Morgunblaðið - 25.02.1956, Page 14

Morgunblaðið - 25.02.1956, Page 14
14 MORGUHBLAÐIÐ Laugardagur 25. febrúar ’56 Framlíaldssagan 28 ógift stúlka fremur sjálfsmorg, án nokkurra vitaðra orsaka. Það hlaut að hafa kostað Leo Kingship of fjár, að halda þessu leyndu fyrir dagblöðunum. Hann sagði við sjálfan sig, að ; hann hefði fyllstu ástæðu til að íagna þessum gangi málsins. Ef einhvers konar rannsókn hefði farið fram, þá hefði eflaust verið sent eftir honum til yfirheyrslu. En hér hafði ekki verið að ræða um neina rannsókn eða yfir- heyrslur — ekki einu sinni um nokkrar minnstu grunsemdir, hvað þá meira. Allt hafði fallið í ljúfa löð, eins og bezt varð kosið að undanskil- inni sögunni um beltið. Hún olli honum nokkurri áhyggju og kvíða. Hvers vegna hafði Dorothy fengið beltið lánað hjá þessari stúlku, Kock, fyrst hún vildi svo ekki nota það, þegar til kom? Kannske hafði hana raunveru- léga langað til að tala við ein- hverja manneskju um brúðkaup- ið — en svo síðar skipt um skoð. un. Guði sé lof fyrir það. Kannske var líka sylgjan á beltinu henn- ar raunverulega brotin, en henni svo tekist að gera við hana, eftir að hún hafði fengið hitt beltið að láni hjá ungfrú Kock. Framburður Annabelle Kock jók aðeins líkurnar fyrir því, að um sjálfsmorð væri að ræða, og bætti jafnframt að mun hin happa drjúgu úrslit þessarrar athafnar. Honum bar sannarlega að ganga eins og á skýjum væri, brosa til bráðókunnugs fólks og drekka sína eigin skál í ósýni- legu kampavíni. En svo hafði hann, í stað alls þessa, aðeins hina lífvana, blý- þungu tilfinningu um vonbrigði og tálvonir. Hann gat hreint ekki skilið það. ! Ógleði hans fór vaxandi, þeg- ar hann snéri aftur til Mennasset, snemma í júnímánuði. Hér var hann nú aftur í nákvæmlega sömu sporunum og hann stóð í, sumarið áður, eftir að dóttir fram kvæmdastj órans hjá fyrirtækinu, sem seldi landbúnaðarvélar, hafði sagt honum frá unga mann- inum „heima“ og sumarið þar áð- ur var líkt korhið fyrir honum líka, er hann hafði yfirgefið ekkj- una. Dauði Dorothys hafði verið varnaðarráðstöfun frá hans hendi öll hans áform höfðu ekki megn- að að þoka honum eitt skref fram á leið, hvað þá meira. Hann varð óþolinmóður við móður sína. Bréfaskriftir hans frá háskólanum höfðu minnkað nið- ur í það, að verða eitt lítið bréf- spjald vikulega og nú þreyttu hinar sífelldu bænir hennar, um nákvæmari upplýsingar, hann ákaflega mikið. Alltaf þetta s;ftna: Hafði hann ekki myndir til af þeim stúlkum, sem hann var með? — og voru það ekki alltaf fallegustu stúlkumar og eftir- sóttustu? Var hann meðlimur í þessum og þessum klúbb? — Eða var hann kannske formaður eins þeirra? — Hvernig sóttist námið í heimspeki, í ensku, í spænsku? — Var hann ekki dúx í öllum þessum námsgreinum? Og svo kom loks að því, einn daginn, að hann gat ekki stillt skap sitt lengur: — „Það er sann- arlega kominn tími til þess, að þú gerir þér grein fyrir því, að | ég er alls ekki sá heimsdrottn- ari, er þú virðist halda mig vera“, i hrópaði