Morgunblaðið - 29.12.1955, Side 1
16 síður
Viðar usnferclar-
truflanir esi
á ísSancli
70 MILLJÓNIR FLUG-
FÁRÞEGA ÁRIÐ SEM LEIÐ
FLiGfJMFERO OEFIIR
SEXTLGFALDAST SIÐAIM
FVRER STRÍO
Montreal 28. des. — NTB-Reuter.
UMFERÐ á alþjóðaflugleiðum jókst um 20 hundraðshluta
á árinu sem leið og ástæða er til þess að ætla að aukn-
ingin verði hlutfallslega meiri á næsta ári, segir í skýrslu
alþjóðaflugmálastofnunarinnar, sem birt var í dag.
William Mildred, formaður stofnunarinnar, skýrir frá því að
flugfélög, sem eru þátttakendur í IATA (alþjóðaflugmálastofnun-
inni) muni á árinu 1955 hafa flutt um 70 milljónir farþega. Sam-
swarandi tala ársins 1954 var 59 milljónir. Póstflutningar og aðrir j
vöruflutningar hafa aukizt hlutfallslega í sama mælikvarða.
Að óbreyttu er ástæða til þess að gera ráð fyrir að flugfarþegar Það er víðar en hér á íslandi, sem snjóþyngslin tefja umferðina.
verði á næsta ári 85 milljónir og .á árinu 1957 yfir 100 milljónir, Hvít jól með fannkomu voru á „hinum“ Norðuriöndunum. Mynd
sagði formaðurinn. í þessi tekin í Danmörku sýnir nokkrar fólksbifreiðar, sem strönduðu
Formaðurinn upplýsti að flugflutningar væru nú sextíu sinnum ' í snjósköflum á sléttum vegi. Falcks björgunarsveitin var þegar
meiri heldur en á árunum fyrir stríð. \ kölluð til að draga bílana.
lUehru scgir
Um verkfræðilega þróun í flug
mólum lét formaðurinn svo um
mælt, að enn um sinn myndi
verða þörf fyrir flugvélar með
stimpilhreyflum. En allt benti þó
til þess að höfuðverkefni flug-
félaga á næstu árum myndi vera
að afla þrýstiloftsflugvéla til
farþegaflutninga.
„Framundan er stærsta endur-
nýjunartímabil flugmálanna,“
sagði formaðurinn. Flugvélaiðn-
aðurinn hefur nú óafgreiddar
pantanir, sem nema að verðmæti
þúsund milljónum dollara.
COMET III
Nokkru áður en skýrsla for-
manns alþjóðaflugmálastofnun-
arinnar var birt, lenti á Lundúna-
flugvelli nýjasta þrýstiloftsfar-
þegaflugvél Breta, Comet III,
eftir að hafa á endaspretti heims-
flugs flogið yfir Atlantshafið frá
Montreal til London á sex klst.
og 18 mínútum.
Flugstjórinn sagði að hann
hefði aldrei í ferðinni umhverfis
hnöttinn reynt að setja ný met,
hann hefði flogið með sama
hraða og hann myndi hafa gert
6 venjulegu farþegaflugi. Flug-
leiðin yfir Atlantshafið er 5.360
km. Meðalhraði flugvélarinnar
var 880 km á klst. en hraðinn
komst einu sinni upp í taepa 1000
km. á klst.
Rússar fagna
amerískri óperu
LENINGRAD, 27. des. — Ame-
rísku óperunni „Porgy and Bess“
var „mjög vel tekið“, að því er
Moskvu-útvarpið segir, er hún
var sýnd í fyrsta skiptið í Sovét-
ríkjunum í Leningrad i gær.
Áhorfendur voru 2300 eða eins
margir og leikhúsið „Menning-
arstöð Leningrad" rúmaði. Leik-
endur eru allir negrar.
..Er tjaldið var fallið í síðasta
sinn stóðu áhorfendur í fullar tíu
mínútur og klöppuðu. „New York
T*mes“ segir að áhorfendur hafi
með lófaklappi sínu verið að
fagna yfir hugmyndinni um
menningarlegt samstarf Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna, ekki
síður en yfir sýningunni, sem
fram hafði farið á undan.
Óperan „Porgy and Bess“ verð
ur sýnd tíu sinnum í Leningrad
en síðan hefjast sýningar í
Moskvu og í öðrum borgum
i Sovétríkjimum.
