Morgunblaðið - 13.11.1956, Síða 14

Morgunblaðið - 13.11.1956, Síða 14
14 MORGUffBLAÐIÐ Þriðjudagur 13. nóv. 1956 Ársþing Frjálsíþrátta- samhesnds Islands Brynjólfur Ingólfsson endurkjorinn form. ÁRSÞING Friálsíþróttasam- bandsins var haldið um helg- ina í félagsheimili ÍSÍ. Sátu þingiff fulltrúar frá 6 héraffs- samböndum. Skýrsla. formanns um starfið á liðnu ári bar það með sér að mikið hefur verið starfað. Gat hann í upphafi fastanefnda sam- bandsins og starfa þeirra. S bandið hefur leitazt við, sagði form. að hafa náið samband viö sambandsaðila, en þeir hafa ver- ið mjög mismunandi árvakir. Vantar mjög upp á að þeir skili tilskildum skýrslum og fór form. hörðum orðum um þá menn er taka að sér trúnaðarstörf, en sinna þeim slœlega. f sambandi við útbreiðslustarf - ið minntist form. á íþróttadagir.n og norraenu unglingakeppnina. Hvað hann það gleðilegt að þátt- takendum í „keppni“ íþróttadags ins hefði í sumar fjölgað úr 658 árið 1955 í 1540. 21 MET Form. ræddi um mót sambands ins og gat þess að sett hefðu ver- ið 21 met á árinu, þar af 4 inn- anhússmet. Svavar Markússon setti 6 þeirra, Valbjörn Þorláks- son 4, Hilmar Þorbjörnsson og Vilhjálmur Einarsson 2 hvor, Sig- urður Guðnason og Stefán Árna- son eitt hvor. Boðhlaupssveitir settu 5 met. Utanferðir frjálsíþróttamanna á árinu voru til Búkarest, til Dresden, á lögreglumeistaramót Norðurlanda haldið í Danmörku auk landskeppnanna í Danmörku og Hollandi. Einn flokkur erl. frjálsíþróttarnanna keppti hér á landi, flokkur frá Bromma í Stokkhólmi. STERKT LANÐSLIÐ Formaður gat þess í skýrslu sinni, að nú hefði tekizt að byggja upp sterkt landslið og vinna ísl. frjálsíþróttamönnum aftur álit erlendis. Starfið inn á við hefur, því miður, ekki tekizt jafnvel og er ýmsu um að kenna. Ef nægilegt fé væri fyrir hendi, væri lyíæiti^* IMÍelbouirEie íslcnzku Olympíukeppendurnir tveir eru nú komnir til Mel- boume. Búa þeir sig nú undir keppni, en „þeirra“ grcinar verða 23. og 26. nóv. — Hér sést Vil- hjálmur í þristökki. hægt að komast lengra í út- breiðslustarfinu með því að hafa fastan umferðakennara og erind- reka og með því að halda þjálf- unarnámskeið, víðs vegar um landið. Niðurlagsorð skýrslunnar voru þessi: Vinnið hver og einn að útbreiðslu og eflingu íþróttagrein ar ykkar. Hér er þörf fyrir hvern mann, sem vinna vill íþrótta- hreyfingunni, annað hvort sem virkur þátttakandi í keppni, sem starfmaður eða sem stuðnings- maður á annan hátt. Stjórnarkjör fór þannig, að Brynjólfur Ingólfsson var endur- kjörinn form., en aðrir í stjórn voru endurkjörnir Lárus Hall- dórsson, Guðmundur Sigurjóns- son og Gunnar Sigurðsson og 5 maður var kjörinn Þórhallur Guðjónsson Keflavík. Sú breyt- ing var gerð á skipan stjórnar- innar á þinginu að formönnum laga- og leikreglanefndar og út- breiðslunefndar er ætlað að sitja í aðalstjórn sambandsins. Þeir eru Jóhann Bernhard og Bragi Friðriksson. Verður að segja að stjórnar- kjör hafi tekizt heldur óheppi- lega, ekki það að stjórnarmenn séu ekki nýtir starfsmenn, held- ur er meirihluti sambandsstjórn- arinnar framámenn í einu og sama