Morgunblaðið - 10.11.1955, Síða 9

Morgunblaðið - 10.11.1955, Síða 9
Fimmtudagur 10. nóv. 1955 MORCVISBLAÐIÐ 9 Jakob Möller fyrrverandi ráðherra JAKOB MÖLLER var fæddur 11. júlí 1880 á Stóra-Bergi á ! Skagaströnd. — Foreldrar hans ' voru Ole Möller kaupmaður, síð- ! ast á Hjalteyri, og kona hans Ingibjörg Gísladóttir bónda á Neðri-Mýrum í Refasveit Jóns- sonar. ! Jakob var þriðji maður frá Ole Möller, sem fyrstur af þeim ætt- legg settist að hér á landi og flutt- ist til Reykjavíkur 1810 frá Ólafs- vík, þar sem hann hafði verið verzlunarstjóri. Er það merkur ættstofn, því að t.d. mun Christ- mas heitinn Möller ráðherra í Hanmörku hafa verið af honum sprottinn. Og af ættföðurnum hér á iandi eru auk þeirra, sem sækja til hans Möllers-nafnið, komnir margir nafnkunnir menn svo sem Vilhjálmur Finsen hæstaréttar- dómari og Niels R. Finsen læknir og Nóbelsverðlaunamaður. Jakob ólst upp með foreldrum sínum, var settur til mennta og lauk stúdentsprófi 1902. Síðan stundaði hann framhaídsnám í Kaupmannahöfn og Reykjavík en lauk ekki embættisprófi. — Bankaritari í Landsbankanum gerðist hann 1909 og gegndi því starfi þar til hann varð ritstjóri "Vísis 1915. Eftir það má segja, að ýmis konar stjórnmálastörf hafi iekið mest af tíma hans, þó að liann yrði að sækja lífsuppeldi sitt til annara starfa eins og geng- ur. Það hef ég fyrst heyrt um stjórnmálaskoðanir Jakobs Möll- •ers, að faðir minn, sem var bekkjarbróðir Jakobs, sagðí, að þeir hefðu einu sinni á skólaár- unum gengið tveir saman niður með læk hér í bænum og rætt þjóðmálin og verið þá á mótí öllu ©g öllum; mest auðvitað þeim, sem einhver völd höfðu. Þeim Jakobi hefur því farið svipað og ýmsum öðrum ungum mönnum að hneigjast til andstöðu og stjórnleysis um tvítugsaldur, en toáðir lögðu þeir síðan krafta sína fram við uppbygging íslenzka rík ísins og öflun fullkomins sjálf- stæðis því til handa. Á stúdentsárum sínum gerðist Jakob eindreginn Landvamar- maður og síðan Sjálfstæðismað- ur, þegar Sjálfstæðisflokkurinn eldri var stofnaður m.a. fyrir for- göngu Landvarnarmanna. Jakob var einn af hörðustu baráttu- mönnum Sjálfstæðisflokksins hér í bæ og var það í beinu fram- haldi af þvi, að hann tók við rit- stjórn Vísis 1915. Um þær mundir fór hín fyrri flokkaskipan mjög að ruglast og ágreiningurinn meira og meira að verða um innanlandsmálin. — Jakob hóf þá þegar ódeíga bar- áttu fyrir frjálsri verzlun og at- hafnafrelsi yfirleitt. Sú barátta stendur enn og hafa fylkingar riðlazt á ýmsa vegu á þessu fjörutíu ára bili. En ætíð meðan Jakob tók þátt í stjórnmálum var hann að finna þar sem ósveigj anlegast var barizt fyrir málsstað frelsisins. Varð það m. a. til þess, að leiðir skildu stundum milli hans og ýmsra, er sömu megin- skoðanir höfðu en töldu Jakob um of einsýnan í baráttu sinni. Kom þetta strax fram, þegar Jakob Möller vann sinn fyrsra og að sumu leyti frægasta stjórn- málasigur. Það var, er hann felldi þáverandi forsætisráðherra Jón Magnússon við þingkosning- ar í Reykjavík haustið 1919. — Reykjavík var þá tvímennings- kjördæmi og voru þeir rétt kjörnir, sem flest fengu atkvæð- in. Jón Magnússon og Sveinn Björnsson þáverandi yfirdómslög maður buðu sig fram saman. Á móti þeim _voru frambjóðendur Alþýðuflokksins, og voru þeir Jón og Sveinn taldir vissir með sigur. Þá bauð Jakob Möller sig fram á síðustu stundu eínn síns liðs og man ég vel, að ýmsum, er honum fylgdu, þóttu sigurhorf- ur hans óvænlegar. En Jakobi tókst að skapa um sig eldmóð