Morgunblaðið - 30.09.1956, Blaðsíða 1
43. árgangur
224. tbl. — Sunnudagur 30. september 1956
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Lét Stalin drepa Masaryk?
Talið að kommúnistar upplýsi leynd-
ardóminn um dauða Masaryks
Vín, 29. september. ^
ÞÆR fregnir hafa borizt frá Tékkóslóvakíu, að forseti Tékkó-
slóvakíu, Antonie Zapotocky, hafi fyrirskipað rannsókn á
dauða Jans Masaryk, sem var utanríkisráðherra landsins, er
kommúnistar brautust til valda. Tékkneskur lögfræðingur, sem
flúði til Austurríkis í vikunni — og starfað hefur í nánu sam-
bandi við tékknesku kommúnistastjómína, skýrði frá því, að
rannsókn þessi hafi leitt það í ljós, að Masaryk hafi verið drep-
inn af öryggislögreglu kommúnista — samkvæmt skipun Stalins.
• Eins og kunnugt er var Masa-
ryk sagður hafa framið sjálfs-
morð — og tilkynnti tékkneska
kommúnistastjórnin þann 10.
marz árið 1948, að Masaryk
hefði kastað sér út um bað-
herbergisglugga sinn á f jórðu
hæð húss þess, er hann bjó í.
Orðrómur var hins vegar á
kreiki þess efnis, að kommún-
istar hefðu látið drepa hann.
★ ★ ★
• Samkvæmt þeim upplýsing-
um, sem lögfræðingurinn gaf
— mun rannsókn þessi vera
komin langt á veg — og senni-
Leita „guir4-ílaks
PEAK.TH, V-Ástralíu, 29. sept.
—- Fjórtán menn lögðu upp
héðan í dag til þess að leita
að flaki „Gullna Drekans",
sem var hollenzkt skip, er
sökk undan strönd V-Ástraliu
fyrir 300 árum. „Gullni Drek-
inn“ hafði innanborðs gull-
mynt, sem er 90 þúsund sterl-
ingspund að verðgildi. Munu
mennirnir einnig grennslast
eftir flökum 12 annarra skipa,
legt sé, að niðurstaða hennar
verði birt innan skamms. Ekki
leiki neinn vafi á því, að
Masaryk hafi verið drepinn af
öryggislögreglunni — og eigi
það að hafa verið samkvæmt
skipun Stalins.
Haínsogumenn
í prófi
KAIRÓ, 29. sept. — Talsmað-
ur egypzku stjórnarvaldanna
hefur tilkynnt, að fyrstu er-
lendu hafnsögumennirnir, sem
gengu í þjónustu Egypta eftir
að Súezskurðurinn var þjóð-
nýttur, gangi undir próf hinn
1. október. Eru prófsveinar
þessir flestir Rússar.
Opinber sfaðfesting:
Tifo og Krúsjeff ésammála
BELGRAD, 29. sept. — Blaða-
fulltrúi júgóslavnesku stjórnar-
innar hélt í morgun fund með
fréttamönnum — og skýrði hann
frá því, að mikill ágreiningur
ríkti með Tito og æðstu mönn-
um Ráðstjórnarinnar. Hefði þetta
komið glögglega fram í viðræð-
um Titos og Krúsjeffs á dögun-
um. Hins vegar væru þeir sam-
mála á sumum sviðum, en breitt
bil væri samt sem áður í milli
júgóslavneskra kommúnista og
Moskvu. Ekki fékkst blaðafull-
trúinn til þess að segja meira
um þetta, en sagði þó, að áfram-
sem hlaðin voua gersemum og | haldandi viðræður yrðu með ráða
sukku á svipuðum slóðum. mönnunum. Er þetta fyrsta opin-
Bússnesbu bafietmeyjarnar
nú hvergi hræddar
LONDON, 29. sept . — Það
hefur verið tilkynnt í Moskvu,
að Bolshoi-balletinn muni
halda frá Moskvu til London
innan skamms — og sé von-
azt til þess, að sýningar í
Somoza iátinn
BALBOA, 29. sept. —. Somoza,
forseti Nicara-
gua, sem sýnt
var banatilræði
á dögunum, er
látinn. — Sár
hans voru mikil
og reyndist ekki
hægt að bjarga
honum, enda
þótt Eisenhower
forseti sendi 5 af
beztu læknum
sínum til þess að stunda Somoza.
Tilræðismaðurinn var myrtur af
múgnum þegar er hann hafði
skotið á Somoza.
BONN, 29. sept. — Adenauer og
Mollet ræðast nú við hér í borg.
Munu þeir einkum ræða um Saar-
málið, en einnig munu þeir bera
saman bækurnar hvað viðvíkur
Súez-deilunni.
