Morgunblaðið - 02.02.1956, Page 11
Fimmtudagur 2. febrúar ’56
MORGVNBLAÐIfí
11
iéhasin Péliir
Hínoiitgarcrð
ÞANN 22. þ. m. andaðist á heim-
ili sínu, Vatnsstíg 10 B, hér í bæ,
Jóhann Pétur Guðmundsson, tré-
smiður, 83 ára að aldri.
Það kann að vera óþarfi af
mér, að skrifa um Pétur heit-
inn, en Pétur var hann alltaf
nefndur meðal kunningja, því að
margir þekktu hann vel. En eftir
um 40 ára kynni og um það bil
30 ára nábýli við Pétur renni-
smið, get ég ekki annað en
minnzt hans nokkrum orðum.
Pétur heitinn var fæddur að
Króki í G-rafningssveit, 26. 9.
1872, og voru foreldrar hans, þau
hjónin Guðmundur Þórðarson
bóndi og kona hans, Ingveldur
Pétursdóttir, þar. — Tólf ára að
aldri missti Pétur föður sinn,
sem þá var nýfluttur að Úlfljóts-
vatni í sömu sveit, en þar ólst
Pétur upp og dvaldist áfram hjá
móður sinni, og stjúpa, Guð-
mundi Magnússyni, þar til hann
var rúmlega tvítugur. Grafning-
urinn var því hans fæðingar og
æskusveit, enda átti hann alltaf
hugljúfar minningar um æsku
sína þar. Þar þekkti hann 'svo að
segja hvert örnefni, hverja laut
og hæð, og er mér nær að halda,
að þetta fagra og samt hrikalega
umhverfi, hafi haft sín áhrif á
skapíerli hans.
Aldamótaárið fluttist svo Pét-
ur til Reykjavíkur, og 20. júní
1902 gekk hann að eiga unnustu
sína, Þorbjörgu Eiríksdóttur, frá
Kirkjuferju í Ölfusi. Þau hjón
eignuðust fimm dætur og eru nú
tvær þeirra á lífi, og átti það
fyrir þeim að liggja að annast
heimili hjá föður sínum um 30
ára skeið, en móðir þeirra and-
aðist 26. 1. 1926. Var þá mikil
byrði lögð á þeirra ungu herðar,
en ástríki var mikið milli þeirra
mæðgna, og varð Pétur að vera
þeim bæði faðir og móðir. Þar
kom blíðlyndi og umhyggjusemi
hans bezt fram.
Fyrst eftir komu sína til
Reykjavíkur, stundaði Pétur sjó-
sókn milli annarra verka. Þetta
var á skútuöldinni og var hann
meðal annars á kútter „Georg“,
en þar var skipstjóri Þorsteinn
Þorsteinsson, seinna í Þórshamri.
Heyrði ég oft Pétur vítna með
ljúfum hug um veru sína á
„Georgi“. En þetta átti ekki að
verða lífsstarf Péturs, því að
snemma kom fram hneigð hans
og hæfileiki til smíða meðan
hann dvaldist hjá fóstra sínum
Guðmundi á Úlfljótsvatni, sem
sjálfur var þjóðhaga smiður. Að
loknu námi hjá Bjama Jónssyni,
trésmið (sá sem byggði Bjarna-
borg), hófst smíðaferill Péturs
og var hann þar ætíð stórvirkur,
jafnframt því sem hann var
vandvirkur, og öll smiði lék í
höndum hans. Stundaði hann
fyrst jöfnum höndum skipa- og
húsasmíðar. Vann hann þá um
tíma í Slippnum, en seinna unnu
þeir saman bræðurnir, Magnús
og Pétur, og byggðu nokkra vél-
báta, sem sennilega eru með
þeim allra fyrstu, sera hafa verið
byggðir hér á landL Á seinni ár-
um fór hann meira að leggja
GuSmundsson
stund á verkstæðisvinnu, og
smíðaði líkkistur jafnframt því
sem hann stundaði rennismíði á
tré. Var það hér sem áður, að
samfara afkasti, var vandvirkn-
in framúrskarandi og hafa
margir fagrir gripir farið út af
vinnustofu hans. Sóttust stærri
húsgagnaverkstæði og fleiri fyr-
irtæki eftir viðskiptum við hann.
Þessa vinnu, rennismíði, stund-
aði hann fram á síðasta dag, þótt
þróttur hans væri sýnilega far-
inn að gefa sig seinasta missirið
sem hann lifði.
Pétur var fríður maður sýnum
og vel vaxinn, þéttur á velli og
þéttur í lund, en samt blíður í
viðmóti og viðkynningargóður.
Hann fylgdist vel með í þjóðfé-
lagsmálum og var einlægur
sjálfstæðismaður, enda hafði
hann trú á sjálfbjargarviðleitni
og einstaklingsframtakssemi.