í kosningabaráttunni. Heróp fylgis Minningarorð Kveðja ftá formanni Sjálfstceðisflokksins Jakob Möller. manna hans: ..Kobbi skal á þing“,! talin til hlítar nema sem hluti hljómaði hvar vetna um bæinn. Við atkvæðatalninguna kom í ljós, að hann hafði fimm atkvæð- um fleira en Jón Magnússon, svo að kosnir voru Sveinn Björnsson og Jakob Möller, en hinn æðsti maður innanlands féll. Þegar á þing kom var kosning- in kærð og samþykkti meirihluti þingmanna að ógilda kosningu Jakobs. Jón Magnússon neitaði hins vegar að bjóða sig fram að nýju og urðu endalokin þau, að Jakob varð sjálfkjörinn. — Sat hann því næst á þingi samfleytt til 1927. Við kosningarnar 1923 var Jakob Möller kosinn á lista með þeim Jóni Þorlákssyni og Magn- úsi Jónssyni, en þá höfðu hlut- fallskosningar verið lögleiddar í Reykjavík og þingmönnum fjölg- að í fjóra. Á þingi 1924 beitti Jón Þorláksson sér síðan fyrir mynd- un íhaldsflokksins. Mér er ókunn ugt, hvort Jakobi var gefinn kost- ur á að vera í þeim félagsskap, en víst er, að hann gekk ekki í flokkinn heldur hélt samstarfi við fyrri félaga sína úr Sjálf- stæðisflokknum gamla, er mynd- uðu nokkru síðar Frjálslynda flokkinn. Jakob bauð sig fram undir merkjum þess flokks 1927 og fylgdi honum harðsnúið lið hennar. Því verður ekki neitað, að flokkaruglingur sá, sem ríkti á meðan Jakob Möller var á létt- asta skeiði, háði honum nokkuð og gerði að verkum, að starfs- orka hans nýttist um skeið miður en skyldi. Jafnvel eftir að Sjálf- stæðisflokkurinn var myndaður og Jakob orðinn einn af helztu forystumönnum hans gætti þar frá sumra hálfu mótstöðu í hans garð vegna fyrri ágreinings. And- stæðingarnir gengu óspart á það lag og varð hatrammur áróður þeirra til þess að veikja aðstöðu Jakobs innan flokksins um skeið. Ég minnist þessa nú vegna þess, að lítill vandi er að halda góðu samstarfi og vináttu á meðan allt leikur í lyndi. Vandinn kemur, þegar mönnum sýnist sitt hvað, og þá ekki sízt, ef þeir telja sig verða vara persónulegs andróð- urs. En einmitt vegna þess að menn horfðust af hreinskilni í augu við vandann gátu þeir leyst hann, og varð þetta til þess að tengja menn enn fastari bönd- um en áður og auka veg Jakobs innan flokksins. Á það reyndi mjög árið 1939 við myndun þjóðstjórnarinnar. Um þá ráðstöfun voru flokks- menn mjög ósammála og var RIISTJÓRI dagblaðs í nær áfcatug, bæjarstjórnar- og bæjarráðs’maður í höfuðstað landsins uw langt árabil, alþing- ismaður í mer aldarfjórðung og fjármálaráðhcsra í nokkur ár. Allt féll þetta Jakob Möller í skaut og raunar margur annar vandi og virðing eins og nýverið hefur verið sagt frá hér í blað- inu. Skapheitur baráttumaður, sem þcnnan feril á að baki og nýtur að leiðarlokum trausts og virð- ingar og þeirrar gæfu að eiga sér engan óvildarmann, er bæði vitur maður og góður drengur. í hópi alþingismanna var Jak- ob Möller oft nefndur „skýrasti heili þingsins“. Hann var mikill málafylgjumaður. Oft harð- skeyttur í kappræðum, en aldrei illkvittinn svo undan sviði, flug- mælskur, ef honum hitnaði í skapi en alitaf gjörhugull og rök- vís svo af bar. Jakob Möller unni frelsinu á öllum sviðum þjóðlífsins. — í sjálfstæðisbaráttunni var hann jafnan í fylkingu þeirra sem fast- ast stóðu á rétti íslendinga, og í innanlandserjunum var hann harðsnúnasti fjandmaður allra hafta og banna á sviði verzlunar og viðskipta og sýndi þá oft meira þolgæði og festu en flestir eða allir aðrir. Er á því lítill vafi að frjáls verzlun og athafnafrelsið í landinu