Morgunblaðið - 25.02.1956, Blaðsíða 16
Veðurútlií í dag:
SA- og S-kaldi, skýjað. Sums
staðar lítilsháttar rigning.
JUwgmtMiririfc
47. tbl. — Laugardagur 25. febrúar 1956
Tékkóslévakía
Sjá grein á bls. 9.
Skýrsla um kommaskattinn
Blaðinu barst í gær eftirfarandi fréttatilkynning
frá skrifstofu verðgaezlustjóra:
SKRIFSTOFAN hefur gert athugun á því, hve mikilli hækkun
hið nýja framleiðslusjóðsgjald ásamt tollahækunum muni valda
á smásöluverði nokkurra vörutegunda. — Miðað við núverandi
verðlag, og að öðrum aðstæðum óbreyttum, yrði hækkun á smá-
söluverðinu sem næst því sem hér segir:
Rugmjöl Hveiti . . . 8.3% 8.3%
Haframjöl . . . 8.1%
Hrísgrjón ... 8.3%
Kartöflumjöl ... 11.3%
Strásykur ... 7.1%
... 12.9%
... 11.7%
Húsgagnaáklæði ... 13.2%
Kæliskápar og eldavélar ... 6.7%
Leir- og glervörur .... 35.8%
Nýir ávextir . . . 24.8%
Ritgerðasamkeppni
meðal unglinga um
Ásgrím og list hans
fyrstu verðlaun: MáSverk eftir listamanninn
ÆSKULÝÐSNEFND Reykjavíkurbæjar og sýningarnefnd Ás-
gríms-sýningarinnar hafa í samráði við fræðslufulltrúa bæj-
arins, ákveðið að efna til samkeppni meðal æskufólks, á aldrinum
13—16 ára, um ritgerð er fjalli um Ásgrim Jónsson og list hans.
Sijórnmálanámskeið
VERÐA AÐ SJÁ
YFIRLITSSÝNINGUNA
Allir unglingar á aldrinum
13—16 ára geta tekið þátt í
samkeppninni, jafnt í Reykja-
vík og annars staðar, og jafnt
skólafólk og það, sem ekki
gengur í skóla, enda hafi þeir
séð yfirlitssýninguna, sem nú
stendur yfir í Þjóðminjasafns-
húsinu. Unglingar, sem sækja
skóla í Reykjavík og nágrenni
skili ritgerðum sínum til skóla
stjóra þess skóla, þar sem þeir
stunda nám, en aðrir til
fræðslufulltrúa Reykjavíkur.
FERN VERÐLAUN VEITT
Dómnefnd skipa: Kristján Eld-
járn (fyrir hönd sýningarnefnd-
ar Ásgríms-sýningarinnar), Sím.
Jóh. Ágústsson (fyrir Æskulýðs-
nefnd Reykjavíkur) og Magnús
Gíslason, námsstjóri.
Fern verðlaun verða veitt. —
Fyrstu verðlaun: Málverk eftir
Ásgrím Jónsson, önnur, þriðju og
fjórðu verðlaun 250.00 kr. hver.
ÓKEYPIS AÐGANGUR
Ásgríms-sýningin er opin alla
daga kl. 1—10, nema sunnudaga,
þá er hún einnig opin á morgn-
keypis fyrir alla. Allir ungling-
ar fá § sýningunni ókeypis blað,
þar sem prentaðar eru ýmsar
upplýsingar um listamanninn til
þess að auðvelda þeim að skrifa
um list hans og sýninguna.
Smnaríærí
til Akureyror
AKUREYRI, 24. febr,—Hin góða
tíð að undanförnu hefur að sjálf-
sögðu haft áhrif á færðina um
vegi landsins. Má nú heita að
víðast sé fært orðið nema um
hæstu fjallvegi.
T. d. er færð nú ágæt til Akur-
eyrar, hartnær eins og um sumar
væri. Áætlunarbílarnir komu
þangað í kvöld kl. 8 eftir 12
tíma ferð frá Reykjavík.
