Morgunblaðið - 03.12.1955, Síða 1
4* árga»3ra>
277. tbl. — Laugardagur 3. desember 1955
ftemNUti.. atorguublaðslnt
Baráftan um val Bandaríkjaforseta
mun snúast um utanríkismálin
Eemckr&tar óáncegðir með frammistöðu
Eisenhowers á Gcnfarfisndinum
FYRIR skömmu héldu demókratar í Bandarikjunum fyrsta kosn-
ingafund sinn vegna væntanlegra forsetakosninga. I>að hefur
vefið beðið með mikilli et'tirvæntingu eftir þessum fundi, því að
álitið var, að hann mundi gefa til kynna á hvaða vígstöðvum
demókratar hyggðust berjast í væntanlegri kosningabaráttu.
UTÁNRÍKISMÁLIN um demókrata, hvort þeir mundu
EFST Á BAUGT gera utanríkis- eða mnanríkis-
Ekki hefur verið ljóst af bloð- máiin að umræðuefni sínu, en
VEHiFAUJB í M6EES1 EEFUB
UALDIÐ fEYSlLESU TJÓMl
ÚTLIT FYRIR AÐ AÐAI)-
ATVIIvaUVEGIRKíR STÖÐVILT
Oslo, 2. des. — Reuter —- NTB.
I^KKI hafa enn tekizt samningar í verkfalli flutningaverkamanna
-J í Noregi — en það hefur nú staðið í rétta viku. í dag var
setið á sáttafundi — en ekki gekk saman. Er útlitið því allt annað
en gott, og búizt er við að allir helztu atvinnuvegimir muni stöðvast
nú um helgina.
eftir þennan fund er sýnt, að
kosningabaráttan mun að miklu
leyti vera háð með tilliti til utan-
ríkismálastefnu republikana og
gjörða Eisenhowers í þeim efn-
um.
Til máls tóku á þessum fundi
þrír líklegustu frambjóðendur
demókrata við væntanlegar kosn-
ingar. Voru það þeir Adlai Stev-
enson, Kefauver öldungadeildar-
þingmaður og Averell Harriman
fylkisstjóri í New York ríki.
ALDREI AD VÆGJA
Stevenson lét mikið til sín taka
á þessum fundi. Hann hóf mál
sitt á því að segja, að sá maður,
sem hyggðist ganga út í stjórn-
málabaráttuna með friðsemd,
mundi bæði missa friðinn og
stjórnmálalega aðstöðu. Þetta
i gefur til kynna, að Stevenson
| ætlar sér ekki að vera sérstak-
lega mjúkhentur á andstæðing-
um sínum, og sennilegt er, að
mikill hiti verði í kosningabar-
áttunni, ef svo fer, áð Steven-
son verði í framboði, svo sem
flestir búast við,
Framhald á bls. 2.
Mörg iðnfyrirtæki hafa boðað
stöðvun nú um helgina, vegna
eldsneytisskorts. Ástandið í sum-
um héruðum er orðið afar bágt,
og ekki er annað sýnt en algert
neyðarástand muni verða ef ekki
leysist fljótlega úr verkíallinu.
Þó að samningar takist næstu
daga — mun verkfailið standa
enn um stund, því að atkvæða-
greiðsla innan félaga flutninga-
verkamanna mun taka langan
tima.
ÚTFLUTNINGSFR AMLEDB SL -
AN LÖMUÐ
Þetta er eitt alvarlegasta
verklall í langan tíma í Noregi
og er tjónið, sem þjóðarbú-
skapurinn hefur beðið, geysi-
lega mikið. Einn aðalatvinnu-
vegurinn, sjávarútvegurinn,
hefur þegar nær því stöðvazt
og svo er um margar aðrar
atvinnugreinar, sem vinna að
útflutningsframleiðslu.
I
, Snjórinn er komirni
Fyrsti snjór vetrarins féll fyrsta dag jólamánaðar. Þó að snjó-
koman sé okkur íslendingum ekkert sérstakt gleðiefni — þá
kunnu börnin vel að meta hana. „Jólasnjórinn er kominn“, hrópuðu
þau, og brostu út undir eyru. Skíði og sleðar voru dregin fram
og hvarvetna mátti sjá börnin, sem fögnuðu fyrsta snjónum. Þessi
mynd er tekin í Vesturbænum, en skyldi „Kuldaboli“ hafa gerzt
uærgönguli við litlu stúikuna?
Adenouer
uð nýju
BONN 2. des. — Umræður fóru
fram í þinginu í Bonn í dag, og
var þar samþykkt, að v-þýzka
stjórnin skyldi í samvinnu við
þríveldin vinna áfram að því,
að Þýzkaland yrði sameinað með
frjálsum kosningum. Umræðurn-
ar stóðu í fjórar stundir — og
tók þar m. a. til máls dr. Aden-
auer kanslari, og er það í fyrsta
sinn sem hann ávarpar þingið
síðan hann tók við störfum að
nýju eftir hin langvinnu veik-
indi sín. — Reuter.
