Morgunblaðið - 13.11.1956, Side 19
f>rISjudagur 13. nóv. 1956
morcvnblaðið
19
Ríkið greiði þrjá fjórðu hlufa
sfofnkosfn. kirkjubygginga
Samþykktir Hins almenna kirkjufundar
HINN almenni kirkjulundur
1956 var haldinn dagana 20.—22.
okt. s.l. Voru þar g'erðar eftir-
farandi samþykktir:
1. KIRKJUBYGGINGAR
Hinn almenni kh-kjufundur,
sem haldinn er í Reykjavík dag-
ana 20.—22. október 1956, skorar
fastlega á ríkisstjóm og Alþingi
að koma því til leiðar, að sett
verði löggjöf um kirkjubygging-
ar í þjóðkirkjunni, þar sem rík-
inu sé gert að skyldu að stand-
ast kostnað við þær að % hlut-
um (stofnkostnaðar) móts við
hlutaðeigandi söfnuði, er greiði
kostnaðinn að öðru leyti og ann-
ist viðhald, samkvæmt nánari
reglum, er um það yrðu settar.
2. BYGGINGASTYRKUR
Hinn almenni kirkjufundur,
haldinn í Reykjavík dagana 20.—
22. okt. 1956, skorar á hið háa
Alþingi að leggja að minnsta
kosti 2 milljónir króna í kirkju-
byggingarsjóð á fjárlögum næsta
árs. Verði eigi minni fjárhæð
lögð árlega í þann sjóð, þar til
Alþingi hefur samþykkt ný lög
um aðstoð og framlög til kirkju-
bygginga.
3. FÉLAGSHEIMILASJÓÐUR
Hinn almenni kirkjufundur
1956 telur tvímælalaust, að allir
löggiltir söfnuðir landsins eigi
að hafa rétt til styrks úr Fé-
lagsheimilasjóði til bygginga
safnaðarfélagsheimila og safnað-
arhúsa, þar sem skilyrði séu til
ýmiss konar félags- og tóm-
stundastarfs á vegum safnað-
arins.
Treystir fundm’inn biskupi og
kirkjumálaráðherra til þess að
tryggja söfnuðum þann rétt.
4. SKATTFRELSI GJAFA
Á öllum öldum og meðal allra
trúarsamfélaga hefur það verið
sjálfsögð venja, að menn færðu
guði sínum að fóm nokkum
hluta afla síns eða uppskeru.
Hinn almenni kirkjufundur
1956 telur það því eðlilegt, að
mönnum sé heimilt að gefa til
kirkjulegrar starfsemi allt að
tíund tekna sinna, án þess að
þurfa að greiða skatta af þeirri
upphæð. Skorar fundurinn á Al-
þingi að gera slíkar fórnir skatt-
frjálsar, svo sem þegar tíðkast
um nokkrar aðrar gjafir til al-
menningsheilla.
5. KIRKJUGARÐAR
Hinn almenni kirkjufundur
1956 skorar á kirkjustjómina að
tryggja betur en gert er viðhald
og verndun kirkjugarða.
*
6. HALLGRÍMSKIRKJA
Hinn almenni kirkjufundur
1956 lítur svo á, að bygging Hall-
grímskirkju á Slcólavörðuholti
varði ekki aðeins hlutaðeigandi
söfnuð heldur einnig Reykjavík-
urbæ og ríkið. Þess vegna þurfi
þessir aðilar að skipa sameigin-
lega nefnd, er vinni að fram-
kvæmd þessarar kirkjubygging-
ar.
7. STÖHVUN SORPRITA
Hinn almenni kirkjufundur
1956 skorar á hlutaðeigandi yfir-
völd og allan almenning að
hindra eftir föngum innflutning,
útgáfu, sölu og lestur sorprita,
erlendra og innlendra.
8. LEIKMANNASTARF
Hinn almenni kirkjufundur
1956 telur brýna þörf á almennri
og öflugri leikmannastarfsemi í
öllum söfnuðum landsins í lík-
ingu við það, sem tíðkast í ná-
grannalöndum vorum.
Fundurinn hvetur sóknarpresta
og safnaðarstjórnir til að beita
sér fyrir þessu máli og heitir á
biskup landsins og stjómamefnd
kirkjufunda að veita þeim stuðn-
ing iil þess eftir getu.
9. KIRKJUSÖNGUR
Hinn • almenni kirkjufundur
telur nauðsynlegt að efla söng í
guðsþjónustum, annars vegar
með almennum safnaðarsöng í
sálmum og messusvörum, og hins
vegar með fögrum flutningi
kirkjulegra kórlaga, er söng-
flokkur annast.
Til eflingar almennum safn-
aðarsöng telur fundurinn nauð-
syn að reyna ýmsar leiðir, t. d.
að kórinn leiði sönginn einradd-
að, að hafa stutta söngæfingu
með söfnuðinum að lokinni
messu o. s. frv.
&
10. ÆSICULÝÐSSTARF
Hinn almenni kirkjufundur
1956 telur nauðsynlegt að stór-
auka félags- og leiðbeiningastarf
á vegum kirkjunnar meðal barna
og unglinga. Telur kirkjufundur-
iim, að við byggingu nýrra kirkna
verði að ætla slíkri starfsémi
hentugt rúm.
11. SAMSTARF PRESTA
OG KENNARA
Hinn almenni kirkjufundur
1956 telur, að samvinna kennara
og presta sé svo mikilvæg, að
full ástæða sé til að efna þar til
aulcinna skipulegra samtaka eftir
því sem bezt hentar í hverju
prófastsdæmi.
