Morgunblaðið - 02.11.1955, Blaðsíða 7
|~ Miðvikudagur 2. nóv. 1955
MORGVJSBLAÐIÐ
f
__J\venl?jó(\in oy -^JJeimiiiÉ
Um somkvæmisvenjur og siði
VETUR er genginn í garð og þá
fer samkvæmislífið að hefjast. —
Eiginkonur og heimasætur kaupa
sér nýja samkvæmiskjóla og skó
og töskur. Allar vilja þær revna
að slá hverja aðra út hvað klæða-
burð og útlit snertir og það er
líka gott og blessað. Einhver
sagði einhverntiman að konur í-
klæddust ekki skarti til þess að
ganga í augun í karlmönnunum
heldur gei'ðu þær það til þess að
„ergja“ kynsystur sínar.
SENDIÐ BODSKORT
En það er ekki nóg fyrir heima
sætur og eiginkonur að vera vel
klæddar í samkvæmum, heldur
er einnig mjög nauðsynlegt að
kunna sig vel í öllum samkvæm-
isvenjum. — Hér á landi eru
samkvæmi oftast nær ekki eins
formleg og í öðrum löndum, hér
er vanalega ekki haft svo mikið
við að senda út boðskort, ef um
venjulega miðdegisveizlu er að
ræða og þykir slíkt, ef það er
gert, jafnvel benda til „snobb-
háttar“ og stórbokkaskapar.
En þetta er hinn mesti mis-
skilningur. Einmitt það að senda
út skemmtileg boðskort í mið-
degisveizlu er mjög viðeigandi í
alla staði. — Þá er eitt, sem er-
lendis tíðkast, að þegar gestirnir
koma er herrunum fengið kort
sem á stendur hvaða dömu þeir
eigi að leiða til borðs. — Má þá
mjög gjarnan skrifa einhverja
skemmtilega persónulega athuga
semd á kortið og e.t.v. festa lítið
blóm á það. — Hér tíðkast þó að
hafa borðkortið við hvern disk
við matborðið og má segja að
slíkt sé óhjákvæmilegt, a.m.k.
þegar margir gestir eru.
EKKI BÍÐA EFTIR
ÞEIM SÍÐBÚNU
Ef framreiða á „cocktaila" á
undan matnum er ekki rétt að
bíða með þá þangað til allir gest-
irnir eru komnir. Þvert á móti á
húsmóðirin að koma í veg fyrir
að gestirnir veroi vandræðalegir
og þegjandalegir, að þeim leiðist
á meðan þeir bíða eftir matnum.
— Bezt er að hafa biðtímann sem
stvtztan og alls ekki er rétt að
bíða lengur eftir síðasta gestin-
um en í 20 mínútur, nema að það
sé heiðursgesturinn eða einhver
þjóðhöfðingi.
FORÐIST MATARLYKT
f STOFUNNI
Þá er eitt, sem er mjög áríð-
andi, þegar þér haldið matar-
veizlu. Inni i stofu má ekki undir
neinum kringumstæðum vera vís-
bending um hvernig matseðil’inn
verður — matarlykt. Gestirnir,
íem koma að utan eru sérlega
Margt ungt fólk kann ekki einfötdustu
umgengnisvenjur.
Grundarkirkja í
Eyjafirði 50 ára
Akureyri, 31. október.
SÍÐASTLIÐINN sunnudag var fimmtíu ára afmælis Grundar-
kirkju í Eyjafirði veglega minnzt með hátíðaguðsþjónustu.
Dreif mikinn mannfjölda að, víðsvegar úr héraðinu og var hvert
sæti í kirkjunni skipað. Veður var hið fegursta. Kirkjan var blóm-
um skreytt og fór guðsþjónustan mjög hátíðlega fram.
lvktnæmir, ágætt ráð er að
steinka íbúðina með ofurlitlu
kölnarvatni áður en þeir koma.
Húsmóðurin ætti að gefa sér
góðan tíma til þess að klæða sig
um og snyrta. (H.ér er gert ráð
fyrir að hún hafi hjálparstúlku
í eldhúsinu). Rétt áður en gest-
irnir koma er of seint, þvi oftast
er húsbóndinn á síðustu stundu
og teppir þá baðherbergið og eng-
inn kemst að.
