Morgunblaðið - 20.10.1955, Síða 15

Morgunblaðið - 20.10.1955, Síða 15
Fimmtudagur 20. okt. 1955 MORGVNBLAÐIB 31 Áfengisvenjur í Oslo NORÐMENN hafa á síðarx árum gert'ýmsar athyglisverðar rann- sóknir í sambandi við áfengis- venjur og farið þar að dæmi Svía. Á síðastliðnu ári hefur norskur hagfræðingur, Thorolf Jan Helgesen gert all yfirgrips- miklar rannsóknir í Osló í þessu efni. Fróðlegt er að bera þessar rannsóknir saman við rannsóknir Svía frá 1944, og kemur þá í ljós að niðurstöður eru mjög svip- aðar. Hófst þessi rannsókn með því, að hagfræðingurinn sendi 2509 persómum spui’ningablað og voru það 1104 karlar og 1415 konur. Af þessum hópi svöruðu 62% af körlum og 60% af konum eða samtals 836 manns, og á svörum þeirra byggist rannsóknin. Fyrst gerir höfundurirm grein fyrir þessu fólki, á hvaða aldri það er, atvinnu þess, úr hvaða bæjarhlutum og hvernig efnahag það býr við. Allt þetta þarf að athuga vel, svo að grundvöllurinn sé traust- ur. Og kemur þá í Ijós, að svo er. Þarna er fólk frá 21—69 ára að aldri úr ýmsum stéttum með misjafnar tekjur. Þá er það rannsóknin sjálf, Hvei’jum einstaklingi voru send- ar 16 spurningar og það er margt sem lesa má, út úr þessum svör- um. Hér verður aðeins drepið á algengustu svörin við 6 spurn- ingum. Fyi’sta spurningi var þessi: Eruð þér bindindismaður eða neytið þér áfengis? Svörin eru, að af körlum eru 62 bindindis- menn en 623 neyta áfengis, en af konum eru 155 í bindindi en 681 neyta áfengis, eða 9% karla eru í bindindi en 19% af konum. Af körhxm eru 9 í bindindisfélögum en 23 í trúarlegum félögum, en tilsvarandi tölur hjá konum eru 12 og 79. Þessar tölur sýna, að 37% af bindindismönnum og 51% af kon unum eru í trúai’legum félögum. Gefur það til kynna, að trúrækni stuðlar að bindindi og er mikil- vægur þáttur í bindindismálum. Önnur spumingin, sem hér verður gerð að umtalsefni er til þeirra, sem neyta áfengis, og er hún þannig: Hvenær neyttuð þér fyrst áfengis? Nærri helmingur af körlum og nærri þriðjungur af konum segj- ast hafa neytt áfengis fyrir átján ára aldur. Og við 21 árs aldur hafa 80% af körlum og 62% af konum neytt áfengis. Þriðja spurningin er: Er (var) faðir yðar bindindismaður? Svör in gefa gx-einilega til kynna, að það er samband á milli áfengis- vana föður og barna. Af bind- indismönnum voru 53%, sem áttu föður, er var bindindismaður, en aðeins 13% af áfengisneyt- endum. Ber þetta vel saman við sænsku rannsóknirnar um gildi bindindisheimilanna til að stuðla að bindindissemi unga fólksins. Fordæmið er hér mikilvægt eins og á fleiri sviðum. Fjórða sui-ningin var: Hvers vegna neytið þér áfengis? Svörin voru á ýmsa vegu, en fjölmenn- asti hópurinn sagðist gera það í samabndi við skemmtanir og heima hjá vinum sínum. Það voru 48,8% af körlum og 56,8% af konum, sem svöruðu þannig. Til hvíldar og hressingar sögðu 17,3% af körlum og 7,4% af kon- um. Hjá þeim flokki virðist löngunin vera meiri í áfengi. Oft nefna þeir, sem ástæðu fyrir á- fengisnautninni, að þeir þurfi „að setja lit á gráan hversdagsleik- ann.“ Þriðji stærsti hópurinn svaraði: „Fellur bragðið og á- hrifin.