Morgunblaðið - 11.10.1955, Page 1
16 síður
42= árgangur
231. tbl. — Þriðjudagur 11. október 1955
Prcntsmiðja Morgunblaðsins
IMolotov mun ekki
segja af sér
Skipli bsra um skoðun
MOSKVU, 10. okt. — Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB
MOLÓTOV utanríkisráðherra Sovétríkjanna, lýsti því yfir í dag,
að aldrei hefði kómið til tals, að hann léti af embætti né nýr
maður mundi sitja utanríkisráðherrafundinum í Genf síðast í
þessum mánuði.
I VEIZLU
Molotóv lýsti þessu yfir í síð-
degisverðarboði, sem haldið var
hjá kanadíska sendiráðherranum
í Moskvu, í tilefni af komu Lest-
ers Pearsons þangað. Ástæðan
var sú, að erlendur blaðamaður
varpaði þessari spurningu fram,
þegar hann átti tal við Molótov.
ALLT f BRÉFINU
Molótov sagði: — í bréfi mínu
til „Kommúnisti“ er hvergi
minnzt á, að ég hafi í hyggju
að segja af mér. Hafið þér lesið
bréfið? — Lésið það aftur. — f
því er allt sagt, — allt, sem ég
vildi sagt hafa.
KOMMÚNISMI
f RÚSSÍÁ!
í umræddu bréfi tók Moló-
tov aftur til baka ummæli
sín þess efnis, að nú væri
fyrst verið að leggja grund-
vöil að kommúnisma í Rúss-
landi. Hann hefði þegar verið
Iagður 1936 og kommúnism-
inn væri nú í algleymingi í
Rússlandi austur.
Adenauer veikur og gaf ekki
fekið báft í kosningabar-
í
Fjöldi löagjafarmálefna rædd
ur á fundi dómsmálaráðherra
Norðurlanda
Frásögn Bjarna Benediktssonar
dómsmálaráðherra
BJARNI BENEDIKTSSON dómsmálaráðherra kom flugleiðis heim
frá Kaupmannahöfn s. 1. sunnudagskvöld. Eins og kunnugt
er sat hann þar dómsmálaráherrafund allra Norðurlandanna hinn
7. og 8. þ. m.
Mbl. hitti Bjarna Benediktsson að máli í gær og leitaði tíðinda
hjá honum af fundinum og þeim málefnum, sem þar voru rædd.
BONN, 10.
DR. ADENAUER kanslari Vestur-Þýzkalands hefir legið
inu með hita. Mun hann hafa ofkælzt í síðustu viku.
okt.
í rúm-
EKKIIBREMEN
Kanslarinn hefir orðið að
fresta öllum fundum sínum und-
'anfarið. M. a. gat hann ekki tekið
þátt í kosningabaráttunni í
Bremen og varð að aflýsa ræðu-
, höldum hans þar. — Kanslarinn
hefir stjórnað landinu gegnum
síma, ef svo mætti segja, og hefir
hann verið í stöðugu sambandi
við helztu aðstoðarmenn sjna. —
Hann er nú 79 ára gamall.
Bjarni Benediktsson.
Hermenn við skóggræðslu
OSLO: — Hermenn hafa tekið
þátt í skóggræðslu í Tromsfylki
í sumar. Hefur vinnu hermann-
anna verið mjög hrósað. Þeir hafa
alls unnið þar um 1000 dagsverk.
Sildarstofninn í Norðursjó
ekki lengur tnlinn óþrjótandi
Rannsoknir Breta sýna, að
hinar miklu veiðar þýzkar
og franskra togara skerða
Saldarstofninn
BRETAR eru nú farnir að óttast að sildarstofninn í Norðursjón-
um kunni að ganga til þurrðar. Hefur einn kunnasti fiski-
fræðingur þeirra, dr. W. Hodgson nú algerlega skipt um skoðun,
en hann taldi fyrir nokkrum árum, að síldin í Norðursjó væri
óþrjótandi.
80 ÞÚS TONN AF
ÓÞROSKAÐRI SÍLD
í skýrslu sinni um þetta mál
segir dr. Hodgson, að árið 1953
hefði verið veidd 80 þús. tonn af
óþroskaðri síld. Var það aðallega
tveggja ára síld og munu um
1600 milljón síldir af þeim
árgangi hafa verið veiddar.
ÞÝZKIR OG FRANSKIR
TOGARAR
Aðallega eru það togarar frá
meginlandinu, sem veiða þessa
ungu síld og fer hún öll í
bræðslu. T. d. eru nú 150 þýzkir
og franskir togarar á vetrar-
vertíð í Ermarsundi. Fer afli
þeirra mestmegnis í bræðslu.
Fyrstu afleingar ofveiðinnar
fóru að koma í ljós í lok ársins
1951. í október hefur venjulega
verið bezti síldartíminn við
austurströnd Englands, en árið
1951 minnkaði afli mjög og urðu
breytingar á aldursflokkaskipt-
ingum, sem Hodgson telur að
bendi eindregið til þess að tekið
er að ganga alvarlega á síldar-
stofninn í Norðursjó.
Afvopnast
ekki einir
MIAMI, 10. okt. — Dulles utan-
ríkisráðh. Bandaríkjanna sagði
hér í dag, að Bandaríkiamenn
mundu ekki afvopnast nema ör-
uggt væri, að önnur ríki gerðu
það einnig. Sagði utanríkisráð-
herrann þetta í ræðu sem hann
flutti á fundi uppgjafahermanna.
Flugslys
VÍNARBORG, 10. okt. — Sex
menn létu lífið í dag, þegar júgó-
slavnesk farþegaflugvél hrapaði
til jarðar skammt fyrir utan Vín.