Beinir fundurinn þeim tilmæl-
um til forustumanna þessara
stétta, að þeir athugi möguleika
á sem nánastri samvinnu um
kristindóms- og siðgæðismál.
12. ÚTVARP
Á GUBSÞJÓNUSTUM
Hinn almenni kirkjufundur
1956 felur stjómarnefnd kirkju-
fundanna að leitast við að fá
guðsþjónustur presta sem víðast
af landinu teknar á segulband til
flutnings á helgidögum í ríkis-
útvarpinu, svo að sem flestum
gefist kostur að hlýða á slíkar
messugjörðir.
Kirkjufundurinn kaus sérstaka
millifundanefnd til að gera til-
lögur um verndun og viðhald
hvers konar kirkjuminja.
í nefndinni eru: Gísli Sveins-
son, fyrrum sendiherra; Ásmund-
ur Guðmundsson, biskup; sr. Jón
M. Guðjónsson, sóknarprestur á
Akranesi; Kristján Eldjárn, þjóð-
minjavörður; Ólafur B. Björns-
son, ritstjóri á Akranesi.
Raksturinn er liægðarleikur einn
með Bláu Gillette Blöðunum, sér-
staklega eí Gillette rakvél er
líka notuð. Ennþá er en«in
I STJÓRNARNEFND
Hinna almennu kirkjufunda
eiga nú sæti þessir menn:
Aðalmenn: Gísli Sveinsson,
fyrrv. sendiherra, formaður; dr.
Ásmundur Guðmundsson biskup;
sr. Þorgrímur Sigurðsson, vara-
formaður; sr. Sigurbjöm Á. Gísla
son; Páll Kolka héraðslæknir;
sr. Sigurjón Guðjónsson prófast-
ur; Sigurbjöm Þorkelsson for-
stjóri.
Varamenn: Ólafur B. Björns-
son ritstjóri; dr. med. Árni Árna-
son; sr. Jakob Einarsson prófast-
ur; sr. Pétur Sigurgeirsson; sr.
Þorsteinn Bjömsson fríkirkju-
prestur; sr. Hannes Guðmunds-
son; Gísli Jónasson skólastjóri.
— Grein
Stangerups
Frh. af bls. 8.
Heimurinn, hinn víðáttumikli
heimur er góður, ef menn ná
tangarhaldi á honum — í stað
þess að farast í vangaveltum sín-
um, en það var höfuðgallinn við
Dani. Að dómi Jóhannesar V.
Jensens höfðu þeir allir, Thomas
Friis, William Höeg og Jóhannes
Jörgensen, ofurselt sig hugleið-
ingum sínum.
rakstursaðferð sambærileg við
GiRettc.
Kaupið Bláu Gillette Blöðin í hylkjunum.
>ér getið notað Gillette Blöðin í allar rak-
vélar, en Gilette „Rocket“ rakvélin tryggir
fljótasta raksturinn og kostar með blöðura
Kr. 37.00.
Gillette
tryggir fljótasfan raksturinn
★ „INNGANGUR AÐ ÖLD
VORRl“
Árið 1914 leggur Jóhannes
V. Jensen enn upp í langferða-
lag. Hann lýsir ferðalaginu í
bréfum til danskra blaða. Það
er ekki ætlun hans, skrifar
hann hæðnislega, að „finna til-
gang tilverunnar“, náttúru-
hyggjan liefir fyrir löngu lagt
undir sig sérhverja mögulega
skýringu. Nei: Jóhannes V.
Jensen ætlar að gefa heildar-
mynd af heimi nútímans, þess-
um guðlausa heimi, sem er
fullur af dásemdum og skap-
andi atorku. Greinarnar birt-
ust undir áberandi fyrirsögn:
„Inngangur að öld vorri.“ En
þcgar fcrðalagið stóð sem hæst
og nokkrar greinanna höfðu
birzt, brauzt fyrri heimsstyrj-
öldin út.
Hakon Stangerup.
Set upp púða
Sauma skerma
Þær, sem hafa beðið mig fyr
ir verkefni, gjöri svo vel að
koma scm fyrst.
Sigríður Heiðar
Norðurmýrarbletti 33.
(Á móti Þóroddsstöðum).
Globus h/f. Hverfisgötu 50. Sími: 7148. s
Til leigú 120 fermetra
Verslunarpláss
í nýju húsi, sem er í byggingu, en verður tilbúið með
vorinu. Húsið stendur við eina af mestu umferðargötöum
bæjarins. Tilvalið fyrir kjöt- og nýlenduvöruverzlanir.
Mikil fyrirframgreiðsla áskilin. Tilboð leggist inn á afgr.
Morgunbl. fyrir föstudaginn 16. þ. m. merkt: „Verzlanir
— 3302“.
Vélstjórafélay Islands
Aðalfundur
félagsins verður haldinn föstudaginn 16. nóv. 1956 kl.
20,00 í Höll (Caíé & Restaurant), uppi, Austurstræti 3.
Aðalfundarstörf og önnur mál.
Stjórnarkosningu lýkur 2 dögum fyrir aðalfund.
Skilið atkvæðaseðlum. — Mætið stundvíslega.
Stjórnin.
skóibijð mKMMwmm
Aðalstr. 8, Lawgv. 20, Laugv. 38, Snorabr. 38, Garðastr. 6
N ý k o m n a r
KVENTOFFLUR
grænar, bláar, rauðar og drapplitar.
rnrnmmm