“ Það voru 12,1% af körl- unum og 10.7% af konum. Svör annars og þriðja flokksins benda til þess, að í þeim séu þeir, sem hafa sérstaka löngun eftir áfengi. Það eru samanlagt 29,4% af körlum og 18,1% af konum, af þeim, sem neyta áfengis. Bendir þetta enn til þess, að löngun kai-la er meiri en kvenna eftir áfengi. Þá kemur fimmta spurningin. Henni var aftur eingöngu beint til bindindismanna. Hún var þessi: Hvers vegna neytið þér ekki áfengis? Algengasta svarið „Finn enga þörf til þess, og er algjörlega sama um það.“ Það voru 25,8% af körlum og 38,7% af konum, sem svöruðu þarxnig. Bendir þetta til þess, sem bind- indismenn hafa löngum haldið fram, að áfengislöngunin er ekki upprunaleg hjá neinum manni, en kemur fyrst eftir, að menn fara að neyta áfengis. Nokkur hópur sagðist ekki neyta áfengis af trúarlegum ástæðum, eða 22,6% af körlum og 23,2% af konum. Er þetta í samræmi við svörin við fyrstu spurningunni um áhrif trúarbragðanna til bindindissemi. En 19.4% af körl- um og 19,4% af konum sögðu, að þau væru bindindismenn, af því að það væri grundvallar- regla, sem þau fylgdu samkvæmt lífsskoðun sinni. Þetta eru þrjú algengustu svörin við því, hvers vegna þeir eru bindindismenn. Sjötta og síðasta spurningin er svohljóðandi: „Hvar neytið þér oftast áfengis?" Hér verður skýrt frá þremur algengustu svörun- um. Svör karla eru þessi: Að- eins heima 13,5%, hjá vinum og kunningjum 11,7%, á heimilum vina og kunningja 36,7%. Hlið- stæðar tölur hjá konum í sömu röð eru: 8,2% 22,5% og 27%. Af þessu sést, að vínnotkun er einkum heima og hjá vinum og kunningjum. Einkum á þetta við eldra fólkið. Og með aldrinum virðist vera tilhneiging til að nota áfengi aðeins heima. Það er einkum yngra fólkið, sem neytir áfengis á veitingastöðum. Það eru fremur fáir, sem neyta áfengis aðeins við hátíðleg tæki- færi. Hér hefur aðeins verið skýrt frá fáeinum atriðum úr þessari rannsókn. En í henni felast ýms- ar bendingar, sem hagnýta má í baráttunni gegn áfengisbölinu. (Frá skrifstofu Áfengisvarna- nefndar Akureyrar). ■ Keilavíktirbréi Frh. af bls. 24 af grunni, er lögreglustöðin enn til húsa í 14 ára gömlum her- bragga, sem nærri er að falli kominn. Braggi þessi er kynntur upp með tveimur hráolíuofnum og stafar af þeim mikil eldhætta, enda allt í kring um þá timbur- klætt. Kemur það eigi ósjaldan fyrir, að lögregluþjónarnir þui'fa að yfirgefa stöðina og skilja hana eftir gæzlulausa og læsta, það jafnvel þótt fangageymsla henn- ar sé fullskipuð. Má það vera hverjum manni ljóst, hve mikil hætta er í því fólgin að skilja fangana þannig eina eftir þegar þarf að fullkynda ofnana til að halda þessum lélegu húsakynnum sæmilega heitum. Það hefur einu sinni komið fyrir, að fangi var lokaður inni gæzlulaus, að eldur varð laus. Af hreinni tilviljun var því bjarg að að fanginn brann ekki inni, mátti vart tæpara standa að hon- um yrði bjargað þar eð eldurinn var farinn að loga upp eftir veggnum framan við fangaklef- ann. Það getur hver og einn sett sig í spor þess manns er stóð innan við hinar lokuðu dyr og vitandi þess að enginn var ná- lægur. Það er krafa