Morgunblaðið - 10.11.1955, Page 16

Morgunblaðið - 10.11.1955, Page 16
Veðurúilif í dag: N og NV kaldi. Úrkomalaust og sumstaðar léttskýjað. 257. tbl. — Fimmtudagur 10. nóvember 1955 Fiskiíræðingar segja frá. Sjá bls. 8. Tiliaga um hlutdeildarfyrirkomulag í atvinnurekstri landsmanna Verkomenn verði meðeigendur nð ntvinnufyrirtækjum Tillaga Sjálfstæðismanna á Alþingi ÞRÍR þingmenn Sjálfstæðisflokksins á Alþingi hafa fyrir skömmu lagt þar fram tillögu til þingsályktunar um hlutdeildar- og arðskiptifyrirkomulag í atvinnurekstri íslendinga. Er hún svo- fcljóðandi: „Alþingi áiyktar að fela ríkisstjórninni að láta rannsaka og gera tillögur um, hvar og hvernig megi bezt koma á hlutdeiidar- Og arðskiftifyrirkomulagi í atvinnurekstri íslendinga, og á hvern þátt þing og stjórn gæti stuðlað að eflingu slíks fyrirkomulags. Skal ríkigstjórnin hafa samráð við fulltrúa frá samtökum at- vinnurekenda ðg launþega um þetta undirbúningsstarf, er skal lokið eins fljótt og mbglileikar eru á“. Flutningsmenn tillögunnar þeir Sigurður Bjarnason, Gunn- ar Thoroddsen og Magnús Jónsson. 4>- EEYNT \» SÆTTA VINNU ©G FJÁRMAGN í greinargerð tillögunnar er m. a. komizt að orði á þessa leið: „Á Alþingi árið 1937 fluttu þeir Jóhann G. Möller og Thor Yhors tillögu svipaðs efnis og þá, er hér að ofan greinir. Skyldi samkvæmt henni skipuð 5 manna milliþinganefnd til þess að rann- saka~ og gera tillögur um hlut- deildar- og arðskiptifyrirkomulag í atvinnurekstri íslendinga. Tillaga þessi var samþykkt og nefndin kosin samkvæmt henni. En við það sat. Nefndin hólt aðeins einn fund og engar tillögur komu frá henni. Það er skoðun fiutningsmanna þessarar tillögu, sem nú er flutt, að hér sé um svo merkilegt mál &ð ræða, að gera beri tilraun til áw koma því á frekari rekspöl. Wagsmunaárekstrar gerast nú stöðugt tíðari milli vinnuveit- enda og verkalýðs í hinu íslenzka þjóðfélagi. Efnahags- og afkomu- grundvöllur þjóðarinnar verður við þessar deilur ótraustari. Engra úrræða má því láta ófreist- að til þess að sætta vinnu og fjár- magn, koma á friði milli þeirra, sem stjórna atvinnutækjunum, og þeirra, sem vinna við þau. Mjög Wklegt verður að telja, að stórt spor væri stigið í þá átt með því ítð gera verkamennina, sjó- mennina og iðnaðarmennina að meðeigendum og meðstjórnend- tnrn í atvinnufyrirtækjunum, þar sem því verður við komið. Að því takmarki stefnir þessi tillaga. MLUTDEILD í ARÐI í greinargerð þeirri, sem fylgdi tillögu þeirra Jóhanns G. Möllers Gg Thor Thors árið 1937 var því skipulagi greinilega lýst, sem hér er um að ræða. Leyfa flutnings- menn þessarar tillögu sér að jprenta þann kafla greinargerðar þeirrar upp hér á eftir. En þar var komizt að orði á þessa leið: „Hér skal atvinnufyrirkomu- lagi þessu lýst nokkuð. Arðskipti G rirkomulagið gengur út á það að veita starfsmönnum fyrirtækj- anna hlutdeild í arði þeirra. Er það eitt út af fyrir sig mjög þýð- mgarmikið atriði og mjög til bóía frá því, sem nú er víða. Oft er samfara arðskiptingunni eftir- íit og nokkur stjórnaríhhlutun af hálfu verkamannanna, En hlut- deildarfyrirkomulagið sjálft (co- partnership) miðar að því að veita starfsmönnum fyrirtækj- anna áhrifavald I fyrirtækjunum, ekki einungis með þeim hætti að gera þá hluttakandi í arði fyrir- fct'kjanna; héldur með því að gera þá beinlínis að meðeigend- um þeirra. Yfirleitt er það stefnu- mið þeirra manna, sem berjast fyrir þessu máli, að allir verka- menn fyrirtækjanna hafi hlut- töku í arði þeirra, eignist hlut í þeim og hafi íhlutun um stjórn þeirra eða eftirlit með henni. Má í sem stytztu máli segja, að grund vallarsetningar þessa fyrirkomu- lags séu: ÍHIiUTUN UM REKSTUR 1. að verkamennirnir fái auk hinna föstu launa ein- hvern hluta í arðinum; 2. að þeim