EFTIRLÁTIÖ ÖÖMUNUM
SVFFNHERBERGIÐ
Ágætur siður er að kvenfólkið
fái að leggja kápur sínar frá sér
inni í svefnherberginu. Þá geta
þær fengið að laga á sér hárið og
púðra nefið áður en þær ganga
til stofu. Ein húsmóðir var meira
að segja svo hugsunarsöm að hún
hafði á snyrtiborðinu sínu púð-
urdós, dyftvendi, sem hún hafði
búið til úr bómull og bundið mis-
lit silkibönd utan um, greiðu
og handspegil, pappírsþurrk-
ur og ilmvatn, þannig að
þær dömur, sem e.t.v. höfðu
gleymt einhverju af þessu heima,
gátu snyrt sig rækilega. Þetta er
mjög vinsælt meðal kvenna og
engin fyrirhöfn fyrir húsmóður-
ina, þ.e.a.s. ef hún hefur það
mikið húsrúm að hún hafi sér-
herbergi fyrir börnin, ef þau eru
einhver.
legra að hafa mörg smá gesta-
handklæði heldur en að hafa eitt
stórt.
KUNNIÐ ÞÉR AÐ KYNNA?
Margir, sérlega meðal yngra
fólks, kunna ekki að kynna fólk.
Ef verið er að kynna karlmann
fyrir konu á að nefna nafn kon-
unnar síðast, ef það er ungur
maður og gamall, sem verið er
að kynna er nafn þess eldra nefnt
síðast, ef um er að ræða unga
stúlku og roskinn, háttsettan
mann, er nafn mannsins nefnt á
eftir. Þetta liggur í því, að það
Frh. á bls. 12
MISLITAR, LITLAR
GESTAHANDÞURRKUR
í baðherberginu er mjög
skemmtilegt að koma fvrir litlum
gestahandþurrkum, í faliegum,
mismunandi litum. Þau getur
maður saumað sjálfur (bezt að
hafa þau á stærð við stóran karl-
mannsvasaktút). Það er skemmti
Tweed-efni eru enn mjög vinsæl
í kápur og dragtir. — Myndin
sýnir tweed-frakka fyrir vetur-
inn.
Tvíbökur eru vinsælar með kvöldkaffinu
TVÍBÖKUBAKSTUR er dálítið tafsamur en ef við förum eftir
kúnstarinnar reglum fáum við líka afbragðs góðar tvíbökur.
— Úr tvíbökudeiginu á að búa til frekar litlar bollur, baka þær
við vægan hita, skera þær síðan í sundur og leggja
þær saman tvær og tvær þannig að annað sárið snúi niður og
hitt upp, og þurrka þær síðan við vægan hita. — Með því móti
komast helmingi fleiri á plötuna í einu. — Þær eru sérlega góðar
með kardemommum eða sitrónuberki.
Hér fara á eftir tvær ágætar tvíbökuuppskriftir.
PROFESSORATVIBOKUR
250 gr. hveiti, 1 sléttf. tesk.
lyftiduft, 120 gr. smjör, 70 gr.
svkur, Vz þevtt egg, % dl. kald-
Fyrirferðamikil armbðnd
ur í'jómi, 3 tesk. kardemommur.
Hveitið og lyftiduftið er sigt-
að vel, smjörið er mulið saman
við. Sykrinum er blandað sam-
an við ásamt egginu og karde-
mommunum og allt er hnoðað
mjög vel. |
Búnar eru til pylsur úr deiginu
sem síðan eru skornar niður og
hnoðaðar litlar bollur, sem eru
látnar á velsmurða plötu og
bakast við vægan hita í 7 mín.
Þær eru aðeins látnar kólna en
síðan skornar í sundur með
brauðsög eða tómathníf og því
næst latnar aftur á plötuna og
látnar vera inn i ofninum við
vægan hita þar til þær eru Ijós-
brúnar.
ÐANSKAR TVIBOKUR 1
250 gr hveiti, 114 tsk. lyfti-
duft, 85 gr. smjörl., 110 gr. ljós
púðursvkur, 1% dl. köld mjólk,
kardemommur eða rifinn börk-
ur af 1 sítrónu.