Anna Magnani
bezta leikkona ársins
n
Peng biður
um ný föt
NEW YORK, 28. des. — Kvik-
myndagagnrýnendur í New York
komu saman á 21. ársfund sinn í
dag, til þess að veita verðlaun
fyrir beztu erlendu kvikmynd
ársins. Gagnrýnendur komu sér
saman um í fyrsta skipti, síðan
þeir hófu að veita þessi verð-
laun, að skipta verðlaununum
fyrir beztu erlendu kvikmynd
ársins 1955 milli frönsku kvik-
myndarinnar „Diabolique“ og
ítölsku kvikmyndarinnar „Um-
berto D“.
Gagnrýnendurnir, sem eru
sextán að tölu, voru sammála um
að ítalska leikkonan Anna Magn-
ani væri bezta leikkona ársins og
dæmdu þeir þar af leik hennar i
kvikmyndinni „The Rose Tatoo“.
„Time" velur
Þeir kusu ameríska leikarann
Ernest Borgnini bezta leikara
ársins og dæmdu þar eftir leik
hans í kvikmyndinni „Marty“, en
hún var kjörin bezta ameríska
kvikmynd ársins.
Aðrar erlendar kvikmyndir,
sem greidd voru um atkvæði,
voru „Ævintýrið mikla“ (sænsk)
„Letters from my Windmill“
(frönsk) og „The sheep has five
legs“ (frönsk).
Brezkur leikstjóri, David Lean,
hlaut verðlaunin fyrir beztu
leikstjórnina á árinu í kvik-
myndinni „Summertime“, en
leikendur í þeirri mynd eru Kat-
herine Hepburn og Rossano
Brazzi.
rr
„mann arsms
NEW YORK, 28. des. — Forstjóri
„General Motor“ hlutafélagsins í
Bandaríkjunum, Harlow S. Curt-
ice, hefur verið kjörinn „maður
ársins“ af ameríska vikuritinu
„Time“, fyrir hlut sinn í amerísku
viðskiptalífi og skerf þann sem
hann hefur lagt fram til vel-
gengni í Bandaríkjunúm og til
friðar i heiminum.
í fyrra var það John Foster
Dulles, utanrikisráðherra Banda-
rikjanna, sem „Time“ kaus „mann
ársins“.
30 kluhkusfundir
r t f
I SJ0
MIAM3, 28. des. — Norskur sjó-
maður, sem féll fyrir borð af
skipi sínu út af strönd Florida-
skaga á jóladag, hefur skýrt frá
því að hann hafi haldið sér uppi
á sundi í þrjátíu klukkustundir,
áður en honum barst björgun.
Honum var bjargað um borð í
brezkt skip.
Sjómaðurinn segir að Iiann
hafi séð til ferða 20 skipa, áður
en honum var bjargað.
Reynii Tito oð
miðlo mólum?
KAIRÓ, 28. des. — Tító marskálk
ur kom hingað til Kairó í dag
með járnbrautarlest frá Súezeiði,
en þar steig hann á land í Egypta-
landi af einkasnekkju sinni.
Tilkynnt er að samningur „um
stjórnmál og viðskiptamál" muni
hefjast á morgun milli júgóslaf-
neska leiðtogans og Nassers for-
sætisráðherra.
Egyptalandsför Títós vekur
nokkra athygli vegna þess að tal-
ið er að hann hafi nokkurn hug
á því að taka að sér að reyna að
iðla málum milli Egypta og
ísraelsmanna.
Eisehower baðar
r
I
WASHINGTON, 28. des. — Eis-
enhower, forseti Bandaríkjanna,
fór í dag flugleiðis frá Washing-
ton til Key West á Floridaskaga.
Hann ætiar að hvíla sig þar í
næstu tvær vikur í sólskini og
heitu vetrarveðri.
Eisetihower forseti mun dvelja
á Key West í sömu íbúð og Tru-
man dvaldi jafnan í er hapn fór
í vetrarleyfi til Key West.
CHIN PENG heitir hann og
hann hefur falið sig í frum-
skógum Malakkaskaga i átta ár.
í gær kom hann ásamt 40 manna
lífverði til Baling á Malakka-
skaga, nálægt landamærum Tha-
lands, tii þess að taka upp samn-
inga við landsstjórann á Malakka
og forsætisráðherrann, Ramann,
um vopnahlé og frið.
I Chin Peng er foringi kommún-
ista, sem staðið hafa að óeirðum
á Malakkaskaga undanfarin átta
ár. Frá því að óeirðirnar hófust
hefur Chin Peng farið huldu
höfði. Þegar hann kom til Baling
í gær var eitt hið fyrsta, sem
hann bað um, að honum yrði
fengin ný föt og ný nærföt. Hann
fékk hvorttveggja.
