Morgunblaðið - 24.11.1955, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 24.11.1955, Qupperneq 9
Fimmtudagur 24. nóv. 1955 MORGUNBLAÐIÐ 9 Æviminningar hims vinsæln iésa- skálds Arna Thorsteinsonar Vatnskarlarnir í Teheran aka vatninu um götur borgarinnar i stórum tunnum. Þeir sjást hér og eru að fylla tunnurnar við drykkjarvatnspípurnar i norðurhluta borgarinnar. f oöfum Yðfnskarlar hverf persnesku höfuð InnreiS nýja tímans með fullkomlnni vatnsveitu ISA Pahleví, Persakeisari, uppsprettum fyrir norðan borg- vígði nýiega fyrstu vatns- ina í lokuðum' pípum, sem voru veitu Teheran, höfuðborgar Persíu. Kemur vatnsveita þessi í staðinn fyrir rennandi vatn, sem hefir verið leitt með skurðum inn í borgina. Aðal- æðar hinnar nýju vatnsveitu eru nú að mestu tilhúnar, en byrjað er að leggja innanbæj- aræðar í hús og að vatnspóst- um. VATNSKARLAR HVEKFA Hér er um geysimiklar heil- brigðislegar framfarir að ræða, en þær þýða að hinir sérkenni- legu og að mörgu leyti skemmti- legu vatnssalar Teheran hverfa nú smám saman úr sögunni. Það hefir lengi verið allmikið vandamól í Teheran hvernig ætti að flytja vatn til borgarinnar, sér staklega eftir að borgin tók að vaxa verulega og nýtízku bygg- ingar að rísa upp. LÖGMÁL KÓRANSINS Skömmu eftir 1930 bað þá verandi Persakeisarí þýzka og franska verkfræðinga að gera áætlanir um byggingu vatns- veitu fyrir borgina. Þeir lögðu til að vatnið yrði leitt í píp- um, en kcisarinn brást þá hinn reiðasti við, sagði að það væri alltof dýrt og vitnaði þar að auki í Kóraninn um að vatn, sem rynni í sólarljósinu hreins aðist við hverja 25 metra, sem það rynni áfram. KEKFI AF OPNUM SKURÐUM Það varð því úr að lagt var um borgina all fullkomið kerfi af opnum skurðum. Vatnsstifla var imdir rótum Elburz-fjalla. Þaðan rann vatnið inn í borgina. Á Siverjum morgni var opnað fyrir vatnið. Fyrst var það látíð renna góða stund um skurðina til að fcera burt ýmiss konar rusl, er settist í skurðina. Siðan var straumurinn aukinn <og vatnsgæzlumaður gekk um og hleypti vatni inn í sérstakar vatnsþrær, sem hver fjölskyida bafði til sinna umráða. Þetta vatn var aðeins notað til þvotta. DKYKKJARVATN SELT ÚR TUNNUM Auk þessa var vatn leitt frá ævagamlar. Tóku vatnssölumenn það í stórar tunnur, er voru fest- ar á vagn. Keyptu þeir eina tunnu af drykkjarvatni á kringum 15 aura. Síðan óku þeir vagninum um borgina og seldu hverja vatnsfötu á um 10 aura. Þetta vatn töldu Persar drykkjarhæft, en fáir Evrópumenn munu hafa lagt sér það til munns. FIJLLKOMIN VATNSVEITA Hin nýja vatnsveita er talin ein hin fullkomnasta í Austur- löndum. Vatnið er tekið í Karaj-fljótinu um 40 km. frá Teheran. Við leiðsluna hefir verið byggð hreinsunarstöð, sem kostaði um 50 milljón kr. og var byggð fyrir fé úr al- þjóða sjóði til hjálpar vanyrkt um iöndum. Það voru brezkir verkfræðingar, sem byggðu vatnsveituna. Dvöldust þeir óslitið í Persíu alian vaidatíma Mossadeks og voru þá þeir fáu Bretar, sem höfðust við í lanö inu. Fyrir utan hreinsunarstöðina mun vatnsveitan kosta um 200 milljón kr. Eftir er að leggja 700 sem er borg með 114 millj. íbú- um. Bókðuppboð í Sjálf- sfæðishúsinii í dag í DAG kl. 5 efnir Sigurður Bene- diktsson til bókauppboðs i Sjálf- stæðishúsinu. Verða þar til sölu 66 einstakar bækur og