Covent Garden-óperunni geti
hafizt á tilsettum tíma —
seinni hluta næstw viku. Svo
leit út um tíma, að ballet-
flokkurinn mundi hætta við
förina vegna hattamálsins
fræga, því að það er haft eft-
ir rússnesku balletdansmeyj-
unum, að þær vildu ekki eiga
á hættu, að fá sömu útreið
og Nína. Forráðamenn Covent
Garden óperunnar óttuðust,
að förinni yrði aflýst, en unn-
ið hefur verið í langan tíma
að undirbúningi — og hefur
fyrirhuguð heimsókn þegar
kostað óperuna yfir milljón
króna.
bera yfirlýsingin sem gefin er út
í Júgóslavíu eftir heimsókn
Krúsjeffs.
100 þús.
flýja heimili sin
LONDON, 29. sept. — Þær fregn-
ir berast frá Norður-Indlandi, að
mikið tjón hafi orðið þar af völd-
um flóða. Um 100 þús. manns
hafa orðið að flýja heimili sín —
og í V-Bengal drukknuðu 40
námumenn, er námugöng, sem
þeir voru við vinnu í, fylltust af
vatni. Hafa flóðin einnig valdið
miklu tjóni á símalínum og sam-
gönguleiðum. Á sumum þessara
staða eru slétturnar það renni-
sléttar, að vatnið hefur ekki af-
rennsli. — Miklir vatnavextir í
Himalajafjöllum valda flóðum
þessum.
160
ár a
Á morgun, 1. október, verður Guðmundur Jónsson, fyrrv. baðhús-
vörður, 100 ára. — Sjá viðtal við hann á 16. bls. — (Ljósm. vig.)
Notendasambandið stofnað á morgun
13 þjóðir hafa til-
kynnt abild sína
Einkaskeyti frá Reuter.
LONDON, 29. sept. — Á mánu
daginn mun hef jast í London
ráðstefna landa þeirra, er skip
eiga í siglingum um Súez-
Seldi 33 monnom soma húsið
HÖFN, 29. sept. — Maður
nokkur í Kaupmannahöfn, 34
ára að aldri, hefur verið á-
kærður um stórfellt húsa-
brask. Kom hann fyrir rétt í
lok vikunnar — og varð þá
uppvíst, að hann hafði tekið
hús nokkuð í Kaupmanna-
höfn á Ieigu — en var síðan
búinn að selja 33 mönnum
þctta sama hús. Hafði honum
græðzt ógrynni fjár á þessu,
en allir kaupendurnir höfðu
þó ekki borgað húsið að fullu.
Bar maðurinn sig frekar illa
yfir afskiptasemi lögreglunn-
ar — og sagði það ekkert vafa-
mál, að hann hefði komizt
heill frá öllu saman — hefði
lögreglan ekki farið að skipta
sér af þessu.
Faðirinn handfekinn, móðii in vifskert
og bróðirinn framdi sjálfsmorð
★ POZNAN, 29. sept. —
Ungur maður var í dag leidd-
ur fram í Poznan-réttarhöld-
unum — og ákærður fyrir að
hafa ásamt átta öðrum ungum
mönnum á aldrinum 18—22
ára stolið og kveikt í höfuð-
stöðvum öryggislögreglunnar í
óetirðunum í júní.
★ Skýrði pilturinn frá því.
að faðir hans, sem áður og
fyrr hefði verið kommúnisti,
hafi verið handtekinn af log-
reglunni á röngum forsend-
um. Við þetta hafi móðir pilts
ins orðið vitskert, en bróðir
hans framið sjálfsmorð. —
Kvaðst pilturinn þá hafa
neyðzt til þess að stela í fá-
tækt sinni.
★ Réttarhöldin eru um-
fangsmikil og fara fram á
mörgum stöðum í borginni. Á
einum stað eru þrír ungir
menn sakaðir um að hafa
drepið öryggislögreglumann
— og sagði dómarinn í merg-
un, að mönnum þcssum yrði
engin miskunn sýnd.
skurðinn. Verður Notendasam-
bandið þá formlega stofnað —
og starfsgrundvöllur þess
ræddur. Þegar hafa 14 ríki til-
kynnt brezku stjórninni, að
þau muni senda fulltrúa á
ráðstefnu þessa. Eru það
Bandaríkin, Frakkland, Ástra-
lía, Nýja Sjáland, Holland,
Ítalía, Tyrkland, Portugal,
Noregur, Danmörk, Svíþjóð,
V.-Þýzkaland, Spánn og Japan
en Japanir hafa ekki skuld-
bundið sig til þess að verða
virkir þátttakendur í Not-
endasambandinu. Beðið er eft-
ir svari frá Persíu og Pakistan.
LISTSÝNING Guðmundu Andrés
dóttur var opnuð í Listvinasaln-
um við Freyjugötu á föstudags-
kvöld. Viðstaddir opnunina var
fjöldi listelskra Reykvíkinga. Á
sýningu þessari eru 15 olíumál-
verk og 1 vatnslitamynd allar
gerðar'á þessu og síðastliðnu ári.
Sýningin er opin daglega kl.
2—10.
BÖRN, unglinga eða eldra
fólk vantar til blaðbusðar
víðs vegar um bæinn. Talið við
skrifstofu blaðsins, sími 1600. j