í trúmálum hélt hann fast við
þann guð, sem hann hafði
kynnst með barnalærdómi sín-
um og þegar hann komst ekki í
kirkju, sat hann við útvarpið sitt
um messutímann að hlusta á
messugerð og lofa guð. Og nú er
hann kominn á fund hans, eftir
langt og auðnuríkt starf og dygga
framístöðu við alla, sem hann
umgekkst. Tómt er nú sætið
hans. En það má vera syrgjend-
um huggun, að eftir hann eru að-
eins ljúfar minningar og þar
skyggir ekkert á.
M. J.
Andláfsfregn úr
Fljótsda!
HINN 17. jan. s.l. lézt að heim-
ili sínu, Víðivöllum ytri, í Fljóts-
dal, ekkjan Elísabet Þorsteins-
dóttir, 48 ára gömul, eftir stutta
en stranga legu. Hún hafði átt
við langvarandi vanheilsu að
búa.
Maður hennar var Þórarinn
Hallgríms’son á Víðivöllum, en
hann lézt veturinn 1948, tæp-
lega fertugur að aidri. Bjuggu
þau á Víðivöllum ytri. — Börn
þeirra hjóna voru þá öll í
bernsku og hélt Elísabet sáluga
þá áfram búskap og bjó á Víði-
völlum til dauðadags. Mun hún
hafa lagt meira að sér, en veil
heilsa leyfði.
Elísabet var friðleikskona,
elskuð og virt af þeim er hana
þekktu. Hún er harmdauði sveit-
ungum, þótt þyngri sé raun ást-
vina og barnanna, enn flestra í
bernsku. Á þau er lögð, með
fárra ára millibili, þyngsta raun
er nokkurt barn fær að bera,
missir beggja foreldra. Megi guðs
hönd styðja þau. — J.P.
Undanfarið hafa eftirtaldar
gjafir borizt í Friðrikssjóð:
Saml. skreiðarframleiðenda 5000
Starfsm. Áhaldah. Rvíkur 2125
Starfsfólk KRON 1700
Starfsfólk í Ölgerð Egils
Skallagrímssonar 1675
Lögreglumenn í Keflavík 1100
Tjarnarklúbburinn 535
Vinnufl. Jóh. Benediktss. 430
Rotaryklúbbur Borgarness 350
Auk þess hafa ýmsir einstakl-
ingar lagt í sjóðinn. Sjóðstjórn
hefur beðið blaðið að flytja öll-
um gefendunum kærar þakkir.
Finnskir kommún-
isfar
KAUPMANNAHÖFN, 30. jan. —
Norðurlandaráðið felldi í dag til-
lögu frá finnsku kommúnistunum
um að mæla með því að Paasikivi
forseti Finnlands hlyti friðarverð
laun Nobels. Ráðið vísaði tillögu
um þetta efni á bug á þeim grund
velli að málið varðaði ekki nor-
rænar þjóðir, sem heild.
Kynníng
23 ára gamall maður óskar
eftir að kynnast ungri, ein-
mana stúlku, sem skemmti-
félaga. Tilboð sendist afgr.
Mbl., merkt: „Framtíð —
383“. —
Vön afgreiðslustúlka
getur fengið atvinnu nú þegar eða síðar.
Undirstöðumenntun nauðsynleg.
A BEZT AÐ AVGLÝSA ±
T t MORGUISBLAÐim ▼
<zH.ijij.ci Lí ^in HÉu
vinn
■■■■■■■•■■■■
ii •■•■>*•<
Okkar áriega utsaia hefst á morgun
Hér skal nefnt fátt eitt af því, sem á boðstólum er:
Vinnuföt
Karlmannafatnaður
Karlmannssokkar
Nælon undirkjólar
Peysur
Undirföt
Nælon sokkar
Kápuefni
Höfuðklútar
!
Barnakápur
Vesti (karlm. og drengja)
o.fl. o.fl.
FJOLBREYTT URVAL AF BUTUM
Reykvíkingar þekkja af reynzlunni, að verðið er almennt hvergi
lægra en í KRON. Þess vegna eru útsölur KRON sérstök tæki-
færi til kiarakaupa.
VEFNAÐARVÖRUDEILD
»<V3<SkS<S*^<Sk/
*
I
I
*)
*)
(*t
0
\
4
í
§
*
s
y)
!
|
i
•ú
«1
ZETA
ferða-ritvélin
tiefii- dálkastilli og sjálfvirka setningu á spássíu. 44 .yklar.
Er jafnsterk og vanaleg skrifstofu-rnvél, en vegur aðeins 6
kg. — Tílvalin jólagjöf.
Einka-umboð:
MARS TRADINC COMPANY
Bankastræti 2. Sími 5325.
Útsala:
BÓKABÚÐ
Bankastræti 2. Simi
KRON
5225.