Deigið er búið til á sama hátt
Stór og fyrirferðarmikil armbönd eru nijög í tízku nú. Myndin Qg hér ofan er jýgt ______ munið
sýnir hvernig þau taka sig út. Armböndin þykja fegurst þegar þau 1 ag ef þer notið mjólk eða rjóma
eru fyrirferðarmest og niður úr þeim eiga að hanga ýmsir skraut- í uppskrift ásamt lyftidufti skal
hlutir. hvorttveggja véra kalt.
Viðstaddur guðsþjónustuna var
vígslubiskupinn í Hólabiskups-
dæmi hinu forna, séra Friðrik J.
Rafnar, Akureyri, auk sex prests-
vígðra manna annarra.
PRESTAR FÓRU SKRÚB-
GÖNGU TIL KIRKJU
Athöfnin hófst með því, að
prestarnir gengu skrúðgöngu til
kirkjunnar meðan samhringt var.
Bæn í kórdyrum flutti séra Stef-
án Snævarr, prestur að Völlum í
Svarfaðardal, en séra Pétur Sig-
urgeirsson á Akureyri þjónaði
fyrir altari. Á undan prédikun
flutti sóknarpresturinn, séra
Benjamín Kristjánsson ávarp og
sagði frá vígslu kirkjunnar fyrir
hálfri öld síðan. Rakti hann sögu
hennar á þessu tímabili. Minntist
liann Magnúsar bónda Sigurðs-
sonar, sem af óvenjulegum stór-
hug og höfðingsskap bvggði
þessa kit-kju fyrir eigið fé og
einnig minntist hann presta
þeirra sem þjónað höfðu kirkj-
unni á undan honum. Að lokum
fór hann með kafla úr hinni
fögru og áhrifamiklu ræðu er
séra Jónas Jónasson prófastur á
Hrafnagili flutti á sama stað fyr-
ir 50 árum síðan.
HÁTÍ9LEG ATHÖFN
Að því búnu flútti séra Sigurð-
ur Stefánsson, prófastur á
Möðruvöllum, prédikun út af
guðspjalli dag'sins. Eftir prédik-
un þjónaði séra Kristján Róberts-
son, prestur á Akureyri, fyrir
altari, en séra Bjartmar Krist-
jánsson, prestur að Mælifelli,
flutti útgöngubæn.
Söngflokkar Grundar-, Möðru-
valla- og Saurbæjarsókna önnuð-
ust kirkjusönginn undir stjórn
kirkjuorganistans, frú Sigríðar
Schiöth, og voru sungir hinir
sömu sálmar og sungnir höfðu
verið er kirkjan var vigð. Fór
athöfn þessi mjög hátíðlega fram.
ÞAKKADI FYRIR HÖND
KIRKJUEIGENDA
í lok guðsþjónustunnar kvaddi
sér hljóðs Ragnar Davíðsson,
hreppstjóri á Grund. fjárhalds-
maður kirkjunnar, og þakkaði
fyrir hönd kirkjueigenda gjafir
þær er kirkjunni höfðu borizt og
minntist látinna afkomenda
Magnúsar á Grund, Aðalsteins og
Valgerðar, er bæði höfðu búið á
Grund við miklar ástsældir og
bað kirkjugesti að rísa úr sætum
til að heiðra minningu þeirra.
Síðan bauð hann öllum viðstödd-
um til kafíidrykkju heima á
staðnum. Var þar veitt af mikilli
rausn og fóru fram ræðuhöld
undir borðum.
HINN EIGINLEGI
KIRKJUDAGUR GRUNÐAR
Smíði Grundarkirkju var hafin
15. júní 1904, en lokið 11. nóv-
ember 1905, daginn áður en
kirkjan var vígð. Bar þann vígslu
dag, samkvæmt kirkjuárinu upp
á 21. sunnudag eftir þretmingar-
hátíð og verður sá sunnudagur
því að teljast hinn eiginlegi
kirkjudagur Grundar.