hann æstur og ruddist út úr stofunni. ‘ Hann réði sig til sumarstarfa, sumpart vegna þess, að pening- anna var mikil þörf og sumpart vegna þess, að honum var nærri óbærilegt að vera í húsinu hjá móðurinni, daginn út og daginn inn. Hins vegar nægði vinnan hon- um ekki til að dreifa hugsunum hans sjálfs. Vettvangur þessa starfs hans var vefnaðarvöru- verzlun, mjög vistleg, sem full- nægði öllum tízkukröfum starfs fólks og viðskiptavina. Glerskáparnir, sem geymdu sýningarmunina, voru bryddaðir með tommubreiðri rönd úr gljá- fægðum kopar. Þegar komið var fram í miðj- an júlímánuð, tók hann samt sem áður að leggja niður ó|leði sína og þunglyndi. Hann átti enn blaðaúrklipp- urnar, þar sem rætt var um dauða Dorothy, þær voru læstar inni í litlum, gráum peningakassa sem hann geymdi í klæðaskápn- um sínum. Nú fór hann að taka þær fram öðru hverju, skoða þær og lesa og brosa að hinni athafna sömu betri vitund Eldon Chesser, umsjónarmanns, og barnalegum bolla'leggingum Annabelle Kock. Hann fann aftur gamla bóka- safnskortið sitt, lét endurnýja það og kom nú reglulega heim með bækur. „Pearsons study in murder“, „Murder for Profit“ eftir Bolitho, eitt bindi af sögu- safninu „The regional murder series“. Hann las um Landru, Smith, Pritchard og Crippen, — menn, sem höfðu gert glappaskot í því verki, sem hann framdi algerlega mistakalaust. Auðvitað voru það aðeins sögurnar um þá, sem glappaskotin gerðu, sem færðar voru í letur. — Guð einn vissi hversu margir þeir voru, sem gert höfðu hið sama og hann. Samt var það skjallandi að sjá hve mörgum hafði mistekist. Fram að þessu hafði hann allt- af hugsað um það, sem gerðist á þaki skrifstofubyggingarinnar sem „Dauða Dorrie“. Nú fór hann að hugsa um það eins og „Morð Dorrie“. Stundum þegar hann hafði leg- ið í rúminu og lesið margvísleg- ar frásagnir í einhverri bókinni, varð hann frá sér numinn yfir hinni takmarkalausu fífldirfsku sinni. Þá var hann vanur að fara fram úr og skoða sjálfan sig í speglinum, ofan við náttborðið. „Ég komst snilldarlega undan refsingu fyrir morðið.“ hugsaði , hann þá og einu sinni sagði hann ! það upphátt: „Ég slapp bærilega : við refsingu fyrir morðið.“ Og hverju skipti það, þótt hann væri ekki orðinn ríkur ennþá? Hann var þó ekki nema tuttugu og fjögra ára. ANNAR HLUTI ELLEN 1. kaflL Bréf frá Annabelle Kock til Leo Kingship: Stúdentagarðinum, Stoddard-háskólanum, Blue River, Iova, 5. marz 1951. Kæri hr. Kingship! Ég býst við því, að yður komi það á óvart, hver ég er, nema ef þér kannske munið eftir nafni mínu úr dálkum dagblaðanna. Ég er unga stúlkan, sem lánaði Dorothy, dóttur yðar, belti í apríl s.L Ég var síðasta manneskj an, sem talaði við hana. Þar sem ég veit að þetta mál er yður sárt og viðkvæmt, þá myndi eg ekki fara að brjóta upp á því, ef ég hefði ekki gildar orsakir til þess. Eins og þér e. t. v. munið, þá áttum við Dorothy alveg eins, grænar dragtir. Hún kom inn til mín og bað mig um að lána sér beltið mitt. Ég lánaði henni beVtið og seinna