Bæði Holtavörðuheiði og Öxna
dalsheiði eru bæði snjólausar og
svellalausar. Þrátt fyrir hina
hlýju veðráttu hefur ekki enn
myndazt aur á vegunum svo að
teljandi sé, enda n.iun vera nógu
kalt um nætur þó að yfirborð
veganna klökkni lxtið eitt að
deginum til.
SJALFSTÆÐISMF.NN á Suður-
nesjum hafa ákveðið að halda
stjórnmálanámskeið í Sjálfstæðis
húsinu í Keflavík og er fyrsti
fundur námskeiðsins ákveðinn
n.k: þriðjúdagskvöld og hefst kl.
8,3«.
Væntanlegir þátttakendur erti
beðnír um að mæta á þeim fundi
og verður þá tilkynnt um nánari
tilhögun námskeiðsins. Sjálfstæð
isfélögin, sem að þessu stjórn-
málanámskeiði standa eru: Heim-
ir, félag ungra Sjálfstæðismanna
í Keflavík, Sjálfstæðisfélag Njarð
víkinga og M.jölnir, félag Sjálf-
stæðismanna á Keflavíkurflug-
velli.
Nýr bdtur
ÍSAFIRÐI, 24. febr. — í morgun
var hleypt af stokkunum í Skipa-
smíðastöð M. Bernharðssonar h.f.
nýju og glæsilegu skipi, sem
hlotið hefur nafnið ,,Gunnvör“
Í.S. 270. Báturinn er hinn vand-
aðasti að öllum frágangi. í hon-
um er 240/280 ha. G.M.-vél og
búinn er hann öllum nýjustu og
fullkomnustu tækjum, sem nú
eru notuð í fiskibátum hér á
landi, svo sem miðunarstöð,
dýptarmæli með asdic-útfærslu
og í bátnum eru norskar vökva-
drifnar þilfarsvindur.
Báttrrinn er 48 brúttó-smálest-
ir. — '*■-
Yfirsmiður við byggingu báts-
ins var Marzellius Bernharðsson,
skipasmíðameistari, en niður-
setningu á vél annaðist Jón
Valdemarsson, vélsmiður.
Eigandi bátsins er Gunnvör h.f.
á ísafirði, en aðalhluthafar í því
félagi eru Þórður og Jóhann
Júlíussynir og Jón B. Jónsson,
skipstjóri, sem mun stjórna
bátnum.
Báturinn mun væntanlega
hefja róðra í byrjun næstu viku
og verður hann gerður héðan út
frá ísafirði. — Jón Páll.
Drengir í heíndarhug
pína átta ára dreng
CJÚ deild rannsóknarlögreglunnar, sem fjallar um málefni barna
vl og unglinga, hefur tekið til meðferðar mál þriggja drengja 10
ára, sem tóku át.ta ára dreng og píndu hann.
HÉLDU HONUM YFIR ELDI !
Þeir tóku, drenginn og .bundu
hann. Síðan héldu þeir honum á
milli sín yfir .þálj.og. gerðu sig
líklega til þess að láta hann
fjötraðan falla ofan á bálið. Er
þeir höfðu • kvalið • drenginn á
þessu nokkra stund, færðu þeir
hann að staur og bundu hann þar
við. Var það rétt hjá bálinu.
STUNGU HANN
MEÐ TEINI
Er þeir höfðu bundið hann
fundu þeir í bálinu járntein, sem
var orðinn nokkuð heitur. Tóku
þeir teininn og .rgku hann í .ljtla-J
drenginn, sem eðlilega var farinn
að gráta undan þjösnaskap hinna
eldri. En svo vel vildi til að ekki
var teinninn heitari en svo, að
ekki hlauzt af honum brunasár,
en þó sér bæði á höndum drenga
ins og andliti undan teininuni,
Sjálfir leystu þeir litla drenginn.
HEFND!
Þegar þremenningarnir vora
spurðir að því hjá. rannsóknár-
lögreglurmi, hvað valdið hafi þvl
að þeir tóku litla drenginn svona
fyrir og pindu hann, sögðust þeir
hafa verið að hefna sín á hon-
um; hann hefði klagað fyrir föð-
ur sínum, sem síðan hafr veitt
þeim tiltal, þessum þrem, sera
stóðu fyrir pintingunni.