okkar sem þennan bæ byggjum, að þegar verði hafist handa um byggingu nýs fangahúss. Það er með engu forsvaranlegt að loka menn inni í þessum bragga, sem á hverjum degi eða nóttu getur brunnið upp til ösku á nokkrum mínútum án þess að nokkuð verði við gert. Þegar verður að hefja byggingu fangahússins, því það er ekki hægt að bjóða fleiri mönnum upp á þá mynd, er fanginn sá í gegnum rimlana, þá er hann var innilokaður í brennandi hús- inu. Ixxgvar GuÖmundsson. Hlín er komin úl „HLÍN“ er komin — kærkomin haustgjöf til hinna mörgu kaup- enda! Hennar iðja hefir verið að bera vinarhug og fréttir milli is- lenzku heimilanna. í ár fer hún lengra: nú segir hún frá félaga- samtökum íslenzku kvennanna í Vesturheimi, allt frá fyrstu fé- tagastofnuninni í Winnipeg 1881 og í Nýja íslandi. Fyrsta félagið þar var stofnað í Mikley 1886. Allar sveitirnar stofnuðu hjá sér kvenfélög Sam- tök landnámskvennanna voru fyx’st fábrotin, þau voru tengi- liður: að halda saman og vernda málið og þá menningu, sem þær komu með að heiman. Kvenréttinda gætir fljótt hjá þeim, Foringinn er frú Margrét Benediktsson. Til fróðleiks vil ég geta þess, ,að það er ekki fyrr en 1894 að Hið íslenzka kvenfélag er stofnað hér í Reykjavík, en það var stofnað sem alhliða pólitískt fé- lag. Ég set þetta til að sýna hvað vestankonur hafa fljótt fylgst með kröfum tímans og orðið á undan þeim sem heima sátu. Félagsskapur þeirra er brátt margþættur, og öll frásögnin um hann á erindi til okkar, hvort heldur við erum í einhverju fé- lagi eða ekki. Hér er sérstaklega sagt frá tveim konum, sem öðr- um fremur unnu að félagasam- tökum íslenzku landnámskvenn- anna. En starf þeirra þarf einnig að vera íslendingum hér heima kunnugt. Það lýsir göfugum kon- um, sem mikið er gefið og er Ijúft að gefa úr sínu stóra forða- búri og hjálpa fólkinu að yfir- stíga erfiðleikana. Önnur konan er frú Lára Pétursdóttir Bjarna- son — hún var Reykvíkingur, dóttir Péturs Guðjónssonar. hér á hún enn marga ágæta frændur. Hin konan er frú Max’grét J. Benediktsson — hún var ættuð úr Húnavatnssýslu, skörungur mikill, kvenréttindakona og mik- ill kraftur. Ég hef aldrei átt kost á að kynnast dugnaði landa minna vestra í félagsmálum þeirra eins vel og í þessari frásögn í „Hlín“, þess vegna ræð ég konum til að kaupa „Hlín“ og dvelja um stund með frændum vorum vestra, bæði á landnámstíma þeirra og nú þegar margt er bjartara. Eins og áður í „Hlín“ eru minn ingar um nokkrar merkar ágætis- konur, það er alltaf hugljúft að lesa þær. Ritgerð um íslenzka þjóðbúninginn og m. fl. — Að ógleymdum skemmtilegu fréttun um frá konum hvaðanæfa af landinu. Svo sé Þórði Kágasyni á Litla- Fljóti, Biskupstungum, þökk fyr- ir fallega kvæðið sitt, það er kveðið út úr hjörtum okkar sem nú köllumst gamla fólkið. En á því byrjar „Hlín“. Ragnhildur Pétursdóttir. Sigurður Thoroddsen lundsverkfræðingur / - Minníng Frh. af bls. 29 þakkað honum komuna vestur í Eyjahrepp, til þess köllunarverks, sem honum auðnaðist að Ijúka. Það kann að vera, að það sé farið að hausta að í huga mínum og ekki alveg í samræmi við bjartsýni Sveinbjarnar, er