hefur á síðari áratugum engan fyrirsvarsmann átt til jafns við Jakob Möller, og mun sann- ast þó síðar verði, að þjóðin á það honum öðrum fremur að þakka hversu glæðst hefur skiln- ingur á böli hafta og banna en blessun sem víðtækasts athafna- frelsis. Sá sem þetta ritar hefur oft leitt rök að því að til mikils vel- farnaðar reyndist, að Sjálfstæðis- menn létu tilleiðast að taka hönd- um saman við andstæðingana um stjórn landsins og löggjöf snemma árs 1939. Skulu þau rök ekki rakin hér. Jakob Möller var í öndverðu á öðru máli. Hann sætti sig þó við að þeir réðu í flokki Sjálfstæðismanna, sem aff þessu ráði vildu hníga. Hann gerði meira. Hann léði sjálfan aig til starfa í þágu málsins og tók við embætti fjármálaráð- herra i hinni svonefndu þjóff- stjórn. Jakob Möller gat fallizt á samstarfið er rök höfðu veriff leidd að því að þjóðarnauðsyn helgaði það. Hitt reyndist honuna erfiðara að sætta sjálfan sig viff, að takast á hendur ráðherra- embætti í slíkri samsteypustjórn. Hann gerði það þó vegna þess, og eingöngu vegna þess, að hann sá að með þeim einum hætti var auðið að forða Sjálfstæðisflokkn- um frá varanlegu tjóni út af þeirri misklíð, er risið hafði um hvort rétt væri að Sjálfstæðis- flokkurinn gengi til stjórnarsam- starfs við andstæðingana. Jakob Möller vann þá sem oftar flokki sínum og þjóð til þurftar. Það vita þeir bezt ogf meta mest sem gerst þekktn þennan dula og yfirlætislausa mann, sem hvers vandræði vildt leysa, en láta sjálfs sín helzt aff sem minnstu getið. Að loknu stjórnmálastarfi lét Jakob MöIIer tilleiðast að taka við embætti sendiherra íslands í Danmörku. Hann vann hylli og vináttu allra fslendinga í Dan- mörku, en lét að öðru leyti ekki mikið að sér kveða. Það er dóm- ur þeirra, sem bezt þekkja, aff íslendingar hafi tæplega átt völ á hæfari manni í það sendiherra- embætti eins og þá stóðu sakir. Á langri æfi átti Jakob Möller oft við miltla vanheilsu að stríða. Afköstin urðu því stundum minni en óvenjulegar gáfur hans, þol- gæði, skaphiti og skapfesta stóðu til. Hann hverfur þó sjónum meff mörg ágæt afrek að baki, vinsæll og virtur vel. Og enda þótt hann væri dulur og í rauninni fáskipt- inn maður, verður hans nú sakn- að af mörgum, sem þakka ríka réttlætiskennd hans, góffvild og hjálpfýsi og telja hann í röff fremstu manna sinnar samtiðar á íslandi. Ólafur Thors. fjármál, enda var hann óvenju | af sér, en vandræði margra leysti töluglöggur og átti hægt með að hann og ötullega vann hann að átta sig á flóknum viðfangsefn- um. öllum þeim málum, sem stjórn- arvöld fengu honum til með- Um þessar mundir og fram á ferðar. Efast ég um, að öðrum árið 1944 var mikilvægasta við- fangsefnið í íslenzkum stjórnmál- um að undirbúa og tryggja sam- bandsslit við Danmörku og lýð- veldisstofnun á íslandi eigi síðar en ekki nægði fjöldi þess til að jajiob Möller einna fremstur afla honum kosningar, þó að litlu j flokki þeirra, sem voru henni 17. juni 1944. Jakob Möller munaði. | rneð öllu andvígir. Mátti litlu hafði ríkan hug á að koma þess- Á árinu 1929 runnu síðan muna, að hálfur þingflokkurinn íhaldsflokkurinn og Frjálslyndi lýsti andstöðu við stjórnina og flokkurinn í eitt, Sjálfstæðis- , hefði það getað haft ófyrirsjáan- flokkinn, og varð Jakob Möller (legar afleiðingar. —- Á síðustu þegar í stað einn af forustumönn- I stundu beitti Jakob sér þá fyrir um hans og átti sæti í miðstjórn sáttum og varð hann að innsigla flokksins þar til hann lét af þaer með því að gerast