gefist kostur á að safna arðhluta sínum, eða ein- hverjum hluta hans, til þess með honum að eignast hluta í atvinnufyrirtækjunum; 3. að þeir fái hlutdeild í stjórn fyrirtækjanna, annað hvort með því: a) að eignast hlutafé og verða á þann hátt aðnjótandi réttinda venjulegra hluthafa, eða með því: b) að nefnd verkamanna hvers fyr- irtækis hafi íhlutun um rekst- ur þess. Eru þetta þær grundvallarsetn- ingar, sem sérstaklega hefur ver- ið byggt á í þessu efni. En fjöl- breytni fyrirkomulagsins er svo að segja takmarkalaus, enda hægt að beita því við svo tíl allar greinar atvinnulífsins. Er fengin í þessum efnum mikil reynsla erlendis." Járnsmiðurinn nemur land á ný í góða veðrinu í gær, nam „Járnsmiðurinn“, hin tákn- ræna mynd eftír Ásmund Sveinsson myndhöggvara, land í tungunni milli Þorfinns götu og Snorrabrautar. Var þessi mikla höggmynd sett á tréundirstöður, sem væntan- lega eru þó aðeins til bráða-1 birgða. Járnsmiðurinn var merki Iðnsýningarinnar miklu og var útskúfað af lóð Iðn-1 skólans í sumar og var fluttur þaðan í gær. Þó það geti vart orkað tvímæl- is, að Járnsmiðurinn, átti hvergi betur heima en við Iðn1 skólann, þá er honum ekki í kot vísað, þar sem hann nú á að standa, því óvíða í bæn- um er umferð meiri en á þess-! um slóðum, og þessi litli reitur getur orðið mjög fallegur. | Austurbæingar fagna Járn- j smiðnum og vona, að hann verði ekki síðasta listaverkið, sem sett verður upp i þessum víðlenda bæjarhluta og þakka Ásmundi Sveinssyni fyrir lista verkið. Þetta eru rústir b >averkstæðisins við Borgartún, sem eyðilagðist í bruna í fyrrakvöld. Sá hluti hússins sem uppi stendur enn er einnig talinn með öllu ónýtur. Verulegt tjón varð af þessum bruna, (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) 97 EÞipIomata-vegjabs'éi" erzs ekki misaaotuS Utanríkisráðherra þvertekur fyrir dylgjur Gyifa. Færeyingur á Akurey meiðist AKRANESI, 9. nóv.: — Hingað kom togarinn Akurey af veiðum í kvöld með 260—270 lestir af l karfa eftir 10 daga útivist. Sí- felldir stormar voru á miðunum. Meðal áhafnar togarans eru 4 Færeyingar, allir úr Sandey. Það slys varð um borð í Akurey í gærkvöldi, að ein Færeyinganna, Gunnleyg Jakobsen, festi vinstri hönd milli vírs og polla. Tók einn fingurinn alveg af, en þrír rnörð- ust. Var Jakobsen fluttur í sjúkrahús strax og skipið kom að landi. — Oddur. Gjaldeyrisforði Svíþjóðar endist aðeins til þriggja mánaða innflutnings j NÚ UM HELGINA hélt aðalbankastjóri sænska þjóðbankans ^ ræðu, þar sem hann varaði mjög alvarlega við þeirri miklu ' hættu, sem stafaði af of örri launahækkun og þar af leiðandi verðbólgu. — Aðalbankastjórinn sagði meðal annars: — I tíu ár höfum við með stuttu millibili stigið heimskulegan og ógætilegan dans kringum verðbólgueldinn. Við myndum ekki hafa getað haldið þessum leik áfram, ekki einu sinni eitt misseri, ef við hefðum verið einir um þennan leik. Það, sem hingað til hefur bjargað okkur, er, að í löndum kringum okkur hefir sami leikur verið leikinn. En nú gera þessi lönd alvarlegar tilraunir til að stöðva þessa þróun. Ef þeim heppnast, það sem okkur hefur misheppnast, hjálpi oss þá sá sem hjálpað getur. Gjaldeyrisforðinn endist okkur aðeins 3 mánuði. — Ef við höldum verðbólgudansin- um áfram eftir að aðrar þjóðir hætta honum, verðum við að þola mjög sárar aðgjörðir, til þess að komast í samræmi við veru- leikann. — Við getum þá ekki lengur haft atvinnu handa öll- um, atvinnuleysið sýnir svip sinn. Við skulum gæta okkar gegn þeirri tekjuhækkun, sem verður loftið tómt. Við skulum haga ferð okkar hóflega með skynsemi og varúð. Félagsmálaráðherrann var staddur á sama fundi og talaði þar. Hann vísaði meðal annars til ræðu fjármálaráðherrans, sem hann hafði flutt nokkru fyrr. Hitinn