Morgunblaðið - 02.11.1955, Síða 9
Miðvikudagur 2. nóv. 1955
MORGUNBLAÐIB
9
ingvar Emiisson segir frá forselakosningum í Brasilíu
RÚMT ár er nú liðið síðan at-
burðir þeir gerðust er urðu þess
valdandi að Getulio Vargas íyrr-
um einræðisherra og síðar þjóð-
kjörinn forseti Brasilíu var
neyddur til þess að segja af sér
völdum og framdi sjálfsmorð
nokkrum klukkustundum síðar.
Síðkvöld eitt í ágúst i fyrra var
blaðamaður nokkur að nafni
Carlos Lacerda á leið heim að
loknu dagsverki, ásamt vini sín-
um, háttsettum manni í flughern- 1
um, sem þó var ekki einkennis-'
klæddur. Er þeir komu að húsi
blaðamannsins réðust á þá vopn-1
aðir menn. Skothríð hófst og
áður en árásarmennirnir flúðu,
var flugmaðurinn fallinn í valinn
og blaðamaðurinn mikið særður.
Strax daginn eftir var það al-
manna rómur, að hér myndu hafa
orðið einhver mistök og að blaða-
maðurinn en ekki flugforinginn
hefði verið sá, sem koma átti
fyrir kattarnef. Hefði árásar-
mönnunum tekizt það sem til var
ætlazt, hefði vafalaust ekkert
stórkostlegt gerzt. Blöðin hefðu
mótmælt morði á góðum starfs-
manni og heimtað, að sökudólg-
arnir yrðu fundnir. En hin borg-
aralega iögregla myndi varla
hafa aðhafst neitt, sem komið
gæti upp um þá, sem á bak við
árásina stóðu, fremur en vana-
lega, því að þetta er því miður
ekki í fyrsta skipti,. sem at-
burðir þessu líkir gerast, án þess,
að sökin yrði nokkurn tíma upp-
vís.
RANNSÓKN HERSINS
En í þetta skiptið höguðu ör-
lögin því svo til, að háttsettur
maður úr flughernum var myrt-
ur. Herinn fékk því tækifæri,
eins og af himnum sent, til að
nota sér lagalega heimild og grípa
inn í rannsókn málsins. Þar með
var skriðan hlaupm af stað og
hið langþráða tækifæri var kom-
ið og skyldi notað, hvað sem
það kostaði.
Rannsókn var rétt byrjuð, þeg-
ar böndin bárust að mönnum,
sem hátt stóðu í hinu pólitíska
samstirni Vargas forseta. Eftir
eltingaleik í myrkviðum hinna
stórfenglegu Orgelfjalla í ná-
grenni Rio, sem minnti óneit-
anlega talsvert á enskar refa-
veiðar, tókst að handsama for-'
ingja árásarmannanna. Hann var
liðþjáiii úr iífverði forsetans
sjálfs, og kvaðst hafa ætlað að
framkværna skipun yfirmanns
sins, en verið svo óheppinn,
að skjóta flugmanninn í mis-
gripum.
Plinio Salgado var sá frambjóð-
endanna, sem minnst hafði sig í
frammi. Hann er þó þeirra bezt-
ur ræðumaður.
Herirm mæltist nú til þess að
forsetinn bæðist lausnar meðan
á rannsókninni stæði og að sonur
hans og bróðir yrðu sviftir þing
helgi urr. stund. „Héðan munuð
þið aldroi hafa mig lifandi", svar-
aði forsetinn. Hann baðst form-
lega lausnar að ráði vina sinna,
en stóð þó við orð sín, eins og
kunnugt ei.
VANDAMÁL HVERSDAGSINS
Varafarsetinn, Joao Café Filho,
tók við völdum og tókst með
rólegri og öruggri framkomu
sinni að bera vatn á eldinn, og
brátt sneri fólkið sér að vanda-
málum hversdagsleikans, dollara
skorti, verðfalli á kaffimarkað-
inum, íátækt og fáfræði. Vargas
hafði löngum nefnt sig föður
hinna fátæku og verndara hinna
v.anmát.tugu. Hann átti því marga
áhangendur, sem áttu erfitt með
að sætta sig við hvarf hans. Hins
vegar var hann hataður af þeim,
sem vildu leiða fólkið fram til
Juares Tavora er upprunninn í norðurhéruðunum, sem eru heitust
og fátækust. Honum tókst að safna nokkru íylgi einnig í Suður-
ríkjunum.
