Morgunblaðið - 20.10.1955, Side 16
32
MORGVNBLAÐIB
Fimmtudagur 20. okt. 1955 1
Gróandi í starfi ungra
Sjálfstæðismanna í ðlafsfirði
Frá fréttaritara Mbl. í Ólafsfirði.
NÝLEGA var haldinn aðalfundur Garðars, félags ungra Sjálf-
stæðismanna í Ólafsfirði. Á fundinum mætti Magnús Jónsson,
alþingismaður og flutti hann ræðu, þar sem hann hvatti félagana
til að standa fast um hugsjónir og stefnu Sjálfstæðisflokksins, sem
væri hverju byggðarlagi til framfara og farsældar.
Hraunsrétt í Aðaldal fjölsóttasta
fjárrétt í Suðar-Þingeyjarsýsla
HLUTVERK UNGA FÓLKSINS
Ræðumaður sagði, að starf-
semi félagsins, sem og annarra
félaga með sömu hugsjónir stuðl-
uðu að bættu menningarlífi bæja
og héraða. Hvatti hann unga
fólkið til samstarfs, þar eð það
væri hlutverk þess að taka virk-
an þátt í störfum í þágu bæjar-
félagsins og hlutverk þess í fratn-
tíðinni að taka við af hinum eldri.
Fiáfarandi formaður félagsins
Magnús Stefánsson, þakkaði með
stjórnendum sínum og félögum
fyrir ánægjulegt samstarf og
hvatti félagana til áframhald-
andi sóknar og sigurs fyrir mál-
efni Sjálfstæðisflokksins.
í stjórn voru kosnir Jakob
Ágústsson formaður, Guðmundur
Þór Benediktsson ritari og Guð-
mundur Kr. Jóhannsson gjald-
keri. Meðstjórnendur voru kjörn
ir Magnús Stefánsson, Haraldur
Þórðarson og Jón Þorvaldsson.
Endurskoðandi Helgi Árnason.
í lok fundarins tók hinn ný-
kjörni formaður við fundarstjórn
og hvatti félagana til að gera
sitt ýtrasta til að efla flokkinn
og gera sigur hans sem mestan
við næstu kosningar. —J.
ÁRNESI, S-Þing.: — Um langt
skeið hafa göngur og réttir í
landinu verið nokkurskonar æf-
intýraheimur barna og unglinga
sveitanna. Jafnvel rosknir bænd-
ur hafa hlakkað til fjallferðanna
og skilréttanna, þar sem hið lagð-
fríða fé er réttað úr heilum
hreppum og e. t. v. fleiri sveit-
um í eina og sömu rétt.
*
Agætt flugvallarstæði
hjá Herjólfsstöðum
Kirkjubæjarklaustri 14. okt.
VERIÐ er að gera 1000 metra flugvöll í Álftaveri. Þykir mikil
samgöngubót að þessu mannvirki og öryggi, einkum ef Kötlu-
gos með samsvarandi jökulhlaupi kynni að einangra þessa lág-
lendissveit Skaftafellssýslu.
Séð yfir hluta af Hraunsrétt í Aðaldal
Undanfarnar vikur hefur verið
unnið að því að gera flugvöll í
Álftaveri. Hefur honum verið
valinn staður norðan við bæinn
Herjólfsstaði.
Er þarna hið ágætasta vallar-
stæði, sandur með fíngerðum
liraunhólum, sem jafnaðir eru
með jarðýtu. Er þetta allmikið
verk og mun taka nokkrar vik-
ur, því að ætlunin er að völlur-
inn verði 1000 metra langur og
50 metra breiður.
Það er mikið öryggi og ómet-
anleg samgöngubót fyrir hvert
byggðarlag að hafa lendingar-
FYRIR nokrum árum lézt að
Kirkjuvegi 17, Hafnarfirði,
Elinbjörg Bjarnadóttir, þá kom-
in á áttræðisaldur.
Elinbjörg ólst upp í foreldra-
húsum í Miðfirði í Húnavatns-
sýslu, en fluttist síðar til ísa-
fjarðar, vár þar í nokkur ár,
en síðustu ár ævi sinnar var hún,
í Hafnarfirði.