★ ★ ★
Langt er síðan rannsóknarlög-
reglan, bama- og unglingaafbrota
deildin, hefur fengið mál af þesSU
tagi til meðferðar, —• til allrar,
hamingju.
K vihmyndir nm Heiietz, Bubinstein
og Horíon Anderson sýndor í dng
í LOK síðastliðins mánaðar sýndi^"
Íslenz-ameríska félagið þrjár
kvikmyndir með Marian Ander-
son, Artur Rubinstein og Arturo
Toscanini. Aðsókn að þessari sýn-
ingu var svo góð, að félagið hef-
ur ákveðið að efna til annarrar
k vik myndasýn ingar um tónlist,
og verður hún haldin í Gamla
bíói.
Kviksaga í bæmim
borin til baka
ORÐROMUR um það að kona
hafi verið myrt hér í bænum
fyrir nokkrum dögum, hefur
j fengið slíkan byr undir báða
Nú verða sýndar myndir um vængi, að langt er síðan að slík-
Jascha Heifetz og Artur Rubin-
stein og kvikmyndin um Marian
Anderson, sem varð sérlega vin-
sæl, mun verða endurtekin.
Kvikmyndasýning þessi hefst
kl. 2 í dag í Gamla bíói.
Aðgangur er öilum heimill og
ókeypis.
Afli togara meS tregara
móti fyrir V estfiörðam
Þýzkir logarar að hverfa af Vesffjarðamiðunum
Patreksfirði, 24. febrúar.
TOGARINN Gylfi landaði hér á mánudaginn og þriðjudaginn
230 lestum af ísuðum fiski. Um 110 lestir fóru í frystingu, en
afgangurinn í herzlu. Hinn Patreksfjarðartogarinn Ólafur Jóhann-
esson landaði afla sínum um sama leyti á ísafirði á vegum Einars
Guðfinnssonar útgerðarmanns í Bolungarvík, um 215 lestum.
VEIÐA FYRIR FRYSTIHÚSIN
Að aflokinni löndun kom Ólaf-
ur Jóhannesson hingað til Pat-
reksfjárðar til þess að taka vistir
og ís. Báðir togararnir voru á
miðum út af Vestfjörðum. Tíðin
var allstirð og aflabrögð misjöfn.
Báðir togararnir veiða nú fyrir
frystihúsin.
LÍTIÐ UM ÞÝZKA TOGARA
Þýzkir togarar eru nú með
færra móti hér fyrir vestán. Hafa
þeir fært sig suður og austur
fyrir. Margir eru líka komnir til
Norður-Noregs og víðar. 3—4
slasaðir eða veikir þýzkir sjó-
menn hafa legið hér undanfarið
í sjúkrahúsinu. í janúar voru oft
um eða yfír 20 þýzkir togarar á
Dohrnbankanum og hefur veðrið
eftir frásögn sjómanna oftast
verið risjótt og afli með tregara
móti. — Karl.
VESTMANNAEYJAR
4. febrúar. — í dag voru allir
bátar á sjó í bezta veðri. Afli var
yfirleitt mjög tregur, þetta frá 4
upp í 6 lestir hjá flestum.
Aðeins tveir bátar höfðu yfir
10 lestir. Emma var með 11 lest-
ir og Lagarfoss fékk 10 lestir.
IGóður afli er hjá mörgum
smærri bátum á handfæri. T.d.
I fékk Hersteinn í dag 7—8 lestir.
Þar um borð eru 4 menn við drátt.
Sjómenn segja mikla síld við
Eyjar, einkum verður hennar
vart á austursvæðinu.
— B. J. Guðm.
AKRANESI
24. febr. — 150 lestir komu hér
á land í gær. Er það til jafnaðár
j tæpar 8 lestir á bát, því að 19
voru á sjó. í dag er ekki vitað
um aflann til neinnar hlýtar, því
seint í kvöld voru aðeins sex
bátar komnir að.
Hjá þeim sem komnir voru
, var aflinn tregur. í kvöld barst
hingað frétt um að mikil loðna
sæjist út af Hornafirði. Reyk-
víski báturinn Skógarfoss mun
veiða loðnu fyrir Harald Böðv-
arsson & Co, eins og undanfarin
ár og vélbáturinn Freyja fyrir
hina útgerðarmennina hér á
staðnum. Tekur Freyja loðnu-
nótína um borð á morgun.