ritsöfn, m. a. Árbók Ferðafélagsins, Úti- legumennirnir eftir Matthías Jochumsson fyrsta útg. af ljóð- mælum Bjarna Thorarensen, Specimen Arngríms lærða og mikill fjöldi ferðabóka um ís- land ó erlendum málum. Bækurnar eru til sýnis í dag fró kl. 10 árdegis til kl. 4 siðd. Þetta er ellefta uppboðið, sem Sigurður Benediktsson heldur á listmunum og bókum. Eru þau orðin mjög vinsæl í bænum og hefir jafnan sótt þau fjöldi fólks. Sigurður mun innan skamms halda eitt af listmunauppboðum sínum. ÞANN 35. október s.l. átti 85 ára afmæli einn bezti braut- ryðjandi tónlistar og söngs hér á landi, Árni Thorsteinsson, tón- skáld. Það fer því vel á því, að nú eftir fiðinn starfsdag er ísa- foldarprentsnúðja að gefa út ævi- minningar Árna, sem Ingólfur Kristjánsson, blaðamaður, hefur fært í letur. Nefnist bókin Harpa mínninganna. Er hún fróðleg og hið merkasta heim- ildarrit um tónlístarsögu þjóðar- innar. Hin síðari árin setja minn- ingabækur æ meiri svip á bóka- markaðinr. fyrir jól. Æviminning ar Árna Thorsteinssonar munu vera í hópi hinna vönduðustu og þar eru dregnir fram í dagsljós nútímans margir þættir úr sögu Reykjavíkur og úr daglegu lífi fólksins allt frá því á seinni tug- ura 19. aldarinnar. FÆDDUR ÞAR, SEM NÚ ER HRESSINGARSKÁLINN Árni Thorsteinsson var fædd- ur 15. október 1870 í Landfógeta- húsinu, eins og það þá nefndist, sem nú er Hressingarskálinn við Austurstræti og þar ólst hann upp. Faðir hans var Árni Thor- steinsson, landfógeti, bróðir Steingr. Thorsteinssonar, skálds, og móðir hans Soffía Kristjana Hannesdóttir, er var sonardóttir Steingríms Jónssonar, biskups í Laugarnesi. i REYKJAVÍK ÚR 2 ÞÚS. MANNA BÆ í 60 ÞÚS. MANNA STÓRBORG t í upphafi æviminninga sinna kemst Árni þannig að orði: „Æskustöðvar mínar voru Mið- bærinn í Reykjavík og margar minningar eru bundnar Austur- velli, Austurstræti, Læknum og fjörun.ni meðfram sjónum. En allt er þetta umhverfi nú orðið breytt. Stórhýsi gnæfa þar, sem áður voru móar, grasfletir og troðnir stígar, horfin eru flest gömlu húsin og litlu bæirnir. Lækurinn hulinn breiðgötu og uppfylling hafnarinnar byggð langt út fyrir gamla fjöruborðið, þar sem brimið svarraði áður við kambinn. Ég hef séð Reykjavík vaxa úr litlu fátæklegu sjávar- þorpi með um 2 þúsund íbúum í þá stórborg, sem hún er nú með rösklega 60 þúsund manns“. ÞÖNGLASTRÍÐ OG ÞINGHÚSVÍGSLA í fyrstu köflum bókarinnar segir Árni Thorsteinsson frá for- eldrahúsum sínum, frá jólahaldi, frá fjölskyldu og frændfólki,* frá leikbræðrum, þönglastriði í flæð- armálinu. Síðan kemur kaflinn „í barnaskóla hjá Helgesen“ Og bráðlega verður það ljóst að ein- hverjar ljúfustu endurminningar sínar á sögumaður úr skólagöngu Árni Thorsteinson 25 ára. bæjarlífinu í þessari litlu höfuð- borg íslands. Hann lýsir vígslu Alþingishússins, sem hann var viðstaddur og síðan öllum þeim miklu görpum, sem þar létu að sér kveða. Þá stóð þing aðeins nokkrar vikur á sumri, en allur bærinn var lifandi af áhuga fyrir því sem gerðist á Alþingi, þing- öll tækifæri á lífyieiðinni, hvar og hvenær sem er. þá minnist hann þess að einhverjir fóru að syngja. Já, það var gaman að lifa í þá daga. Söngur og hljómlist var ofarlega á baugi. Þegar Árni kom í Latínuskól- ann segir hann svo frá: „Söngur setti jafnan mikinn svip á skólalífið, enda var