Elinbjörg lét eftir sig nokkra
peningaupphæð í sparisjóðsbók
og lagði svo fyrir að þeir skyldu
ganga til mannúðarstofnunar ef
að systur hennar tvær, sem hana
lifðu þyrftu ekki á þeim að
halda. Nú hefir systir hennar,
sem búsett er í Kanada, lagt svo
fyrir að þessir peningar skuli
renna til slysavarnardeildar
kvenna í Rvík og var sparisjóðs-
bók með kr. 3.000,00 afhent for-
manni deildarinnar af frænda
þeirra systra, Lárusi Ottesen.
Þótt þessi upphæð sé ekki stór
xiú í dag, er hún samt margra ára
kaup Elínbjargar og gat ekki
orðið til nema með mikilli vinnu
©g miklum sparnaði og sjálfsaf-
neitun hennar.
Elínbjörg heitin var sterkur
meiður á hinum íslenzka þjóðar-
stofni. Hún var fróðleiksfús,
hreinskilin og hispurslaus í allri
framkomu. Alla sína ævi lagði
hún hart að sér með vinnu og
naut ávallt trausts og vináttu
þeirra, sem hún vann fyrir. Hún
kappkostaði að lifa sjálfstæðu
lífi, vera sjálfri sér nóg og miðla
fremur öðrum eins og þessi fagra
gjöf ber vott um.
Frú Guðrún Jónasson form.
kvennadeildarinnar, flytur gef-
endunum beztu þakkir.
stað fyrir flugvélar. Ekki sízt
getur þetta komið sér vel fyrir
þá „Veringa" að hafa flugvöll,
ef Kötlugos bæri að höndum.
— Fréttaritari.
Sfólavelfa UMF
Árni Kr. Jakobsson, einn kunn-
asti fjallleitarmaður Þingeyinga.
Þetta á ekki síður við í Suður-
Þingeyjarsýslu, en víða annars-
staðar hér á landi.
í Eftirfarandi vísa, sem er eftir
Þingeying og er ort um Hrauns-
rétt í Aðaldal, lýsir einkar vel
þeim hughrifum, sem menn kom-
Drengs
KJÓSVERJAR hafa tekið upp
það ráð til þess að safna fé fyrir
stólum í félagsheimili sitt, að
hefja svonefnda stólaveltu. Er
hún fólgin í því að skora á menn
að gefa andvirði eins stóls eða
200 krónur. En um leið og áskor-
anirnar halda áfram greiðir hver
áskorandi þetta framlag af hönd-
um. —
Nýlega hafa þessar áskoranir
verið gerðar í stólaveltu UMF
Drengur í Kjós:
Þorkell Sigurbjörnsson, Sig-
túni 29, skorar á Sig. G. Sigurðs-
son, múrara, Karlagötu 16, og
Svein ÓÍafsson, Sigtúni 29; Ás-
geir Einarsson, dýralæknir, skor-
ar á Pál Ólafsson, Brautarholti,
og Bjarna Þorvarðarson, Bakka;
Páll Ólafsson, Brautarholti, skor-
ar á Kristján Þorgeirsson, Hofi,
og Magnús Magnússon, Likkju;
Sveinn Ólafsson, Sigtúni 29, skor-
ar á Björn Sigurðsson, lækni,
Keflavík, og Friðrik Sigurbjörns-
son, Bolungarvík; Jónína Jóns-
dóttir, Mjóukl. 2, skorar á Guð-
laug Jónsson, Kemiko, og Ingi-
björgu H. Briem, Miklubraut 72;
Guðlaugur Jónsson, Kemiko,
skorar á Birgittu Jónsdóttur,
Bergþórug. 2, og Ingimund
Bjarnason frá Dalsmynni; Helgi
Bjarnason,' brunavörður, skorar
á Jón É. Guðmundsson, bakara,
og Sigurjón Jónsson, bílstj. frá
Blönduh.
r
Oveður veldur tjóni
víða í Finnlandi
HELSINGFORS, 17. okt. — Mik-
ið óveður geisaði um mikinn
hluta Finnlands yfir helgina.
Víða slitnuðu rafmagns- og síma-
línur, og örðugt reyndist að
halda uppi samgöngum. Talsvert
tjón varð af völdum óveðursins.
A BEZT AÐ AUCLÝSA J.
T t MORGUNBLAÐim T
Kjartan Sigtryggsson réttarstjóri
að drætti.
ast í, þegar líða tekur að göng-
um og réttum á haustin.
„Hjartans kæra Hraunsrétt mín,
heimsins mesti gleðistaður.
Af því Malla er svo fín,
yndislega stúlkan mín.