Síðar settist Chin Peng að
samningaborði með landsstjóran-
um Marshall og forsætisráðherr-
anum Ramann. Samningafundur-
inn stóð í fjóra og hálfa klukku-
stund og annar fundur verður
haldinn í dag.
Chin Peng gerði kröfu til þess
á fundinum í gær að starfsemi
kommúnistaflokksins á Malakka-
skaga yrði leyfð að nýju og að
engum af hermönnum hans, sem
i tekið hafa þátt í uppþoti gegn
stjóm landsins, yrði refsað. —
Hvorutveggja var neitað þegar í
I stað af forsætisráðherranum Ra-
mann. Ramann sagði að þjóðir
I Malakkaskaga myndu ekki þola
i það, að starfsemi kommúnista-
Iflokksins yrði leyfð aftur.
„afturhaidsama'
«y „úr tízku“
BOMBAY, 27. des. — Nehru, Sor-
sætisráðherra Indlands, hefir
deilt harðlega á indverska komm -
únista og sakað þá um að vera
afturhaldssama og um að halda
dauðahaldi í kenningar sei» löngu
séu úr tízku.
í ræðu sem Nehru flutti I
Trichur á mánudaginn, sakaði
ráðherrann kommúnista um aS
reyna að taka upp aðferðir, sem
notaðar eru í Sovétríkjunum,
þar sem skilyrði séu algerlega
frábrugðin og vandamálin óskyld
þeim sem Indverjar eigi við að
glíma.
Ráðherrann benti á að kenn-
ingar Karls Marx væru byggðar
á atvinnuástandinu í Evrópu, sem
skapaðist af iðnaðarbyltingu 19.
aldarinnar. „Það sem heimurinn
þarfnast á atomöld í dag“, sagði
Nehru, „er eitthvað voldugt og
byltingarkennt en samt sem
áður halda indverskir kommún-
istar dauðahaldi i kenningar,
sem eru löngu úr gildi og orðn-
ar gamaldags cg eiga ekkert
skylt við staðreyndir í dag“.
Nehru sagði að hægt væri að
segja um kommúnista að 'þeir
væru „afturhaldssamir og að
bylting þeirra væri í því fólgin
að apa eftir öðrum þjóðum, án
nokkurs tillits til aðstæðna
heima“.
Yfir 4. millj. hifreiðar
á hálfu ári
WASHINGTON, 28. des. — Búázt
er við að framleiddar verði £
Bandaríkjunum á fyrra misseri
næsta árs yfir 4.250.000 bifreiðar.
Aldrei hafa verið framleiddar i
Bandaríkjunum jafn margar bif-
reiðar og á árinu, sem er að líða,
en áætlunin fyrir næsta misseri
tekur þó öllu fram, sem þekkzt
hefur þar vestra.
Frá þessu segir í skýrslu verzl-
unarmálaráðherrc Bandaríkjanna
um viðskiptahorfur á næsta ári.
Ráðherrann lelur að fram-
leiðslan í iðnaði Bandaríkjanna
muni halda áfram að aukast á
næsta misseri. Járn- og stál-
iðnaðuriim er talinn vera loft-
vogin, sem sýni atvinnuástandið
í landinu, og báðar þessar grein-
ir, segir í skýrslunni, munu
halda áfram metframleiðslu á
næsta misseri.
' í flugvélaiðnaðinum eiga verk-
smiðjur óafgreiddar pantanir,
, að verðmæti 13.500 millj. doll-
| ara. Pantanir á hafskipum eru
18% meiri en næsta misseri held-
j ur en á sama tímabili á þessu
j ári.
| Hagfræðingar verkalýðshreyf-
ingarinpar I Bandarikjuniun
telja horfur um atvinnu góðar i
Bandaríkjunum á næsta ári.
General Motors félagið, stærsta
hlutafélag í heimi, skýrir frá því
að félagið muni á árinu sem er
að líða, selja vörur fyrir meir en
12.000 milljónir dollara.
í skýrslu verkalýðsmálaráð-
herrans, Mitchells segir að „a*ne-
rískir launþegar hafi í dag meiri
vinnu, afli meira fjár og eigi við
meira öryggi að búa heldur en
nokknr sinni áður.“
Meira en 65 milljónir Baada-
ríkjamanna hafa vinnu í dag.