Hingað kom Dettifoss í dag. |
Lestar hann frosinn fisk og!
nokkra tugi lesta af fiskroðum. |
— Oddur.'
PATREKSFIRÐI, 24. febrúar —
Afli línubátanna heðan hefur
verið allgóður. Til dæmis fékk
Andvari í tveimur róðrum út af
Jökulnesinu yfir 20 lestir af
óslægðum fiski. Sæfarinn frá
Tálknafirði fékk í síðasta róðri
hér út af firðinum um 12 lestir
af vænum fiski.
Bátarnir geta róið daglega, því
blíðskaparveður er hér um þess-
ar mundir. —Karl.
HAFNARFIRÐI — S. 1. fimmtu-
dag, 23. þ. m., var lifrarmagn bát-
anna héðan orðið, sem hér segir
í lítrum:
Auður 7431, Ársæll Sigurðsson
(á netum) 10,089, Björg 7044,
Dóra 6470, Fagriklettur 10,007,
Fiskaklettur 9632, Fjarðarklettur
5601, Flóaklettur 6934, Fram
6815, Freyfaxi 4271, Fróðaklettur
11,162, Goðaborg 1517, Guðbjörg
7878, Hafbjörg 9648, Hafnfirðing-
ur 4783 Reykjanés 8376, Stefnir
7639, Stjaman 7302, Va'iþór
12,618, Víðir 8325, Þorsteinn 5529,
Örn Arnarson 1805.
Tveir bátar, Víðir og Göða-
borg, eru í útilegu, og kom sá
fyrrnefndi inn í gærmorgun með
60—70 tonn eftir tæpra 6 daga
útiveru. Goðaborg kom einnig
inn í gær, en ekki var vitað
hversu mikið hún ha'ði. — Afli
hefur verið heldur tregur hjá
línubátunum síðustu laga, en aft
ur á móti ágætur hjá neta- og
útilegubátunum. —G. E.
ur söguburður hefur náð eyrum
eins margs fólks.
En þennan orðróm vill MbL
bera til baka, þar eð hann hefui
ekki við rök- að styðjast.
Það var komið að konu þessail
látinni og lét Sakadómur Reykja-
víkur framkvæma líkskoðun. Við
hana fundust engin merki eða
sjúkdómur, er útskýrt gæti dauða
konunnar, eins og í krufnings-
skýrslunni segir, en konan hefur
örmagnazt eftir laBgvinna óreglu.
Stálu 34 bíla-
merkium í gær
FJÖLDI bíleigenda hefur orðið
fyrir barðinu á unglingum höldn-
um , söfnunaxæði á bílamerkjuna
nú í vetur. Hefur misjafnlega
gengið að hafa uppi á þeim, sem
valdir hafa orðið að þessum
merkjastuldi.
I gærkvöldi sáu lögreglumenn,
sem voru á eftirlitsferð á Grett-
isgötunni, til þriggja drengja,
sem þeim þóttu grunsamlegir.
Voru þeir með skrúfjárn og dolk.
— Gaf lögreglumaður sig á tal
við drengina. Kom þá í Ijós, að
þeir voru með vasana úttroðna
af bílamerkjum, sem þeir höfðxl
stolið af bílum í gærkvöldi, haldn
ir einskæni söfnunaræði. Farið
var með drengina niður á lög-
reglustöð og þar tíndu þeir upp
úr vösimum 34 bílamerki.
Drengir þessir eru 13 og 14 ár®
og voru þerr fluttir heim til for-
eldra sinna af lögreglunni.
Friðrikssjéður
Á DÖGUNUM barst Friðriks-
sjóði „kveðja að norðan". Var |
bréfinu peningaupphæð í sjóð-
inn og þessi orð fylgdu:
„Læknar, hjúkrunarkonur,
sjúklingar og starfsfólk Krist-
neshælis hafa safnað þessari fjár-
upphæð — kr. 1,405,00 — og
senda í styrkarsjóð Friðriks Ól-
afssonar með þökk fyrir unnið
afrek á Hastingsmótinu“.