íþróttafélaginu. Slíkt þarf ekki að koma að sök, en er oft ástæða tortryggni og efasemda. Margar tillögur Iágu fyrir þing inu og verður þeirra getið síðar. Glcesilegt íþrótfasvœöi Sundsvaeffiff í Melboume er nýbyggt. Þaff þykir eitt glæsilegasta sundsvæffi sem til er í heiminum. Líklegt að Danir komi til lands- keppni í irjdlsiþrdttum 1957 ÞAÐ leikur vart á því vafi, að landskeppnirnar 1955 og 1956 hafa átt drjúgan þátt í að þoka frjálsíþróttum á íslandi upp úr öldudalnum, sem þær höfðu verið í þrjú næstu árin á undan, 1952—1954. Hitt er annað mál, að þessar • keppnir hafa kostað sambandið mikið fé og enda þótt takist að 1 rr ei§a m Korðurlandamet í „frjálsum Tugþrautarmef Arnar Clausen bætt ING forystumanna frjálsíþrótta á Norðurlöndum var haldið í Oslo dagana 27.—28. október 1956. íslendingar hafa ekki, sakir kostnaðar, sótt þessi þing tvö undanfarin skipti, og þótti þvi rétt að vera með nú, sér í lagi vegna þess, að á dagskrá var mál, sem beinlínis varðaði íslendinga, þ. e. tillaga Norðmanna um Norður- landarneistaramót í Helsingfors 1957, Oslo 1959 og Stokkhólmi 1961. Sótti formaður F.R.Í., Brynjólfur Ingólfsson, þingið fyrir íslands hönd. Skal drepið á örfá atriði, sem rædd voru eða afgreidd: Staðfest ný Norðurlandamet, m. a. afrek Vilhjálms Einarsson- ar, 15,83 i þrístökki, í Karlstad 6. okt. 1956 og metjöfnun Hilmars Þorbjörnssonar 21,3 sek. í 200 m, sett í Rotterdam 24. júlí 1956. — Síðan hefur Svíinn Jan Carlsson sett nýtt met 21,2 sek., en gamla metið, 21,3 sek., áttu 5 menn. Þá hefur Thorbjörn Lassenius, Finnlandi, bætt Norðurlandamet Arnar Clausen í tugþraut, með 6.991 stigi. Ákveðið að staðfesta norræn imglingamet. Ákveðið að samnorræna ung- lingakeppnin verði 1957 haldin dagana 8.—17. júrú (að báðum dögum meðtöldum) og keppt í: 100 m og 1500 m hlaupum, lang- stökki, stangarstökki, kúluvarpi og spjótkasti. — Danir stjórna keppninni að þessu sirmi. Mælt var með, að meistaramót hinna fimm landa yrðu haldin dagana 16.—19. ágúst. Þá er tal- ið heppilegt að tugþrautin yrði í júlí, en tugþrautarmeistaramót Norðurlanda, sem haldið verður í Stokkhólmi, þá væntanlega 14.—15. september. Samræming keppnisreglna fyr- ir unglinga og drengi. Samvinna um alþjóðamót. í sambandi við umræður um þetta mál fór fulltrúi F. R. í. þess á leit, að það yrði þegar næsta ár tekið til athugunar, að þegar fenginn væri flokkur íþróttamanna frá Bandaríkjunum til keppni á Norðurlöndum, kæmi hann við á íslandi á vestur- eða austurleið. Var þessu vel tekið og hét fulltrúi Oslo-félaganna, sem hafa með þessi mál að gera, að ræða þetta mál við fulltrúa hinna landanna, er þeir hittast, í byrjun janúar. NORBURLANDA- MEISTARAMÓT Eins og við var að búast var þetta höfuðmál þingsins. Norð- menn höfðu framsögu (Arne B. Mollén, fyrrv. form. N.F.F.) og Danir og form. F.R.