þroska og betra lífs eftir leiðum
iýðræðis og réttlætis, en vildu
ekki hylma yfir getuleysi og spill
ingu stiórnarvaldanna með slag-
orðum og lýðskrumi einu saman.
DÝRKUN EINSTAKLINGA
Stjórnkerfi Brasilíu — eða
Bandaríkja Brasilíu Œepublica
dos Estados Unidos do Brasil),
eins og rikjasambandið heitir
réttu nafni — er að miklu leyti
sniðið eftir stjórnarháttum Banda
ríkja N -Ameríku, og hefur for-
setinn líka aðstöðu gagnvart
þingi og stjórn eins og þar. Hann
er kosinn til fjögurra ára með
beinu þjóðaratkvæði. Núverandi
kjörtímabil rennur út um næst-
komandi áramót og eiga því kosn
ingar að fara fram 3. október.
Kosningabaráttan ster.dur því í
algleymingi nú um þessar mundir
milli þeirra fjögurra sem í fram
boði eru. Stjórnmálaflokkar eru
margir hér í landi en áhrifa
þeirra gætir fremur litið, enda
eru þeir mjög litaðir af persónu-
leika foringjanna. Yfirleitt er
það einkennandi, hve mjög öll
stjórnmál snúast um dýrkun eða
hatur á ýmsum írammámönnum.
Vafalaust má hér um kenna
skorti á félagshyggju og þegn-
lyndi, sem mjög verður vart
meðal hárra sem lágra. Vel má
vera að persónudýrkunin eigi
einnig ’-ætur sínar að rekja til
dýrlinga kaþólskunnar.
ADEMAR HINN AUÐUGI
Sá frambjóðandinn sem mestur
styrinn stendur um og á sér
lengstan feril á stjórnmálabraut-
inni, Ademar de Barros, var
handgenginn Getulio Vargas,
þegar á einræðistímabilinu. Hann
þykir hafa auðgas+ grunsamlega
meðan hann hafði trúnaðarstörf
með höndum. Eftir að hafa verið
fylkisstjóri í Sao Paulo-fylki um
skeið, var hann kominn í tölu
auðjöfra á brasilíanskan mæli-
kvarða, en þá eiga menn vel fyr-
ir einni messu. Hann var í fram-
boði við síðustu fylkiskosningar
í Sao Paulo, en féll, þrátt fyrir
gífurlega áróðursvél, og vonuðu
andstæðingar hans, að þar með
hefði auðurinn allur runnið í
áróðurskostnað og atkvæðakaup.
En Ademar var ekki af baki
dottinn enn, því að nú stjórnar
hann áróðursvél, sem ekki á sinn
líka hér í landi. Hann^á sér marga
fylgjendur meðal stærri og
smærri iðnrekenda, og annarra
sem í daglegum störfum fást við
verkleg vandamál. Þeir benda á
þá staðreynd, að framkvæmdir
hafi aldrei meiri verið af hálfu
hins opinbera, en þegar hann sat
við völd í Sao Paulo-fylki. Hins
vegar er andstæðinga hans aðal-
lega að finna meðal mennta-
manna og frjálslyndra hugsjóna
manna, sem bera til hans djúpa
fyrirlitningu vegna óheiðarleika
og fjármálaspillingar.
FRAMB.IÓÐANDI ÚR NORÐUR
FYLKI
Andstæðingar Ademars sam-
einast um annan frambjóðanda,
sem lítt hefur haft sig í frammi
í stjórnmálum áður. Sá heitir
Juarez Távora og er herforingi.
Hann er upprunninn að norðan
og á því sína sterkustu stuðnings-
menn í norðurfy'ikjunum. And-
stæðingar hans eiga erfitt með |
að finna á hann salcir, vegna'
þess hve lítt hann hefur haft sig.
í frammi. I
Juarez hefur fengið í lið með
sér einn mesta lýðskrumara lands
ins, Janio Quadros núverandi
fylkisstjóra Sao Paulo fylkis. —
Janio hefur fengið lausn frá störf,
um, meðan á kosningabaráttunni
stenduu, og ferðast nú með Juarez'
Fylgismenn Ademars de Barros fjölmenntu á kosningafundi til
að hylla hinn mikla framkvæmdamann. En 11 vörubilar gátu
orðið honum dýrkeypt spaug.
og heldur þrumandi ræður gegn
einræði og spillingu.
Samkvæmt lögum er ólæsu
fólki óheimilt að neyta atkvæðis
og kosning utan kjörstaðar, ekki
leyfð. Þetta rýrir mjög líkurnar
fyrir að Juarez nái kosningu,
vegna þess að hlutfallstala ólæsra
er langsamlega hæst í norður-
fylkjunum og auk þess vinnur
mjög margt fólk að norðan hér
í suðurfylkjunum og hefur auð-
vitað engin tök á að íerðast 4
þús. kíiómetra til þess að kjósa.