í efnahagsmálum okkar hefur verið svo mikill, að við höfum orðið nauðbeygðir til að nota hemlana til þess að fyrir- byggja að allt spryngi. Spurn- ingin er, hvort við höfum stigið nægilega kröftuglega á hemlana eða hvort við þurfum að gera það ennþá kröftuglegar. AKRANESI, 9. nóv.: — Sildar- bátarnir héðan fóru allir út í gær, en snéru allir aftur nema Ásbjörn. Lagði hann dálítið af netjum sínum, fékk 50 tunnur af síld, en háhyrningur reif netin. ’ UTANRIKISRAÐHERRA, dr. Kristinn Guðmundsson, skýrði frá því í fyrirspurnatíma að diplomata-vegabréf hefðu verið gefin út sem hér segir síðustu fimm ár: 1951 49 stk. 1952 30 — 1953 39 — 1954 71 — Og það sem af væri þessu ári hefðu 36 diplomata-vegabréf ver- ið gefin út. 108 í GILDI Þá upplýsti hann að 108 menn hefðu nú undir höndum gild diplomata-vegabréf. 60 þeirra eru í höndum fastra starfsmanna ut- anríkisþjónustunnar og skyldu- liðs þeirra. DYLGJUR ÞINGMANNSINS Svarið var gefið við fyrirspurn um frá Gylfa Þ. Gíslasyni. Gylfi sagði í ræðu, að á útgáfu diplomata-vegabréfa hefði verið haldið alltof frjálslega. Einnig sagði hann að menn hafi haldið þeim og notað sér þau þegar þeir hefðu farið til útlanda í einka- erindum. Samt nefndi hann eng- in ákveðin dæmi þess. ENGIN MISNOTKUN Dr. Kristinn mótmælti alger- lega slíkum dylgjum. Hann kvað engan staf fyrir staðhæfingum Gylfa um misnotkun diplomata- Heiðursfélagi í ffugsveH AGNAR Guðmundsson skipstjóri, hefur verið kjörinn heiðursfélagi flugsveitar þeirrar í varnarlið- inu á Keflavíkurflugvelli, sem send hefur verið út til árásar á háhyrningavöðurnar á miðum Suðurnesjabáta nú í vetur. Hefur sem kunnugt er orðið mikill ár- angur og góður af þessu. Yfir- foringi flugsveitar þessarar, J. T. Starker, telur að þakka megi þennan árangur Agnari Guð- mundssyni skipstjóra, en Agnar er á hvalveiðivertíð skipstjóri og skytta eins hvalveiðibátanna. Skiptust þeir á gjöfum Agnar og flugforinginn, Starker. Hafði flugsveitin látið gera skemmti- legt heiðursmerki, „hvalaorðuna“ til þess að minna Agnar á þessar ferðir gegn háhyrningnum, en Agnar gaf flugforingjanum ösku bakka, gerðan úr hvaltönn. vegabréfa. Skoraði hann á Gylfa að sanna mál sitt. Ef hann gæti bent á dæmi um misnotkun yrði slíkt að sjálfsögðu lagfært. En það kæmi ekki til. Söngkomi vel tekiö á Aknreyri AKUREYRI, 9. nóv.: — Ingibjörg Steingrímsdóttir söng í gærkvöldi í Nýja Bíói á vegum Tónlistar- félags Akureyrar. Dr. Urbancie aðstoðaði. Á söngskrá voru lög eftir Scarlatti, J. S. Bach, Brahms, Björgvin Guðmundsson, Þórarinn Jónsson, Victor Urbancic, Sjögran Peterson, Berger og Mozart. Söngkonunni var forkunnar vel tekið og barst henni fjöldi blómvanda og ennfremur undir- leikaranum. Söng hún mörg aukalög við mikla hrifningu áheyrenda, sem nær fylltu húsið, og þóttu tónleikar þessir takast með ágætum. Eru þetta fjórðu og síðustu tónleikar Tónlistarfélags lAkureyrar á þessu ári. > — H. Vaíd. FagnaÖur SjlJfsteð- isfél. í Kópavogi SJÁLFSTÆDISFÉLÖGIN í Kópa vogi efna tll fagnaðar í S.jálfstæð ishúsinu I Reykjavík í kvöld kL 8,30, og bjóða þangað öllu starfs- fólki D-listans og öðru stuðn- ingsfólki úr bæjarstjórnarkosn- ingunum. — Fjölbreytt efnisskrá og dans. Aðgöngumiðar verða afhentir í verzl. Kópavogs, Víghólastíg, verzl. Mlðstöð, Digranesvegi 2 og Gíslabúð, Kópavogsbraut 42. Urðu að aflýsa 1 fénleikunuui í gær í GÆRKVÖLDI hafði verið áformað að hinn þýzki harmon ikkusnillíngur, Fritz Dobler, sá er hlotið hefir titil- inn heimsmeistari' í harm- onikkuleik, héldi hér fyrstu tón- leika sína í Reykjavík. En vegna þess að flugvélinni seinkaði að utan, urðu forráðamenn skemmt- unar þessarar að fresta hljóm- leikunum þar til í kvöld kl. 11,15.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.