margt ágætra söngmanna i skóianum á þessum árum. Var söngur mikið iðkaður utan hinna föstu söngtíma hjá Steingrími Johnsen. Þegar ég kom í skólann, var þar starí andi sameiginlegt söngfélag skóiapilta og stúdenta og gerð' ist ég strax meðlimur í þvi“. JÁ OG JÚ Það var oft glatt á hjalla á skóláárunum, bæði í Latínuskól- anum og síðan í Kaupmannahöfn, og greinir sagnamaður greinilega frá því i minningunum. Svo ger- ist það, að árið 1907 gengur þessi ungi maður hálfhikandi inn á skrifstofu til Sigurðar Kristjáns- sonar, bóksala, og færir það í tal Ein af hinum merkilegu ljósmyndum, er Árni Thorsteinson tók Sýnir hún eina brúna yfir Lækinn. pallarnir þéttskipaðir áheyrend- um. ALÞJOÐLEGLR BÆR Þá eru meðal skemmtilegustu kafla í bókinni sá sem fjallar um „alþjóðlega bæinn" Reykjavík. Það er um útlendu sjómennina og síðan kaupmenn og alls konar skrýtna siði reykvískra borgara. T.d. skemmtiferðir manna á hest- um út úr bænum. Þar minnist hann þess að einn af helztu kaup- mönnunum kom þeysandi á móti strákunum og hrópaði í neyð sinni: „Heyrið þið piltar. Hafið þið séð sálina mína? Ég hef tap- að sálinni minni“. Strákunum , varð hverft við, en fóru að hjálpa karlinum að leita að sálinni, sem reyndist vera í lokuðu íláti og lá við götuslóðann. í Latínuskólanum. Þar eru gam- ansögurnar flestar hver eftir ÁST Á SÖNG aðra, sem þó vakna hvarvetna, En gegnum alla minningabók- á hvaða stigi lífsins sem er. i ina gengur eins og rauður og ó- Snemma fer hinn ungi Árni slitinn þráður ást Árna Thor- Thorsteinsson að fylgjast með steinsonar á söng og tónlist Við Kariakórinn 17. júní, sem var mjög vinsæll. Fremst sitja Árni Thorsteinson, Sigfús Einarsson og Jón Laxdal, við hann, að hann gefi út söng- iagahefti eftir hann. „Já og jú, ætli maður reyni þetta ekki“, sagði Sigurður. í heftinu voru 12 einsöngs lög. J því var hver perlan ann- arri skærari, enda hrifu þau alla þjóðina. Þarna voru lög eins og „Fífilbrekka gróin grund“, „Vorgyðjan kemur", „Já láttu gamminn geysa“, „Kirkjuhvoll“, „Rósin“, „Þes« bera menn sár“, „Nú ríkir kyrrð í djúpum dal“ o. fl. Það var glæsileg byrjun. MERKILEGT HEIMILDARIT Harpa minninganna skiptist i tvo meginkafla: Fyrst æviminn- ingar tónskáldsins og síðan drög að söng og tónlistarsögu Reykja- víkur, sem er merkilegt heim- ildarrit um hina miklu vakningu íslenzkrar tónlistar, sem Árni sjálfur átti þýðingarmikinn hlut að, þótt maðurinn sé svo hlédræg ur að hann getur litið eigin þátt- ar á þeim stað. í kafla þessum eru m.a. raktar ævisögur Péturs Guðjohnsens, Jónasar Helgason- ar, Helga Heigasonar, Sveinbjarn ar Sveinbjörnssonar, Steíngríms Johnsens, Björns Kristjánssonar, Brvnjólfs Þorlákssonar. Sagt frá helztu söngvurum, kórum og hljómsveitum. Að lokum er í bók- inni Söng- og hljómleikaskrár frá 1900—1935, sem er eins konar hljómlistarannáll Reykjavíkur. FJÖLDI LJÓSMYNDA ' Árni Thorsteinson lærði ljós- myndagerð. Hann var um langt skeið einn helzti atvinnuljós- myndari Reykjavíkur. Gefur það þessari merku minningabók hans mjög mikið gildi, að i henni birt- ist mikill fjöldi ljósmynda eftir hann, sem fæstar hafa birzt áður á prenti. Eru það gamlar myndir af Reykjavík en einnig fjöldi mynda af þeim mönnum sem hélzt korria við sögu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.