Morgunblaðið - 08.12.1955, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.12.1955, Blaðsíða 4
20 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 8. des. 1955 j Krtsfmann Gubmundsson: BÓKMENNTIR „Kristín Lafransdóttir", Eftir Sigrid Undset. Helgi Hjörvar og Arnheiðu Sigurðardóttir þýddu, Bókaútgáfan Setberg. „KRISTIN Lavransdatter“ er eitt «f öndvegisverkum heimsbók- tnenntanna og eitt af allra veiga- mestu skáldverkum í bókmennt- um Noirðurlanda. Það er því næsta furðulegt að sagan skuli ekki hafa komið út á íslenzku íyrir löngu, og ástæða til að gleðjast yfir því að útgáfa henn- ar skuli nu loks vera hafin. Fyrsta bindi hennar: „Kransinn“ er komið út í smekklegri og vandaðri útgáfu hjá SetbergL Mikils er um vert að þýðing elíkrar skáldsögu sé vel gerð, og það er auðséð að þýðendur, Helgi Hjörvar og Arnheiður Sigurðar- dóttir, hafa viljað vanda verk eitt. En vandi mikill er að þýða Sigrid Undsted svo í lagi sé, og l>ví er ekki að leyna, að þessi útlegging er af nokkrum vanefn- um gerð. Stílblæ höfundar er ekki náð nema endrum og eins, og hin myndauðga, ritríka og blæbrigðaskreytta frásögn Sig- ridar hefur látið allrnikið ásjá, þegar þýðendumir eru búnir að snara henni yfir á íslenzkt mál. Eigi að síður er nóg eftir til þess að gera bókina vel þess verða, að hún sé lesin af öllum þeim, sem góðum bókmenntum unna. Þýðendur rita yfirleitt go,tt og liíandi mál, þótt þeir nái ekki töfrum höf. Sagan gerist í Noregi á fjórtándu öld og aðalpersónan, Kristin Lavransdóttir, (hvers- vegna þýð breytir því i Lafranz- clóttir skil ég ekki!) er bónda- dóttir af göfugum ættum og seg- ir höf. sögu hennar frá vöggu til grafar, Önnur aðalpersóna er Erlendujr' Nikulásson, — karl- maðurinn sem allar konur dreym ir um að hitta. Báðar þessar persónur eru gerðar af óviðjafn- anlegri snilld og kunnáttu. Auk jþeirra er mikill fjöldi auka- persóna í bókinni, nálega allar meistaralega gerðar, en af þeim verður faðir Kristínar, Lavrans, lesandanum einna minnisstæðast ur. — Atburðalýsingar og um- hverfislýsingar eru einnig gerð- ar af mikilli snilld. Höf. á þá galdragáfu að geta látið lesand- ann sjá og skynja lit og ilm þess er hún lýsir, og hin dramatiska kyngi frásagnarinnar er slík, að hún minnir einatt á hið bezta í íslendingasögum, — enda hefur Sigrid Undset lært mjög mikið af þeim. (Hún las þær á frum- málinu og þýddi að minnsta kosti eina þeirra á norsku). Þá er bygging og þróun sögunnar stór- virki út af fyrir sig, og efnis- meðferðin öll aðdáunarverð. •— Sálfræðileg þekking höf. er lýta- laus, en þó er henni stundum stakkur skorinn; mannþekking aftur á móti afar glögg og dreg- ur hún úr þeim sálfræðilegu gloppum, sem má finna á stöku stað í þróun persónanna. Þetta er, eins og áður getur,' fyrsta bindi þessarar miklu skáld sögu. Meginefni þess er kynning og fyrstu ástir Kristínar og Erlends Nikulássonar, en utan um þær hefur höf. skapað heil- an heim, fullan af bráðlifandí persónum í skírt motuðu um-, hverfi. Skáldinu hefur einnig tekizt að leggja yfir allt þetta blæ horfinnar aldar á sannfær-: andi hátt. Og •— það sem mest er um vert —. allir hmir fjöl- mörgu þættir verksins eru í fullkomnu listrænu samræmi og safnast að einu marki í voldug- an samhljóm, er aldrei gleymist þeim sem eitt sinn skynjar hann. j Albert Schweitzer. Eftír Sigurbjörn Einarsson. Bókaútgáfan Setberg. HVER sá, er hneigist til ofmetn- aðar, ætti að kynna sér líf og raunar allir menn, hverrar artar^eirra miklu kunnastur. Enginn starf Alberts Schweitzers, _ ognúlifandi maður er nafntogaðri sem þeir eru! Þessi heimskunnien Albert Schweitzer. Hann hef- hljómiistarmaður og læknir er éitt af furðulegustu, en jafn- framt huggunarríkustu fyrirbæn um vorra tíma.. Þegar hann var hálfþrítugur var hann búinn að öðlast hæztu lærdómsgráður í heimspeki og guðfræðL Fáum árum síðar var hann orðiiin heimskunnur. fyrir vísindaleg af- rek á tveimur svo ólíkum svið- um sem tónfræði og guðfræði, en var auk þess talinn í flokki mestu snillinga í orgelLeik. Þetta hefði sjálfsagt verið af ýmsum talið ærið lífsstarf, en ekki mun Schweitzer hafa talið það nægja, því þrítugur að aldri tók hann að nema læknisfræði. Og í hvaða tilgangi? — Til þess að gerast læknir aumustu og fátækustu negranna á Mið-Afríku. Hjá þeim hefur hann lengst af dvalið