ég segi, að mér finnst ekki aðeins, að ég sé að kveðja tryggan vin og kæran, mannkostamann, sem unun var að vera samvistum við, heldur sé ég um leið að kveðja síðasta afsprengi, og ekki hið sízta, þeirrar gullaldar, — þess menningartímabils, sem ég gat um fyrr. — Og ég geng hryggur leiðar minnar frá gröf þinni, gamli vinur. Og þó vil ég trúa með þér. að „bjart sé til beggja handa“. Ég þakka þér. Guð blessi þig og þína, bæði lífs og liðna og æskustöðvarnar þínar yndislegu. Sigurður S. Haukdal. F. 16./7. ’63 — D. 29./9. ’55. SMÁM saman heggur tíminn skörð í brautryðjendakynslóð aldamótaáranna — þessa kynslóð, sem ólst upp á barningstímum síðari hluta 19. aldar og eyddi manndómsárum sínum á umbrota j tímum fyrri hluta 20. aldarinnar.' Sá bi’autryðjandinn, sem nú síðast er horfinn af sviðinu, er Sigurður Thoroddsen, fyrsti j landsverkfræðingur íslands og um langt skeið yfirkennari við Menntaskólann í Reykjavík. Sigurður Thoroddsen fékk gott og öruggt veganesti á heim- j ili föður síns og bi'autryðjanda í íslenzkri skáldsagnagerð. Það er hér sérkennandi í skap- gerð Sigurðar, að hann kýs sér ekki það ævistarf, sem að mörgu leyti virtist liggja beinast við og| margir í hans sporum myndu hafa kosið, að feta í fótspor föður síns, nema lög og gerast síðan sýslumaður konungs. Nei, það er annað, sem stendur honum nær. Landið vantar tækni lega menntaða menn, sem geti leyst af hendi óteljandi viðfangs- efni, sem bíða úrlausnar. Þjóðin, sem búið hefur í land- inu um þúsund ára skeið, á enn enga verkfræðinga •— þama er ónumið land, þarna getur hann rutt nýjar brautir. Og Sigurður Thoroddsen, ungi menntamaðurinn, sem verið hef- ur vitni að því, þegar faðir hans færði í letur samtíð sína, ákveð- ur að gerast einnig brautryðj- andi, en hann mótar ekki sam- tíð sína á bókum, öldum og ó- bornum til skemmtilesturs, hann mótar járnið og kaldan steininn í þjónustu samtíðar og fram- tíðar. Hann leggur sinn hornstein í þjóðarhús unga Islands, sem hann vonar að standi traust og óhaggað þrátt fyrir hret kom- andi tíma — hann ætlar ekki að láta sitt eftir liggja. Þannig var hann maðurinn og brautrvðjandinn, sem er kvadd- ur í dag hinztu kveðju. Ég kynntist Sigurði Thorodd- sen fyrst, eftir að hann var kom- inn á efri ár, en var þó enn yfir- kennari í Menntaskólanum, vök- ull í starfi og hafði þann aga, sem nemendum er nauðsynlegur og þeim sjálfum fyrir beztu, og það ætla ég, að enda þótt Sigurði Thoroddsen væri vitanlega eink- ar annt um að koma tölum og stærðfræðitáknum inn í höfuð nemenda sinna, þá hafi honum þó ekki verið minna áhugamál að kenna þeim aga og kalla fram manndóm þeirra og annað það, sem hvex’jum einum er nauð- synlegt. — Hann vildi koma nemendum sínum til sem bezts og vax-anlegs þroska. Það var að vonum, að Sig- urður Thoroddsen veldi sér lífs- förunaut, er væri hliðstæðum kostum búinn og hann sjálfur. Ái'ið 1902 giftist hann eftirlif- andi konu sinni Maríu, dóttur Jan Claessen, landsféhirðis, og var hún manni sínum traust í blíðu og stríðu, svo sem hún átti kyn til. Börn þeirra Maríu og Sigurðar Thoroddsen eru: Sigriður, gift