Eina von Juarez til að ná kosn-
ingu er því, að honum ta'kist
að safna fylgi í suðurfylkjunum.
Brasilíumenn líkja ’-íkjasam-
bandinu við járnbrautarlest með
20 vögnum, þar sem Sao Paulo
er dráttarvagninn, en norður-
fylkin þyngstu vagnarnif, og þar
að auaki með öll hjólin föst.Fylgj
endur Ju.arez benda á, að hann
sé líklegastur til að fá hjólin
þar norður frá til að snúast og
létta þannig þungri byrði af
suðurfylkjunum, sem Jengra eru
á veg komin með a'ila hluti.
FRAMBJÓÐANDI VARGAS-
MANNA
Þriðji frambjóðandir.n, Juscel-
ino Kukitsek de Oliveira var í
fyrra kosinn fylkisstjóri í Minas
Gerais, nágrannafyiki Sao
Paulo. Hann sagði af sér embætti
til að gerast forsetaefni. Flesta
af fylgjendum hans er að finna
meðal Vargas-manna, enda átti
hann mikil skipti við Vargas síð-
ustu mánuði stjórnar hans.And-
stæðingum hans hefur tekizt að
hengja á hann kommúnistalit,
en sá flokkur er bannaður með
lögum hér í landi, þótt allir viti
að hann starfar, enda með ólík-
indum, ef svo væri ekki. Fylgj-
endur segja, að hann hafi aldrei
verið riðinn við nema fjár-
glæframál og mæla með því, að
allir andstæðingar Ademars sam-
einist um Juscelino, í stað þess
að eyðileggja atkvæði sitt á Ju-
arez.
Sá frambjóðandinn zem hefur
sig minnst í frammi í kosninga-
áróðrinum he.'
Eftir styrjöld.
mjög hljótt um
marga aðra af
hans um allan
nefnilega einn
um fasistahi:
stóð á bak vio
til að velta Va
stríð. Plínio er t
maður af fjór
sæmilegastur
höfðingjans.
fleiri fylgjendu
ar, og gæti j
á óvart.
ir Plínio Salgado.
ía hefur verið
hann, eins og svo
sk oðan abræðrum
heim. Hann var
af íorvígismönn-
jyfingarinnár og
margar tilraunir
gas af stóli fyrir
alinn beztur ræðu
nenningunum og
í embætti þjóð-
ilann á sjálfsagt
en margan grun
,ví komið öllum
STAL — STAL EKKI
Segja má, að opnin, sem barizt
er með, séu öl) heldur af lélegra
taginu. Hæst 1 er þó „stal, stal
ekki“, og er það helzt Ademar,
sem fær að kenna á því. Hann
hefur fengið tíc r kvaðningar frá
hæstarétti :aú I miðri kosninga-
hriðinni út af máli, sem risið hef-
ur vegna nokkr ra vörubíla, sem
honum áskotnsðist meðan hann.
var fylkisstjóri Sao Paulo fyrir
5 árum síðan. : etta vörubílamál
átti drjúgan þá t i að fella hann
í fyrra, og væri það sannkölluð
kaldhæðni örlaganna, ef þessir
10 vörubílar æ tu eftir að gera
enda á hans póhtísku fjallgö'ngu,
ekki sízt, þar ;em hann getur
stært sig af þv:, a5 hafa opnað
hinn nýja akveg milli Sao Paulo
og Santos, sem ■ r eitthvert mesta
vegamannvirki ' Suður-Ameríku.
Um úrslit kos.ninganna 3. okt.
er erfitt að spá. Almenningsálitið
er mjög á reiki cg íólk hefur lítil
tök á að gera sér grein fyrir
hvern það vill í forsetaembætti.
Lítil - „Vjomba“ á s'ðustu stundu
gæti gerbreytt illum spám.
HERINN HLU
Lýðveldi Su
löngum verið
stjórnarbylting
það yfirmenn :
síðast í órgenr
ið þörf hjá sé
í stjórnarsölun
'LAUS
ur-Ameríku hafa
bekkt fyrir tiðar
ar. Venju'iega eru
: .ersins, eins og nú
únu sem hafa fund
■ til að breyta íil
um, einkum ef hiu
Frh. á bls. 12.
»
i að stjóinmáB þar snúa&t um
rfýrkuni eða hatur á framámönnum