Í. studdu sjónarmið Norðmanna. í tillög- unum er gert ráð fyrir að 50 keppendur fái ókeypis ferðir og uppihald en 50% af hagnaði renni til þess lands, sem heldur mótið. Svíar og Finnar töldu útilokað að byi’ja næsta ár og virtust hafa takmarkaðan áhuga, en þó var að lokum samþykkt að vinna áfram að málinu með það fyrir augum, að fyrsta mótið yrði í Helsingfors árið 1959. Handknattleiks- stnlkni keiðrað- ar ÍSÍ S.L. MIÐVIKUDAG hélt fram- kvæmdastjórn ÍSÍ, kaffisamsæti fyrir stúlkur þær, sem kepptu fyrir íslands hönd í landsleik í handknattleik við Norðmenn og tóku þátt í Norrænu meistara- keppninni í handknattleik í Finn- landi á s.l. sumri. Við þetta tækifæri sæmdi for- seti ÍSÍ stúlkurnar landsiiffsmerki ÍSf. Margar ræður voru fluttar og fór hófið hið bezta fram. Auk framkvæmdastjóra ÍSÍ og áðurnefndra stúlkna mætti stjórn Handknattleiksráðs Reykjavíkur í samsæti þessu. Körfuknattleíkai ÍR HEFUR haft körfuknattleik á stefnuskrá sinni i nokkur ár og hefur verið mikið fjör í starf- seminni, m.a. er ÍR íslandsmeist- ari í karlaflokki. Konur hafa lítið sem ekkert iðkað körfuknattleik enn sem komið er, en nú hefur stjórnin ákveðið að reyna að koma lífi í körfuknattleik kvenna. Verður æft * tvisvar í viku í ÍR-húsinu kl. 'IVz til 8V2 á mánudags- og miðvikudagskvöldum. Kennari er frú Hrefna Ingimarsdóttir. Allir sem iðkað hafa körfuknatt- leik ljúka upp einum munni um það, að leikurinn sé mjög skemmtilegur og má því fastlega reikna með því að fjölmennt bjarga fjármálunum, með hjálp velviljaðra aðila, er Ijóst, að ekki verður ár eftir ár höggvið í þann sama knérunn. Vegna fjarlægð- ar frá öðrum löndum er hætt við að erfitt verði að fá landskeppn- issamband á jafnréttisgrundvelli, þ.e. tveggja ára gagnkvæmt sam- komulag þar sem báðir aðilar taka þátt í kostnaði á sama hátt. Flest önnur lönd eiga nágranna, sem fá má til keppni með minni tilkostnaði en íslendinga og eru þar að auki svo fjölmenn ríki, að engin skömm er að tapa fyrir þeim. Er formaður F.R.Í. var í Oslo nú nýlega á þingi norrænna frjáls íþróttaleiðtoga, ræddi hann þessi mál við fyrirsvarsmenn hinna Norðurlandanna. Finnar buffust, eins og áffur, til að kosta B-Iið sitt til Kaup mannahafnar eða taka viff is- lenzku landsliffi þar. Dauir gátu ekkert sakir féleysis, hve fegnir sem þeir vildu. Varff þó aff ráffi að fastsetja fyrst um sinn dagana 10.—12. júlí fyrir landskeppni milli íslendinga og Dana í Reykjavík. Hins- vegar var engu slegið föstu um þetta mál. Jákvæðar voru undirtektir Norðmanna. Formaður F.R.Í. stakk upp á því við formann N. F.F., Aage Möst, að hann beitti sér fyrir keppni milli Vestur- Noregs og íslands eða þá bæja- keppni milli Reykjavíkur ann- ars vegar og Bergen/Haugesund/ Stavanger hins vegar. Leizt Möst mjög vel á þetta og taldi líkur til að þeir vestanfjalls yrðu þessu hlynntir. Var talað um keppni í Bergen 1957 og mót í Haugesund og Stavanger. Myndu Norðmenn sennilega greiða flugferðir og uppihald, en ef íslendingar legðu eitthvað fram af ferðakostnaði, myndu Norðmenn greiða sama 1958, er keppnin færi fram i Reykjavík. Væri þessi keppni mikill feng- ur fyrir frjálsíþróttalíf á íslandi og er óskandi að af henni gæti orðið. Hitt, að borga alltaf með sér, eins og við höfum þurft hjá Dönum og Hollendingum, getur vitaskuld ekki gengið til lengd-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.