Morgunblaðið - 13.11.1956, Page 20

Morgunblaðið - 13.11.1956, Page 20
20 MORCTJNBLAÐIÐ Þriðjuefagur 13. nðv. 1956 \GOODBYE. jÍHEV, DOPE J...DONT GET ' :RJ SWEET- / IN THAT WAY...PUT VOUR. y HEART... S.HANDS ON THE GUNNELS fAOM/WY WILL ) AND STEP IN THE . BE THINKING / MIDDLEJ x* ABOUT YOU . A p------ EVERY NIGHT !pV^-------' KELVINATOR ★ Rúmgóð og örugg mat- vælageymsla. LOUIS COCHRAN: SONUR HAMANS Framhaldssagan 74 frá fæðingardeginum, með svo sítt, liðað hár. Það eru ekki mörg börn, sem fæðast með hár á höfð- inu, Lije“. Lije ók sér eirðarleysislega í stólnum. „Já, ég veit það. En segðu mér bara eitt ennþá. Hvað heitir pabbi?“ Enda þótt hann reyndi að tala kæruleysislega, varð rödd hans hörð og hljómlaus og móðir hans leit til hans næstum hræðslu- lega, áður en hún lagfærði kodd- ann betur við bak sér og það var eins og hún kæmi ekki upp neinu orði. „Það skiptir engu máli“, svar- aði hún loks. „Smith er eins gott nafn og hvert annað. Þú gazt ekki borið nafn hans og ættfólk mitt var virðingarvert líka“. Hæðnishreimurinn í rödd henn ar varð ekki misskilinn. „Þess vegna nefndi ég þig Smith, Elijah Smith .... Og ég var frú Smith“, bætti hún við. Lije ýtti kaffibollanum til hliðar og barði hnefanum í borð- ið, til þess að gefa hinni skyndi- legu bræði útrós. „Ég vildi alveg eins heita Smith eins og Forten- berry, eða Malone, eða Jeff Davis eða eitthvað annað. En það sem ég vil fá að vita er nafn manns- ins. Það er það sem ég vil fá að vita undir eins“. Hann starði hvasst á móður sína, andlit hans var grimmdar- leg hefndargríma og hún hrökk frá honum, eins og hún hefði orð- ið fyrir höggi. „Hvaða máli skiptir það, Lije?“ Hún rétti hendina biðjandi í átt til hans. — „Hann er kvæntur. Þess vegna lét hann mig fara frá sér og hann hefur eignazt önnur börn. Jafnvel peningarnir, sem hann sendi mér í fyrstu, voru eitraðir, — loguðu í lófa mér. — En ég varð að taka við þeim. Nú viljum við ekkert af honum Þiggja." Lije reyndi til hins ýtrasta að stilla sig, settist aftur við borðið og fálmaði með höndunum niður í vasa sína í leit að tóbakstölu. Þegar sú leit bar engan árangur, reis hann á fætur, þreifaði upp á LTVARPIÐ Þriðjudagur 13. nóvember: Fastir liðir eins og venjulega. 18.30 íþróttir (Sigurður Sigurðs- son). 18,50 Þjóðlög frá ýmsum löndum. — 19,10 Þingfréttir. — 20.30 Erindi: Norðurljós; fyrra erindi (Eysteinn Tryggvason veð- ui'fræðingur). 20,55 Frá sjónarhól tónlistarmanna: Dr. Hallgrímur Helgason talar um islenzk þjóðlög. 21,45 Islenzkt mál (Ásgeir Blönd- al Magnússon kand. mag.). 22,00 Fréttir og veðurfregnir. — Kvæði kvöldsins. 22,10 „Þriðjudagsþátt- urinn“. Jónas Jónasson og Hauk- ur Morthens hafa umsjón hans á hendi. 23,10 Dagskrárlok. Miðvikudagur 14. nóvember: 12,50—14,00 Við vinnuna: Tónleik ar af plötum. 18,30 Bridgeþáttur (Eirikur Baldvinsson). — 19,00 Óperulög. 19,10 Þingfréttir. — Tónleikar. 20,30 Daglegt mál (Grímur Helgason kand. mag.). .20,35 Lestur fornrita: Grettis saga; I. 'Einar Ól. Sveinsson prófessor). 21,05 Einleikur á pía- nó (Guðmundur Jónsson). 21,45 Hæstaréttarmál (Hákon Guð- mundsson hæstaréttarritari). •— 22,00 Fréttir og veðurfregnir. — Kvæði kvöldsins. 22,10 „Lögin okk ar“. — Högni Torfason fréttamað ur fer með hljóðnemann í óska- lagaleit. 23,10 Dagskrárlok. MARKÚS Eftir Ed Dodd 1) Finnur: Vertu sæl, mamma og þakka þér fyrir að þú lofaðir mér að fara hingað. Frú Manley: — Vertu sæll, ást- in mín, mamma hugsar til þín á hverjum degi. 2) Tommi: — Gerðu þetta ekki svona, aulabárður. 3) Markús og hinir ungu fé- lagar hans halda áfram eftir ánni lengra inn í skóginn, njóta feg- urðar umhverfisins og heilnæm* útilífs. hilluna fyrir ofan arininn og tók þar vænan tókabsbita, sem hann hann beit hraustlega í. „Og, ég ætla mér ekki að gera honum neitt mein, mamrna", sagði hann og reyndi að tala stilli lega. — „Ég var bara forvitinn, eins og er ósköp eðlilegt. Hvaða atvinnu rekur hann?