EIN AF FEGURSTU
KIRKJUM LANDSINS
Frumteikningu að kirkjunni
gerði Sigtryggur Jóhannsson,
timburmeistari á Akureyri, í sam
ráði við kirkjueigandann Magnús
Sigurðsson, sem mestu réð um út-
lit og alla gerð kirkjunnar og
sparaði þar til engan hlut að hún
vrði sem veglegust. Yfirsmiður
við bygginguna var Ásmundur
Bjarnason frá Eskifirði. Var svo
ágætlega vandað til byggingar-
innar, að Grundarkirkja var
lengi og er jafnvel enn í dag
talin vera ein af fegurstu kirkj-
um landsins. Hefur henni ávallt
verið vel við haldið af erfingjum
og afkomendum Magnúsar, sem
veitt hafa henni frábæra umhirðu
og gefið til hennar marga góða
gripi og fagra.
VEGLEGAR GJAFIR
KIRKJUEIGENDA
Sóknarpresturinn skýrði frá
þvi í ræðu sinni, að nýlega hefði
frú Margrét Sigurðardóttir á
Grund og maður hennar Ragnar
Davíðsson, gefið kirkjunni vand-
aðan skírnarfont, en frú Aðal-
steina Magnúsdóttir, yngsta dótt-
ir Magnúsar á Grund, forkunn-
arfagran altarisdúk er hún hafðí
sjálf saumað. Þé skýrði hann frá
því, að nú hefðu þessir sömu
kirkjueigendur gefið kirkjunni
fallega bundna gestabók, enda
mundu fleiri gestir innlendir og
útlendir hafa lagt leið sína að
Grund undanfarna hálfa öld én
til flestra annarra staða á land-
ADRAR G.TAFIR
Þá hafa hjónin á Grund frú
Pálína Jónsdóttir og Snæbjörn
Sigurðsson gefið klrkjunni hag-
leca útskorna söngtöílu, mikinn
kjörgrip er gort hefur Jón Bergs-
son frá Ólafsfirði, frú Rósa Páls-
; dóttir Stefánsson tvo dýrnveta
kertastiaka til minninear um
fvrri mann sinn, Aðalstein Magn-
ússon á Grund, kvenfélag sóknar-
innar fagran messuskrúða, rykký*
h'n og hökul, er fyrst var tekinn
til notkunar þennan dag, og enn-
fremur bárust kirkjunni þennan
dag 5 búsund krónur frá Hólm-
geiri Þorsteinssyni á Hrafnagili
og dætrum hans. til minningar
um frú Valeerði Magnúsdóttur
frá Grund. Var bað huemynd gef-
enda, að fé þetta vrði byrjur til
sTÓðsmvnduriar er varið skvldi til
raílýsingar kirkjunnar begar ’-af-
masn verður lagt um héraðið. —
Einnig b.ámst kirkjvmni fleiyi
peningagjafir þennan dag.
— Jénas.
járn lieíst
hðfldíi pegn ólöfjlegum
hvalveitiun! Onassis
Eftirlitsmennirnir
reknir
EFTIRLITSMENNIRNIR frá
Panama, sem undanfarin tvö ár
hafa gegnt störfum um borð.í
hvalveiðimóðurskipi Onassis,
„Olympic Chalienger“, hafa nú
fengið fyrirmæli um að bætta
j störfum. Eins og menn 11110x1
minnast fengust nýlega ótvíræðar
sannanir fyrir þvi, að gríski út-
gerðarmaðurinn og olíukóngur-
inn hefði látið þetta hvalveiði-
móðurskip sitt stunda ólöglegar
hvalveiðar. Voru eftirlitsmenn-
irnir tveir sakaðir um að hafa
vitandi vits gefið rangar skýrslur
til að koma í veg fvrir, að upp-
vísl vrði vim ólöglegar hvalveiðar.
Á dögunum sendi norska utan-
rikisráðuneytið stjórn Panama
1 nákvæmar vipplýsingar um sann-
anir þær, er lægju fyrir um ólög-
| legar hvalveiðar móðurskipsins,
| en Norðmenn eiga þarna mikilla
hagsmuna að gæta. Stjórn Pan-
ama hefir enn ekki svarað ákær-
um utanrikisráðuneytisins, en
hinsvegar skýrt svo frá, að málið
sé í rannsókn.