fann lögreglan það í her- bergi hennar. Þeir héldu því í rúman mánuð og þegar ég loks fékk það aftur, seint og síðar meir, var komið langt fram á vor og þess vegna notaði ég ekki dragtina oftar síðastliðið ár. Nú nálgast vorið aftur og í gær kveldi fór ég að máta vorklæðn- að minn. Ég reyndi grænu dragt- ina mína og hún var mér alveg mátuleg. En þegar ég setti beltið 1 Prjár bergnumdar kóngsdætur 16. „Nú erum við lausir við hann' sögðu þeir. Svo hótuðu þeir ' kóngsdæturunum að þeir skyldu drepa þær ef þær ekki segðu að það væru þeir, sem hefðu frelsað þær. — Þær voru afar tregar til þess, einkum sú yngsta. En lífið er dýr- mætt, svo að þeir urðu að fá að ráða, þessir tveir menn, sem höfðu völdin hvort sem var. Þegar nú höfuðsmaðurinn og flokksforinginn komu heim með kóngsdæturnar, varð mikill fögnuður í konungsgarði, eins og nærri má geta. Kóngurinn var svo frá sér numinn, að hann vissi ekkert á hvern hátt hann átti að láta fögnuð sinn 1 ljós. Hann tók beztu vínflöskuna úr skápnum sínum og hellti í staup handa þeim og bauð þá velkomna báða tvo, og á allan hátt heiðraði hann þá og lét það sjást, að hann mat þá meira en aðra menn og það gerði öll þjóðin hka. Sjálfir gengu þeir um með rembingi allan daginn og þóttust vera mikhr höfðingj- ar, því að nú áttu þeir að eignast sjálfan kónginn fyrir tengdaföður, því að alhr vissu, að þeir áttu að fá sína kóngs- dótturina hvor, þær sem þeir vildu helzt og hálft ríkið til að skipta á milli sín. Nú vildu báðir eiga yngstu kóngs- dótturina, en hún vildi hvorugan þeirra eiga. hvort sem farið var að henni með góðu eða illu. Þá sögðu þeir kóng- inum. að hún væri svo þunglynd eftir veruna í berginu og báðu háhn um að láta sig fá tólf menn til að halda vörð um hana, bæði dag og nótt. Þeir sögðust vera svo hræddir um að, hún reyndi að fyrirfara sér. — Jú„ þetta var þeim veitt með góðu móti, kóngur gaf varðmönnunum sjálfur fyrirmæli um að gæta hennar vel og fylgja henni eftir hvert sem hún færi. MARKAÐURINN Hafnarstræti 5 4ra—5 herbergja íbúð óskast til leigu Nánari upplýsingar gefur Málflutningsskrifstofa Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar og Guðmundar Péturssonar. Sími: 2002 og 3202. Okkur vantar lipran og ábyggilegan IJNGAN HIANN TIL AFGREIÐSLIISTARFA í fataverzlun okkar, æskilegt að viðkomandi hafí ein- hverja æfingu í starfinu. Uppl. á skrifstofunni GEYSIR H.f. Aðalstrseti 2. o Oo o® 0O0 Þvœr hreinna en nokkurt Já! TIDE hið nýja undra þvottaefni, þvær hreinna en nokkurt hinna! Hreinna n nokkur sápa eða þvottaefni! Sjáið hve auðveldlega og fljótt TIDE eyðir öllum óhreindinum. Þér munuð brátt sannfærast um að TIDE gerir hvítan pvott hvítari og skýrir litina betur en önnur þvottaefní. Ekkert nudd er þér notið TIDE og TIDE er dr.júgt. Notið alltaf TIDE, það þvær hreinna en nokkurt hinna. ír* hinnal *>oOl o* QO o ° ÉO / ^ 3° Q) rS ° V kf) LÉTTII) ÞVOTTADAGINN MLEÐ ÞVÍ AÐ NOTA TIDE! A Hedley Qvualiíy Product

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.