sjálfur . sendiherra íslenzka lýðveldisins stjórnmálastörfum. Jakob var j fjármálaráðherra. til Danmerkur var því mjög vel kosinn á þing aftur strax við j Aðkoman var erfið, þegar Ól- til fundið, að Jakob varð fyrir fyrsta tækifæri, eftir þingrofið . afur Thors og Jakob Möller J vaiinu. Þar sem hann fór var einn um ráðagerðum fram, svo sem nærri mátti geta eftir áhuga hans í þessum efnum allt frá æsku- árum. Þegar að því kom eftir styrj- aldarlok að velja hinn fyrsta 1931, og sat eftir það óslitið á Alþingi sem fulltrúi Reykjavík- ur þar til hann varð sendiherra 1945. komu í ríkisstjórnina vorið 1939, ’ af forvigismönnum skilnaðarins enda höfðu árin þá á undan verið við Dani, maður, sem öruggt var hin ömurlegustu og öllum almenn | um, að í hvívetna mundi koma ingi hin erfiðustu á þessari öld. 1 fram með virðuleik og hófsemi í bæjarstjórn Reykjavíkur var Styrjöldin, er hófst haustið 1939, og ekki láta sér bregða þótt hann Jakob kosinn 1930 og sat þar og atburðir hennar breyttu að yrði var hins gamla stór-danska einnig til 1945. Hann átti sæti í bæjarráði frá því að það var stofnað 1932, ætíð meðan hann var í bæjarstjórn og gengdi ýms- vísu viðfangsefnunum, leystu hugsunarháttar, sem blossaði upp sum vandamálin en sköpuðu af nýju við sambandsslitin, svo önnur og var því við ærið að fást sem mátti sjá fyrir að verða mundi, hvenær sem íslendingar neyttu réttar síns til fulls sjálf- stæðis. Jakob gegndi síðan sendiherra embættinu í Kaupmannahöfn og á þeim árum. Jakob sat í rikis- um öðrum trúnaðarstörfum inn- j stjórn fram undir árslok 1942, an bæjarstjórnarinnar. M.a. var ætíð sem fjármálaráðherra og hann lengi formaður bæjarstjórn : einnig; sem dómsmálaráðherra arflokks Sjálfstæðismanna. j rúmlega hálft ár eftir að Sjálf- Ógerningur er að þessu sinni stæðismenn tóku einir við stjórn ' siðar einnig í Helsingfors þangað að rekja öll stjórnmálastörf Jak- á árinu 1942. Jakob Möller reynd til hann varð að láta af störfum obs eða rifja upp skifti hans af ist góður og réttlátur stjórnandi; sökum aldurs. Hann sóttist að einstökum málum. Þau eru veiga sem fjármálaráðherra kom hon- ■ vísu ekki sérstaklega eftir veizl- mikill þáttur af þjóðarsögunni um að góðu haldi, að á Alþingi um þau árin fremur en endranær um mannsaldursbil og verða ekki hafði hann ætíð mjög sýslað um og aldrei mun hann hafa talað hefði betur tekizt en honum aff halda þá á málum gegn Dönum, sem sumir höfðu þá fullan hug á að bekkjast til við íslendinga, ef færi gæfist. Eftir að Jakob lét af embætti hefur hann dvalið hér í bæ, við hrörnandi heilsu síðasta árið. — Annars var heilsufari hans svo háttað, að á árunum um 1930 átti hann við langvarndi vanheilsu að búa sökum illkynjaðs magasárs en lækningu hlaut hann á þeim sjúkdómi. Vegna sjúk- æfiskeiðið, hafði hann legið rúm- fastur frá því síðari hluta sumars lengst af á spítala, en þegar sýnt var að hverju draga mundi, lét hann flytja sig heim og andaðist þar að morgni dags hinn 5. nóv. s.l. — Jakob Möller átti ágæta konu, Þóru, dóttur Þórðar Guðjohnsens verzlunarstjóra á Húsavík. Hún dó ung á árinu 1922 frá fjórum sonum þeirra, sem þá voru allir í æsku, en nú eru uppkomnir, allir mætir menn; Gunnar fram- kvæmdarstjóri Sjúkrasamlags Reykjavíkur, Ingólfur skipstjóri, Baldur fulltrúi í dómsmálaráðu- neytinu og Þórður læknir. Var því viðbrugðið hvílíka umhyggju Jakob hefði sýnt sonum sínum og heimili eftir lát húsfreyjunn- Frh. á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.