25 farþegar voru í vélinni og
fjögurra manna áhöfn.
Farþegaflugvélin var á leið til
Miklagarðs frá París, en kom við
í Vín, þar sem slysið varð. Þegar
véiin hrapaði til jarðar, kveikn-
aði í henni, en svo lánsamlega
tókst til, að fólkinu var bjargað
úr vélinni, áður en hún sprakk í
loft upp. — NTB.
ÁRATUGA GÓMUL
SAMVINNA
Samvinna Norðurlanda um
löggjafarmálefni hefur staðið
um nokkra áratugi, segir dóms-
málaráðherra. Hefur henni verið
þannig háttað, að lögfræðingar
frá öllum löndunum hafa unnið
saman í nefnd að undirbúningi
lagabálka. Hefur ýmis merkileg
löggjöf, bæði í fjármálarétti og
fjölskyldurétti t. d. verið sett
Norska stjómin
hafnaði beiðni
Þjóðvsidisflokksins
færeyska
NORSKA stjórnin hefur fyr-
ir skömmu svarað beiðni
Þjóðveldisflokksins í Færeyj-
um, um að hún hlutist til um
það ásamt ríkisstjórnum ís-
lands og Bretlands, að danska
lögreglan og herskipið verði
kvatt heim frá Klakksvík. —
Hafnar norska stjórnin þess-
ari beiðni, þar sem um sé að
ræða danskt innanríkismál.
Rauði herinn enn
grár fyrir járnum
PARÍS, 10. okt.: — Landvarna
ráðherrar Atlantshafsbandalags-
ins hafa undan farið verið á fund
í París. — í dag skýrði Joh
Whitley hershöfðingi frá því, a
aldrei hefði bandalagsríkjunur
staðið eins mikil ógn af herstyr)
Rússa og nú. Rússneski herin:
hefði aldrei verið öflugri né bet-
ur vopnaður.
• Rússar hafa enn 175 fót-
gönguliðsherfylki og það er
fjarstæða að halda því fram,
að fækkað hafi verið í Rauða
liernum að gagni.
Jolnaðarmenn fengu algjöran
meiri hluta í Bremen
BONN, 10. okt. — Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB
LEIÐTOGI jafnaðarmanna í Bremen sagði í dag, að flokkur hans
vildi halda áfram samstarfinu við frjálsa demókrata. Þessir
tveir flokkar hafa myndað meirihluta í borginni undanfarið, en
í kosningunum á sunnudag, unnu jafnaðarmenn algjöran meirihluta.
MÓTI ÞÁTTTÖKU ÞJÓÐVERJA í A-BANDALAGINU
í kosningunum lögðu jafnaðarmenn áherzlu á, að Vestur-Þjóð-
verjar tækju ekki þátt í Atlantshafsbandalaginu, en reyndu frek-
ar að ganga til móts við Rússa og semja við þá um sameining
alls Þýzkalands í eitt ríki.
með þessu móti. Margt af þess-
ari löggjöf hefur einnig verið
lögfest hér á íslandi. En þátt-
taka íslendinga í samstarfinu
hefur þó lengstum verið sú, að
við höfum tekið þau frumvörp
sem hinir voru búnir að semja
og lögfest þau.
Hins vegar höfum við vegna
fjarlægðar og annara atvika átt
erfitt með að taka beinan þátt
í undirbúningi sjálfra frumvarp-
anna.
ÞRÍR DÓMSMÁLARÁÐ-
HERRAFUNDIR
Hin síðari ár hafa auk starfs
hinnar sameiginlegu lögfræðinga
nefndar verið teknir upp sér-
stakir fundir dómsmálaráðherr-
anna og hafa þrír slíkir fundir
verið haldnir eftir lok síðustu
styrjaldar fram að þessu. En
dómsmálaráðherra íslands hefur
ekki getað komið því við að
mæta á þessum fundum þó að
ísl. fulltrúi hafi mætt þar stund-
um.
Fundurinn, sem nú var hald-
inn í Kaupmannahöfn var þess-
vegna hinn fyrsti, sem sóttur var
af dómsmálaráðherrum allra
fimm Norðurlandanna.
FJÖLDILÖGGJAFAR-
MÁLEFNA
— Hvaða málefni voru aðal-
lega rædd að þessu sinni?
— Á þessum fundi voru rædd
fjöldi löggjafarmálefna, sem hafa
þýðingu fyrir öll iöndin, eða
hugsanlegt er að hafi slíka þýð-
ingu. Undirbúningur löggjafar-
innar var mjög misjafnlega langt
kominn í einstökum tilfellum og
um sum atriðin komu menn sér
saman um að ekki væri tíma-
bært að hugsa um sameiginlega
löggjöf, svo sem t. d. umferða-
lög, vegna þess að þar eru mis-
munandi ökureglur. Kom t. d.
fram að Svíar, sem hafa vinstri
handar akstur, eins og við íslend-
ingar, telja ekki líklegt að frá
því verði horfið í þeirra landi.
En það myndi þó koma mjög
fljótlega í ljós hvað ofan á yrði.
Svipað er t. d. að segja um
löggjöf um mannanöfn, að þótt
hugsanlegt sé að hin löndin fjög-
Frh. á bls. 2.
Stefáns Stefánssonar
minnzi á Alþingi
ÁÐUR en gengið var til dag-
skrár í Sameinuðu Alþingi í gær
minntist aldursforseti þingsins
Stefáns Stefánssonar frá Fagra-
skógi, sem lézt á sjúkrahúsi hér
í Reykjavík s.l. laugardag. Rakti
forseti æviatriði hins látna þing-
manns og minntist á störf hans
á Alþingi. Risu þingmenn síðan
úr sætum sínum til virðingar við
minningu hans.