Syng ég þar um sauði og vín,
sæll í hug og fjarska glaður, <
hjartans kæra Hraunsrétt mín, j
heimsins mesti gleðistaður.“
Þótt stúlkan, sem hér er kveð-
ið um, sé ekki lengur í tölu lif-
enda og höfundur vísunnar rosk-
inn maður, er Ijóminn hinn sami
yfir þessum mesta hátíðisdegi ís-
lenzkra sveita — réttardeginum.
Hraunrétt í Aðaldal er stærsta
og fjölbreyttasta fjárrétt í Suð-
ur-Þingeyjarsýslu. Þar var réttað
árlega allt að 9 þúsund fjár á
hausti hverju, áður en fjárpest-
irnar tóku að herja og öll Reykja
heiði var einn afréttargeymur
ósundurgirt. Nú er Hraunsrétt
mun fjárfærri þótt fjáreign þing-
eyskra bænda sé orðin svipuð og
hún var mest fyrir fjárskiptin,
en það er vegna þess að Reyk-
dælingar sem eiga afrétt á
Reykjaheiði hafa ekki notað
hana síðan fjárskiptin fóru fram,
og Mývetningar hafa sína afrétt
afgirta síðan.
Vinsældir Hraunsréttar eru þó
enn hinar sömu og áður, þótt
réttarféð sé ekki „nema“ 5—6
þúsund fjár nú, enda sækir fjöldi
fólks réttina, bæði úr nágrenni
og lengra að, t. d. frá Húsavík
og af Akureyri.
Hraunsrétt stendur hjá bæn-
um Hrauni í Aðaldal. Var rétt-
in byggð um 1830 og er því um
125 ára gömul. Réttin er hlaðin
úr hraungrýti og er 1800 ferm.
í henni eru 34 dilkar 5432 ferm.
að stærð og er því stærð réttar-
innar 7232 ferm. Áfastur réttinni
er stór safnhringur í hraunjaðr-
inum fyrir gangnafé, er veitir
þreyttu fé öruggt skjól fyrir
köldum haustnæðingnum.
— H. G.
Qiaríes IVorman kvartettinn
kring um jörðina
GAUTABORG, í september.
GÓÐKUNNINGJAR okkar íslendinga, Charles Norman, hljóm-
sveitarstjóri frá Svíþjóð, og hinir þrír spilarar hans, hafa
undanfarið verið ráðnir til að spila á skemmtistaðnum China í
Stokkhólmi. En nú fara Svíþjóð, ísland og hin Norðurlöndin bráð-
um að verða of lítil fyrir svo þekktan og góðan kvartett.
HNATTFERÐ )
í janúar til apríl næsta ár hafa
félagarnir í hyggju að fara í eina
langferð með sænska skipinu
„Kungsholm“, kring um jörðina.
Þeir hafa ákveðið að baeta við
einum blásara, og verða þá orðn-
ir fimm.
Bengt Wittström, sem Jeikur á
bassann, er þegar farinn að
dreyma um að fá áheyrn hjá
Síamskonungi, sem kvað vera
mikill áhugamaður fyrir jazz-
músík.
BEINT UTVARP
Dagskrárliðurinn „CharlieJNor-
man Show“ kemur ekki aftur í
sænska útvarpið í haust. í stað
þess kemur önnur útsending með
þeim á mánudagsmorgnum. Hálf-
tími í einu. Verður það útvarp
fyrir unga fólkið, sent beint frá
skemmtistöðunum, á ýmsum stöð
um. —
þau heimta kind af fjalli.
Gleði barnanna er mikil, þegar
Uppáhaldsáheyrendur Nor-
mans eru í Gautaborg. Hvergi
eru móttökurnar eins hjartanleg-
ar eins og þar. En metaðsóknin
er þó alltaf ennþá, í Lundvika,
þegar Charlie og spilararnir
koma á sumrin þangað til að
spila fyrir fólkið. Má því segja,
i að hann sé einn þeirra fáu, sem
| verða „spámenn í sínum heima-
bæ“, en Norman er frá Lundvika.
Þessi mynd af Charlie Norman
kvartettinum er tekin í Halm-
stad á vesturströnd Svíþjóðar,
þegar hann var þar staddur í
hljómleikaför síðast.
HAAG. — Júlíana drottning og
Bernhard prins fóru s.l. laugar-
dag flugleiðis til hollenzku An-
tilleseyjanna og hollenzku Gui-
ana. Er þetta í fyrsta skipti, sem
hollenzkur þjóðhöfðingi fer í
heimsókn til þessara nýlendna.