HÝ COMET &
LONDON, 2. des. — í dag lenti
á flugVellinum í Kairo ný flug-
vél af Comet gerð. Er hún á
leið frá London til Sidney í
Ástralíu og var rúmlega fjóra
klukkutíma að fljúga fyrsta
áfangann — en vegálengdin frá
London til Kairo er 3530 km.
Flugvélin er á tilraunaflugi og
eru með henni fjöldi sérfræðinga.
í fyrramálið mun hun halda
ferðinni áfram með viðkomu í
Bombay, Singapore og Darwin.
—Reuter.
eftir mm.
Moskvu-félagarnir í Indlandi
Þannig hugsar teiknari þýzka blaðsins Die Zeit sér för þeirra
Bulganins og Krusjeffs til Indlands — en þeir buðu Indverjum
eins og kunnugt er hernaðaraðstoð. — Á blaðsíðu 9 er trein. um
Indlandsför þeirra.
Straumhvörf í i
iiim
stjómmálum
Harðnandi afstaða í garð Rússa
ALLMIKLAR sviptingar hafa verið í stjórnmálalifinu í Japan
að undanförnu, og nú fyrir skemmstu voru tveir stærstu
stjórnmálaflokkarnir, frjálslyndi flokkurinn og demokrataflokkur-
inn, sameinaðir í einn flokk. Sameining þessara flokka er talin
hafa í för með sér allmiklar breytingar í stjórnmálalífinu —- og
m. a. er búizt við því, að núverandi' forsætisráðherra, Haytojama
muni láta af forsætisráðherraembætti innan skamms.
FORSÆTISRÁÐHERRASKIPTI
í VÆNDUM
Haytojama hefur um langt
skeið verið formaður demokrata-
flokksins og mótað stefnu stjórn-
arinnar þann tíma, sem hann
hefur gegnt ráðherraembætti.
Ekki lítur samt út fyrir, að hann
Hatoyamn fer frá.
muni koma til greina sem for-
sætisráðherra eftir næstu kosn-
ingar, sem verða sennilega í
aprílmánuði n.k.
Á fyrsta fundinum, sem flokk-
arnir héldu eftir sameininguna,
kom það í ljós, að Haytojama á
ekki að fagna óskiptum stuðningi
hins nýja flokks. Líklegt er, að
Taketora Ogata verði næsti for-
sætisráðherra landsins, en hann
er ritstjóri áhrifamesta blaðsins
í Japan — og va- ráðherra í
stjórn Yosita, sem var í forsæt-
isráðherraembætti næstur á und-
an Haytojama.
HARÐNANDI
UTANRÍKISSTEFNA
Almenn ánægja virðist ríkja í
Japan með hina nýju flokka-
skipun — og er talið að Japanir
vinni tvenpt með þessu. í fyr&ta
lagi kemst á tveggja flokka kerfi
* —- og í öðru lagi verða jiú sam-
einaðar kröfur Japana á hendur
Rússum um .heimsendingu stríðs-
íanga, sem enn eru í haldi í Ráð-
stjórnarríkjunum.
I Sameining flokkanna er einn-
Framhald á bls. 2.
PARIS 2. des. — Coty Frakk-
landsforseti undirritaði í dag
heimild til þess að rjúfa1
franska þingið. Kosningar
eiga því samkvæmt lögum að !
fara fram annaðhvort um J
jólaleytið — eða á nýjársdag.'
Er því úr miklum vanda að :
ráöa — og raddir eru uppi um ■
það að gera lagabrey tingu til :
þess að hægt verði að færa
kosningarnar aftur um nokkra
daga. — Reuter. *
AfvopnunartiHögur
Eisenhowers ræddar í S. 1».
NEW YORK, 2. des. — I dag
lögðu fulltrúar Vesturveld-
anna fram í Sameinuðu þjóð-
unum tillögur s'nar u*n eftiriit
með afvopnun, sem Eisen-
hower átti frumkvæði að —
og bar fram á Genfarfundin-
um í sumar. Eru þær svo sem
kunnugt er, fólgnar í þvi, að
Vesturveldin og Ráðstjórnar-
ríkin skiptist á uppdráttum
og yfirlitsmyndu.il af her-
virkjum. Er ætlur. Vesturveld
anna að leita stuönings Sam-
einuðu þjóðanna við tillögurn
ar — og reyna þannig að
stuðla að því, að Ráðstjórnin
verði fáaníeg tii þess að ræða
afvopnun á þessum grund-
velli. —Reuter.