vitum þeirra. ÞRIÐJI KAFLI Ekkert sólskin kastaði hér ó- raunverulegum ljóma á hlutina, engin þoka huldi útlit þeirra. Allt birtist hér í raunverulegri mynd, hver hlutur með sín köldu einkenni, reysknir trjábolir, skrælnaðar greinar, svört möl og þó sérstaklega dökk föt þeirra, sem reikað höfðu inn í grafreit- inn. Hinsvegar öðlaðist allt, sem Ijóst var, svo sem legsteinarnir, stífuð skyrtubrjóstin og hattar gömlu kvennanna, falskt, óraun- verulegt gildi — varð of hvítt, of áberandi. „Við sjáumst fljótlega aítur“, sagði Maigret við greifann, um leið og þeir skildu við kirkju- garðshliðið. Gömul kona sat á litlum bekk, sem hún hafði sjálf komið með, og bauð mönnum appelsínur og súkkulaði til kaups. Og hvílíkar appelsínur. Stórar, óþroskaðar og frosnar. Þær ollu tannakuli, særðu kverkarnar og voru auk þess eldsúrar. En þegar Maigret var tíu ára, reif hann þær samt í sig, einungis vegna þess, að þetta voru appelsínur. Hann braut loðskinnskragann á yfirfrakkanum upp í háls og leit ekki á nokkurn mann. Hann vissi, að fyrst átti að beygja til vinstri og þá var gröf- in, sem hann var að vitja, sú þriðja frá kýprestrénu að telja. Alls staðar í kringum hann var grafreiturinn vafinn marglitu blómaskrúði. Daginn áður höfðu nokkrar konur þvegið suma legsteinana með sápu og bursta. Hér hvílir Evariste Maigret .. „Afsakið, en reykingar eru stranglega bannaðar hér“. Umsjónarmaðurinn tók naum- ast eftir þvi, þegar talað var til hans. Loks leit hann þó upp, sá hringjarann, sem einnig var kirkjugarðsvörður, og stakk þegjandi pípunni í vasann. Hann gat ekki bundið hugann við neitt eitt umhugsunarefni í einu. Minningarnar flykktust í hópum að honum, minningarnar um föður hans, minningarnar um vin sem hafði drukknað í tjörn, minningarnar um dreng í greifa- höllinni, sem átti dásamlegan vagn. ÉBÉ- RYKSUGUR BGMVÉLAR Afborgunarskilmálar Suðurgötu 10 Sími: 2606 Blómlaukar Höfum lauka og setjum þá niður fyrir yður. 2ju herbergju íbiíð Til sölu er ný og mjög vönduð 2ja herbergja kjallara- íbúð á hitaveitusvæðinu. Stærð 83 ferm. Upplýsingar gefur EYJOLFUR KONRÁÐ JÓNSSON lögfræðingur, Tjarnargötu 16 Símar 82707 og 82281 Sonur húsvarðarins Danskt ævintýrL Fermingarfötin voru tilbúin, mamma saumaði þau sjálf, en klæðskerinn, sem gerði við gömul föt, hafði sniðið þau, og hann sneið vel. Hefði öðruvísi verið ástatt fyrir þeim manni og hann hefði getað haft vinnustofu og sveina, sagði kona húsvarðarins. þá saumaði hann líkast til núna á kóng- inn. Ekki stóð á fötunum og ekki stóð á fermingarbarninu. Georg fékk úr í fermingargjöf frá gamla afgreiðslumann- inum hjá fatasalanum. Hann var skírnarvottur Georgs og efnaðri en hinn. Úrið var gamalt og þrautreynt. Það flýtti sér alltaf, en það er betra heldur en að það hefði seinkað sér. Þetta var dýrmæt gjöf. Og frá hershöfðingjahjónunum kom sálmabók í mjúku skinnbandi. Hún var frá heimasætunni litlu, sem Georg hafði gefið myndirnar. Á saurblaðinu stóð nafnið hans og nafnið hennar og „góðviljuð hollvina.“ Það var skrifað eftir fyrirsögn frúarinnar, og hershöfðinginn hafði lesið það og sagt: „Charmant!“ „Þetta var verulega mikil hugulsemi af svo hágöfugu fólki,“ sagði kona húsvarðarins, og Georg var látinn fara í fermingarfötin og fara upp með sálmabókina til þess að sýna sig og þakka fyrir sig. Hershöfðingjafrúin sat og var öll dúðuð og hafði mikinn höfuðverk eins og alltaf. þegar henni leiddist. Hún leit mjög vingjarnlega til peorgs og óskaði honum allrar farsældar og að hann fengi aldrei höfuðverk. Hershöfðinginn var í inni- sloppi, skúfhúsu og rauðum rússastígvélum. Hann gekk um llmurinn er indæll og bragðið eftir því' O. Johnson & Kaaber h.f.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.