Morgunblaðið - 10.11.1955, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 10.11.1955, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐI9 Fimmtudagur 10. nóv. Iú55 ?*“ -*-* £- ■**" Ekki með vopnum vegið ð EFTIR SIMENON NYKOMIÐ Smekklegt úrval af rjEJ Framh'aldssagan 38 ifeena eða stela frá umkomuiausri gamalli konu, sem hefur verið bæði eiginmanni sínum og ást.... En aðeins einn þorði að gera það.... Annað hvort verð- ur það sprengja eða skammbyssa, herrar mínir.... sprengja, sem jsprengir okkur alla í loft upp, eða skammbyssa, sem hittir að- ■eins hinn seka mann, hinn sam- vizkulausa morðingja.... Nú. eru fjórar mínútur til miðnættis....“ Greifinn þagði, en bætti svo við og nú var röddin hörkuleg: „Gleymið því ekki, að enginn veit.... “ Hann greip til viskíflöskunnar og helti í glösin hjá þeim öllum, byrjaði á Maigret, en endaði á glasi Emiles Gautier. Hann hellti ekki í sitt eigið glas. Var hann búinn að drekka lyst sína? Ljósið dó á einu kert- inu. Bráðlega myndi slokkna á hinum sex líka. „Ég sagði miðnætti.... Þrjár mínútur eftir....“ Hann stældi háttalag og lát- bragð uppboðshaldara. „Þrjár mínútur til miðnættis .... tvær mínútur.... Morðing- inn mun deyja.... Þér getið far- ið að byrja að lesa bænir, Mon- sieur le Curé.... Og þér læknir, ég vona að þér hafið komið með töskuna yðar.... Tvær mínútur eftir.... ein og hálf mínúta.... “ Og stöðugt hélt sami fóturinn áfram hnippingum sínum í skjóli borðdúksins, en Maigret þorði ekki að láta niður og eiga þá e.t.v. á hættu, að missa af ein- hverju, sem væri enn mikilvæg- ara. i SENDISVEIN vantar oss strax til innheimtu og sendistarfa Starfstími 9—12 f. h. 6.l>tRSIEIN8S0N t JOHHSOII! IBUÐ Okkur vantar rúmgóða 3ja herbergja íbúð með öllum þægindum nú þegar eða fyrir jól. Hárri og skilvísri húsaleigu heitið og fyrirframgreiðslu eftir samkomulagi. Húshjálp ef óskað er og afnot af síma. — Tilboð merkt: ,,Gott fyrir báða 1955“, sendist fyrir hádegi á laugardag. K jötverzl anlr Ágætur lundi Mo Jónsson & Co. h.f. Vestmannaeyjar — Sími 212 BLOMLALKAR Það, sem eftir er af blómlaukum, seljum við á mjög niðursettu verði. Blóm og ávextir . TIL SÖLL eru tveir 70—80 smál. véloátar í góðu standi. Nánari upplýsingar veitir Björn Ólafs bankaftr. LANDSBANKI ÍSLANDS Stofnlánadeild sjávarútvegsins. Hafnarfjörður Smábarnaskólinn tekur til starfa mánudaginn 14. nóvember. — Upplýsingar milli klukkan 10—12 á morgun í síma 9585. Kári og Eyjólfur. „Ég verð hér ekki stundinni lengur. Ég er farinn út!“ hrópaði málflutningsmaðurinn og staul- aðist á fætur, reikull í spori. Augu allra beindust að honum. Hann var staðinn á fætur.... Hann greip um bakið á stólnum .... Hann byrjaði að ganga hin þrjú, hættulegu skref til dyranna .... Hann hikstaði. Og á sama andartaki reið skot- ið af. f eina sekúndu, eða kannski tvær, sátu allir eins og stirnaðir og magnvana. Ljósið á öðru kertinu dó og í sömu andrá riðaði Maurice de Saint-Fiacre til í sætinu, rak herðarnar í bakið á gotneska stólnum, hallaðist út á vinstri hliðina, gerði máttlitla tilraun til að rétta sig við í sætinu, en féll svo fram á borðið og lá hreyf- ingarlaus með höfuðið á öxl prestsins. 10. kafli. í hinni rökkruðu stofu lenti allt á ringulreið og upplausn ríkti næstu mínúturnar á eftir. Alls staðar var eitthvað að ske og þegar allt var afstaðið gat sér- hver viðstaddra aðeins sagt frá minnsta hlutanum af þeim at- burðum, er hann hafði verið vitni að. Nú voru aðeins fimm kerti eft- ir, til þess að Jýsa um borðstof- una og mestur hluti hennar var skuggsýnn eða alveg myrkur, Sá, sem skotið hafði var sessu- nautur Maigrets, umsjónar- manns, Emile Gautier og hann hafði naumast lagt frá sér rjúk- andi b3,’ssuna, þegar hann rétti báða úlnliðina að umsjónarmann- inum, með hægum, leikaralegum hreyfingum, eins og hann væri að bíða eftir handjárnunum. Maigret var risinn úr sæti sínu. Gautier stóð upp og sömuleiðis faðir hans. Þessir þrír menn mynduðu hóp öðrum megin við borðið, en hinir þrír umkringdu fórnardýrið. Höfuð greifans lá enn fram á öxl prestsins. Læknirinn laut niður að honum og leit svo í kringum sig þungbúinn á svip. „Er hann dáinn?“ spurði mál- flutningsmaðurinn með aulalegri forvitni. Ekkert svar. Jean Métayer hélt sig í hvor- ugum hópnum. Hann stóð við hliðina á stólnum sínum, angist- arfullur, náfölur í framan og vissi ekki hvert horfa skyldi. Eile Gautier hlýtur að hafa notað síðustu mínúturnar áður en hann gerði árásina, til þess að undirbúa afsakanir sínar, því að varla hafði skothvellurinn hljóðn að til fulls, þegar hann sneri sér j að Maigret og gat bókstaflega j talað einarða yfirlýsingu: „Það var hann, sem kom fyrst- ! ur með þennan boðskap, eða var j kannski ekki svo.... ? Morðing- inn skyldi deyja.... Og fyrst hann var of huglaus til að full- inæeja réttlætinu sjálfur....“ | Óskammfeilni hans var undra- verð og sannfæringarkrafturinn í svip hans og orðum mjög mik- í ill. — i „.... gerði ég það, sem ég áleit fyrst og fremst að væri skylda mín.... “ I Hvort heyrðu þeir, sem stóðu hinu megin við borðið, orð hans? Fótatak hevrðist frammi á ganginum. Það var þjónustufólk- ið, og læknirinn gekk út í dvrn- ar til þess að það ryddist ekki inn í stofuna. Maigret heyrði ekki hvað hann sagði til þess að svala forvitni þess og koma því burt af ganginum. „Ég sá greifann vera að flækj- ast hér í kringum höllina. kvöld- telpu- og unglinga- kuldaúlpum úr ullarefnum. Einnig síðbuxur úr ullarefnum — einlitar og köflóttar. ZJ~eídur h.Í. LAUGAVEG 116 — Morgunblaðið með morgunkaffinu — Rúllugardínur Nýkominn fallegur góður dúkur á rúllugardínur empo Laugavegi 17B ucnroii LEQTON er dásamlegasta sápan, seni til er. — Froðan or fínger8, mjúk og ilinar yradislega. — Hún hreinsar prýJIilega og er óvenjndrjúg. Eg nota aðeins LECTTON- sápiiraa, sem heldur hiirund- inu nragu, mjúku og hraust- legu. HEILDSÖLUBIRGÐIR: lo Brynjólfsson & Kvaran

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.