Tómasi Jónssyni, borgarritara, Kristín, er giftist Dr. Éruno Kress, Valgarð, rafveitustjóri 1 Hafnart'irði, Jónas, fulltrúi borg- arfógeta, Gunnai’, borgarstjóri og Max-grét, gift Einari Einarssyni, kaupsýslumanni. Með Sigurði Thoroddsen er genginn gagnmerkur maður, ötull í starfi og trúr hverju því verk- efni, sem honum var falið að leysa. Sigurður Thoroddsen er í senn góður fulltrúi kynslóðar sinnar, og gott fordæmi þeim, sem á eftir koma. H. Th. Hörður Qlafsson Málf lutningsskríf slof a. Laugavegi 10. Símar 80332, 7673. — Úr Álftafirii Frh. af bls. 30 með bröttum sjávarbökkum. Er það aðeins framrunninn skriðu- fótur og undirlagið því allt aur og stórgrýti og oftast grunnt á því. Lagningu háspennulínunnar yfir Kirkjubólsfjall og niður Sauradal til Súðavíkur miðar vel áfram. Ei’U staurar að mestu upp komnir, en eftir er að leggja þráðinn og byggja spennistöðvar í Súðavikurþorpi. Vinnuflokkur sá, sem annast lagningu línu þessarar hefur að- albækistöð sína niður í Súða- víkurþorpi, en sumir liggja við í tjöldum frammi á Sauradal og er þeim fluttur daglega matur þangað frameftir frá aðalbæki- stöðinni. 2—3 menn úr þorpinu hafa síðari hluta sumarsins unnið með flokki þessum, en fyrr í sumar voru oftast 3—4 Súðvík- ingar í vinnu norður í Aðalvík, við byggingu radarstöðvarinnar Þar. Nýtt (yrirkomulag handknattleiksmóta Frá aðalfundi HKRR FYRIR nokkru síðan var hald- inn aðalfundur Handknattleiks- ráðs Reykjavíkur. Var Árni Árnason end urkjörinn form. í'áðsins, Ari Jónsson kjörinn vara form., Jón Friðsteinsson ritari og Stefán Gunnarsson gjaldkeri. — Meðstjórnendur eru Böðvar Böðvarsson, Magnús Georgsson og Hilmar Magnússon. Á þessum aðalfundi ráðsins var samþykkt stofnun Utanfara- sjóðs. Er þeim, sjóði ætlað að standa straum af kostnaðí við utanfarir handknattleiksfólks, svo og heimboðum erlendra liða. Stofnframlag í sjóðinn var Yi hluti af ágóða liðfeins starfsárs, eða með öðrum orðum 1575 kr. Ræddar voru tiílögur um nýtt fyrirkomulag handknattleiks- móta, en handknattleiksmótin hafa verið einhver umfangsmestu og fjölmennustu íþróttamót, sem hér eru haldin. Verður hið nýja fyrirkomulag reynt í vetur. Unnið er að utanför hand- knattleiksstúlkna héðan en norsku stúlkurnar sem hingað komu á vegum HKRR í sumar buðu flokki fsl. stúlkna til dval- ar í Noregi. Fyrsta handknattleiksmót sum- arsins verður síðast í október — er það Reykjavíkumiótið. H ANDKN ATTLEIKS - FÉLAGEÐ Viku fyrr fór fram aðalfundur í Handknattleiksdómarafélagi Reykjavíkur. Formaður var end- urkjörinn Frimann Gunnlaugs- son en með honum eru í stjóm Valgeir Ársælsson og Ólafur Öm Ax-narson. 30 menn eru nú í fé- laginu. Ráðgert er dómaranám- skeið í október. — Páll í Fornahvamml Frh. af bls. 19 Ég óska þér Páll til hamingju með afmælið og framtíðina og þín hugðarefni. Ég óska að þjóðin megi sem lengst njóia starfs- krafta þinna og mannkosta, og að hún eignist sem flesta nýta menn og góða drengi. Ari Guðmundsson. Ragnar Jónsson hæstaréttarlögmaður. Lögfraeðistörf og eignaumsýsla. Laugavegi 8. — Sími 7752.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.