“ „Enga“. Svarið kom dræmt, eins og konan væri eitthvað við- utan. — „Enga. Hann hefur aldrei gert annað en að eltast við kven- fólk og eyða peningum. Hann á stóra plantekru, þar sem sykur er ræktaður og hefur aldrei þurft að gera neitt“. „Var hann í stríðinu?" „Já, hann barðist með Lee. Hann var þá í skóla, einhvers stað ar norður frá og kom aftur og barðist með Lee. Hann var höf- uðsmaður og fékk aldrei eina ein- ustu skeinu.“ Hún talaði með löng unarfullu stærilæti, eins og hún væri að seilast eftir einhverri hverfulli draumsýn og í rödd hennar var einhver grunntónn viðkvæmrar blíðu, sem ekki fór framhjá vakandi athygli sonar- ing. „Ég ætla mér að drepa hann“, hreytti hann út úr sér. Það skal enginn maður komast upp með það, að fara með móður mína eins og einhvern hund, — sparka henni fró sér, eins og aumustu negradækju." Móðir hans starði á hann, eins og hún heyrði ekki orð hans og hugur hennar var að méstu leyti á valdi æskuminninga. „Hann var myndarlegur maður“, tautaði hún eins og við sjálfa sig. — „Eg hefi aldrei séð neinn annan mann með jafnsvart, liðað hár og augun í honum voru blá. Djúp, blá augu. Þú hefur fengið augun hans pabba þíns, Lije, bara ofurlítið öðruvísi." „Ég hata þennan manndjöful". „Uss.“ Nú var það móðir hans sem rétti sig upp í rúminum, titr- andi alveg fram í yztu fingur- góma, og í augum hennar mátti greinilega lesa ákafa neitun um ákvörðun sonarins: — „Þú getur ekki talað svona og ég leyfi þér það aldrei. Það skiptir engu máli, hvað þér þykir. Hann er þó pabbi þinn. Hann er pabbi þinn og þú getur ekki gert honum neitt mein. Þú getur ekki gert honum neitt mein.“ Skyndilega varð rödd hennar biðjandi, vorkunnarverð í niður- lægingu sinni: — „Þú villt ekki gera honum mein, er það Lije? Þú vilt ekki gera föður þínum neitt mein? Og þar að auki“. Hún starði á hann í hálfrökkri herberg isins og sárt stunuhljóð braust fram af vörum hennar. — „Þar að auki veiztu ekki einu sinni hvað hann heitir." Eitt andartak starði Lije niður á veikbyggðu, lífsþreyttu konuna sem rýndi á hann votum augum og hann reyndi að gera rödd sína hranalega og harða, þegar hann svaraði: „Ó, jú. Ég veit það“, fullyrti hann. — „Hann heitir Smith. Kannske Haman Smith. Og hvað nú, ef konan hans er dáin? Hann vildi þá e. t. v. kvænast þér, — ef þú féllist á það.“ „Nei, ég kæri mig ekki um hann“, svaraði hún með ákafa. „Ég elska hann ekki, Lije. Ekki lengur. En ég hata hann ekki held ur. Þú, *— þú getur ekki skilið. Þú ert karlmaður. Og ég er hrædd. Þú myndir ekki vilja gera <4 ÁGOODBYE, GOODBYE, MOTHERj SWEET- AND THANKS ' ' AGAIN FOR. LETTING ME GO ALONG/ SO MARK AND HIS GANG PADDLE NORTHWEST AND ARE SOON LOST IN THAT BEAUTIFUL LAND OF SPARKLING STREAMS AND DARK, TRACKLESS FORESTS Höfum nú aftur fengiö hina vinsælu og eftirsóftu Hefir stærra frystirúm en nokkur annar kæli- skápur af smu stærð. ■Ar Er ek-ki aðeins falleg- astur, heldur líka ódýr- skápur af sömu stærð. ★ Kelvinator er sá kæli- skápur, sem hver hag- sýn húsmóðir hefir í eldhúsinu. — Verð kr. 7,450.0« — Skoðið og sannfærist. Gjörið svo vei að líta inn — Jfekla Ausmrstræti 14 — sími 1687. 8 rúmfet. Kelvinafor kœliskápa 8 rúmfeta Kelvinator kæliskápurinn rúmar í frystigeymslu 56 pund (lbs.) og er það stærra frystirúm en í nokkrum öðrum kæliskáp af sömu stærð — 5 ára ábyrgð á frystikerfi. Hillupláss er mjög mikið og haganlega fvrir komið. Stór grænmetisskúffa. — Stærð 8 rúmfeta Kelvinator. Breidd 62 cm. — Dýpt 72 cm. Hæð 136 cm. 8 rúmfet hörnin Rauðir og hvítir telpuskór úr skinni. Brúnir og ivartir drengjaskór. Lakkskér á telpur og drengi. Dragið ekki að kaupa jólaskóna á börnin. Austurstræti 12 ”

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.