um hálfrar aldar skeið og fórnað þeim ævistarfi sínu og kröftum. Um þennan mikilfenglega mann hafa margar bækur verið skrifaðar og nú hefur Sigurbjöm Einarsson ritað ævisögu hans á íslenzku og tekizt það með ágæt- um. í inngangi bókar sinnar seg- ir höf. svo um Schweitzer: „Hann er engan veginn eini maðurinn, sem hefur fómað lífi sínu fyrir fjarlæga lýði eða ná- læg raunabörn á svipaðan veg eða annan hátt. En hann er ur getið sér heimsfrægð sem guðfræðingur, heimspeliingur og orgelsni’lingur. — Mörg merki æðstu virðingar hefur nann hlot- ið, Aðdáunin þarf ekki í sjálfu sér að sanna ágæti mannsins. Stjörnurnar með haiami, sem mest er talað um, meðan þær fara hjá, eru ekki varanlegar á festingunni. En aðdáunin á Albert Schweitzer er af sterkari toga spunnin. en manndýrkun gerist. Hún er í rauninni lotaing fyrir þ.ví, sem er æðra og háleitara en nokkur maður eða mannaverk. Lífsstarf hans og sú hugsun sem það er sprottið af, er þess eðlis, að menn sjá þar bjarma fyrir því æðsta, sem þeim er auðið að skynja, því fegursta og helgasta, sem þeir geta þráð. Yfir því er endurskin frá Kristi“. Betur og réttar verður þetta naumast sagt. Líf Schweitzers er einmitt stórfengleg og fögur fyr- irmynd, er leiðir hugann að sjálf- um mei8taranum írá Nasaret. Ævisagan er prýðilega saman tekín og höf. hefur giöggt augai fyrir eKki einu(igis mikilleika þessa sjaldgæfa manns, heldur einnig því ævintýralega í lífi hans. Frásögnin öll er létt og lipur, á góðu máli, og því hin skemmtiiegasta aflestrar. Bókin Framhald á bls. 28 Viljið þér gera mér þann greiða að geyma þennan pakka í geymsluhólfi bankans? Jörundur á tilraunaveiðar á síldarmiðum sunnanlands Togariim leggur af stað beimleiðis um næstu helgi og byrjar þegar veiðamar með þýzku flotvörpunni FYRDBtHUGAÐ er að togarinn Jörundur frá Akureyri stundl síldveiaar í tilraunaskyni hér við suðvesturströndina nú í vetur, — Mun togarinn nota þýzka flotvörpu við veiðarnar af sömu gerð og hann hefir nú í tvo vetur notað við síldveiðar í Norðursjó. Svo sem kunnugt er hefir tog- arinn Jörundur, eign Guðmund- ar Jörundssonar útgerðarmanns á Akureyri, stundað síldveiðar í Norðursjó nú í tvo undanfarna vetur. Standa veiðar þessar frá því í september og fram í des- ember. Hefir togaranum gengið veiðar þessar vel báða veturna. Hann er nú um þessar mundir að hætta veiðunum í Norðursjó og mun sennilega leggja af stað frá Þýzkalandi um næstu helgs, BYRJAR TTLRAUNIRNAR Á HEIMLEIÐ Gert er ráð fyrir, að öllu for- fallalausu, að togarinn hefj: tilraunaveiðarnar með þýzku flotvörpuna á leið sinni hingað til lands, er hann kemur á síld- armiðin hér við suðvesturströnd- ina. Guðmundur Jörundsson dvelur nú í Þýzkalandi og fylg- ist með búnaði sltips síns heim á leið. BTLADUR, öxull Samkvæmt reglum Lloyds á að öxuldraga skip á 3ja ára fresti, Fyrir skömmu fór öxulskoðun fram á Jörundi úti í Hamborg og kom þá í Ijós að skipta þurfti um öxul vegna þess að sá gamli var sprunr'inu. Orsakaði þetta hálfsmánaðar töf fyrir togarann og getur hann af þeim sökum ekki lagt af stað heimleiðis fyrr en um næstu helgi, sem fyrr segir. ÖTULL SKIPSTJÓRI Skinstjóri á Jörundi er Sigur- jón Einarsson frá Hafnarfirði. Hefir hann stjórnað skipinu á báðum Norðursjávarvertíðunum og verið happasæll. Hann mun og vera vel kunnugur síldarmið- unum hér við Suðvesturland. Veiðitilraunir þessar eru að einhverju leyti styrktar af opin- berum aðilum og e. t. v. fleirum. B16m!@il starf skáta AKRANESI, 1. des. — f Skátafé- lagi Akraness eru nú 250 manns, og starfar það í 5 sveitum og 18 flokkum. — Væringjar úr Revkja vík stuðluðu að stofnun skátafé- laes drengja hér árið 1926. Var Jón Hallerímsson verzlunarmað- ur fvrsti félapsforinginn og starf- aði fyrir félaeið til dauðadags. —■ Þá var kvenskátafélag stofnac! hér af Svövu Þorleifsdóttur skóla stjóra 1928. En fvrir þremur ár- um voru þessi félög sameinuð í eitt. Formaður þess er hinn ötuli kennari Fans Jöreensson. Á fé- laeið tvö hús: skátahúsið Kirkju- braut 29 og Skátafell. sem stend- ur við rætur Akraf jalls. Lengi býr að fvrstu gerð, má segja, því að allir beir, sem voru stofnendur nð bínum tveimur fé- löeum, eru hinir sömu og sam- einuðu þau í eitt félag fyrir þrem ur árum, eins og fyrr segir. — O.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.